Þjóðviljinn - 12.11.1987, Qupperneq 15
ERLENDAR FRETTIR
Leiðtogafundur Araba
Engar refsiaögeröir
gegn írönum
Fjögurra daga leiðtogafundiArababandalagsins lauk í gær.
Fordæmir stríðsrekstur Irana
Atoppfundi Arabaleiðtoga sem
lauk í Amman í gær var sam-
þykkt að fordæma Irani fyrir að
leggja undir sig landssvæði íraka.
Lýst var yfir stuðningi við Kúvæt
og írak, en engar refsiaðgerðir
gegn írönum voru samþykktar.
Fundurinn var haldinn í því
augnamiði að leita leiða til að
stöðva stríð írana og íraka, en
það hefur nú staðið í sjö ár. Jafn-
framt vildu fundarmenn koma í
veg fyrir að stríðsreksturinn
breiddist út til grannríkjanna. Þá
var samþykktur stuðningur við
friðarráðstefnu í Mið-Austur-
löndum.
Ekki náðist samstaða um hvort
Egyptar ættu að fá inngöngu í Ar-
ababandalagið á nýjan leik, en
samkvæmt yfirlýsingu fundarins
er einstökum ríkjum frjálst að
lappa upp á samskiptin.
Sýrland og Lýbía beittu sér
gegn inngöngu Egypta, en þeim
var vísað á brott árið 1979 eftir
friðarsamninga við ísraelsmenn.
Bandaríkin
Dómaradans
Reagan ekki afbaki dottinn ídómaraútnefn-
ingum. Núna heitir kandídatinn Kennedy
Kenncdy dómari er fulltrúi alls
hins besta í bandarísku rétt-
arfari. Það orð fer af honum að
hann sé réttlátur en jafnframt
strangur dómari sem virðir lögin,
sagði Ronald Reagan Bandaríkj-
aforseti hvergi banginn er hann
tilkynnti enn eina útnefninguna
til Hæstaréttar landsins með
skjólstæðinginn sér við hlið.
Reagan kallaði kandídatinn
„sannan íhaldsmann" og sagði að
bandarísk yfirvöld hefðu farið
rækilega ofan í saumana á lífs-
hlaupi hans.
Líklegt er talið að Kennedy
dómari njóti allnokkurs stuðn-
ings meðal demókrata jafnt sem
repúblikana í Öldungadeild
Bandaríkjaþings, en stuðningur
deildarinnar þarf að koma til.
Níu dómarar skipa Hæstarétt.
Eftir að Powell sagði af sér fyrr á
árinu er skiptingin jöfn milli
íhaldssamra og frjálslyndra dóm-
ara, og því er Reagan í mun að
níundi maðurinn hafi „réttar“
skoðanir. Hæstaréttarviðbótin
hefur þó gengið mjög á afturfót-
unum eins og kunnugt er af frétt-
um; fyrst útnefndi forsetinn Ro-
bert Bork til starfans en Öld-
ungadeildin hafnaði honum
vegna erkiafturhaldssamra
skoðana á ýmsum málum.
Næsti kandídat var Ginsburg
sá sem grasið reykti. Sú neysla
varð honum að fótakefli og hefur
ýmsum þótt nóg um þær lyktir
mála; milli 60 og 70 milljónir
Bandaríkjamanna hafa nú einu
sinni reykt gras um ævina.
HS
í kjölfar þeirra atburða slitu flest
Arabaríki tengsl við Egypta, en
eftir leiðtogafundinn núna er
írak og hin íhaldssömu Persaflóa-
ríki ráðin í að endurvekja þau.
Málefni Palestínumanna voru
til umræðu á fundinum, og að
frumkvæði Hússeins Jórdaníu-
kóngs var samþykkt að hvetja til
alþjóðaráðstefnu á vegum fasta-
fulltrúa Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Fulltrúi PLO á að eiga
setu á slíkum fundi, en þann veg
opnast möguleiki á friðsamlegri,
réttlátri og endanlegri lausn
deilnanna milli Araba og ísraels-
manna, segir í samþykktinni.
