Þjóðviljinn - 22.12.1987, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 22.12.1987, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN MINNING vii lon u 11 iuQin Tll sölu Handunnar rússneskar tehettur og matrúskur (babúskur) (miklu úrvali. Góðar gjafir á góðu verði. Uppl. I síma 19239. Póstkröfuþjónusta. Ruggustóll óskast helst úr beyki eða eik. Uppl.s. 45755 í kvöld og í hádeginu á morg- un. Bassamagnarl til sölu 100 w með equalizer. Mjög gott verð. Uppl. í síma 45755 í kvöld og I hádeginu á morgun. Gervijólatré til sölu Hæð 1,20 m. Verð 1 þús. Mjög vel með farið. S. 34088. Dúkkurúm Litríkir leikfangabílar úr tré. Leik- föngin verða til sölu 15., 18.-22. des. á útimarkaðinum á Laekjartorgi og Lyngheiði 12 Hveragerði. Sendi um land allt. Auður Oddgeirsdóttir, húsgagnasmiður sími 99-4424. Tvíburaforeldrar Til sölu Emmaljunga tvíburavagn og Simo tvíburakerra. Uppl. í síma 53972 e. kl. 17.00. Til sölu Notaður leirbrennsluofn til sölu. Gott verð. Símar 21981 og 29734. Til söiu Leirmunur til sölu v/flutnings. Lítið við í Ingólfsstræti 18, sími 21981. Tvítug frönsk stúlka óskar eftir störfum við barnaaæslu og heimilishjálp („au pair")á Islandi næsta sumar, í júlí og ágúst. Talar þýsku vel og svolitla ensku. Mlle Anne Terrlere 9 rue Blgot „Foyer“ 33000 BORDEAUX France Óskast keypt Viljum kaupa barnakojur og klósett. Uppl.s. 79564. Barnabílstóll til sölu. Sem nýr. Uppl.s. 21784. Stofuofn til sölu. Gamall og góður. Ódýr. Uppl.s. 21784. Innihurð með gleri og körmum til sölu. Ágæt bráðabirgðahurð. Ódýr. Uppl.s. 21784. Svefnsófi Sem nýr furusvefnsófi til sölu. 2 m á lengd, 11/2 dýna með rúmfata- geymslu á kr. 12.000-15.000. Uppl.s. 19656. Canon mynda- vélalinsur Til sölu linsur. 1 stk. 35 mm F/3,5,1 stk. 50 mm F/1,8, 1 stk. 135 mm F/2,5 á mjög góðu verði. Einnig fæst sófasett með rústrauðu áklæði 3+1 +1 á kr. 4 þús. Tilvalið í sumar- bústaðinn eða stofuna. Uppl.s. 25859. Ódýrt hjónarúm til sölu og ónotuð 70-200 m ZOOM linsa fyrir Canon myndavél. Uppl.s. 675089. íbúðaskipti Kaupmannahöfn - Reykjavík 3ja herb. íbúð á góðum stað í Kbh., Bellahaj, fæst í skiptum í 6 mán. fyrir íbúð í Rvík. Uppl.s. 21733. Jólasveinabúningar til sölu í síma 32497 eftir kl. 20. Kiðlingapels til sölu sem nýr, nr. 44. Verð kr. 22 þús. (Nýir kosta 39-49 þús.) Sími 16034. Jakob sölumaður! Kobbi, þú sem hefur selt auglýsing- ar, ef þú sérð þessa auglýsingu þá vinsamlegast hafðu samband í síma 681310. Ég þarf að ná tali af þér. Olga. VILTMJGEFA GÓÐA OG EINFALDA GJÖF? Þetta hjartanlega plakat sem Æskulýösfylk- ingin gefur út kostar aöeins 300 kr., hvar sem er á landinu. Hafið samband við Alþýðubandalagið, Hverfisgötu 105, sími 17500, og fáið, eða pantið eintök. Ath. Sendum í póstkröfu. ÆFAB Sigríður Eria Eiríksdóttir fædd 11. 05. 1949 - dáin 14. 12. 