Þjóðviljinn - 12.11.1987, Page 19
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppni
Danmörk og England í úrslít
Danmörk, England og írland
komust í gær í úrslit í Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu. Af
þessum þjóðum voru það reyndar
aðeins Englendingar sem léku. Þeir
sigruðu Júgóslava, 4-1, en Danir og
írar urðu að treysta á aðrar þjóðir.
England vann sinn fyrsta sigur
yfir Júgóslavíu á útivelli, 4-1. Öll
mörk Englands komu á fyrstu 25
mínútunum.
Peter Beardsley náði forystu'nni
á 4. mínútu eftir varnarmistök,
John Bames bætti öðru markinu
við úr aukaspyrnu í miðjum vítateig
á 17. mínútu. Bryan Robson
skoraði þriðja markið þremur mín-
útum síðar eftir hornspyrnu og
Tony Adams gerði endanlega útum
leikinn á 25. mínútu. Júgóslavar
náðu að klóra í bakkann í siðari
hálfleik með marki frá Sreckok
Katanec.
N-írland sigraði Tyrkland í sama
riðli, 1-0 í gær.
Staðan í 4. riðli:
England.............6 5 10 19-1 11
Júgóslavía..........5 3 0 2 10- 7 6
N-lrland............6 1 1 4 2-10 3
Tyrkland............5 0 2 3 0-13 2
Danir biðu í ofvæni eftir úrslitum
úr leik Tékkóslóvakíu og Wales.
Með tékkneskum sigri kæmust
Danir áfram. Tékkar brugðust ekki
og sigmðu, 2-0 og „Danska dýna-
mítið" komið í úrslit.
Ian Rush fékk mörg dauðafæri.
en var einstaklega óheppinn. Sigur
hefði nægt Wales til að komast í
úrslit.
Ivo Knoflicek náði forystunni
fyrir Tékka á 32. mínútu og Michal
Dilek bætti öðru marki við á síð-
ustu sekúndunum.
Lokastaðan í 6. riðli:
Danmörk............6 5 2 1 4-2 8
Tékkósl............6 2 3 1 7-5 7
Wales..............6 2 2 2 7-5 6
Finnland...........6 114 4-10 3
írar voru í sömu aðstöðu og Dan-
ir. Þeir þurftu að treysta á að
Skotar sigruðu Búlgaríu. Það hafð-
ist, en ekki munaði miklu. Vara-
maðurinn Gary McKay skoraði
sigurmark Skota á 87. mínútu.
Jack Charlton, þjálfari íra, hét
Andy Roxburgh, þjálfari Skota,
kassa af kampavíni og havanavindl-
um ef Skotar sigruðu og mun án efa
standa við það.
í gær léku einig í 7. riðli nágrann-
arnir Belgía og Luxumberg. Belgía
vann öruggan sigur, 3-0.
Staðan i 7. riðli:
Irland............8 4 3 1 10-5 11
Búlgaría..........8 4 2 2 12-6 10
Belgía............8 3 3 2 16-9 9
Skotland..........7 3 2 2 7-5 8
Luxemburg.........7 0 0 7 2-23 0
Einn leikur var í 5. riðli. Pólverj-
ar sigruðu Kýpur, 1-0.
Nú hafa sex lið tryggt sér sæti í
úrslitakeppninni. Sovétríkin, Hol-
land, Danmörk, England, Wales
og Irland, auk gestgjafanna, V-
Þjóðverja. Þó er enn óljóst með
Hollendinga vegna óláta áhorfenda
í leik þeirra gegn Kýpur.
-lbe/Reuter
Kvennahandbolti
Glæsilegur
Stjörnusigur
Stjarnan vann öruggan sigur yfir
Víking í 1. deild kvenna í gær, 21-
15. Þetta var einn besti leikur
Stjörnunnar í vetur, en það var fátt
sem gekk upp hjá Víkingsstúlkum.
Stjarnan var yfir allan tímann, en
munurinn var ekki mikill framan
af. í hálfleik var staðan 11-8,
Stjörnunni í vil.
Stjarnan gerði útum leikinn í
upphafi síðari hálfleiks með 10
mörkum gegn 3 frá Víkingum. Eftir
það var aldrei spurning og sigur
Stjörnunnar öruggur.
Herdís Sigursteinsdóttir og Ingi-
björg Andrésardóttir léku mjög vel
hjá Stjörnunni og sama má segja
um Ragnheiði Stephensen. Það var
hisnvegar engin sem stóð uppúr
slöku liði Víkings.
