Þjóðviljinn - 13.11.1987, Side 9

Þjóðviljinn - 13.11.1987, Side 9
ÖRFRÉTTIR Blýlaust bensín í Vestur-Þýskalandi frá og meö febrúar á næsta ári. Hefur fram- kvæmdanefnd Evrópubanda- lagsins nú lagt blessun sína yfir þessa ráðagerð og telur hana stuðla að því að draga úr meng- un, auk þess sem hún verði til að hvetja fleiri þjóðir til að gera slíkt hið sama. í Lúxemburg er svipuð áætlun í bígerð, en reiknað er með að þar í landi verði óheimilt að notast við blýbensín frá miðju næsta ári. Orkuskortur er krónískur í Rúmeníu, og nú hafa stjórnvöld ákveðið að draga frekar en orðið er úr framboði á gasi og raforku til heimila. Skerð- ingin er upp á 30%. I febrúar síð- astliðnum var dregið úr orkunotk- un heimila um 20%, og gilti sú ákvörðun fyrir febrúar og mars. Að þessu sinni eru engin tíma- mörk tiltekin. Japanir slá ekki slöku við þar sem upp- fyndingar eru annars vegar. Það nýjasta eru batterí á þykkt við pappír. Að vonum er ekki mikið pláss fyrir vessa í rafhlöðum þessum, enda geta þær með engu móti lekið. Uppfyndingin hefur verið á annan áratug á leiðinni, en ekki er Ijóst hvenær hún birtist á almennum markaði. Tollheimtumenn í Southampton á Bretlandi lögðu í vikunni hald á 200 kíló af kókaíni, og hafa þeir ekki í annan tíma komist í önnur eins uppgrip, enda er fengurinn sá mesti sem nokk- urn tíma hefur náðst í Evrópu. Andvirðið í smásölu er metið á um hálfan fjórða milljarð ís- lenskra króna. Kókið var um borð í flutningaskipinu Tagama frá Togo. Brúðarbrenna var framin í indverska fylkinu Ra- jasthan í september síð- astliðnum, en nú hafa stjórnvöld sett lög sem kveða á um dauða- refsingu til handa þeim sem fyrir þessum ósóma standa. Þá er það nú harðlega refsivert að fegra og gylla þennan gamla sið, en í Indlandi til forna voru slíkar brennifórnir álitnar tákna eigin- kvennatryggð þá sem næði út yfir gröf og dauða. Engisprettuplága herjar að líkindum á Egypta á næstunni. Kvikindin eru nú fjöl- menn í námunda við landamærin og ógna uppskerunni í hinum frjósama Nílardal, en áður hafa þau unnið hervirki í grannríkinu Súdan. Engisprettunum fjölgar hundraðfalt á sex vikna lífsskeiði sínu, og að sögn er meira um þær nú á þessum slóðum en nokkur undanfarin ár. Stríðið við engi- spretturnar er endalaust, en Al- þjóðamatvælastofnun Samein- uðu þjóðanna leggur til tæki og tól til höfuðs þeim sé þess óskað. Listaverkafalsanir flæða nú yfir Japansmarkað að sögn kunnugra, og einkum eru það verk málarans Salvadors Dalís sem um er að ræða. Hol- lenska fyrirtækið Demart pro arte annast höfundarréttarmál fyrir Dalí, og eru talsmenn þess ekki yfir sig hrifnir af þróuninni. Hafa þeir í hyggju að stefna japön- skum innflytjendum, en góss þetta er að mestu framleitt í Fra- kklandi. Listaverk hafa Japanir keypt grimmt að utan hin seinni ár, og Ijóst virðist að markaðurinn er nógur7 fyrir nostursamlega gerðar falsanir að auki. < ERLENDAR FRETTIR Írak/Sýrland Friövænlegra eftir toppfund írakar hœttir að úthúða Sýrlendingum eftir leiðtogafund araba. Egyptar inn úrkuldanum Fjölmiðlar í írak hafa látið af gagnrýni sinni á Sýrlendinga í kjölfar leiðtogafundar araba í Amman, en í samþykkt fundarins var látinn í ljós stuðninjgur við íraka í stríði þeirra gegn Irönum. Miklar viðsjár hafa verið með Sýrlendingum og írökum undan- farin ár. Það hefur verið fastur liður í dagblöðunum í írak að úthúða Sýrlendingum og forseta þeirra, Hafez Al-assad, en síðan leið- togafundinum lauk hefur þetta kunnuglega lesmál hvergi sést. Eins og kunnugt er hafa Sýrlend- ingar dregið taum írana í stríðinu við íraka. Hússein Jórdaníukonungur, gestgjafi leiðtogafundarins, sagði á blaðamannafundi í fyrradag að stjórnirnar í Bagdad og Damask- us hefðu sæst heilum sáttum. Engir opinberir aðilar í löndum þessum tveim hafa þó orðið til að úttala sig um þessar meintu sætt- ir, og ekki eru taldar líkur á því að stjórnmálasamskiptum verði komið á. Stríðandi armar Baath sósíal- istaflokksins eru við völd í f rak og á Sýrlandi. Fjandskapurinn óx þegar Persaflóastríðið hófst fyrir sjö árum, enda fylgja Sýrlending- ar írönum að málum. Hússein Jórdaníukóngur, gestgjafi leiðtogafundar araba: Sýrlendingar og írak- ar hafa nú sæst heilum