Þjóðviljinn - 18.03.1988, Blaðsíða 9
Reagan í bófahasar
Suður-Afríka
Aftökum slegið á frest
Sex blökkumenn voru dæmdir til dauða
Föstudagur 18. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Milljónir á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111
HEIMURINN
Mið-A meríka/Bandaríkin
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti ákvað í fyrrakvöld að
sýna grönnum sínum í „bakgarð-
inuin“ hvers væri mátturinn og
dýrðin í henni Ameríku. Þá afréð
hann að senda 3,200 bandaríska
hermenn til Hondúras í kjölfar
„innrásar" stjórnarhers Nikara-
gva í landið.
Þetta tilefnislausa vopnaskak
gamla mannsins verður vart talið
framlag til friðar í Mið-Ameríku
en Reagan er í orði kveðnu fylgj-
andi áætlun forsetanna fimm.
Daníel Ortega, forseti Nikara-
gva, hefur miklar áhyggjur af
þróun mála og í gær fór hann
fram á neyðarfund Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Kvað
hann háttalag Bandaríkjaforseta
bera þess glögg merki að hann sæi
heiminn sem teiknimyndasögu
eða kúrekamynd og væri ekki í
neinum tengslum við veru-
leikann. Bandarísku hersveitirn-
ar ógnuðu Nikaragva og því ætti
Öryggisráðið að krefjast tafar-
lausrar heimkvaðningar þeirra.
Hamagangurinn í Reagan kom
þorra sérfræðinga um málefni
Mið-Ameríku á óvart og stað-
hæfðu þeir að hann gerði úlfalda
úr mýflugu. Hundur forsetans
lægi örugglega ekki grafinn í
Hondúras. -
Demókratar í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings eru öldungis
sammála. Reagan hygðist vinna
tvennt með því að kreppa hnefa
og spenna vöðva í Mið-Ameríku,
stuðning fjárveitingarvaldsins við
kontraliða og slævðan áhuga al-
mennings fyrir réttarhöldum yfir
tveim fyrrum vina sinna, þeim
John Poindexter og Oliver
North. Sem kunnugt er gaf Lawr-
ence Walsh, saksóknari í frans/
kontramálinu, út ákærur á hend-
ur þeim tvímenningum í fyrradag
og geta þeir átt allt að 84 ára fang-
elsisvist framundan!
„Mér finnst þetta vera dæmi
um vopnaskak af mjög vafasömu
tilefni," sagði John nokkur Buc-
hanan í gær en hann er fyrrum
höfuðsmaður í bandaríska land-
gönguliðinu. Buchanan velkist
ekki í vafa um markmið forseta
síns: „Óvinirnir sem Reagan
glímir við að þessu sinni og hyggst
brjóta á bak aftur eru demókrat-
arnir. Hann ætlar að stilla þeim
uppvið vegg og neyða þá til að
fallast á stuðning við kontraliða á
ný.“
En verður hans vilji? Demókr-
atinn Christopher Dodd, öldu-
ngadeildarþingmaður Connectic-
utfylkis, svarar því neitandi.
„Vera má að forsetinn sé haldinn
þeirri meinloku að innrásin afli
kontraliðunum stuðnings á þingi -
en því fer víðsfjarri." Dodd bætti
við að það væri vitaskuld engin
tilviljun að Reagan biti í skjald-
arrendurnar sama dag og ákæra
væri gefin út á hendur þeim Po-
indexter og North. Pað gæfi auga
leið að hann væri áfram um að
beina athygli þegna sinna frá
ávirðingum fyrrum samstarfs-
manna sinna. Slíkt gæti vakið upp
nýjar efasemdir um heiðarleika
hans sjálfs...
Reuter/-ks.
vegna fullyrðinga Ijúgvitnis lögreglunnar
Hæstiréttur í Pretóríu ákvað í
gær að hengingum svo-
nefndra „Sharpeville-sexmenn-
inga“ yrði slegið á frest, 13
klukkustundum áður en festa átti
þá upp fyrir samsekt í morði þel-
dökks embættismanns.
Dómarinn sem kvað upp úr-
skurðinn rökstuddi hann með því
að nýjar upplýsingar hefðu kom-
ið fram um að lykilvitni í réttar-
höldunum yfir fólkinu hefði
logið. „Því tel ég mig hafa
fullgildar ástæður fyrir því að
fresta lífláti allra hinna sak-
felldu." Það gefur auga leið að
ættingjar og vinir sexmenning-
anna urðu himinlifandi þegar
þessi orð voru sögð og ekki var
fögnuðurinn minni í ýmsum
byggðum blökkumanna víðsveg-
ar um Suður-Afríku.
Lögfræðingar hópsins sóttu
fyrir nokkru um að réttað yrði í
málum fólksins á ný vegna nýrra
sannanna sem eindregið bentu til
sakleysis þess, aðalvitni ákæru-
valdsins hafði viðurkennt að hafa
farið með staðlausa stafi vegna
þrýstings frá lögregluyfirvöldum!
„Sjónarvotturinn“ hafði fullyrt
að sexmenningarnir, fimm karlar
og ein kona, hefðu ásamt fjölda
annarra myrt embættismanninn
Jakob Blamini á hroðalegan hátt.
Voðaverk þetta var fram árið
1984.
Fjöldi mannréttindafrömuða
og þjóðhöfðingja hafði beðið
fólkinu vægðar, þar á meðal voru
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti og Margrét Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands.
Reuter/-ks.
Enn er slettirekan komin á kreik, mörgum til tjóns og öllum til ama.
Hondúras
Tilefnið
sviösett
Hjörleifur Guttorms-
son: Innrúsin getur
dregið dilk á eftir sér
„Ég tel þá ákvörðun Banda-
ríkjaforseta að senda herlið inn í
Hondúras mjög alvarlegan at-
burð sem geti dregið dilk á eftir
sér,“ sagði Hjörleifur Guttorms-
son í gær, en hann hefur óskað
eftir að utanríkismálanefnd
þingsins komi saman á mánudag
og fjalli um innrásina.
Hjörleifur sagði að tilefni þess-
arar íhlutunar Bandaríkjahers
virtist sviðsett, þar sem fregnir af
innrás Nikaragvahers inn í Hond-
úras hafa verið bornar til baka.
Þá taldi Hjörleifur að bakslag
kynni að koma í viðræður Sand-
inista og Kontraskæruliða vegna
innrásarinnar.
„Ég hef þvf óskað eftir að utan-
ríkismálanefnd komi saman við
fyrsta hentugleika til þess að
ræða þessa atburði, sem við ís-
lendingar hljótum að hafa veru-
legar áhyggjur af.“
Hjörleifur sagði að sér sýndist
fullt tilefni til að mótmæla
innrásinni einsog málið horfði við
nú. -Sáf