Þjóðviljinn - 05.02.1988, Side 7
Ronald Reagan brá sór í flestra kvikinda
bandarísku almannafé.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti náði ekki uppí nefið á sér
fyrir reiði í gær og veittist harka-
lega að fulltrúadeild þingsins
fyrir þá ósvinnu að felia tillögu
um að veita málaliðum sínum,
Kontraliðum, 36 miljónir dala til
hryðjuverka í Nicaragua.
Málsvari höfuðpaurs Hvíta
hússins í Washington, Marlin
nokkur Fitzwater, sagði hús-
bónda sinn sárt leikinn og hefði
hann sagt ákvörðun fulltrúa-
deildarinnar „grafa undan hetju-
legri framgöngu þessara hug-
rökku karla og kvenna á örlaga-
stundu.“ Fréttir frá því í gær-
morgun herma að ákvörðun
meirihluta fulltrúadeildarinnar
hafi ekki verið „þessum hug-
rökku körlum og konum“ að
skapi því þá gerðu nokkur þeirra
árás á þorp í Nicaragua og myrtu
ellefu manns, þar af þrjú börn.
Fyrirmenn málaliðanna sögðu í
Honduras í gær að þrátt fyrir
þessa niðurstöðu myndu þeir
halda „bardögum" áfram.
Ríkisstjórn Nicaragua fagnaði
málalyktum mjög í gær og fór
lofsamlegum orðum um þá 219
fulltrúardeildarþingmenn er
Fjórir snáðar á götu í Managua. Vonandi fá þ©ir frið fyrir Reagan á næstunni. greí(j(ju atkvaeði gegn fjáraustri í
ífyrrakvöldfelldu bandarískirfulltrúar-
deildarþingmenn með 219 atkvœðum gegn
211 beiðniforseta síns um 36 miljón dala fjár-
styrk til Kontraliða
Bandaríkin/Nicaragua
„Sárt ert
þú leikinn
Sámur fóstri“
líki er hann í örvæntingu reyndi að tryggja málaliðum sínum 36 miljónir dala af
Kontrahítina. Engu að síður
vöruðu ráðamenn þjóðina við að
búast nú við því að borgarastyrj-
öldin sem geysað hefur í sex ár sé
þar með á enda. Enn ættu
Kontraliðar umtalsvert magn
vopna og vista.
„Þetta er sigur fyrir nikarösku
þjóðina," sagði sendiherra henn-
ar í Washington, Carlos Tunner-
mann, í gær og bætti við: „Þetta
er sigur réttlætisins og heilbrigðr-
ar skynsemi.“ En menn sáu ekki
ástæðu til þess að efna til hátíða-
halda í Managua og fjölmiðlar
vöruðu stjórnarherinn, sem skip-
aður er 75 þúsund manns, við því
að sofna á verðinum. Dagblaðið
„Nuevo Diario“ sagði í leiðara að
vissulega færu nú í hönd betri
tímar en bætti við að þeir væru til
sem „ekki vilja og aldrei munu
vilja frið.“
Ýmsir stjórnmálaskýrendur
sögðust í gær fullvissir um að Re-
agan myndi leita annarra leiða til
þess að fá framlengt einkastríð
sitt og málaliða sinna við þjóð
Nicaragua. Niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar væri að sönnu mikill
ósigur fyrir hann og utanríkis-
stefnu hans en nú gæti hann til að
mynda reynt að veita fjármagni
til Kontraliðanna fyrir milligöngu
leppstjórna.
Flestar ríkisstjórna í Róm-
önsku Ameríku fögnuðu málal-
yktum í gær. Miguel de la Madrid
forseti Mexíkó er algerlega and-
vígur því að Bandaríkjamenn séu
að slettirekast í málefnum ríkja
Mið-Ameríku. Mexíkanskir fjöl-
miðlar lofuðu einróma niður-
stöðu atkvæðagreiðslu fulltrúa-
deildarinnar í gær.
Dagblaðið Excelsior túlkar
sjónarmið stjórnvalda. Leiðara-
höfundi þess fórust svo orð í gær:
„Nú er öllum ljóst að strengbrúð-
ustefna Bandaríkjamanna hefur
farið út um þúfur.“ Hann sakaði
ráðamenn í Washington um að
hafa á umliðnum árum farið of-
fari í ofsóknum sínum á hendur
íbúum Nicaragua og ekki vflað
fyrir sér að grípa til ólöglegra að-
gerða til þess að fá vilja sínum
framgengt. Þeir hefðu ennfremur
beitt ríkisstjórnir annarra Mið-
Ameríkuríkja ósæmilegum þrýst-
ingi í því augnamiði að fá þær til
þess að taka þátt í framlengingu
ófriðar í Nicaragua er þegar hefði
kostað 40 þúsund manns lífið.