sáttum. Dagblöð í frak hafa mjög hampað yfirlýsingu Hússeins í lok leiðtogafundarins, en niður- stöðurnar segir hann „sögulegar, mikilvægar og víðtækar." Araba- leiðtogarnir lýstu yfir samstöðu með Irökum í Persaflóastríðinu og fordæmdu írani fyrir land- vinningastefnu og að þeir skuli humma fram af sér fyrirmæli Sameinuðu þjóðanna um vopna- hlé. Þá eru írakar ánægðir með þá niðurstöðu leiðtogafundarins að einstökum Arabaríkjum skuli nú heimilt að taka upp stjórnmála- samskipti við Egypta á nýjan leik, en vinslit urðu árið 1979 er Egyptar gerðu friðarsáttmála við ísraelsmenn. „Egyptar hafa staðfest sam- stöðu sína með öðrum araba- þjóðum, bæði í orði og verki,“ sagði stjórnarmálgagnið Al- THawra. Sameinuðu arabísku furstadæmin tóku upp stjórn- málasamskipti við Egypta fá- einum klukkutímum eftir lok leiðtogafundarins. Búist er við að írak og fleiri ríki við Persaflóa geri slíkt hið sama, og það fyrr en seinna. Ástralía Grunsamleg dauðs- föll frumbyggja Tugirfrumbyggja hafa látist ífangelsum íÁstralíu undanfarin ár. Rannsóknarnefnd sett á laggirnar Opinber nefnd tók í gær til við að rannsaka meðferð á frum- byggjum í fangelsum Ástralíu, en dauðsföll þeirra á meðal gerast æ tíðari. Ritari nefndarinnar, John Ga- vin, segir að rannsóknin muni taka til að minnsta kosti 64 dauðsfalla síðastliðin sjö ár. Fimmtán frumbyggjar hið minnsta hafa týnt töiunni í hönd- um réttvísinnar á þessu ári, og fyrir bragðið hafa ættmenn þeirra krafist opinberrar rannsóknar. Flestir hinna látnu hafa fundist hengdir í klefum sínum. íbúar landsins eru nú um 16 milljónir talsins, en frumbyggj- arnir eru aðeins um 1%. Engu að síður sýna yfirlitstölur að einn af hverjum sjö innbyggjara fangelsa kemur úr þeirra hópi. Gavin segir að rannsóknar- nefndin hafi í hyggju að heimsækja byggðir frumbyggja til að tala við ættingja og vini hinna látnu. Ekki er þó sjálfgefið að þeir séu allir mjög viðræðufús- ir, þar sem mörgum vitnum er ekki um að úttala sig í eyru rétt- vísinnar. Óttast þeir að slík „lausmælgi“ geti haft óþægilegar afleiðingar í för með sér, ef ekki strax þá í íramtíðinni. Vegna þessa heitir nefndin því að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi vitna. Reiknað er með að rannsókn þessari ljúki fyrir árslok 1988. HS Rannsóknarnefnd hefur verið skipuð í Ástralíu til að kanna fjölda dauðs- falla meðal frumbyggja í fangelsum landsins. Kóngafólk Suðurafríkudaður Hvellur í Bretlandi vegna heimsóknar drottningarmóður í sendiráð Suður-Afríku Elsti meðlimur breska kónga- slektisins, móðir Elísabetar drottningar, veldur hávaða með- al Breta vegna heimsóknar sinnar í suður-afríska sendiráðið í London, en þar var hún í einkaer- indum. Síðastliðið þriðjudagskvöld var hún gestur sendiherrans, Rae Killen, en sá hafði dregið fram gamla fréttakvikmynd um heim- sókn gests síns til Suður-Afríku frá árinu 1947, en það ár var hún á ferð í iandinu ásamt eiginmanni sínum, Georgi kóngi sjötta og tveimur dætrum þeirra hjóna, núverandi Englandsdrottningu og Margréti prinsessu. Sendiherrann hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess arna. f henni segir: „Drottningarmóðir- in á ánægjulegar minningar um heimsókn sína til Suður-Afríku, og það var mikill heiður að taka á móti Hennar hátign og sýna henni myndina.“ Móðir drottningar hefur löngum verið vinsælust kónga- fólksins meðal Breta, en sendir- áðsheimsóknin hefur sætt mikilli gagnrýni. Hreyfingin sem berst gegn að- skilnaðarsinnum í Suður-Afríku segir að stjórnin í Pretoríu hafi misnotað heimsóknina. „Við hörmum þessa óheppilegu heim- sókn, þar sem hún mun valda misskilningi,“ segir talsmaður. Martin Flannery, einn þing- manna Verkamannaflokksins af vinstri kantinum, segir: „Það má einu gilda hvað drottningarmóð- irin ætlaðist fyrir með heimsókn sinni; það er enginn vafi á því að apartheidstjórn Botha í Suður- Afríku mun túlka þessa heim- sókn sem stuðning við ömurlejga stjórn sína.“ HS FATASKÁPAR MARGAR STÆRE HENTA ALLSST AÐ VERÐ FRÁ Kr. 5.901.- Greiðslukjör við allra hæfi! A Föstudagur 13. nóvember 1987 þjóÐVILJINN - SÍÐA 9 LÆKJARQÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022 J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.