Þjóðviljinn - 22.12.1987, Page 9

Þjóðviljinn - 22.12.1987, Page 9
Stórmót íþróttafréttamanna innahuss verður haldið á Akra- nesi í byrjun janúar. Þar mæta til leiks sterkustu lið landsins og leika í tveimur riðlum. Að þessu sinni verður leikið um nýjan bikar þarsem KR-ingar unnu þann gamla til eignar. Þessi keppni er stór þáttur í undirbúningi liðanna fyrir fs- landsmótið innanhúss sem haldið verður í Laugardalshöllinni skömmu síðar. Búið er að draga í tvo riðla. f A-riðli leika ÍA, Fram. ÍBK og KR. í B-riðli leika svo Valur, Þór, KR og úrvalslið íþrótta- fréttamanna. -Ibe Blak Hafnaði í 5. sæti íslenska kvcnnalandsliðið í blaki hafnaði í 5. sæti á alþjóð- legu móti í Luxemburg. íslenska liðið sigraði Færeyjar í síðasta leiknum, 3-1. Það var lið frá S-Kóreu sem sigraði í mótinu, eftir úrslitaleik gegn gestgjöfunum, Luxemburg. -Ibe England Maxwell hættir við Breski blaðakóngurinn Robert Maxwell ákvað um helgina að draga tilboð sitt, í 1. deildarliðið Watford, til baka. Hann var óánægður með við- brögð breska knattspyrnusamb- andsins sem sagði að hann gæti ekki keypt Watford án þess að selja Derby og Oxford. Maxwell var ekki hrifinn af þessu og kall- aði þetta samsæri og ákvað að draga tilboð sitt til baka. Watford er því enn til sölu og í gær höfðu tveir aðilar lýst yfir áhuga á að kaupa félagið, en nöfn þeirra voru ekki gefin upp. -Ibe/Reuter Landsleikur Aftur í kvöld ísland og Suður-Kórea mætast aftur I kvöld í Laugardalshöil. Sérstök athygli er vakin á því að miðasalan opnar ekki fyrr en kl. 19.30, en leikurinn hefst kl. 20.30. í gær var uppselt og það má einnig búast við því í kvöld, enda skemmtilegir leikir. 0g þetta líka... Mark Dennis leikmaður QPR áfrýjaði 53 daga banninu sem hann fékk fyrir 11 brott- vikningar á 10 ára ferli. Þar af leiðandi getur hann leikið með liði sínu í jóla- og nýársleikjum fyrstu deildar. Knattspyrna Stóimót á Akranesi Kristján Arason skorar eitt af 10 mörkum sínum í gær þrátt fyrir að vera með einn Suður-Kóreumanninn á bakinu í orðsins fyllstu merkingu. Mynd:E.Ol. Handbolti Mailcametið slegið! 67mörk ííslenskum sigriyfir Suður-Kóreu, 36-31. Rúmlega mark á mínútu. Krafturinn sigraði snerpuna. Fyrsti sigurinn yfir Suður-Kóreu Kraftmiklir íslendingar sigr- uðu snögga Suður-Kóreumenn í hörkuleik í gær, 36-31. Alls 67 mörk sem er met í landsleik. Gamia metið var í leik gegn Kína í október 1977, 64 mörk, 33-31. Rúmlega mark á mínútu, enda var leikurinn svo hraður að aldrei leið meira en ein og hálf mínúta milli marka. Ahorfendur sem troðfylltu Laugardalshöllina skemmtu sér vel, leikurinn skemmtilegur og bauð uppá allt það besta í handknattleik. „Þetta var mjög gaman og leikir gegn Suður-Kóreu eru a.m.k óvenjulegir," sagði Krist- ján ARason eftir leikinn í gær. „Þeir skutu um leið og þeir fengu tækifæri til þess og það varð til þess að við jukum einnig hraðann. Þetta var erfiður leikur og spurningin var hvort við næðum að halda í við þá í úthaldi. Okkur tókst það, en ég var orðinn býsna þreyttur". Fyrsta markið kom eftir 25 sek- úndur og eftir þrjár mínútur var búið