Þjóðviljinn - 21.02.1988, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 21.02.1988, Blaðsíða 17
PIPAR Echo and the Bunnymen voru rétt í þessu að senda frá sér smáskífu með gamla Doors laginu People are strange. Aft- aná skífu þessari flytja Bunny- men hljómleikaútgáfu af Velvet Underground „slagaranum", „Run, run, run,“ en tólftomman inniheldur einnig „læf“ útgáfu af Rolling Stone laginu „Paint it black" og „Friction" eftir hljóm- sveitina Television. Primitives hafa einnig sent frá sér dvergskífu með laginu „Crash". Er þettafjórða smáskífa sveitarinnár og hvíslaði að okkur lítil fluga, að breiðskífu væri að vænta frá þessari efnilegu ung- liðasveit í mars eða apríl. Housemartins eru að spekú- lera í að halda útfarartónleika sína á heimaslóðum í Hull á Eng- landi innan skamms. Blóm og kransar eru vinsamlegast af- þakkaðir. Stanglers hafa sent frá sér hljómleikaplötu sem ber heitið „All Live and All of the Night" og inniheldur hún 13 sýnishorn af 11 ára starfsferli sveitarinnar. Profab Sprout hafa loksins látið heyra í sér eftir 2 ára þögn (sem hafði nærri sent undirritaða í gröfina), með því að senda frá sér lagið, „Cars and girls". Lag þetta er undanfari þriðju breið- skífu sveitarinnar sem kemur út í næsta mánuði og nefnist „From Langley Park to Memphis". Fyrrum prakkarinn úr Smiths, Stephen Morrisey hefur nú sent frá sér sína fyrstu sóló smáskífu sem heitir „Suedehead". Lagið er samið af Morrisey og Stephen Street og er þetta undanfari breiðskífu sem þeir félagar hyggjast senda frá sér með vor- inu. Madness hafa ákveðið að koma saman að nýju eftir nokkrar mannabreytingar. Hljómsveitin hefur þó gert byltingarkenndar breytingar á nafni sínu og ákveð- ið að bæta hinum fádæma sjald- gæfa „THE“-greini fyrir framan það. Þessi „nýja“ sveit hefur tekið upp fyrstu breiðskífu sína, en undanfari hennar verður smá- skífa sem gefin verður út 7. mars næstkomandi. Um þessar mundir er mjög í tísku aö sulla saman hinum ólíkustu tónlistarstefnum svo úr verða hinarfurðulegustu blöndur og má þar nefna stefnureinsog;Soul-popp, djass-popp, sýru-pönk, sækadelíu-popp, og svo það nýjasta, steinaldarrokk, sem virðistvera einhverskonar „heví“ blanda af rokki og pönki. Enfyrirumþaðbil4 árum kom fram sveit sem spil- ar ansi hreint frumlega blöndu af pönki og írskri þjóðlagatón- list, en það er hljómsveitin The Pogues. Sveitin er írsk að uppruna og inniheldur (þessa stundina) 8 bjórþambara og villimenn sem eiga það sameiginlega áhugamál að glamra á hina þjóðlegustu hljóðgjafa við hin ýmsu tækifæri. Þegar hljómsveitin kom fyrst fram á pöbbum á írlandi vakti hún mikla athygli fyrir ófágaðan og kröftugan flutning á þjóð- legum lögum; ásamt því að útlit Shane McGovan, söngvara og forsprakka sveitarinnar, þótti í meira lagi sjokkerandi. Gekk það svo langt, að þegar breska tannlæknafélagið sá hina óhugn- anlegu sviðakjamma hans, var því svo brugðið að það bauðst til þess að lagfæra góminn, honum að kostnaðarlausu. En Shane af- þakkaði gott boð þar sem hann áleit að það gæti skaðað ófágaða rödd hans. í maímánuði 1984 gerðust The Pogues svo djarfir að gefa út á eigin ábyrgð lagið „Dark streets of London“ á dvergskífu. Vakti þessi vasklega framganga þeirra athygli breskra útgáfufyrirtækja og aðeins fáum dögum síðar undirrituðu The Pogues samning við Stiff records. Upptökur hóf- ust nú á fyrstu breiðskífu sveitar- innar, sem var útgefin í septemb- er sama ár og nefndist Red Roses For Me“. Tónlist The Pogues svipar nokkuð til hinnar virtu þjóðlagasveitar The Dubliners, en er á allan hátt villtari og kröftugri, sem er bein afleiðing af því að meðlimir sveitarinnar voru pönkarar á árum áður. Þessi frumburður sveitarinnar fékk al- mennt jákvæðar viðtökur og þótt ljóst hafi verið að ekki væri um neitt meistaraverk að ræða, þótti skífa þessi lofa góðu um ’fram- haldið. Meðal þeirra sem hrifust af tónlist sveitarinnar var enginn annar en Gunni Þórðar þeirra Englendinga, sjálfur Elvis Cos- tello, en engu minni hrifningu sýndi hann bassaleikara sveitar- innar, Cait O’Riordan (sem er kvenmaður). Til að geta dvalið flestum stundum í návist hennar, tók hann að sér að annast upp- tökur á 2. breiðskífu The Pogues sem gefin var út í ágústmánuði 1985. Platan hlaut hið ruddalega nafn „Rum, Sodomy and the Lash“, en þrátt fyrir það er hér um mun fágaðri grip að ræða en fyrri skífu sveitarinnar. Að okkar mati var um þó nokkra framför í lagasmíðum að ræða og á snill- darleg „pródúserun“ (hljóð- blöndun) Elvis Costello einnig stóran þátt í auknum gæðum þessarar skífu. Sem fyrr eru lag- asmíðarnar á þjóðlegu nótun- um“, og á plötunni má finna nokkra gamla írska „pöbba- slagara" eins og „Dirty old town“ og „The Band Played Waltzing Mathilda". Skömmu eftir út- komu „Rum, Sodomy and the Lash“, gerðust örlagaríkir at- burðir innan sveitarinnar: Elvis Costello gerði sér lítið fyrir og kvæntist hinni tælandi Cait O’Ri- ordan, bassaleikara sveitarinnar, og Shane McCowan var nær dauða en lífi, eftir að óforskamm- aður leigubílstjóri gerði sér lítið fyrir og keyrði hann í klessu. Vegna þessara ógurlegu atburða var The Pogues í lamasessi næstu mánuði, eða allt þar til í ág- ústmánuði árið 1986, þegar þeir sendu frá sér lagið „Haunted“ úr kvikmyndinni, „Sid and Nancy“. Á tólftommunni er einnig að finna lagið „Hot dogs with ever- ything,“ sem upphaflega var sam- ið fyrir þessa sömu kvikmynd. Þótti framleiðendum myndarinn- ar texti lagsins ekki vera innan velsæmismarka, svo ákveðið var að það yrði ekki inni í myndinni. Fyrir nokkrum dögum sendu The Pogues svo frá sér sína þriðju breiðskífu og ber hún heitið, „If I should fall from Grace with God“. Þessi plata er án efa sú besta sem The Pogues hafa sent frá sér, og með henni hafa þeir skipað sér í hóp með bestu hljóm- sveitum okkar samtíma, en í næsta helgarblaði verður þessi plata krufin til mergjar. Sgt. Pepper var góðkunningi föður míns Orri Jónsson og Rúnar Gestsson skrifa DISKÓGRAFÍ Útgefnar plötur The Pogunes til þessa Hið virta breska tónlistartíma- rit New Musical Express stendur um þessar mundir fyrir endur- vinnslu hinnar margumtöluðu bítlaplötu, „Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band“, undir nýju nafni: „Sgt. Pepper knew my fat- her“. Ekki munu þó Bítlamir sjálfir flytja lög sín (ekki heldur Bee Gees), heldur er það hópur virtra nýbylgjusveita og skörunga sem munu sjá um flutninginn. Farandtrúboðinn Billy Bragg mun flytja lagið „She’s Leaving Home“, Iagið „Getting Better" verður flutt af nýliðasveitinni The Wedding Present og ástralska hljómsveitin The Triffids spreytir sig á John Lennon „slagaranum“, „Good Morning, Good Morn- ing“, einnig má finna framlag söngkonunnar Michelle Shocked og fleiri góðra manna. En án efa verður eflaust einna áhugaverð- ast að heyra The Fall syngja og leika lagið „A Day in The Life“ og bandarísku framúrstefnusveit- ina Sonic Youth reyna við George Harrison lagið, „Within You, Without You“. Ef einhver girnist gripinn getur sá hinn sami fundið allar upplýs- ingar í tveimur síðustu tölu- blöðum breska tónlistartímarits- ins NME. Smáskífur Maí 1984 Dark streets of London........(Pogue Mahone PM1) Jún 1984 Dark streets of London...............(Stlff BUY 207) Okt 1984 The Boys f rom the country hell......(Stiff BUY 212) Mar 1984 A Pair of brown eyes.................(Stlff BUY 220) Jún 1985 Sally MacLannane.....................(Stlff BUY 224) Ágú 1985 Dirty old town.......................(Stiff BUY 229) Feb 1986 Poguetry in motion EP...............(Stiff BUY 243) Ágú 1986 Haunted................................(MCA1084) Mar 1987 The Irish rover (ásamt Dubliners)...(Stiff BUY 258) Nóv. 1987 Fairytale of New York........(Pogue Mahone NY 7) Feb 1988 If I should fall from grace with god .... (Pogue Mahone NY?) Breiðskífur Sep 1984 Red roses for me.....................(Stiff SEEZ 55) Ágú 1985 Rum, sodomy and the lash.............(Stiff SEEZ 58) Jan 1988 If I should fall from Grace with God (Pogue Mahony NYR1) Sunnudagur 21. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - s(pA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.