Þjóðviljinn - 22.12.1987, Page 3
FRETTIR
Alþingi
Þingað milli jóla og nýárs
Þing kemursaman milli jóla og nýárs og líkast til strax upp úr
áramótum. Samkomulag náðist ekki um að hraða þingstörfumþannig
aðþingmenn kœmust íhefðbundið jólafrí. Stjórnarkreppuástand á
þingi
Verðlagsbreytingar
Vörnr
tvímerictar
Neytendafélag Reykja-
víkur: Áskorun til kaup-
manna. Vegnatollavöru-
gjalds- ogsöluskatts-
breytinga um áramótin.
Kaupmannasamtökin:
Engin ástœða til þess
Neytendafélag Reykjavíkur
samþykkti nýlega að beina þeirri
áskorun til kaupmanna að tví-
merkja þær vörur eftir áramótin
sem taka verðbreytingum í kjöl-
far tolla- og vörugjaldsbreytinga,
ásamt söluskattsbreytingum sem
þá taka gildi.
Að sögn Guðsteins Guð-
mundssonar starfsmanns félags-
ins og Neytendasamtakanna er
þessari áskorun beint til kaup-
manna til þess að neytendur eigi
betra með að glöggva sig á hvað
viðkomandi vörur hafi hækkað
eða lækkað mikið frá því sem
áður var. Guðsteinn sagði enn-
fremur að tvímerkingar á vörum
ættu jafnframt að koma í veg fyrir
að allskonar gróusögur fari á
kreik eftir áramótin um meint
svindl og pretti kaupmanna á
vöruverði, eins og gerðist þegar
myntbreytingin varð á krónunni
um áramótin 1981.
Framkvæmdastjórn Kaup-
mannasamtakanna Magnús
Finnsson sagði að á meðan engin
tilmæli um tvímerkingu vöru
hefði borist frá hinu opinbera,
sæju samtökin enga ástæðu til að
beina þeim tilmælum til sinna fé-
lagsmanna, þrátt fyrir áskorun
Neytendafélags Reykjavíkur í þá
veru. Magnús sagði að ef ein-
hverjir kaupmenn tækju upp á
því nú að tvímerkja sínar vörur,
þá væri það alfarið þeirra verk.
grh
Byggingavísitala
Hækkar enn
Hækkun byggingavísitölu síð-
ustu þrjá mánuði nemur 23.3%
verðbólgu á heilu ári, en síðustu
tólf mánuði hefur vísitalan hækk-
að um 18% samkvæmt frétt frá
Hagstofunni.
Byggingarvísitala eftir des-
emberverðlagi hækkar um 0.37%
frá nóvember og er 107.9 stig.
Gildir sú tala fyrir janúarmánuð.
Mestu skiptir nú af einstökum
liðum hækkun á gatnagerðar-
gjöldum og töxtum Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Hækkunin í
desember er lítil miðað við und-
anfarna mánuði,
Mú er Ijóst að hefðbundnum
þingstörfum lýkur ekki fyrir
jól heldur munu þingmenn mæta
aftur til starfa mánudaginn 28.
desember og verða þingfundir þá
í þrjá daga. Allt eins er búist við
að þing komi svo aftur saman
strax upp úr áramótum þar sem
Brunavarðafélag Reykjavíkur
hefur haft forgöngu um gerð
kvikmyndar um eldvarnir á
heimilum og verður hún sýnd í
Sjónvarpinu þriðjudaginn 22.
desember.
Það er full ástæða til að hvetja
fólk til að horfa á myndina sem
nefnist „Það þarf ekki að gerast“.
Og það er réttnefni, því það er
ekki er útlit fyrir að takist að af-
greiða á annan tug stjórnarfrum-
varpa fyrir áramót einsog ríkis-
stjórnin hafði stefnt að.
f dag verður önnur umræða um
fjárlögí sameinuðu þingi og kom-
ust formenn þingflokka og forset-
ar þingsins að samkomulagi í gær
hægt að kaupa sér afar ódýra líf-
tryggingu, nefnilega reykskynj-
ara. Sérstök ástæða er til að
hvetja fólk að huga að eldvörnum
nú fyrir jólahátíðirnar, því flestir
eldsvoðar á heimilum verða á
þessum tíma.
Það er lofsvert framtak bruna-
varða að bera þetta átak í eld-
vörnum, en til liðs við sig fengu
um að sú umræða yrði innan hó-
flegra marka. Síðan fara þing-
menn í fimm daga jólafrí einsog
annað launafólk.
Á sunnudag óskaði ríkisstjórn-
in eftir samningaviðræðum við
stjórnarandstöðuna um að ljúka
þinghaldi fyrir jól. Bauðst hún til
þeir Samband íslenskra trygg-
ingafélaga, Húsatryggingar
Reykjavíkur og ísfilm hf. sem
framleiddi myndina.
Slökkviliðsmenn í Reykjavík
munu selja reykskynjara og
slökkvitæki í Kringlunni og neðst
á Laugaveginum fram til jóla.
