Þjóðviljinn - 22.12.1987, Síða 5

Þjóðviljinn - 22.12.1987, Síða 5
ÞJÓÐMÁL Alþingi Stjómarkreppu- ástand á þingi Steingrímur J. Sigfússon: Þingrœðinu aldrei verið jafn mikið misboðið og nú afframkvœmdavaldinu. Þing milli jóla og nýárs og sennilega áfram í janúar strax eftir áramót „Það hefur gerst í tvígang áður að þing hefur starfað milli jóla og nýárs, en í bæði þau skipti árið 1958 og við áramótin 1979-80 var stjórnarkreppa í landinu. Það má því með sanni segja að það sé komið stjórnarkreppuástand núna þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé með þetta mikinn meirihluta,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon við Þjóðviljann í gær. Á sunnudag óskaði ríkisstjórn- in eftir viðræðum við stjórnar- andstöðuna um að reyna að ljúka störfum Alþingis fyrir jól og bauð í staðinn að endurgreiða hluta af söluskatti á fisk og fresta einu máli, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga fram yfir áramót. Stjórnarandstaðan kom með gagntilboð um að matarskattur- inn verði felldur niður og ríkis- stjórnin skuldbindi sig ekki til að grípa til gengisfellingar eða efna- hagsráðstafana með bráða- birgðalögum í þinghléi. Þessu hafnaði ríkisstjórnin og er því ljóst að ekki tekst að ljúka öllum þeim aragrúa mála sem ríkisstjórnin hafði einsett sér að koma í gegnum þingið fyrir jól. í dag fara þingmenn í jólafrí en mæta aftur mánudaginn 28. des- ember og jafnvel er búist við að þingið komi aftur saman strax upp úr áramótum. Verkstjórn ríkisstjórnar í molum „Það er athyglisvert að ríkis- stjórn með svona sterkan þing- meirihluta skuli setja málin í þann hnút og klúðra þeim þannig að hún þurfi að koma skríðandi til stjórnarandstöðunnar rétt fyrir jól og biðja um gott veður. Það er geysilegt veikleikamerki, það er einsog viðurkenning og stimpill yfir vandræðaganginn hjá þeim. Ástæðurnar eru fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi hrúg- ar ríkisstjórnin inn miklum kerf- isbreytingamálum, tugum stórra mála á allra síðustu dögum þing- haldsins, sem er hrein lítilsvirð- Mœðralaun Skerða ekki sjúkra- dagpeninga Eitt af fyrstu frumvörpum í gegnum þingið nú fyrir jól var frumvarp Guðrúnar Helgadóttur og fleiri þingmanna stjórnarand- stöðunnar um að greiðsla sjúkra- dagpeninga skerðist ekki við greiðslu mæðralauna einstæðra heimavinnandi mæðra. Hér er um að ræða 2. gr. frum- varps sem Guðrún lagði fram í upphafi þings, en ákveðið var að vísa fyrri hluta frumvarpsins til ríkissjórnarinnar, en þar var lagt til að sjúkradagpeningar fyrir einstakling nemi sömu upphæð og lágmarkslaun ófaglærðra á hverjum tíma og verði jafnháir greiðslum úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði. ing við þingið og algjörlega óvið- unandi vinnubrögð. í öðru lagi gengur þetta ekki neitt vegna á- greinings stjómarliða sjáifra. Það tefur fyrir í hverju málinu á fætur öðm. Það er að einhverju leytinu ástæðan fyrir því að málin eru svona seint fram komin. Þeim hefur gengið illa að ná samkomu- lagi um þau áður en þau eru lögð fram. Það hefur gerst hvað eftir ann- að á þessu hausti að stjórnarf- rumvörp eru lögð fram með alls- konar fyrirvörum annarra stjórnarliða. Þau hafa verið lögð fram sem hálfgerð þingmannafr- umvörp. Þetta hefur því allt verið mjög losaralegt og upplausnark- ennt, verkstjórn virðist vera al- gjörlega í molum og og greinilegt að andrúmsloftið er lævi blandið í ríkisstjórninni. Þeir eru allir að hugsa um það að komast sem best frá þessu ef það skyldi slitna upp úr þessu einhverntímann. Það er átakanlega áberandi hvernig Framsókn reynir að hvítþvo sig af öllu sem miður fer, einsog venju- lega. Þingsköpum verði breytt Þetta er fyrst og fremst dapur- legt fyrir þingið sem stofnun. Það er ekki við Alþingi, þingmenn og forseta að sakast hvernig komið er heldur við ríkisstjórnina sjálfa. Ég sé ekki betur en að menn verði að setjast niður eftir þessa törn og ræða það í fullri hrein- skilni að breyta lögum um þing- sköp, þannig að það sé ekki hægt að leggja mál svona seint fram ef þau eiga að fá afgreiðslu. Þetta var rætt árið 1985, þegar þing- sköpum var breytt og þá varð nið- urstaðan að setja inn frest hversu seint má leggja fram mál á vorin, ef þau eiga að fá afgreiðslu. Það er nú alveg ljóst að það verður einnig að setja slík tímatakmörk á haustin, ef mál eiga að vera af- greidd fyrir jól. Auðvitað ætti þetta að vera einsog í nálægum þingum, að öll þau stærri mál sem ríkisstjórnin vill fá afgreidd á haustin, séu lögð fram á fyrstu dögum þinghalds. Það hefði munað miklu ef öll þessi mál hefðu verið komin til meðferðar strax í upphafi þings. Staðreyndin er sú að þingið hafði Hr. ritstjóri. Síðastliðinn laugardag birtist í Þjóðviljanum frétt undir fjögurra dálka