Mörk Stjörnunnar: Ingibjörg And-
résardóttir 7, Herdís Sigsteinsdóttir 7,
Ragnheiður Stephensen 5, Guðný
Gunnsteinsdóttir 1 og Hrund Grétars-
dóttir 1.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrímsdóttir
8(2v), Svava Baldvinsdóttir 2, Sigur-
rós Björnsdóttir 2, Valdís Birgisdóttir
2(2v) og Inga Lára Þórisdóttir 1.
Erla úr leik
Erla Rafnsdóttir leikur ekki
meira með Stjörnunni í vetur og
verður líklega ekki heldur með í
fótboltanum næsta sumar.
Erla sleit liðbönd á æfingu nú
fyrir skömmu og verður frá æfing-
um í 10-12 mánuði. Þetta er að
sjálfsögðu mikið áfall fyrir Stjörn-
una.
Stórsigur Vals
Valsstúlkur unnu öruggan sigur yfir
Þrótti, 30-16. f hálfleik var staðan 15-
9.
Mörk Vals: Erna Lúðvíksdóttir 10,
Kristín Arnþórsdóttir 6, Guðrún Krist-
jánsdóttir 4,Magnea Friðriksdóttir 4,
Katrín Fredriksen 3, Ásta Sveinsdótt-
ir 2 og Guðný Guðjónsdóttir 1.
Mörk Þróttar: Ásta Sveinsdóttir 4,
Erna Sverrisdóttir 3, Ágústa Sigurð-
ardóttir 2, Iris Ingvadóttir 2 og Sigrún
Óskarsdóttir 1. -MHM
Handbolti
Dýrmætur sigur KR
KR-ingar unnu mikilvægan sigur
yfir fullskipuðu liði Fram í gær, 21-
19. Framarar hafa fengið alla leik-
menn sína aftur eftir meiðsli, en
það dugði ekki til.
KR-ingar höfðu undirtökin allan
leikinn og þetta var einn þeirra
besti leikur. Framarar voru hins-
vegar þungir og vörnin mjög slök.
KR-ingar gátu meira að segja leyft
sér að misnota fimm vítaköst.
KR-ingar voru yfir allan tímann,
en Framarar náðu að minnka for-
skotið í eitt mark á síðustu mínút-
unum. Pálmi Jónsson skoraði þá
þrjú mörk í röð, en KR-ingar léku
af skynsemi á síðustu sekúndunum
og bættu einu marki við.
Þessi sigur var mjög mikiilvægur
fyrir KR, enda staðan ekki sérlega
góð. Gísli Felix Bjarnason var
þeirra besti maður, varði 16 skot og
þeir Konráð Olavsson og Jóhannes
Stefánsson léku vel.
Hjá Fram voru Atli Hilmarsson
og Júlíus Gunnarsson þeir einu sem
stóðu uppúr. -ÁV/lbe
Laugardalshöll 11. nóvember
Fram-KR 19-21 (9-12)
0-1,2-3,4-6, 6-10, 8-12, 9-12, 9-13,
11-13,12-15,14-17,16-20,19-20,19-
21.
Mörk Fram: Atli Hilmarsson 4(1v),
Pálmi Jónsson 3, Júlíus Gunnarsson
3, Hannes Leifsson 3(1 v), Egill Jó-
hannesson 2, Birgir Sigurðsson 2,
Hermann Björnsson 1 og Sigurður
Rúnarsson 1.
Mörk KR: Konráð Olavsson 8(2v),
Stefán Kristjánsson 4, Guðmundur Al-
bertsson 3, Sigurður Sveinsson 3, Jó-
hann Stefánsson 2(2v), Guðmundur
Pálmason 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson - slakir.
Maður ieiksins: Gísli Felix Bjarna-
son, KR.
Handbolti
Basl hjá Blikum
Leikur Breiðabliks var ekki
sannfærandi í Digranesi þegar þeir
mörðu fram sigur á neðsta liði
deildarinnar Þór 21-19. Lokamín-
útarnar voru fjörugasti hluti
leiksins.
Sóknir liðanna voru slakar og
mikið um mistök. Sókn Blika var
þó aðeins beittari en Axel Stefáns-
son varði mark Þórs mjög vei.
Síðari hálfleikur var aðeins betri og
jafnræði með liðunum framan af,
en um miðjan hálfleik náði Breiða-
blik tveggja marka forskoti sem
þeir héldu til leiksloka.
Breiðablik lék langt undir getu
og má geta þess að tvo fastamenn
vantaði í liðið þá Hans Guðmunds-
son og Þórð Davíðsson.