1987 Vinkona okkar, hún Sigga er dáin. Við lítum upp úr amstri jóla- undirbúningsins og skiljum ekki hvað hefur gerst. Það er svo erfitt að trúa því að hún sé farin og ennþá erfiðara að skilja hvers vegna. Við kynntumst Siggu í Samvinnuskólanum, við vorum öll saman í bekk. Þar bundumst við þeim vináttuböndum sem æ hafa haldist. Þegar skólanum lauk fóru margir til Reykjavíkur að vinna. Nokkrar stelpur utan af landi leigðu þá saman íbúð. Það var oft gaman á Grettisgötunni þegar skólafélagarnir komu í heim- sókn. Sigga var ætíð hrókur alls fagnaðar. Hún var glaðlynd, op- inská og hreinlynd. Á þessum árum fór Sigga oft heim á Laugar- vatn um helgar og gjarnan ein- hver vinkona með og stundum fleiri saman. Þangað var gott að koma. Þar ríkti ástúð og hlýja, það var ekki erfitt að sjá hvaðan Sigga sótti sitt góða hjartalag. Grettisgötubúskapurinn stóð í 2 ár, þá fór Sigga í Húsmæðraskól- ann og ári seinna í Húsmæðra- kennaraskólann. Þaðan útskrif- aðist hún sem kennari í heimilis- fræðum. Á þeim árum kynntist hún eftirlifandi manni sínum Hlöðveri Ólasyni. Þau dvöldu nokkur ár í Danmörku meðan Hlöðver var við nám, þá var Óli fæddur og Sigga alsæl. Þau komu heim eins og annað ungt fólk, fóru út í að eignast þak yfir höf- uðið. Það liðu nokkur ár, svo fæddist Eiríkur. Einbýlishúsið í Grafarvogi var í byggingu - fram- tíðin brosti við þeim, þá veiktist hún. Til að byrja með leit út fyrir að hún myndi ná sér. Þau fluttu 'v nýja húsið og Sigga fór að kenna við Foldaskóla. En svo fór að síga á ógæfuhliðina, Sigga veiktist aft- ur. Hún bar sig alltaf vel, hún var raunsæ og átti létt með að tala um veikindi sín, það var eflaust hennar styrkur. Aldrei lét hún sig vanta í saumaklúbbinn, né þegar bekkjarfélagararnir hittust og enn var hún hrókur alls fagnaðar. Við hin áttum alltaf erfitt með að trúa því að þetta gæti nokkurn tímann farið svona. En nú er hún farin, við eigum eftir minninguna um góðan og traustan vin. Vin, sem alltaf átti til rúm í hjarta sínu fyrir aðra. Nú þegar leiðir skilur viljum við þakka Siggu kærlega fyrir sam- ferðina í þessu lífi. Eiginmanni, sonum, foreldrum og öðrum að- standendum vottum við samúð okkar og vonum að minningin um hana veiti þeim styrk í sorg- inni. Ég er blómið, sem óx úr mold þinni, jörð, hið unga blóm, sem sólskinið tók sér í fang. Ég dreifði gleði minni um þinn víðavang ó, veröld, sem áttir hjarta míns þakkargjörð. Tómas Guðmundsson Bekkjarsystkini úr Samvinnuskólanum Ég þakka öllum sem sýndu mér vinsemd og samúð við andlát og jarðarför eiginmanns m(ns Jóns Kristins Guðnasonar Sérstakar þakkir eru til starfsfólks sjúkrahússins í Neskaup- stað. Guð blessi ykkur öll. Þóra Snædal Strandgötu 5 Eskifirði þlÓÐVILJINN 0 68 13 33 Tíminn 0 68 18 66 0 68 63 00 Blaðburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sigl BLAÐBERAR ÓSKAST Víðs vegar um borgina Hafðu samband við okkur þiömnuiNN Síðumúla 6 0 68 13 33

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.