Þjóðviljinn - 28.11.1987, Blaðsíða 8
MENNING
VERULEIKI MALVERKSINS
FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA
WÆatn ermismunandi víða
■r um heim. Þess vegna
skiptir máli að nota sjampó
með réttri efnasamsetningu
fyrir íslenskt vatn. Man sjampó
er unnið af vísíndalegri ná-
kvæmni af efnafræðingum
okkar. Það hefur rétt pH gildi
fyrir íslenska notkun. Man
sjampó er til í átta tegundum:
• Milt • Balsam
• Fjölskyldu • Flösu
• Eggja • Barna
• Húð og hár • Hárnæring
Man-sjampó erfyrír allar gerðir
hárs og fæst líka í heils lítra
umbúðum.
Ronnsóknorstofa
FRI6G
wmH
ns' ■
rmmms
■SH
Lyngási 1 Garðabæ, simi 651822
Þótt Louisa Matthíasdóttir velji
sér hinn ytri hlutveruleika aö yrk-
isefni í málverkum sínum, þá eru
myndir hennar ekki lýsandi í þeim
skilningi aö viö séum mikils vísari
um sauðkindina, hestinn, fjöllin
eða haf ið eftir að haf a skoðað
þær. Það sem gerir nærveru
mynda hennar svo áleitna er nýr
veruleiki sem Louisa skapar úr
þessum yrkisefnum: veruleiki
málverksins.
Þetta er að vísu enginn nýr
sannleikur, en þó er rétt að hafa
hann f huga þegar við skoðum
myndir hennar sem nú eru sýndar
í Gallerí Borg, og jafnframt þeg-
Louisa Matthíasdótt-
ir opnar sýningu í
Gallerí Borg um leið
og Mál og menning
gefur út bók með
verkum hennar
ÓLAFUR
GÍSLASON Mr £»3
Bækur
í minningu
merkishjóna
dr. Eiríks Albertssonar
og frú Sigríðar
Björnsdóttur á Hesti
Þann 7. nóv. sl. hefði dr. Eiríkur
Albertsson dr. theol., skólastjóri
Hvítárbakkaskólans og sóknar-
prestur á Hesti í Borgarfirði f rá
1917 til 1944, orðið 100 ára og
eiginkona hans, frú Sigríður
Bjarnadóttirfrá Miklabæ í Skaga-
firði 97 ára þann 5. júní sl. vor. Af
því tilefni hefur Hörpuútgáfan á
Akranesi sent frá sér minninga-
bókina Ár og dagur í víngarði
drottins.
f bókinni birtast nokkur sýn-
ishorn af ritstörfum þeirra hjóna,
ásamt greinum og ritgerðum ann-
arra um þau. Sagt er frá foreldr-
um dr. Eiríks, þeim Albert
Jónssyni og Stefaníu Pétursdótt-
ur, og bernskuheimili; en hann
var fæddur í Torfmýri í Blönduhl-
íð, en ólst upp í Flugumýrar-
hvammi í sömu sveit. Þá er lýst
jólahaldi um síðustu aldamót á
bernskuheimili frú Sigríðar,
Miklabæ í Blönduhlíð, en þar var
faðir hennar, sr. Björn Jónsson,
prestur frá 1889-1921. Jón Eiríks-
son rekur æskuminningar sínar
frá heimilinu á Hesti og Hvítár-
bakkaskólanum. Þá er þáttur um
störf dr. Eiríks, en hann kom víða
við. Hann var prestur, prófastur,
rithöfundur, skólastjóri og
bóndi. Öll sín margháttuðu störf
rækti hann með ágætum.
Kafli er í bókinni um merkis-
bóndann Bjarna Pétursson á
Grund í Skorradal. Steinunn
Finnbogadóttir ljósmóðir segir
frá kynnum sínum af frú Sigríði
Björnsdóttur og störfum hennar.
Þá eru þarna greinar eftir Svein
Skorra Höskuldsson, Dagfinn
Sveinbjörnsson, Björn Jakobs-
son Björn Bjarman, dr. Jakob
Jónsson, sr. Einar Guðnason og
afmæliskveðja eftir Þorstein
Guðmundsson.
Það er vel að út skuli komin
bók, sem segir frá lífi og starfi
þessara merkishjóna. Þau settu á
sínum tíma mikinn svip á um-
hverfi sitt - og sem náði raunar
langt út fyrir það - hvöttu jafnan
til aukinna framfara og meiri
menningar á öllum sviðum og
voru sjálf lýsandi fordæmi í þeim
efnum.
Ár og dagur í víngarði drottins
er 165 bls., prentuð í Prentverki
Akraness. Kápumynd er eftir
þýska málarann Verleger.