Toppfundurinn fordæmdi
hverskonar terrorisma en lagði
áherslu á þann rétt þjóða að berj-
ast fyrir sjálfstæði, frelsi og sjálf-
sögðum réttindum.
Um Líbanon segir í samþykkt
fundarins að hörmungarástandið
þar undanfarin tólf ár hafi haft
alvarlegar afleiðingar í för með
sér, og að arabaríkin muni vinna
að því að ástandið færist í eðlilegt
horf. Forseti Líbanon, Amin
Gemayel, fór fram á 168 milljón
dollara neyðaraðstoð, en ekki er
minnst á afdrif þeirrar málaleit-
anar í samþykkt fundarins.
Leiðtogafundur Arababanda-
lagsins stóð í fjóra daga, og oft
stóðu umræður fram á rauða
nótt. Þar munaði mest um að
bandamenn fraka í stríðinu við
íran reyndu allt hvað þeir máttu
til að fá Sýrlendinga til að styðja
víðtækar refsiaðgerðir gegn ír-
önum, en af því varð ekki. Heim-
ildir á Sýrlandi segja að úrslit
fundarins muni litlu breyta um
samskipti Sýrlendinga og
stjórnvalda í Teheran. HS
Kim Dae Jung forsetaframbjóðandi i Suður-Kóreu leggur áherslu á betri sam-
skipti við grannann í norðri og hefur sameiningu Norður- og Suður-Kóreu að
langtímamarkmiði.
KimDaeJung
Sameinuð Kórea
Kim Dae Jungforsetaframbjóðandi stingur
upp á leiðtogafundi beggja kóreönsku ríkj-
anna
Kim Dae Jung, andstöðuleið-
togi í Suður-Kóreu, hefur
hvatt til þess að leiðtogar beggja
kóreönsku ríkjanna haldi með sér
fund og ræði friðsamlega
sambúð. Slíkan fund sér hann
sem fyrsta skref í þá átt að sam-
cina landið í eitt ríki.
Kim er í framboði í forseta-
kosningunum sem haldnar verða
í næsta mánuði. og í gær sagði
hann á fréttamannafundi að ef
hann yrði kjörinn forseti myndi
hann beita sér fyrir sameiningu
Kóreu. „Slíkri sameiningu má ná
í áföngum," segir hann. „Fyrsta
skrefið er friðsamleg sambúð, hið
næsta aukið samstarf, og loka-
stigið er síðan friðsamleg samein-
ing.“
Kim hvetur til friðarsamninga,
en formlega eiga ríkin tvö enn í
Kóreustríðinu, og er vopnahlés-
samningur í gildi milli þeirra.
Kim Dae Jung er þekktastur
suður-kóreanskra andófsmanna.
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa
borið á hann lof og segja hann
lýðræðissinnaðan. Kim hefur þó
látið sér fátt um finnast og sakar
norðanmenn um að reyna að
nota sig í áróðursstríðinu gegn
Suður-Kóreu.
Friðaráætlunin hefur mælst illa
fyrir hjá stjórnvöldunum, sem
saka Kim um að vera handbendi
kommúnismans. Þá segja þau að
tillögur hans endurómi áróður
Norður-Kóreumanna.
Kim lætur stjórnina ekki eiga
neitt hjá sér. Hann sakar forset-
ann, Chun Doo Hwan, um að
gera sig og annað lýðræðislega
sinnað fólk tortryggilegt, sem og
alla þá sem berjist gegn hernað-
areinræðinu í landinu.
Næstum tvær milljónir her-
manna eru nú á 240 kílómetra
löngum landamærum ríkjanna
sem hafa skipt Kóreuskaganum í
tvennt síðan í styrjaldarlok.
HS
SKÁK
Umsjón: Helgi Ólafsson
Tilþrifalítið Jafntefli í Sevilla
Tólfta skákin í heimsmeistara-
einvíginu var tefld í gær og lauk
með jafntefli eftir 21 leik. Kasp-
arov hafði hvítt og tefldu þeir fé-
lagar drottningarbragð, en sú
byrjun hefur komið mjög við
sögu í þeirra einvígjum, en í gær
tefldu þeir drottningarbragð í
fyrsta skipti í því einvígi sem nú
stendur yfir.