- ns
að endurgreiða hluta af söluskatti
á fisk og fresta frumvarpinu um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga þar til eftir áramót. Stjórnar-
andstaðan gerði ríkisstjórninni
gagntilboð þar sem farið var fram
á að ríkisstjórnin félli frá matar-
skatti og skuldbindi sig til að
grípa ekki til gengisfellingar eða
efnahagsráðstafana með bráða-
birgðalögum í þinghléi. Þessu
hafnaði ríkisstjórnin og þar með
varð ljóst að ekkert samkomulag
gat orðið um að hraða þingstörf-
um.
í viðtali við Steingrím J. Sigfús-
son á bls. 5 í dag, segir Steingrím-
ur að hálfgert stjórnarkreppuá-
stand sé á þinginu í dag þrátt fyrir
mikinn þingmeirihluta ríkis-
stjórnarinnar.
í gær voru langar umræður um
kvótann í efri deild og söluskatt-
urinn var til umfjöllunar í neðri
deild. Búist var við að fundir
stæðu langt fram á nótt. Ljóst er
að ríkisstjórnin leggur höfuð-
áherslu á að allur skattapakkinn
fari í gegn fyrir áramót og sömu
sögu er að segja um kvótafrum-
varpið.
-Sáf
Þjóðlífsklandrið
Fallvalt
foreldialán
Fjórðungur barna 7 ára og
yngri og 64% 7 til 12 ára barna
ganga meira og minna sjálfala á
daginn. Þetta er ekki gott ástand,
en vissulega verða börn fyrr
sjálfstæðari en ella. Síðar er þau
ná gelgjuskeiðsaldrinum og fara
,rsínar eigin leiðir“ og hlýðnast
illa reglum foreldra, er gjarnan
talað um unglingavandamál.
Þetta segir Olafur Ólafsson
landlæknir í nýútkomnum bækl-
ingi sínum, Mannvernd. Þykir
Ólafi mannskepnan vel mega
skipa sinn sess í verndunarum-
ræðunni, ekki síður en náttúran,
landið, hvalir, hús og svo fram-
vegis.
- HS
Slökkviliðsmenirnir Björn Gíslason og Ármann Pétursson með reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Mynd. Sig.
Eldvarnir
„Það þarf ekki að gerast“
Brunavarðafélag Reykjavíkur með eldvarnaherferð
Bókakaffi við Unuhús
Fyrsta bókakaffið hefur verið opnað í Reykjavík, en bókakaffi eru vel þekkt
fyrirbæri í nágrannalöndum okkar. Bókakaffið ertil húsa að Garðastræti 17,
við hliðina á hinu sögufræga húsi, Unuhúsi, sem rithöfundar á borð við
Halldór Laxness og Þórberg Þórðarson hafa gert ódauðlegt í íslenskum
bókmenntum.
Klukkan 15 á Þorláksmessu mun Sigfús Daðason, skáld, lesa upp Ijóð úr
nýútkominni Ijóðabók sinni, Útlínur bakvið minnið. Þá mun hann árita
Ijóðabókina og einnig bók sína um Stein Steinarr, en báðar þessar bækur
eru nýkomnar út. -Sáf
Matarskatturinn
Forysta launafólks gagnrýnd
Steingrímur J. Sigfússon gagnrýnirforystumenn launafólks fyrir að
taka ekki harðar á stefnu ríkisstjórnarinnar
Eg gagnrýni forystumenn
launafólks í landinu fyrir að
hafa ekki tekið miklu harðar á
þessari hótunarstefnu ríkisstjórn-
arinnar, sagði Steingrímur J. Sig-
fússon m.a. í umræðu um sölu-
skattsfrumvarpið í neðri deild í
gær.
Jón Baldvin Hannibalsson
mælti fyrir fyrstu umræðu frum-
varpsins í deildinni en efri deild
hefur þegar afgreitt málið. Síðan
tók Steingrímur til máls og talaði
í nærri tvo klukkutíma. Sagði
hann að í þjóðfélaginu væri mikil
andstaða við matarskattinn og að
almenningur hefði andúð á skatt-
inum, en fjármálaráðherra hefði
ekki áhyggjur af því, heldur
greiddi hann fyrir kjarasamning-
um með slíkri skattlagningu og
sameiginlegri skattaukningu upp
á 8,5 milljarða króna.
„Aðferðin er þekkt, þetta er
hótunarstefnan. Nú á að bjóða
eitthvað pínulítið til baka. Þessi
framkoma er fyrir neðan allar
hellur. Undir svona hótunarsvipu
eiga samtök launafólks ekki að
ganga til viðræðna við ríkisstjórn-
ina,“ sagði Steingrímur.
-Sáf
Húsnœðisfrumvarpið
Orðið að lögum
Frumvarp félagsmálaráðherra
um breytingar á húsnæðislána-
lögunum varð að lögum á laugar-
dag eftir að því hafði verið vísað
aftur til neðri deildar vegna
prentviliu í þingskjali, einsog
Þjóðviljinn greindi frá á laugar-
dag.
Frumvarpið var samþykkt með
26 samhljóða atkvæðum að við-
höfðu nafnakalli. Þingmenn
Borgaraflokksins sátu hjá við af-
greiðsluna, en þeir hafa lagt fram
eigið frumvarp um húsnæðismál-
in.
-Sáf
Þriðjudagur 22. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3