fyrirsögn um að ég hafi mis- beitt forsetavaldi mínu í neðri deild Alþingis. Mér finnst þessi fyrirsögn ómakleg enda kemur annað fram í fréttinni. Því vil ég láta koma fram í blaði þínu eftir- farandi: Þegar 2. umræða fór fram í neðri deild sl. föstudag hafði um skeið staðið í þófi stjórnarand- ekkert að gera fyrr en um 10. des- ember. Þá brast á stórhríð, því þá ruddust málin inn. Efnahagsástandið í ólestri Þá er ljóst að efnahagsástandið er í ólestri og stjórnin ráðvillt í þeim efnum. Það er greinilegt að þeir hafa hugsað sér að keyra skattasúpuna og fjárlögin í gegn og reyna svo að sjá til lofts eftir áramót, þegar búið er að senda þingið heim, með það í huga að grípa til einhverra bráðabirgða- ráðstafana. Þeim er því mikið í mun að reyna að djöfla þessu hér af. Það stóð ekki til og stendur ekki til af okkar hálfu, að hjálpa þeim með matarskattasúpuna í gegn, fyrir einhvert hundspott. Ef þeir eru ekki til viðræðu um að bakka með matarskattinn og fara að haga sér einsog menn, þá geta þeir átt þetta. Ég vona að menn ræði málin einsog þau bjóða upp á. Hér eru engin smá mál á ferð- inni. Stjórnarandstaðan á ekki að láta taka af sér réttinn til þess að fjalla um málin með eðlilegum hætti. Það á við öll mál. Því til viðbótar er alveg ljóst að við munum ekki hjálpa þeim við að koma matarskattinum hér í gégn. Það er nú þegar orðið tækni- lega mjög erfitt að koma öllum þessum málum með skikkan- legum hætti í gegn. Það þarf stöðu um að fá fjármálaráðherra til þess að taka þátt í umræðunni. Þar kom að sýnt var að fjármála- ráðherra myndi ekki kveðja sér hljóðs, enginn var á mælendaskrá og lýsti ég yfir því að umræðu væri lokið. I því kvað Hjörleifur Guttormsson sér hljóðs, að því er ég taldi, eftir að ég hafði lýst um- ræðu lokið og úrskurðaði ég svo. Þessu mótmæltu Hjörleifur og Steingrímur J. Sigfússon. Ég kvaðst þá athuga nánar úrskurð minn í fundarhléi sem þá hafði endalaus afbrigði ef þetta á að vera hægt fyrir áramót. Þingsköp og þingleg vinnubrögð eru ekki út í bláinn. Þau eru sett með það í huga að tryggja eðlilega umfjöll- un um mál. Stjórnin er í raun og veru að krefjast færibandaaf- verið ákveðið að gefa. Ég hlust- aði þá á upptöku af fundinum og kom þá í ljós að Hjörleifur hafði kvatt sér hljóðs í sömu andrá og ég lýsti umræðu lokið. Ég ákvað þá þegar að kveða upp nýjan úr- skurð í upphafi fundar og til- kynnti Hjörleifi, Steingrími Sig- fússyni og fjármálaráðherra það þá þegar að umræðu væri ekki lokið. Allir voru sáttir við þessa niðurstöðu og lauk annarri og þriðju umræðu um málið á skömmum tíma. greiðslu á viðamiklum og flókn- um málum. Þingræðinu á fslandi hefur sennilega sjaldan, ef nokk- urntíma verið jafn mikið misboð- ið og nú af framkvæmdavaldinu. “ -Sáf Það stóð aldrei til að hefta mál- frelsi þingmanna, enda ein um- ræða um málið eftir. Ég hef síð- ustu vikur átt mjög gott samstarf við þingmenn stjórnarandstöðu sem stjórnarliðs um þingstörf í miklu annríki á Alþingi. Því eru stórfyrirsagir í blaði þínu um mis- beitingu forsetavalds út í hött. Með bestu kveðju Jón Kristjánsson forseti neðri deildar Alþingis Þriðjudagur 22. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5 Stjórnarandstaðan Málin í hörðum hnút Eins og öllum er Ijóst hefur ríkisstjórnin með skipulagsleysi sínu og sundurlyndi skapað ó- fremdarástand á Alþingi með því að leggja fram aragrúa mjög flók- inna frumvarpa á síðustu dögum fyrir venjulegt jólaleyfi þingsins. Innbyrðis sundurlyndi stjórnar- liða og slæleg verkstjórn í ríkis- stjórn hafa nú sett þessi mál í harðan hnút. 1) Við þessar aðstæður óskaði ríkisstjórnin í gærdag eftir samn- ingaviðræðum við stjórnarand- stöðuna um að ljúka þinghaldi fyrir jól. í því sambandi bauð ríkisstjórnin að endurgreiða hluta af söluskatti á fisk og fresta einu ágreiningsmáli, verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga, fram yfir áramót. 2) Stjórnarandstaðan var að sjálfsögðu reiðubúin að ræða um þinghaldið og þau mál sem hér eru til meðferðar, eins og ávallt. 3) Stjórnarandstaðan gerði ríkisstjórninni gagntilboð sem fólst í því að ekki yrði lagður matarskattur á innlendar ma- tvörur. í öðru lagi að ríkisstjórnin skuldbindi sig til þess að grípa ekki til gengisfellingar eða efna- hagsráðstafana með bráða- birgðalögum í þinghléi. 4) Þessu höfnuðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar og stjórnar- flokkanna. í staðinn vísuðu þeir til fyrra tilboðs og voru ekki til viðræðu um annað. Að lokum vill stjórnarandstað- an taka fram að henni er ekkert að vanbúnaði að sinna sínum skyldustörfum á þingi, hvort sem er milli jóla og nýárs, eða hvenær sem þörf krefur. Neðri deild Athugasemd frá forseta

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.