Það var greinilegt að Karpov
kom vel undirbúinn til leiks.
Hann jafnaði taflið án nokkurra
erfiðleika.
Eftir 21. leik bauð Kasparov
jafntefli í stöðu sem má heita ó-
tefld. Það eru engir veikleikar í
svörtu stöðunni og í rauninni ekki
um neina varíanta að ræða.
Hvítt: Kasparov.
Svart: Karpov.
1. c4-e6
Suðurnesjamótið
Hart barist í Stapanum
Jóhann Pórir: Hannes Hlífar, Björgvin og Þröstur í námunda við titlana
- Það er talsverð barátta í mót-
inu og hún fer mjög vaxandi eftir
því sem umferðunum fjölgar,
sagði Jóhann Þórir, mótsstjóri á
alþjóðlega skákmótinu á Suður-
nesjum sem nú fer fram í Stapan-
um.
- Ég er mest að horfa á ungu
mennina, Hannes Hlífar Stefáns-
son, Björgvin Jónsson og Þröst
Þórhallsson, enda er tilgangurinn
með þessum mótum að gefa þeim
tækifæri til að ná alþjóðlegum
áföngum, og þessir þrír eiga góða
möguleika á því, sagði Jóhann
Þórir, en hann á öðrum fremur
heiðurinn af alþjóðaskákmótum
þeim sem haldin hafa verið að
undanförnu vítt og breitt um
landið.
Fjórða umferðin var tefld í
gær. Björgvin Jónsson vann
Finnann Pyhála, Sigurður Daði
Ágústsson og Jacobs gerðu jafn-
tefli. Þá vann Helgi Ólafsson Jó-
hannes Ágústsson í æsilegri skák,
en Davíð Ólafsson tapaði fyrir
Norwood.
Hannes Hlífar Stefánsson og
Weldon áttust við og lauk þeirri
viðureign með sigri Hannesar.
Skák Þrastar Þórhallssonar og
Guðmundar Sigurjónssonar fór í
bið.
Hannes Hlífar Stefánsson hef-
ur fengið fljúgandi start á þessu
móti. Hann er nú í efsta sæti með
3.5 vinninga eftir fjórar umferðir.
Næstur kemur Björgvin Jónsson
með 3 vinninga og þá Helgi Ól-
afsson með 2.5 vinninga og eina
frestaða skák.
Jacobs er með 2.5 vinninga. Sá
síðbúni Norwood 2 vinninga og
tvær frestaðar skákir. Þröstur
Þórhallsson er með tvo vinninga,
eina frestaða skák og eina bið-
skák.
Frestunar- og biðskákaskógur-
inn verður grisjaður á morgun en
ekki teflt að öðru leyti. Þá kemur
í ljós hvort Hannes Hlífar situr
einn að efsta sætinu.
HS
2. Rc3-d5
3. d4-Be7
4. cxd5-exd5
5. Bf4-Rf6
6. e3-Bf5
7. Rge2-0-0
8. Hcl-c6
9. Rg3-Be6
10. Bd3-He8
11. Db3-Db6
12. Dc2-Rbd7
13. 0-0-g6
14. h3-Bf8
15. Rge2-Hac8
16. Dd2-Rh5
17. Bh2-Rg7
18. g4-Dd8
Frá Æfinga-
og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands
Starfsmaður óskast vegna fyrirhugaðra tilrauna
með nám fatlaðra barna í almennum bekk.
Til greina kemur sérkennari, kennari með reynslu
af kennslu fatlaðra barna, þroskaþjálfi og sér-
menntuð fóstra. Um er að ræða 2/3 úr starfi á
yfirstandandi skólaári. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf nú þegar.
Upplýsingar gefur skólastjóri Æfingaskólans í
símum 84565 og 44837.
19. 13-Rb6
20. b3-Ba3
21. Hc2 - jafntefli.
baM
Hii 4
flMMri
iHi
m m
■JUI.iL
mrn i lÉi ÍH!
abcdefgh