Þjóðviljinn - 21.02.1988, Síða 3
Hryðjuverkakona vekur
ástir í Suður-Kóreu
Kim Hyon Hui, 26 ára kona frá
Norður-Kóreu, sem játaði það
fyrir framan sjónvarpsvélarnar í
Seul í S-Kóreu þann 15. janúar
síðastliðinn, að hún hefði komið
fyrir sprengju í farþegavél frá
Korean Air Lines þann 29. nóv-
ember á síðasta ári með þeim af-
leiðingum að 115 manns fórust,
hefur skapað sér gífurlegar vins-
aeldir meðal suðurkóreanskra
karlmanna fyrir auðmjúka fram-
komu sína frammi fyrir sjón-
varpsvélunum. Fréttir herma að
konunni hafi borist þúsundir ást-
arbréfa og bónorðsbréfa, en fjöl-
miðlar í S-Kóreu hafa jafnframt
notað sér mál þetta til þess meðal
annars að skrifa langar og hugð-
næmar sögur um hvílíkt dásemd-
arlíf hefði beðið þessarar fögru
konu hefði hún notið þeirrar náð-
ar að vera fædd fyrir sunnan land-
amærin en ekki fyrir norðan. Þá
hafa kvikmyndafélögin einnig
brugðist við þeim sterku við-
brögðum sem kona þessi hefur
vakið með karlþjóðinni, og er nú
væntanleg á markaðinn kvik-
mynd um hið ævintýralega líf
þessarar dularfullu konu. Er sagt
að myndin verði frumsýnd fyrir
opnun ólympíuleikanna í sumar.
Glæpurinn sem Kim Hyon Hui
játaði á sig eftir að fylgdarmaður
hennar hafði svipt sig lífi með
blásýru, varðar líflát samkvæmt
suðurkóreönskum lögum. Þó er
talið að Kim verði hlíft við gálg-
anum, þar sem hún kaus að vinna
með dómsyfirvöldum, og játning
hennar hefur haft mikla þýðingu
fyrir stjórnvöld í Seul í áróðursst-
ríðinu við grannann í Norður-
Kóreu.
-ólg
Kim Hyon Hui með 115 mannslíf á
samviskunni.
Dúkur
Veróníku
í rannsókn
Einn merkasti helgigripur
rómversk-kaþólsku kirkjunn-
arerVeróníku-dúkurinn.en
dúk þennan notaði heilög
Veróníkatil þess að þerra
svitann af andliti Krists á písl-
argöngunnitil Golgata. Dúkur
þessi er varðveittur í dómkirkj-
unni íTorinoá Ítalíu, og telja
menn sig hafa séð mótafyrir
andlitsmynd Krists í dúknum
af svitanum sem fór í hann.
Nú hefur Vatíkanið ákveðið að
láta fara fram aldursgreiningu á
dúknum til þess að sannprófa
hvort ekki sé um hinn uppruna-
lega svitadúk að ræða. Reyndar
var ákveðið fyrir tveim árum að
sjö rannsóknastofum yrði falið
þetta verkefni, en það kom þó
ekki til framkvæmda. Nú hfefur
hins vegar verið ákveðið að fela
þrem rannsóknastofum að annast
verkið, og munu þær hver um sig
fá agnarlítið sýni úr hinu dýrmæta
klæði, sem er 4,50 metrar á lengd
og 1,10 ábreidd. Aldursgreining-
Veróníkudúkurinn með andlitsmynd
Krists.
in leiðir hins vegar einungis í ljós
aldur dúksins en lætur ósvarað
um hina dularfullu andlitsmynd
sem í honum hefur sést.
-ólg
Bein lína til Ingva Hrafns
Það vakti óskipta athygli
hvernig ríkissjónvarpið tók á
frétt útvarpsins um Moskvuheim-
sókn forseta íslands á þriðjudags-
kvöldið, eftir að Atli Rúnar hafði
„skúbbað" í kvöldfréttum út-
varpsins. Lesin var upp frétt um
að forseti íslands færi seinna á
árinu í heimsókn til Moskvu og
var greinilegt að sá sem skrifaði
fréttina hafði bara haft samband
við einn aðila málsins, forsætis-
ráðherra landsins. Frétta-
mönnum á útvarpinu sárnaði
þessi málsmeðferð fréttastofu
sjónvarpsins, einkum þar sem
hér er um sömu stofnun að ræða,
RÚV. Frétt Atla Rúnars var gerð
mjög tortryggileg, þótt seinna
hafi komið í ljós að hún var í
öllum aðalatriðum hárrétt. Þótti
fréttastofu útvarpsins einkum
bagalegt að fá þennan út-
úrsnúning sjónvarpsins núna
beint í kjölfarið á dómi siða-
nefndar Blaðamannafélagsins í
Tangen málinu. En hver skyldi
svo hafa skrifað frétt sjónvarps-
ins? Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Þjóðviljans var það
sjálfur fréttastjórinn, Ingvi Hrafn
Jónsson, sem hafði haft beint
samband við Þorstein.
Eyvindur Eiríksson
J J
Partur
Einhvern veginn
einhvern tíma
einhvers staðar
lét ég eftir part af sjálfum mér
upprunalegan
lífsnauðsynlegan.
Síðan hef ég gengið
og treyst því að ég fyndi hann
og glataðist annars.
Varð hann ekki eftir hjá þér
kannski?
Ef þú skyldir finna hann
alveg óvart
í tuskum
í sultukrukkum
eða í skóskápnum
máttu henda honum
láttu mig endilega ekki vita.
Konan sem vökvar
Kemur hún
konan sem vökvar blómin mín
hún sker hratt
af öruggri festu
á œðina
og blóðið rennur lífrautt
í hvíta könnuna
með bláum blómunum
vökvar rósirnar
rauðar og dökkar
stálhvassir broddarnir
glitra
í brosleiftri.
Tíminn er blöð
- tíminn er blöð dagatalsins
sem ég fleygi kuðluðum í bréfakörfuna mína
- tíminn er blöð gœrdagsins
sem ég sting undnum í ofninn minn
- tíminn er blöð haustsins
sem ég raka sölnuðum í sorptunnuna mína
eins og visnuð lauf mannlífsins
sem við smokrum samanskroppnum
í jörðina okkar
Þú boigar alltaf sama gialdið,
hvort sem þú ert einn eða meófíeirum í bílnum!
Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn i Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri simhringingu, óskir þú þess.
HREVFIU.
68 55 22