Þjóðviljinn - 13.11.1987, Side 7
Bangladesh
Blóðsúthellingum
linnir ekki
Miklar óeirðir í höfuðborginni Dhaka. 1500 manns hand-
teknir. Fundafrelsi stórlega skert
Handsprengjur urðu tveimur
lögreglumönnum að aldurtila
og öryggissveitir skutu tvo menn
til bana í gær í Dhaka, höfuðborg
Bangladesh. Að sögn stjórnvalda
urðu lögreglumennirnir tveir
fyrir heimatilbúnum hand-
sprengjunum er ungmenni vörp-
uðu þeim að sjónvarpsstöð einni.
Sjónarvottar halda því fram að
öryggissveitirnar hafi skotið tvo
menn til bana meðan á mótmæl-
aaðgerðum stóð. Fréttamenn sáu
líkin, en lögreglan er fámál um
atburð þennan.
í gær beitti lögreglan tára-
gassprengjum og kylfum gegn
mannfjölda sem grýtti stjórnar-
byggingar, kveikti í bflum og lok-
aði vegum og járnbrautarlínum
með logandi dekkjum og rusli.
Að sögn lögreglu særðust 60
manns í átökunum og 33 voru
handteknir.
Tíu þúsund lögreglumönnum
höfuðborgarinnar bættist sex
þúsund manna liðsauki annarra
lögreglumanna og öryggissveita í
gær, en þá var annar dagur verk-
falls sem boðað var til í mótmæla-
skyni við skotárás lögreglu á
þriðjudaginn. Þrír menn að
minnsta kosti létu lífið í þeirri
árás.
Stjórnarandstaðan heldur því
fram að 12 manns hafi fallið á
þriðjudaginn, en þá var boðað til
víðtækra mótmælaaðgerða gegn
Hossain Mohammad Ershad, og
afsagnar hans krafist.
Forsetinn heldur því fram að
mótmælaaðgerðirnar hafi mis-
tekist, og segist ráðinn í að hafa
þá kröfu stjórnarandstöðunnar
að engu að hann segi af sér.
Hasina, leiðtogi stærsta stjórn-
arandstöðuflokks landsins, Aw-
amibandalagsins, hefur verið í
stofufangelsi síðan í fyrradag, en
þá var einnig formaður Þjóðar-
flokksins, Khaleda Zia, hand-
tekin. Báðar segja konurnar að
handtaka þeirra breyti í engu
áformum stjórnarandstöðunnar
að steypa Ershad, en hann hrifs-
aði til sín völd árið 1982. Þær saka
stjórnina um spillingu, kúgun og
kosningasvindl, en ásökunum
þessum neitar forsetinn staðfast-
lega. HS
Kína
Srfellt fleira fólk
Herfrœði
Fólksfjölgun örari í ár en ífyrra
Ekki fleiri hetjur takk
Herforingjar ífortíð og nútíð undir smásjá bresks sagnfrœðings: Á kjarnorkuöld
er hetjuskapur vondur eiginleiki
leið-
Hetjur eru óheppilegir
togar á okkar dögum, segir
breskur sagnfræðingur sem hefur
lagt fyrir sig hernaðarsögu, en í
gær kom út bók eftir hann um
genirála í gömlum og nýjum
stríðum.
Hetjuskapur, krydd mann-
kynssögunnar, er of hættulegur
eiginleiki ef marka má John Ke-
egan. Bók hans nefnist „Leið-
togaímyndin", en í henni skiptir
hann stríðsrekstrarfrömuðum
meðal annars í hetjur og andhetj-
ur. Keegan hvetur æðstu stjórn-
endur kjarnorkualdar til að skilja
að tími hetjuskaparins sé liðinn.
„Þeir verða að sýna myndug-
leika án þess að fara í föt garpa
fyrri tíma,“ segir Keegan, en
þessi höfundur vann sér alþjóð-
lega frægð fyrir bók sína I hita
bardagans.
Lýsing Keegans á nútímaand-
hetjunni er eins ólík Rambóæð-
inu og verða má: „Nútímaleið-
togi á að halda sig í hófi. Hann er
engin lýsandi fyrirmynd, segir
ekkert sem hleypir undirmönn-
unum kapp í kinn og leggur allt
upp úr því að vera öðruvísi en
þeir í hæversku sinni, varfærni og
skynsemi."
-Það er enginn foringi atarna
kann að liggja beint við að hugsa,
en engu að síður eru þetta
leiðtogaeiginleikar sem þörf er á
um okkar kjarnorkudaga, segir
Keegan.
Þá segir hann að nútímafjar-
skipta- og samskiptatækni sé við-
sjálsgripur: í krafti hennar vaða
fjarstaddir yfirmenn í þeirri villu
að þeir séu á vígvellinum miðj-
um, og þá vill verða stutt í hetju-
dáðirnar. Hér tekur höfundur
dæmi af Kennedy Bandaríkjaf-
orseta þegar Kúbudeilan stóð
sem hæst, og telur hann hafa
staðist allar garpskaparfreisting-
ar.
Samkvæmt kenningum Keeg-
ans er herforingi á borð við Alex-
ander mikla síðasti maður sem
við þurfum á að halda í dag, en á
sinni tíð gekk hann fram fyrir
skjöldu og eggjaði menn sína
með kjarki sínum, orðsnilld og
„sjómennsku".
