Þjóðviljinn - 22.12.1987, Side 2
-SPURNINGIN-
Telurðu að matarskatt-
urinn breyti matarvenj-
um þínum?
Magnús Vilhjálmsson trésmið-
ur:
Það er ómögulegt að segja. Ég
verð allavega að éta eitthvað.
Ætli ég borði ekki meir en ella af
heimaræktuðu grænmeti til að
byrja með. Mér finnst skatturinn
vera brútal aðför að launafólki.
Elín Jónasdóttir húsmóðir:
Vafalaust mun hann gera það að
einhverju leyti. Það segir sig sjálft
að skatturinn er fáránlegur og
verðbólguhvetjandi.
Hilmar Hilmarsson kennari:
Nei ég á ekki von á því. En mér
finnst algjört hneyksli að skatt-
leggja nauðsynjar, eins og mat-
vara er.
Björk Valsdóttir bankastarfs-
maður:
Nei, það er ótrúlegt að svo verði.
En skatturinn kemur verst niður á
láglaunafólkinu og ég vona bara
að hann verði aldrei samþykktur.
Guðrún Ágústsdóttir bréfberi:
Nei, það held ég ekki. Maður
verður að borða. Mér finnst skatt-
urinn forkastanlegur og löngu
kominn tími til að skattleggja þá
sem allt sitt hafa á þurru.
FRÉTTIR
Fiskveiðistefnan
Nefndin fjórklofin
Framsókn og íhald með meirihlutaálit. Karvel Pálmason, formaður
sjávarútvegsnefndar með sérálit. Skúli Alexandersson með sérálit og
Danfríður Skarphéðinsdóttir sömuleiðis
Lögreglan: Fangageymslur troðfullar. Kona datt afsvölum affjórðu
hæð. Slapp furðuvel. 60 árekstrar, 20 ökumenn teknir vegna ölvunar
og svipaður fjöldi tekinn vegna hraðaksturs
Karvel Pálmason segir í nefnd-
aráliti sínu að hann leggi fram
breytingatillögur sem séu í þeim
anda sem formenn beggja
sjávarútvegsnefnda lögðu fram
innan nefndanna en Matthías
Bjamason er formaður sjávarú-
tvegsnefndar neðri deildar. Með-
al breytingatillagna sem Karvel
leggur fram er að lögin gildi í eitt
ár og að Alþingi kjósi hlutfalls-
kosningu níu manna nefnd til að
undirbúa tillögur um fyrirkomu-
lag fiskveiðistjórnunar að næsta
ári liðnu. Þá er í breytingatil-
lögum Karvels nánari ákvæði um
Að sögn lögreglunnar var mikil
og almenn ölvun út um allan
bæinn um síðustu helgi. Fanga-
geymslur lögreglunnar voru troð-
fullar, samkvæmt venju,
föstudags- og laugardagsnótt.
Ekki var mikið um fólk I miðbæn-
um um helgina eins og oftast áður
og þakkar lögreglan því að á
fímmtudagskvöldið voru haldin
skólaböll víðs vegar í bænum og
ýmsir þar með búnir með helgar-
kvótann að sinni.
Eitt slys var um helgina, en fór
betur en á horfðist. Kona datt af
svölum á fjórðu hæð, en slapp
merkilega vel. Grunur leikur á að
um ölvun hafi verið að ræða.
Alls urðu um helgina frá föstu-
degi og fram á mánudagsmorgun,
rúmlega 60 árekstrar og þrjú um-
ferðarslys. Tæplega 20 ökumenn
voru teknir vegna meintrar ölv-
unar við akstur og þar af einn sem
stoppaði vegna árekstrar við ann-
an bfl. Svipaður fjöldi var tekinn
vegna hraðaksturs í bænum.
grh
Sjávarútvegsnefnd efri deildarl
var fjórklofin í afstöðu sinni til'
frumvarpsins um stjórn flsk-
veiðanna. Framsóknarmennirnir
Stefán Guðmundsson og Jóhann
Einvarðsson stóðu að áiiti meiri-
hlutans ásamt Sjálfstæðismönn-
unum Guðmundi H. Garðarssyni
og Halldóri Blöndal. Formaður
nefndarinnar Karvel Pálmason
stóð að séráliti, sömu sögu er að
segja um Skúla Alexandersson ogl
Danfríði Skarphéðinsdóttur.
Nefndarálitin voru því fjögur
talsins.
Meðal breytingatillagna frá
meirihluta nefndarinnar má
nefna að lagt er til að gildistími
laganna sé þrjú ár í stað fjögurra.
Pá leggur nefndin til að sérstakt
10% álag á afla sem fluttur er
óunninn á erlendan markað verði
fellt út. Varðandi trilluútgerðina
leggur nefndin til að þeir sem
stunda línu- og handfæraveiðar á
bátum undir 10 brúttólestum sæti
tímabundnum veiðibönnum eins-
og verið hefur.
í nefndaráliti Skúla Alexand-
erssonar segir m.a. að allur
undirbúningur að þessu frum-
varpi hafi verið með eindæmum
og vísar hann síðan til breytinga-
tillagna Alþýðubandalagsþing-
manna um byggðakvóta. Auk
þess flytur Skúli breytingartillögu
ásamt þeim Guðmundi Ágústs-
syni og Danfríði Skarphéðins-
dóttur um að við sölu á fiskiskipi
fylgi ekki hærra aflamark en
nemur meðalaflamarki skipa í
sama flokki þaðan sem skipið er
selt. Einnig flytja þau Skúli og
Danfríður breytingatillögu þar
sem sem landinu er skipt í tvö
veiðisvæði við ákvörðun aflahá-
marks fyrir togara.
í nefndaráliti Danfríðar Skarp-
héðinsdóttur segir m.a. að sú til-
' högun að úthluta veiðiheimildum
gefins beint til einstaklinga og út-
gerðarfélaga, sem geti ráðskast
með þær í eiginhagsmunaskyni,
sé í mótsögn við fyrstu grein lag-
anna um að fiskistofnar á íslands-
miðum séu sameign þjóðarinnar.
Trillukarlar fjölmenntu á þingpalla við aðra umræðu í efri deild um kvótafrumvarpið. Þarna standa nokkrir saman fyrir
utan Alþingishúsið að „kæla sig niður" einsog þeir orðuðu það. Mynd Sig.
veiðitakmarkanir smábáta. umræðu í efri deild í gær og var höfðu enn ýmislegt út á það að
Frumvarpið var til annarrar auðheyrt á ræðumönnum að þeir setja. -Sáf
Helgin
Mikil og almenn öhnin
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. desember 1987