Þjóðviljinn - 07.02.1988, Blaðsíða 12
BURT REYNOLDS
maðurinn og kyntáknið
Um næstu jól kemur út hjá
bókaútgáfunni Prentvali í
Kópavogi bókin BURT
REYNOLDS, maðurinn og
kyntáknið eftir Leslie Cunn-
ingham. Hún er þriðja bókin í
bókaröðinni um fræga Holly-
woodleikara, en áður komu út
bækurnar um Barböru
Streisand og bókin um Elísa-
betiTaylor. Þjóðviljinn birtir
hér kafla út síðari hluta bókar-
innar um Burt Reynolds.
Hann fjallar mest um það þeg-
ar fór að hægjast um hjá hon-
um í ferlinum. Við gefum nú
bókarhöfundinum orðið:
23. kafli
Breytinga að vœnta
hjó Burt
Já, það má sannarlega segjast
að skin og skúrir hafi skipast í
lofti yfir lífi Burts að undanförnu
þegar hér er komið við sögu og
sjálfsagt ekki um einn að sakast í
þeimefnum. Samningurinn ernú
runnin út þegar hér er við sögu
komið og satt að segja voru yfir-
mennirnir hjá Warner-Brother
búnir að afskrífa Burt í sambandi
við meiri hlutverk. Hann hafði nú
þegar leikið í rúmlega 29 kvik-
myndum og þá flest í hlutverkinu
sem hann kunni alltaf einna best
við sig í hlutverki einkaspæj arans
eða lögreglumanns sem tekið
hefur lögin í sínar hendur og enda
vart þá við öðru að búast en að
endingu fari vel að leikslokum.
Hefur hann nú enda, ef svo má
segja, komið vel undir sig fótun-
um og fest sig í sessi sem einn af
ábyggilegustu leikurunum í
Hollywood.
En eins og fólki er kunnugt er
ekki alltaf um sjö dagana sæla að
ræða hjá fræga fólkinu og það
vafalaust síst en ekki síðast í kvik-
myndaheiminum þar sem stjörn-
ur í dag eru ekki stjörnur á morg-
un.
Burt hneigðist nú aftur til vín-
hneigðar frekar en áður og átti
við áfengismál að stríða um hríð
þó varla væri hann talinn í hópi
alkóhólista. Það koma einmitt þá
til kastanna hjá gömlu vinkon-
unni hans Loni Anderson að
hjálpa upp á sakirnar hjá Burt,
gamla vini sínum og hún bjó hjá
honum á meðan hann var að
reyna að ná sér upp úr þessum
öllum vandamálum. Altalað var
samt í Hollywood, höfuðborg
kvikmyndaiðnaðarins í heimin-
um í dag, á þessum tíma að þau
gömlu skötuhjúin væru komin
aftur í eina sæng og var jafnvel oft
nefnd hjónasængíþessu tilefni.
Þetta var auðvitað skiljanlegt,
einkum út af því að sem hinn
frægi leikstjóri Hugh Melville
junior lét eitt sinn þau orð falla
um Loni Anderson að ef hún
hefði getað fæðast fyrr þá hefði
hún ein getað stöðvað rússnesku
byltinguna og það með brjóstun-
um einum.
Hvað sem hæft var í þessum
sögusögnum veit nú enginn en
alla vega var Burt nú kominn á
fullt aftur og farinn að leika þá
um vorið. Hér var um að ræða
nýja mynd sem Menam og Golan
voru producerar fyrir og fjallaði
um lögreglumann sem rík ekkja
leigir til að koma upp um erfða-
svikamál og afleiðingar þess.
Þessi mynd hét Legið á svik-
ráðum (Between the eyes) og
gekk hún sæmilega vel, eða nóg
til að koma Burt upp úr smávægi-
legum fjárhagsvandamálum í
sambandi við sjónvarpsþætti sem
NBC sjónvarpsstöðin hafði hætt
við að sýna þá um vorið.
Það var því bjart framundan
hj á Burt þegar árinu lauk og það
kórónaði hann með því að kynn-
ast yndislegri stúlku sem var ung
leikkona á framabraut, Stacy
Stephens að nafni. Þau kórónuðu
það hjá sér með því að gifta sig
strax á gamlárskvöld í glæsihóteli
í Las Vegas-borg. Það var líka
ekki smá veisla sem gestunum var
boðið upp á það kvöld. Burt gat
sannarlega glaðst með sér og sín-
um vinum sem fjölmenntu þarna
á þetta glæsilega hótel. Sem dæmi
um trakteringarnar var 15 hæða
stór terta úr dýrasta marsipani og
limosine-þjónusta fyrir hvern og
einn heim til sín og það upp að
dyrum. Sagði enda Burt sjálfur
eftir á að þetta hefði verið sín
besta brúðkaupsnótt til þessa.
Og nú tóku tilboðin að streyma
til Burts um ný hlutverk í mörg-
um kvikmyndum. Burt gat nú
beinlínis valið, þegar hér er kom-
ið við sögu, úr öllum þeim ara-
grúa af tilboðum sem honum
höfðu borist úr öllum áttum. Það
var því erfitt að velj a bara eitt
hlutverk úr en endirinn var samt
sá að úr varð að Burt tæki hlut-
verki í nýrri mynd með Lizu Min-
elli sem mótleikara, aðallega af
þeirri ástæðu að hann hafði ekki
nema einu sinni áður verið svo
heppinn að fá að starfa með
henni. Myndin fjallaði um lög-
reglumann sem rík ekkja leigir til
að komast fyrir um dularfulla at-
burði sem gerst höfðu í sambandi
við erfðamál. Hún fékk að end-
ingu nafnið Lögreglumaður til
leigu og fékk ágætar viðtökur hj á
gagnrýnendum.
Það var því bjart framundan í
lífi Burts, þessa fjölhæfa leikara í
Hollywood, og lífið virtist brosa
við honum. Allt var nú fallið í
ljúfa löð og minn komin með nýja
mynd og ný kona og glasið á bak
og burt. En yfirvaraskeggið var
samt enn á sínum stað og kven-
fólkið fór ekki varhluta af því.
N.Y.C 20. jan. 88
- Hallgrímur
, vatnshelciar vogir
TOLEDO 3025
yfir/undir vog
ISHIDA LC-WP21
með verðútreikn.
ISHIDA MS
60 kg vog
ISHIDA MS
1 50 kg og 300 kg
TOLEDO GÓLFVOG
300 til 1 500 kg
___________________>