-Nær er að líta til manna eins
og hertogans af Wellington, þess
sem barðist við Napóleon við
Waterloo árið 1815, segir Keeg-
an. Sá leit eingöngu á sig sem
stjórnarerindreka og grét er hann
heyrði fall sinna manna.
-HS
Fólksfjölgunin í Kína er örari í
ár en í fyrra. Stjórnvöld í
landinu stefna að því að Kínverj-
ar verði ekki fleiri en tólfhundruð
milljónir um aldamótin, en ef svo
fer fram sem horfir er alls óvíst
hvort það fer eftir.
Niðurstöður nýs manntals voru
birtar í dagblöðum landsins í gær,
en samkvæmt því voru Kínverjar
1.072 milljónir í júlí á þessu ári,
og hafði þá fjölgað um 12
milljónir frá árslokum. Fæðing-
artíðnin miðað við þúsund íbúa
er nú 21,1 eða sú hæsta á síð-
astliðnum fimm árum. í fyrra var
hún 20,8.
Vestrænn mannfjöldafræðing-
ur sem ekki vill láta nafns síns
getið segir að í ljósi þessa verði
mjög erfitt að láta tólfhundruð
milljóna markið standast. Hann
segir að aukin fæðingartíðni nú
komi ekki á óvart, þar sem nú sé
fjöldi kvenna úr hinum fjöl-
mennu árgöngum á sjöunda ára-
tugnum kominn á barneignaald-
ur.
Embættismenn Fjölskylduá-
ætlunardeildar ríkisins hafa sagt
að þess séu of mörg dæmi að fólk
hunsi einbirnastefnu stjórnvalda.
Um 21% heimsbyggðarinnar
býr í Kína, en þar er aðeins að
finna um 7% ræktaðs lands í ver-
öldinni. _hs
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Júgóslavía
Ceausescu í heimsókn
Opinber heimsókn Rúmeníuleiðtoga hófst ígœr. Orkuþras og
utanríkisráðherrafundur Balkanríkja mál málanna
Opinber heimsókn Nicoiae Ce-
ausescu í Júgóslavíu hófst í
gær, og er búist við að deilur ríkj-
anna um sameiginlegt orkuvcr
verði ofarlega á baugi í viðræðum
hans við þarlenda ráðamenn, en
orkuver þetta er við ána Danube.
Fyrir hálfum mánuði sökuðu
Júgóslavar Rúmena um að lækka
vatnsborðið óhæfilega í uppi-
stöðulóni einu, og ná þar með til
sín meiri raforku en þeim bæri.
Raforkumál eru ofarlega á baugi
í löndunum tveimur, en bæði
hafa spáð orkukreppu heima
fyrir í vetur.
í þessari viku ákváðu stjórn-
völd í Rúmeníu að skerða ra-
forku til heimilisnota um 30% til
að bregðast við vandanum, og yf-
irmenn orkumála í Júgóslavíu
horfa alvarlegum augum til
vetrarins þar sem ekki sé til næg-
ur gjaldeyrir til að flytja inn það
magn olíu sem þörf er á.
Orkuverið sameiginlega er
gamalt þrætuepli, en orkufrö-
muðir í Júgóslavíu segja að
deilurnar hafi farið mjög harð-
nandi undanfarna tvo mánuði.
Þá er búist við að Ceausescu og
leiðtogar Júgóslavíu ræði fram-
kvæmd fyrirhugaðs fundar utan-
ríkisráðherra Balkanríkjanna, en
í ráði er að hann verði haldinn
snemma á næsta ári og verður
það í fyrsta sinn sem af slíkum
fundi verður.
Fundur þessi er haldinn að
frumkvæði Júgóslava, og hafa
Rúmenar, Búlgarar, Grikkir,
Tyrkir og Albanir þekkst boðið.
Markmið fundarins er að bæta
samskipti umræddra ríkja og
stuðla að auknu samstarfi þeirra í
milli.
Reiknað er með að Ceausescu
sem stundum er kallaður einfar-
Það var þetta með uppistöðulónið, fé-
lagi Ceausescu: Deilur um sameigin-
legt orkuver verða ofarlega á baugi í
Júgóslavíuheimsókninni.
inn í Varsjárbandalaginu vegna
utanríkisstefnu sinnar, ræði við
Júgóslava um Samtök hlutlausra
ríkja, en hinir síðarnefndu eru
meðal stofnenda þeirra samtaka.
Rúmenar hafa að undanförnu
setið ráðstefnur Hlutlausra ríkja
sem gestir.
Heima fyrir hefur Ceausescu
barið niður allt andóf með harðri
hendi. í efnahagsmálum hefur
kúrsinn verið settur á þungaiðn-
að fremur en landbúnaðarfram-
leiðslu, og hafa menn látið sér í
léttu rúmi liggja nýlega stefnu-
breytingu efnahagsmála í Sovét-
ríkjunum í því sambandi; Rúm-
enar eru ekki á þeim buxunum að
taka upp áherslur í anda Gorbasj-
offs, og erlendir diplómatar í höf-
uðborginni Búkarest segja að
Rúmenar séu komnir langt aftur
úr öðrum Austur-Evrópuþjóðum
á sviði mannréttindamála. _HS