Þórs-liðið virðist ekkert skorta
nema trúna á að þeir geti unnið
eitthvað af 1. deildar liðunum.
Axel Stefánsson stóð sig að vanda
vel í Þórsmarkinu og Sigurður Pál-
son átti einnig ágætan leik.
-Ó.St.
Digranes 11 nóvember.
UBK-ÞÓR 21-19 (7-8)
1-1, 5-5, 7-8, 12-10, 14-12, 15-15,
18-18,21-19.
Mörk UBK: Bjöm Jónsson 5(2), Aö-
alsteinn Jónsson 4, Jón Þórir Jónsson
3, Ólafur Björnsson 3, Kristján Hall-
dórsson 1, Andrés Magnússon 1, Poul
Dempsy 1, Svavar Magnússon 1, El-
var Erlingsson 1, Magnús Magnússon
1.
Mörk Þórs: Sigurður Pálsson 6(2)
Ólafur Hilmarsson 4, Kristinn Hreins-
son 3, Árni Stefánsson 2, Gunnar
Gunnarsson 1.
Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson
og Þorgeir Pálsson - sæmilegir.
Maður leiksins: Sigurður Pálsson Þór.
Handbolti
Frabær vamarieikur
Valsvörnin er líklega sú sterkasta
í 1. deild. í gær sást best hvers hún
er mcgnug er Valsemnn sigruðu
Stjörnuna, 22-14. Valsmenn hafa
því aðeins fengið á sig tæp 15 mörk
að meðaltali í leik.
Valsmenn byrjuðu af miklum
krafti og fyrsta mark Stjörnunnar
kom ekki fyrr en eftir tíu mínútur.
Staðan þá 3-0. Valsmenn voru yfir
allan tímann í fyrri hálfleik og juku
forskotið í fimm mörk fyrir leikhlé.
Þessu forskoti héldu þeir í síðari
hálfleik og sigur þeirra var aldrei í
hættu.
Það sem réði úrslitum í þessum
leik var sterk vörn Vals og góð
markvarsla Einars Þorvarðar-
sonar. Hann varði 12 skot, þaraf
tvö vítaköst. Sóknarleikur Vals var
á köflum mjög öruggur. Stjörnu-
vöminni gekk illa að stöðva Júlíus
Jónasson og Valdimar Grímsson og
Þórður Sigurðsson áttu einnig góð-
an leik.
Þetta var ekki einn af betri
dögum Stjörnunnar. Lítið gekk
upp í sókninni og vörnin var á
köflum galopin. Gylfi Birgisson átti
góðan leik og Skúli Gunnsteinsson
var mjög sterkur í vörninni.
-Ibe
Valsheimili 11. nóvember
Valur—Stjarnan 22-14 (13-
8)
3-0, 5-4, 6-5, 8-5, 9-7, 13-8, 14-10,
16-10. 17-12, 20-13, 20-14, 22-14.
Mörk Vals: Július Jónasson 6,
Valdimar Grímsson 5, Þórður Sigurðs-
son 4(1 v), Jakob Sigurðsson 3, Geir
Sveinsson 2 og Gísli Óskarsson 2.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson
5, Hermundur Sigmundsson 3(2v),
Hafsteinn Bragason 2, Skúli Gunns-
teinsson 2, Sigurjón Guðmundsson 1
og Einar Einarsson 1.
Dómarar: Einar Sveinsson og
Gunnar Viðarsson - óákveðnir.
Maöur leiksins: Júlíus Jónasson,
Val.
Handbolti
Frabær leikur
FH-ingar halda efsta sætinu í 1.
deild. Þeir sigruðu Víkinga í gær í
besta leik íslandsmótsins, 24-27.
Leikurinn var æsispennandi og
stemmningin í Laugardalshöll var
ótrúleg. Á þriðja þúsund áhorfend-
ur hvöttu liðin og langt síðan svo
margir áhorfendur hafa komið á
leik í 1 deild.
Leikurinn hafði allt sem hand-
bolti getur boðið uppá. Hraða,
spennu, falleg mörk og frábæra
markvörslu. Sigurinn hefði getað
hafnað hvorum megin sem var, en
FH-ingar léku af skynsemi á lok-
amínútunum og sýndu að það er
engin tilviljun að þeir verma topp-
sæti 1. deildar.