Reuter/-ks.
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna
Enn og aftur ,hnýta þeir í Israer
Yitzhak Shamir sannar hugrekki sitt með því að ferðast til Gaza
Fjöldi fulltrúa á fundi
Mannréttindanefndar Samein-
uðu þjóðanna í Genf fordæmdi í
gær framferði ísraelsstjórnar á
herteknu svæðunum. Þar á meðal
voru fulltrúar fjögurra ríkja sem
eiga fastafulltrúa í Öryggisráði
alþjóðasamtakanna, Kína,
Frakklands, Bretlands og Sovétr-
íkjanna.
Hver ræðumaðurinn á fætur
öðrum sté í ræðustól á fundinum í
gær og hvöttu þeir ráðamenn í
Jerúsalem óspart til þess að halda
alþjóðalög og virða sjálfsögð
mannréttindi palestínsku þjóðar-
innar. Ennfremur skoruðu þeir á
ísraelsmenn að taka þátt í alþjóð-
legri ráðstefnu á vegum Samein-
uðu þjóðanna um frið í löndum
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Fulltrúi ísraelsmanna á fundin-
um var ekki allskostar ánægður
með málflutning þorra ræðu-
manna. Kvað hann ekki einleikið
hvað menn hefðu sýknt og heilagt
mikla ánægju af því að hnýta í
ísrael og sagði óspektirnar á her-
teknu svæðunum stafa af því að
öfgamenn hefðu hrært uppí hóf-
semdarmönnum og ruglað þá í
ríminu. Allt félli í ljúfa löð þegar
hugsun þeirra skýrðist á ný.
Yitzhak Shamir, ármaður ísra-
elskra hægrimanna, fór í óvænta
heimsókn til Gaza í gær. Hrósaði
hann dátum sínum í hástert fyrir
að hafa unnið gott starf við erfið-
ar aðstæður. Málpípa Shamirs
kvað hann hafa lagt uppí reisu
þessa til þess að sýna og sanna
fyrir umheiminum að ísraelskum
forsætisráðherra væri óhætt að
ferðast um herteknu svæðin.
Fréttamenn bentu þó á að
eitthvað væri þetta málum
blandið því öryggisgæsla hefði
verið gífurleg og auk þess hefði
þeim verið óheimilt að flytja
fréttir af atburðinum fyrr en
Shamir var löngu kominn heim til
Jerúsalem á ný.
Reuter/-ks. Riddarinn hugprúði.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Apartheid
10 ára gamall píslarvottur
Drepinn eftir að hafa borið vitni umpyntingar ífréttamynd. Lög-
reglan bannar aðgang að jarðarförinni
Sicelo Dlomo var ekki nema 10
ára en hafði þó reynt sitt af
hverju. Nýlega kom hann ásamt
mörgum öðrum þekktum og
óþekktum S-Afríkumönnum
fram í heimildarmyndinni
Children of Apartheid sem CBS-
fréttastofan gerði um líf blökku-
barna í S-Afríku.
Þar sagði hann frá pyntingum
sem hann hafði mátt sæta af hálfu
lögreglunnar á árunum 1986 og
1987. Eftir birtingu myndarinnar
var hann handtekinn af lögregl-
unni eina ferðina enn og yfir-
heyrður um þátttöku sína í gerð
hennar. Fimm dögum síðar
fannst hann drepinn á víðavangi.
En Sicelo Dlomo fær ekki fnð
fyrir lögreglunni, þótt búið sé að
drepa hann. í gær umkringdi her
og lögregla samkomu þar sem
nokkur þúsund blökkumanna
höfðu komið saman í Soweto til
þess að minnast Sicelo. Þátttak-
endur í minningarathöfninni
sungu frelsissöngva umkringdir
vopnuðu liði hermanna og lög-
reglu, en ekki kom til átaka. Lög-
reglan hefur fyrirskipað að ekki
fleiri en 200 fái aðgang að jarðar-
förinni sem fara á fram á laugar-
dag. -ólg/reuter.