að skora fimm mörk. Suður- Kóreumenn leiddu framan af og þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 7-9, Kóreu í vil. Þá kom stórkostlegur kafla hjá íslendingum þarsem þeir skoruðu fimm mörk í röð. íslendingar héldu þessu for- skoti og í hálfleik var munurinn fimm mörk, 20-15. Öðruvísi leikur Leikurinn var öðruvísi en þeir leikir sem íslendingar hafa leikið að undanförnu. Vörn Suður-Kóreu var mjög hreyfanleg, en hvorki sterk né þétt. íslendingar léku hratt og líkamlegur styrkleiki þeirra hafði mikið að segja gegn smávöxn- um Kóreumönnum. „Ég var orðinn rosalega þreyttur undir lok fyrri hálfleiks og varð að skipta útaf,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði íslenska lands- liðsins eftir leikinn. „Ég tók Kang úr umferð, og hann var ekki á því að standa kyrr. Það er ótrúlega erf- itt að spila gegn þessu liði. Hraðinn er svo mikill og þessar tölur eru eðlilegar miðað við gang leiksins. Þetta var allt öðruvísi en aðrir landsleikir. Miklu meiri snerpa og minni harka. Við unnum á líkam- legum styrk og krafti. Við nýttum færin okkar líka mjög vel og það munar miklu í svona hröðum leik. Við erum að sjálfsögðu ánægðir með aðsóknina og vonum að það verði jafn margir í dag. Þetta eru skemmtilegir leikir fyrir áhorfend- ur og öðruvísi, en við ætlum að bæta vörnina." Síðari hálfleikurinn var svipaður, hraðinn allsráðandi og mörkin komu hvert á fætur öðru. Munur- inn var alltaf 3-6 mörk og Kóreu- menn aldrei verulega nálægt því að jafna. Síðasta orðið átti Geir Sveinsson en hann skoraði 36. mark Islands og 67. mark leiksins, yfir þveran völlinn, á síðustu sek- úndu leiksins. „Þetta var mjög erfiður leikur, enda alltaf erfitt að leika svona hratt,“ sagði Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari eftir leikinn. „Þessi leikur var þó mun skemmti- legri fyrir áhorfendur en venjulegir landsleikir. Það var greinilegt að liðið hefur endurheimt leikgleðina og ein- beitingin var góð. Við ætlum okkur sigur í dag og við vitum alveg hvað við ætlum að gera. Við verðum fyrst og fremst að hugsa um einbeitinguna og ég hugsa að mörkin verði færri og vömin betri." Guðmundur Hrafnkelsson átti mjög góðan leik og varði 17 skot, sem er einstaklega gott miðað við vöm íslenska liðsins. Kristján Ara- son og Geir Sveinsson léku einnig vel og það sama má segja um ís- lenska liðið í heild. Stórskytturnar Kang og Lee vom í aðalhlutverkum hjá Suður- Kóreumönnum, en þó fór íslenska vömin sérstaklega út á móti þeim. Við það losnaði um Kim sem lék í horninu. Hann skoraði 12 mörk úr ótrúlegustu færum. Mörk Islands: Kristján Arason 10(4v), Þorgils Öttar Mathiesen 7, Geir Sveinsson 5, Atli Hilmarsson 5, Valdimar Grimsson 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Karl Þráins- son 2, Sigurður Gunnarsson 1 og Jakob Sigurðsson 1. Mörk Suður-Köreu: Jae-Hwan Kim 12 (3v), Sang-Hyo Lee 8, Jae-Won Kang 6, Young-Dae Park 2, Suk-Chang Koh 1 og Young-Suk Sin 1. Þriðjudagur 22. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Umsjón: Logi B. Eiðsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.