Lokamínúturnar voru æsispenn-
andi. Lengi var jafnt 23-23 og þá
varði Sigurður vítakast frá Óskari
Ármannssyni. Víkingar brunuðu
upp, en misstu boltann og FH-ingar
skoruðu. Við þetta var eins og allur
botn dytti úr leik Víkinga og FH-
ingar gerðu út um leikinn á loka-
mínútunum.
FH-ingar léku stórkostlega.
Sóknarleikurinn var öruggur og
þeir skoruðu mörg glæsileg mörk úr
aukaköstum. Héðinn Giisson átti
stórleik og Þorgils Óttar var mjög
traustur í vöm og sókn. Þá lék Ósk-
ar Ármannsson mjög vel og vex
með hverjum leik.
Víkingar gáfu FH-ingum ekkert
eftir og léku mjög vel. Sigurður
Jensson átti mjög góðan leik f
marki Víkings og þeir Bjarki Sig-
urðsson og Guðmundur Guð-
mundsson stóðu sig vel í hornun-
um- -ÁV/lbe
Laugardalshöll 11. október
Víkingur—FH 24-27 (15-14)
0-1,3-1,6-3, 6-8, 8-9, 11-11, 12-13,
15-14,16-16,17-19,21-21,23-23,23-
25, 24-27.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 6,
Guðmundur Guðmundsson 5, Karl
Þráinsson 5(1 v), Sigurður Gunnars-
son 3, Siggeir Magnússon 2, Hilmar
Sigurgíslason 2 og Einar Jóhannnes-
son 1.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 7, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Óskar Ármanns-
son 5(1 v), Óskar Helgason 4, Pétur
Petersen 4, Guðjón Árnason 1 og
Gunnar Beinteinsson 1.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og
Rögnvald Erlingsson - slakir.
Maður leiksins: Héðinn Gilsson,
FH.
Handbolti
Jafnt á Akureyri
Vigfús varði vítakast á síðustu sekúndunni
ÍR-ingar hafa svo sannarlega haft
heppnina með sér á lokamínútun-
um í leikjum sínum. Þeir mættu KA
í gær og þegar ein sekúnda var til
leiksloka fékk KA vítakast. Vigfús
Þorsteinsson, markvörður ÍR varði
frá Erlingi Kristjánssyni og tryggði
ÍR jafntefli, 19-19.
Það gekk lítið hjá liðunum fram-
an af. Þegar 20 mínútur voru liðnar
af leiknum var staðan 4-4. KA
hafði þó lengst af undirtökin, en
þeim tókst ekki að halda út og ÍR-
ingar náðu að vinna upp forskot
þeirra. Þar var fremstur í flokki
Bjarni Bessason sem skoraði fjögur
mörk í röð fyrir ÍR.
Pétur Bjarnason jafnaði fyrir
KA, 16-16 og Erlingur Kristjáns-
son kom KA yfir. Frosti Guðlaugs-
son jafnaði fyrir ÍR, en vítakastið
sem KA fékk í lokin var frekar um-
deilt.
KA lék þokkalega, en vantaði
herluntuninn. Pétur Bjarnason og
Erlingur Kristjánsson léku vel og
Guðmundur Guðmundsson var
Isterkur í vöminni.
Vigfús Þorsteinsson var besti
maður ÍR-inga, varði 16 skot, þar
af tvö vítaköst. Hann kom í stað
Hrafns Margeirssonar sem
meiddist í upphitun. ÍR-ingar eru
greinilega ekki á flæðiskeri staddir
hvað varðar markmenn. Bjarni
Bessason og Frosti Guðlaugsson
áttu einnig góðan leik og Ólafur
Gylfason var geysilega sterkur í
vörninni.
-GG/Ibe
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Akureyri 11. nóvember
KA-ÍR 17-17 (10-7)
1-3, 4-4, 7-5,10-7, 12-9,13-12, 15-
12, 15-15, 15-16, 17-16, 17-17.
Mörk KA: Guðmundur Guðmunds-
son 4, Erlingur Kristjánsson 3(1 v),
Eggert Tryggvason 3(1 v), Pétur
Bjarnason 2, Axel Björnsson 2, Hafþór
Heimisson 1 og Svanur Valgeirsson 1.
Mörk ÍR: Frosti Guólaugsson 6,
Bjarni Bessason 6, Finnur Jóhannes-
on 2, Magnús Ólatsson 1, Guðmundur
Þórðarson 1 og Ólafur Gylfason 1.
Dómarar: Aðalsteinn örnólfsson
og Ámi Sverrisson - þokkalegir.
Maður leiksins: Vigfús Þorsteins-
son, |R.