Þjóðviljinn - 14.02.1988, Qupperneq 9
enn í
sviðsljósinu
Þann tíunda apríl áriö 1912
varð eitt f rægasta sjóslys sög-
unnar. Titanic, glæsilegt
skemmtiferöaskip með 2200
manns innanborðs, fórst á
jómf rúrferð sinni yfir Atlanst-
hafið. Skipið rakst á ísjaka á
fullri ferð um það bil 600 kíl-
ómetrum fyrir suðaustan Ný-
fundnaland - og sökk átveim
og hálfum tíma, enda þótt
verkfræðivittímans hefði full-
yrt að slíkt skip væri ósökkv-
andi, svotryggilegaværi
hægt að loka vatnsþéttum
hólfum þess. Um 1500 manns
fórust- bæði vegna þess að
ekki voru björgunarbátartil
fyrir nærri alla sem á skipinu
voru og svo vegna þess að of
margir farþeganna trúðu
skrumáróðrinum um öryggi
skipsins og skildu ekki fyrr en
um seinan að það væri að
sökkva.
Þetta slys hefur orðiö mönnum
hugstæðara en flestir aðrir mann-
skaðar og ber margt til. Þar mun
þó mestu ráða, að Titanic sigldi
úr höfn í Southampton á tímum
mikillar bjartsýni, sem var ekki
síst tengd þeirri sjálfumgleði
mannfólksins, að tæknin mundi
leysa hvern vanda og endanlegur
sigur mannsins á náttúruöflunum
stæði fyrir dyrum. Þegar svo Tit-
anic fékk á sig rifu stóra í árekstri
við ísjaka og sökk var það mikið
áfall fyrir bláeygar framfarahug-
myndir. Einskonar upphaf að
endalokum þeirra „fögru tíma“,
sem svo fengu rækilega á baukinn
þegar heimsstyrjöldin fyrri hófst
tveim árum síðar með eiturgas-
hernaði og öðrum ófögnuði.
Fundnir fjársjóðir
Nema hvað. Enn skýtur skipið
mikla upp kollinum - og reyndar
er svo vissum tæknilegum afrek-
um fyrir að þakka. Sjötíu og
þrem árum eftir að skipið lagðist
til hvíldar á 4000 þúsund metra
dýpi tókst að hafa upp á flakinu.
Sérhannaðir dvergkafbátar og
fjarstýrðar gripklær sigruðust á
feiknalegum þrýstingi og miklu
myrkri undirdjúpanna og færðu
heiminum merkilegar ljósmyndir
af því sem eftir er af hinu fræga
skipi um leið og fiskaðir voru upp
á yfirborðið stærri og smærri
hlutir úr því: skreytingar, tækja-
búnaður, borðbúnaður og margt
fleira.
Brakið dreift víða
Þegar Titanic sökk til botns
brotnaði skipið í tvennt og liggja
skipshlutarnir tveir nú í um það
bil sex hundruð metra fjarlægð
hvor frá öðrum. Brak úr skipinu
hefur annars dreifst um allstórt
svæði ca. 1800 metra langt og
1200 metra breitt.
Það varleitarmönnum mjög til
baga, að skipið sökk þar sem Atl-
antshafið er einna dýpst - fyrir nú
utan það að slysstaðurinn er
mesta veðravíti. Hefði skipið náð
að sigla svosem tveim klukkust-
undum lengur áður en slysið
varð, þá hefði það náð land-
grunni við Nýfundnaland, þar
sem dýpið er ekki nema röskir
hundrað metrar. Og þá hefði
Titanic, 46000 smálesta glæsiskip, leggur úr höfn í sína fyrstu og síðustu ferð.
Þessi engill sem gætti stigans upp á fyrsta farrými er einn hinna 9000 gripa
sem bjargað hefur verið úr Titanic.
flakið vitanlega fundist fyrir
löngu.
Flakið tvískipta er mjög tært af
ryði, og þær járnplötur þræl-
traustu sem eitt sinn voru hafðar í
fullkomnasta skipsskrokk í heimi
eru nú sem brothætt postulín.
Sérhver tilraun til að ná þeim upp
mundi brjóta þær í þúsund parta.
Þyngri hlutir úr skipinu - katl-
ar, skorsteinar og fleira, liggja nú
þétt við þann hluta flaksins sem
þeir tilheyrðu. En aðrir hlutir og
léttari hafa borist með straumi
suður á bóginn.
Það er einhverjum fullkomn-
asta rannsóknarkafbáti heims,
Nautile, að verulegu leyti að
þakka, að tekist hefur að bjarga
um 900 hlutum úr Titanic af hafs-
botni.
Nautile tók þátt í fransk-
bandarískum leiðangri á svæðið
sumarið 1987, en þá var unnið í
45 daga að björgun úr flakinu.
Nautile kafaði þá 32var sinnum
frá móðurskipi sínu, Nadir, og
var alls 160 tíma á 4000 metra
dýpi við flakið. Þar verður
skrokkur kafbátsins fyrir feikna-
legum þrýstingi - eða 400 sinnum
meiri en á yfirborði sjávar. En
Fullkomnasti
kafbátur heims
þessi franski kafbátur, sem fór í
sjó árið 1985 og hafði þá verið sjö
ár í smíðum, er einasti kafbátur
heims sem þolir að kafa niður á
6000 metra dýpi. Og þar með má
nota hann til að kanna allt að
97% af hafsbotni hnattarins.
Nautile er gerður úr geysi-
sterkum gerviefnum og titan-
málmi og er tiltölulega léttur.
Hann hefur fjórar skrúfur og er
hægt að stýra honum eins og fiski
í vatni. Kafbáturinn er búinn
mjög fullkomnum sónar og getur
því fundið jafnvel smáhluti í
margra metra fjarlægð. Báturinn
getur sent sjónvarpsmyndir upp á
yfirborðið og sex öflugir ljóska-
starar gefa kost á að taka á miklu
dýpi litmyndir sem eru betri en
áður hafa sést. Þriggja manna
áhöfn er í kafbátnum og liggja
tveir á maganum við kýraugu tvö,
feiknalega þykk, en stýrimaður-
inn situr fyrir aftan þá.
Vélmennið Robin er tengdur
Nautile með 70 metra löngum
kapli. Þennan fjarstýrða vélspæj-
ara má senda inn um þröngar
glufur og göt og getur hann tekið
þar myndir ef vill. Nautile sjálfur
er búinn tveim vélörmum með
klóm, sem tína góss af hafsbotni í
körfur sem látnar eru síga niður
frá móðurskipinu.
áb tók saman.
Sunnudagur 14. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9