- mhg
ar við fléttum bókinni sem Mál og
menning hefur gefið út með listi-
lega vel unnum eftirprentunum
af smámyndum hennar.
Louisa Matthíasdóttir hefur
nokkra sérstöðu í íslenskri mynd-
list. Ekki bara vegna langrar út-
legðar sinnar Vestanhafs, heldur
fyrst og fremst vegna afstöðu
sinnar til málverksins og þeirra
yrkisefna sem hún velur sér. í
bestu myndum sínum tekst henni
að vinna svo úr yrkisefninu með
markvissri einfaldri framsetningu
að eftir stendur kannski kind á
grænum bala, dimmblátt vatn,
svartur sandur, firðblátt fjall og
heiður himinn, og það er eins og
þessi fimmund fái slíkan sam-
hljóm í einfaldleik sínum, að það
er sjónlaus maður sem ekki finn-
ur hann enduróma í hjarta sínu.
Þessi sterki hljómur skapast af
þeim andstæðum sem í málverk-
inu búa: þessari hrópandi þögn
og þessari mögnuðu kyrrð og ein-
semd sem jafnframt er svo hlaðin
orku og nálægð. Louisa málar af
kaldri yfirvegun og fjarlægð frá
yrkisefninu, en litirnir eru heitir
og undir ákveðinni pensilskrift-
inni býr brennandi tilfinning og
orka. Þetta á einkum við um þær
myndir hennar þar sem hún nær
best að einfalda myndmál sitt. í
flóknari húsa- og götumyndum
hennar er eins og samhljómurinn
dofni og einstakir hlutar myndar-
innar hætti að þjóna heildinni á
sama markvissa háttinn.
Málverk Louisu af uppstilling-
um eru sér á parti, og reyndar
sterkasti hluti sýningarinnar í
Gallerí Borg. Það er sjaldgæft að
sjá nútímamálara fást við það
verkefni að mála agúrkur, lauka
og melónur á borði, en Louisu
tekst að gefa þessu fábreytilega
viðfangsefni nýja og ferska merk-
ingu í málverki sínu með öguðu
og ströngu myndmáli sem dylur
heitar tilfinningar og ágenga ná-
lægð myndarinnar.
Það er fengur að þeirri bók sem
Mál og menning hefur gefið út
um Louisu, einkum fyrir mynd-
irnar sem eru frábærlega prent-
aðar, en textinn er í rírara lagi.
-ólg.
:
»•. ■ »
KYNNTUÞER
SIÖÐUÞÍNA
ÍSTAÐGREÐSUJ
-það margborgar slg
1. janúar nálgast með staðgreiðslu
opinberra gjalda. Það er afar mikilvægt að
allir launamenn og launagreiðendur þekki
rétt sinn og skyldur í hinu nýja kerfi. Menn
eru því hvattir til að kynna sér málið vel og
leita upplýsinga séu þeir i óvissu.
HVAÐ FELSTÍ STAÐGREÐSLU?
f staðgreiðslu eru skattar dregnir af öllum
launum við hverja útborgun. Þar með talið
eru hvers konar greiðslur, hlunnindi og orlof.
Staðgreiðslan tekur yfir alla skatta og gjöld,
sem áður voru álögð á launamenn, nema eign-
arskatt sem áfram verður innheimtur eftir á.
ÚTREIKNINGUR OGINNHEIMTA
STAÐGREÐSLU
Launagreiðandi annast útreikning stað-
greiðslu starfsmanna sinna, innheimtir hana og
skilar til innheimtumanns mánaðarlega, einnig
af eigin launum. Sama skatthlutfall er notað við
afdrátt af öllum launum óháð upphæð þeirra.
FRÁDRÁTTUR í STAÐGREÐSLU
Allir launamenn fá árlegan persónuaf-
slátt sem dreginn er af staðgreiðslunni. Að öllu
jöfnu er persónuafslátturinn sá sami hjá öllum
launamönnum. Persónuafslættinum er skipt
jafnt á alla mánuði ársins.
Sjómenn og hlutráðnir landsmenn fá sér-
stakan sjómannaafslátt. Námsmenn fá hærri
persónuafslátt yfir sumarmánuðina.
Vaxtafrádráttur verður afnuminn en til
bráðabirgða verður þó veittur afsláttur til þeirra
er festu kaup á íbúðarhúsnæði eða hófu bygg-
ingu þess til eigin nota 1987 eða fyrr og hefðu
að óbreyttu notið vaxtafrádráttar. Þessi afsláttur
verður veittur í allt að 6 ár, frá og með 1988.
BÆRJR
Barnabætur með hverju bami innan 16
ára aldurs verða greiddar á 3ja mánaða fresti
og skiptast jafnt á milli hjóna (sam býl isfólks).
