Þjóðviljinn - 13.11.1987, Page 2
Þórunn Þorsteinsdóttir:
Um að gera. Þó vil helst hafa
gamla miðbæinn eins og hann
er. Annars, ég veit það ekki.
Steindór Hálfdánarson:
Ég veit það nú ekki, en aftur á
móti finnst mér fáránlegt að
byggja ráðhús ofaní Tjörnina.
Það er nóg af plássi annars stað-
ar.
p-spurningin—<
Ert þú þeirrar skoðunar
að gera þurfi könnun á
lífríki og vistfræði Tjarn-
arinnar áður en bygg-
ingu ráðhússins er hrint í
framkvæmd?
Gígja Svavarsdóttir:
Að sjálfsögðu. Annars er ég al-
gerlega mótfallin byggingu ráð-
húss í Tjörninni, það eyðileggur
miðbæinn.
Bryndís Hilmarsdóttir:
Ég er yfirhöfuð á móti byggingu
ráðhúss í Tjörninni.
Svava Björnsdóttir:
Auðvitað. Það má bara alls ekki
gerast að ráðhúsið verði byggt í
Tjörninni. Vistfræðilega getur
það verið varasamt og svo finnst
mér það verða til lýta fyrir um-
hverfið.
___________________FRÉTTIR__________________
Patreksfjörður
Undanhaldið stöðvað
Stofna nýtt útgerðarfélag. 50 milljón króna hlutafé.
Sveitarstjórinn: Gert til að örva fiskvinnslu og útgerð
Síðastliðinn sunnudag var
haldinn undirbúningsfundur
að stofnun nýs útgerðarfélags á
Patreksfirði að tilhlutan
sveitarstjórnar og útvegsmanna.
Stefnt er að 50 milljón króna hlut-
afé og á fundinum skráðu 29 ein-
staklingar sig fyrir hlutafjárlof-
orðum. Framhaldsaðalfundur að
stofnun útgerðarfélagsins verður
svo 30. desember næstkomandi
og verður þá útgerðarfélagið
formlega stofnað.
Að sögn Úlfars B. Thorodd-
sen, sveitarstjóra á Patreksfirði
er markmiðið með stofnun út-
gerðarfélagsins að kaupa fiski-
skip í plássið til þess að örva fisk-
vinnslu og útgerð, en hún hefur
látið á sjá á liðnum árum. Árið
1982 voru á Patreksfirði gerð út
11 fiskiskip frá 110-300 brúttó-
rúmlestum að stærð og botnfisk-
aflinn þá var um 13 þúsund tonn.
í fyrra voru aðeins eftir á staðn-
um 3 stórir fiskibátar ásamt ein-
um togara og smábátum. Þá var
botnfiskaflinn rétt um 8 þúsund
tonn. Á sama tíma fækkaði íbú-
um Patreksfjarðar um 50 manns
eða um 5% sem er há tala þegar
haft er í huga að innan við þúsund
manns búa þar.
„Með stofnun útgerðarfélags
vonumst við til að geta skerpt
atvinnulífið hér í fiskvinnslu og
útgerð og snúið við þróuninni til
betri vegar fyrir íbúana," sagði
Úlfar Thoroddsen sveitarstjóri.
- grh
Elsa Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs: Viljum koma af stað umræðum um sérstaka jafnréttissamninaa.
Mynd: EOI.
Misrétti kynjanna
Aðgerðir í þágu kvenna
Framkvœmdanefnd um launamál kvenna hrindirafstað umrœðu um
tímabundnar aðgerðir íþágu kvenna. Elsa Þorkelsdóttir: Vinnum að
því að kynna þá möguleika sem fyrir hendi eru
Tilgangur fundarins var að
ræða hvers konar tímabundn-
ar aðgerðir mætti setja fram til
þess að bæta stöðu kvenna á vinn-
umarkaðnum, sagði Elsa Þor-
kelsdóttir framkvæmdastjóri
Jafnréttisráðs um vel heppnaðan
fund Framkvæmdanefndar um
launamá! kvenna í fyrrakvöld, en
í þriðju grein Jafnréttislaganna
er kveðið á um það að beita megi
sérstökum tímabundnum aðgerð-
um í þágu kvenna teljist það
nauðsynlegt.
Elsa sagði að í þessu sambandi
væri annaðhvort verið að ræða
lagasetningu eða reglugerð sem
hægt væri að setja á grundvelli
Jafnréttislaganna eða þá ákvæði í
samningum aðila vinnumarkað-
arins. Á öðrum Norðurlöndum
tíðkuðust slík ákvæði og er þar
talað um sérstaka jafnréttis-
samninga. Slíkir samningar
gengju út á það að sérstakur kvóti
er settur um fjölda kvenna í
nefndum, konur hafa forgang í
ýmis störf, efnt er til námskeiða
fyrir konur o.s.frv. Hér á landi
þekkist ekki slíkir samningar, en
Félag íslenskra bankamanna hafi
þó riðið á vaðið með ákvæði í
síðustu samningum sínum þess
efnis að unnið sé að því á samn-
ingstímanum að jafnastöðu kynj-
anna í bönkum.
Elsa sagði að með fundi Fram-
kvæmdanefndarinnar væri verið
að vinna að því að kynna þessar
hugmyndir almennt og hvaða
möguíeikar gætu verið fyrir
hendi. „Við viljum stuðla að því
að hugmyndaflugið fari af stað
hvað þessi mál varðar,“ sagði
Elsa og bætti við að næsta skref
væri að kynna málin innan verka-
lýðshreyfingarinnar.
-K.ÓI.
Vestmannaeyjar
Borgríki
í Eyjum?
Á fundi bæjarstjórnar
Vestmannaeyja á dögunum kast-
aði bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins fram þeirri tillögu hvort
það væri ekki íhugunarefni fyrir
bæjaryfirvöld að stefna að stofn-
un sérstaks borgríkis sem yrði
sjálfstætt í lýðveldinu íslandi.
Að sögn Páls Einarssonar,
staðgengils bæjarstjóra, var þessi
tillaga ekki bókuð, heldur borin
fram til umhugsunar um stöðu
bæjarfélagsins gagnvart ríkinu.
„Þessi tillaga er öðrum þræði
hugsuð sem andsvar við stefnu
stjórnvalda gegn bæjarfélaginu
og er vel þess virði að við hér í
Eyjum skoði stöðu okkar gagn-
vert ríkinu," sagði Páll. - grh
Byggingafrœðingar
Rétturinn
óhaggaður
Byggingafræðingafélag íslands
hefur sent frá sér yfirlýsingu í til-
efni af dómi Hæstaréttar á dögun-
um þar sem staðfestur var réttur
þeirra til að árita aðaluppdrætti.
Félagið lýsir furðu sinni á þeim
vinnubrögðum arkitekta að fara
með „óréttmæta sérréttindabar-
áttu sína fyrir dómsstóla“, eins og
segir í yfirlýsingunni, en bendir á
að nær væri að efla samstarf lögg-
iltra hönnuða og stuðla þannig að
bættri hönnun mannvirkja.
Skák
Meistaramót
unglinga í dag
Unglingameistaramót Islands í
skák hefst í félagsheimili T.R. í
kvöld kl. 20.00
Tefldar verða 7 umferðir og
stendur mótið fram á mánudags-.
kvöld. Allir skákmenn undir 20
ára aldri mega taka þátt í mótinu
en sigurvegarinn fær m.a í verð-
laun ferð á skákmót erlendis.