Þjóðviljinn - 21.02.1988, Side 6

Þjóðviljinn - 21.02.1988, Side 6
Þjóðminjasafn Islands Um þessar mundir er Þjóðm- injasafn (slands 125 ára. Safnið varstofnað þann 24. febrúar 1863, skömmu eftir að Sigurður Guðmundsson málari hafði fyrst- ur manna vakið máls á nauðsyn þess að slíkt safn yrði stofnað hér álandi. Það voru stiftsyfirvöld sem stóðu að stofnun safnsins og réðu Sigurð Guðmundsson mál- ara sem fyrsta safnvörð þess, og má því telja hann eins konar föðurÞjóðminjasafnsins. Hann gegndi starfi safnvarðartil dauðadags árið 1874. Safnið var fyrst í stað til húsa á dómkirkjuloftinu en fluttist síðan í Hegningarhúsið við Skólavörðu- stíg og árið 1881 fluttist það í Al- þingishúsið og síðan Lands- bankahúsið þar sem það var til ársins 1908. Árið 1907 urðu þáttaskil í sögu safnsins, en þá voru sett fyrstu lögin á íslandi um verndun forn- minja, og var um leið stofnuð staðafornminjavarðar. Matthías Þórðarson var fyrsti fornminja- vörður og var það að hans f rum- kvæði að nafni safnsins var breytt í Þjóðminjasafn. Það var í tíð Matthíasar sem safnið flutti í framtíðarhúsnæði sitt í safnahús- inu við Hverfisgötu, þar sem það var þar til það flutti í núverandi húsnæði árið 1950. Bygging nú- verandi húsnæðis var ákveðin af Alþingi á lýðveldisárinu 1944, en teiknarar þess voru þeir Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Einars- son. Eftirmaður Matthíasar Þórðar- sonarsem þjóðminjavörður var dr. Kristján Eldjárn, síðarforseti, sem tók við embætti þjóðminja- varðar 1947 og gegndi því til 1968 að hann varð forseti lýð- veldisins. Starfssvið Þjóðminjasafnsins er ákveðið með lögum og er því ætlað að varðveita íslenskar þjóðminjar í víðasta skilningi, sýna þær almenningi, stunda uppfræðslu, rannsóknirog hafa eftirlit meðfriðuðum minjum. Á vegum safnsins staiía nú átta fastráðnir sérf ræðingar auk Þórs Magnússonar þjóðminja- varðar. Þá starfa við safnið þrír forverðir sem vinna að varðveislu muna sem liggja undir skemmd- um, tveirskrifstofumenn, safnkennari og húsvörður. Á síð- asta ári var stofnuð sérstök rannsóknastaða við safnið til minningar um Kristján Eldjárn, og er hún veitt til tveggja ára í senn. Mjöll Snæsdóttirfornleifa- fræðingurgegnirnú þeirri stöðu. Auk varðveislu gamalla muna fer fram á vegum saf nsins skipu- lögð þjóðháttasöfnun og er heim- ildasafn þess orðið mikið að vöx- tum. Þá ereinnig varðveitt á veg- um safnsins Ijósmyndasafn sem hefur að geyma um 400.000 myndir, allt f rá árinu 1846 til þessa dags. ' ' V' aría mey og María Maadalena við kross Krists. Gotn eskur útsaumur frá miðöldum. Úr Þjóðminjasafninu. Dýrlingamynd úr kaþólskum sið á fslandi. Sá sem lyftir höndum á að vera heilagur And- rés, sem var fiskimaður og einn af lærisveinum Krists. Úr Þjóð- minjasafninu Meö því að Listasafn íslands er nú flutt úr bráðabirgðahúsnæði sínu á efstu hæð Þjóðminja- safnsins hefur skapast nýtt svig- rúm til endurskipulagningar á starfsemi Þjóðminjasafnsins. I nóvembersíðastliðnum skipaði Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra sérstaka nefnd sem móta á f ramtíðar- stefnu Þjóðminjasafns íslands. Sverrir Hermannsson banka- stjóri erformaðurnefndarinnar, en í henni eiga sæti bæði alþing- ismenn, starfsmenn safnsins og einn lögfræðingur. Hefur nefnd- inni verið falið að gera „áætlun um endurbætur, vöxt og viögang Þjóðminjasafnsins" fram til næstu aldamóta. -óig nstsmynd útskorin í tré og máluð. Myndin, sem er í síðgotneskum ‘stí|. lýsir píslargöngú Krists á áhrifaríkan hátt. Myndin er varðveitt í Þjóðminjasafninu. 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.