Húsnæðisbætur eru greiddar þeim sem
kaupir eða hefur byggingu íbúðarhúsnæðis
1988 eða síðar í fyrsta sinn eða til eigin nota
einnig þeim sem keyptu eða byggðu í fyrsta
sinn 1985-1987 ef þeir nutu ekki vaxtafrádrátt-
ar á þeim tíma. Réttur til bótanna varir í 6 ár, frá
og með upphafsári.
SKATTKORT
Allir, sem verða 16 ára og eldri á stað-
greiðsluári, fá sent skattkort fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Þar er mánaðariegur persónuaf-
sláttur tiltekinn og einnig það skatthlutfall, sem
draga á af launum, auk helstu persónuupplýs-
inga, svo sem nafns, heimilis og kennitölu
launamanns.
Launamanni ber að afhenda launagreið-
anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Ef launagreiðandinn hefur ekki
skattkortið við útborgun launa, má hann
ekki draga persónuafsláttinn frá stað-
greiðslunni og launamaðurinn greiðir þar
með mun hærri fjárhæð. Þess vegna er mikil-
vægt fyrir launamann, að sjá til þess að launa-
greiðandinn fái skattkortið í tæka tíð.
Þegar maki launamanns er tekjulaus get-
ur launamaðurinn einnig afhent launagreið-
anda sínum skattkort makans og þar með nýtt
80% af persónuafslætti hans til viðbótar
sínum. Bam innan 16 ára fær ekki skattkort.
Skatthlutfall þess er 6% og það fær ekki per-
sónuafslátt.
AUKaSKA TTKORT
Launamaður getur fengið aukaskattkort ef
hann vinnur á fleiri en einum stað og vill skipta
persónuafslætti slnum til þess að nýta hann
betur. Einnig getur hann fengið aukaskattkort ef
hann vill afhenda maka sínum þann persónu-
afslátt, sem hann nýtir ekki sjálfur. Umsóknir
um aukaskattkort fást hjá skattstjórum.
ÁLAGNING OG FRAMTAL
Skattframtali ber að skila í staðgreiðslu
með hefðbundnum hætti. Að loknu stað-
greiðsluári fer fram álagning og síðan uppgjör
staðgreiðslu. Þegar sú fjárhæð, sem stað-
greidd hefur verið er borin saman við endan-
lega álagningu tekjuskatts og útsvars, kemur í
Ijós, hvort þessi gjöld hafi verið of eða van-
greidd. Verði um mismun að ræða er hann
endurgreiddur í einu lagi í ágúst eða innheimt-
ur eð jöfnum greiðslum í ágúst-desember að
viðbættri lánskjarav í sitölu.
SJÁLFSTÆÐIR REKSTRARAÐILAR
Sjálfstæðum rekstraraðilum er skylt að
reikna sér endurgjald af starfseminni og miða
staðgreiðslu sína við það og skila henni mán-
aðariega. Ríkisskattstjóri ákveður lágmark
endurgjalds.
SKATTLAGNING TEKNA
ÁRSINS 1987
Öllum ber að skila framtali á árinu 1988
vegna ársins 1987 eins og endranær. Inn-
heimta fellur hins vegar niður af öllum
almennum launatekjum. Undantekningar
eruþógerðar
• eflaunhafaveriðyfirfærðáárið1987.
• ef hækkun launa verður hvorki rakin til auk-
innar vinnu, ábyrgðar né stöðuhækkunar.
• ef menn í eigin atvinnurekstri reikna sér
meira en 25% hærri laun fyrir 1987 en 1986
(meðverðbótum).
• ef menn fá meira en 25% hænri laun fyrir
eignarhlutdeild en var árið 1987 (með verð-
bótum).
i þessum tilvikum verður aukningin skattskyld.
STAÐGREÐSLAN ER EINFÖLD
OGAUÐSKILIN
Bæklingur með ítariegum upplýsingum
um staðgreiðsluna hefur verið sendur inn á
hvert heimili landsins. Það er mikilvægt að lesa
þennan bækling vel og varðveita, þar sem
hann geymir nauðsynlegar upplýsingar um
staðgreiðslu. Launamenn fá skattkort sitt sent
næstu daga. Með því fylgja skýringar sem þeir
eru beðnir um að lesa vel, gera viðeigandi ráð-
stafanir og afhenda skattkortið síðan launa-
greiðandasínum.
Staðgreiðsla opinberra gjalda er breyt-
ing, sem beðið hefur verið eftir. Aðdragandi
hefur verið langur en nú er undirbúningur-
inn á lokastigi. Þetta er róttæk breyting til
einföldunar og hagræðis og snertir alla
skattgreiðendur. Þessi breyting verður
mun auðveldari ef allir skattgreiðendur
þekkja stöðu sína.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Staðgreiðslan ereinföld
- efþú þekkirhana
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI