Þjóðviljinn - 23.03.1988, Blaðsíða 10
Lognmolla
á skerínu
Þaö er veröugt rannsóknarefni
fyrir atferlisfræöinga aö kanna
hvernig lítiö lag við enn minni
texta getur sett allt á annan
endann hjá afkomendum Jóns
Arasonar, biskups. Þegarstund-
in nálgast skellur á dúnalogn (
borg og byggðum og veröir laga
geta dregiö sig í hlé fyrir f raman
skjáinn einsog aðrir borgarar
skersins. Svo raula nokkur vel
klædd ungmenni, sum reyndar
komin nokkuö til ára sinna, nokk-
ur slétt og felld lög og f ulltrúar
þjóöarinnar á öllum krumma-
skuðum skersins reyna að gera
upp á milli lágkúrunnar.
I ár var þjóöin sammála, nema
sásem átti lag númertvö. Hann
kallaði f ramí, guðisélof aö ekki
má spila smellinn hans Storm-
skers aftur fyrr en einhverntíman
ívor.
Þá setti menn í sjónvarpssal
hljóða. Einnig mun gleðibanka-
svipur útvarpsstjóra hafafrosiö
þegar Sverrir Stormsker sagðist
hingaðtil hafa einbeitt sér að því
að semja texta sem hægt er að
dillasérviðundirsængurvoðum.
En útvarpsstjórinn mun einsog
alþjóð er kunnugt ekki eiga ættir
að rekja til Jóns Arasonar, heldur
mun hann af kynkvísl steinaldar-
manna. Þannig ætti engum að
vera brugðið þó útvarpsstjóra sé
brugðið.
Svo renna blöðin úr prentun
glóðvolg inn á morgunverðar-
borðið uppfull af stormandi lukku.
Þjóðarsátt um Stormskerið, fullt
hús stiga. Og rýnendur dægur-
laga setja sig í stellingar, benda á
að úrslitin hafi verið ráðin fyrir,
enda hafi maðurinn sem enginn
bjóst við að hefði minnsta hug á
að sækjast eftir júróvisjónfrægð
samiðdæmigerðanjúróvisjón-
smell eftir júóvisjónformúlu með
júróvisjóntexta sem allar þjóðir
geti verið ánægðar með þar sem
minnst er á afreksmenn f rá
hverju landi júróvisjón.
Rétt þykir rýnendum dægur-
laga samt að benda söngfuglin-
um Stefáni á að tileinka sér júvisj-
ónmjaðmasveiflurog Storm-
skerinu rétta júróvisjónframkomu
og gæta tungu sinnar þegar til
írlands er komið og hneyksla ekki
þarlenda með framkomu sinni
þannig að brosið stirðni ekki á
steinaldarmönnum í Dyflinni.
-Sáf
í dag er
23. mars, miðvikudagur í 23. viku
vetrar, 83. dagurársins. Sól kem-
ur upp í Reykjavík kl. 7,17 en
sólsetur er kl. 19,53. - Þjóðhátið-
ardagurPakistan.
Atburðir
Stúdentauppreisnin í Varsjá
1968 bæld niður með lögreglu-
valdi. Neytendasamtökin stofnuð
1953.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
... taka Frakkar Minorca og
Spánska-Marokkó? Aðalblað
franskra jafnaðarmanna tekur
undir kröfu kommúnista um öfl-
ugan stuðning við spænsku
stjórnina og krefst hernaðarlegra
aðgerða gegn sókn fasismans.
140 þús. erlendra hermanna í liði
Francos í Arragoníusóknini en 20
þús. Spánverjar. - Sovétstjórnin
hvetur Frakklandsstjórn til að
veita spánska lýðveldinu lið. -
Stjórnin í Lithauven segir af sér
vegna þess að hún neyddist til að
ganga að úrslitakostum Pólverja.
-GunnlaugurBlöndal heldur
stóra sýningu í París. -Sam-
vinnuhreyfingin í
Vestmannaeyjum. Kaupfélag
verkamanna er stærsta neytend-
afélagið, telur 250 félaga.
-mhg
UM ÚTVARP & SJONVARP
Fagurt mannlíf
Útvarp, rás 1, miðvikudag kl.
13.35
Einhver litríkasta ævisaga, sem
út hefur komið á íslandi, er sagan
af lífshlaupi sr. Árna Þórarins-
sonar, sem Þórbergur Þórðarson
skráði. Nú byrjar Petur Péturs-
son að lesa þsssa einstæðu sögu.
Verður hún alls 19 lestrar. - Árni
Þórarinsson fæddist árið 1860 en
lést 1948. Ævisagan, sem er 6
bindi, kom fyrst út á árunum
1945-1950. f fyrsta bindinu segir
hann frá æsku sirini í Hruna-
mannahreppnum og þar til hann
fer til Reykjavíkur. - Sr. Árni
Þórarinsson var gæddur einstakri
frásagnargáfu, dæmafárri hrein-
skilni og ákaflega ríku skopskyni.
Urn ritsnilld Þórbergs þarf ekki
að fjölyrða. Þegar slíkir snillingar
lögðu sameiginlega hönd að verki
gat ekki hjá því farið, að úr yrði
meistaraverk. - Ogekki skemmir
upplesarinn.
- mhg
7
Þórbergur Þórðarson
Árni Þórarinsson
'
. -
' .- V'
Búðardalur
Kauptúnið við Hvammsfjörðinn
Útvarp, rás 2, miðvikudag kl.
23.00
„Er ég kem heim í Búðardal".
Þannig hljóðar byrjunin á merki-
legu Ijóði, sem kannski hefði
komist inn í Skólaljóðin ef þau
væru enn við lýði. Búðardalur er
ekki neinn stórstaður, í rauninni
bara lítið og hlýlegt sveitaþorp,
er hefur risið þarna við Hvamms-
fjörðinn, sem er í laginu eins og
vaðstígvél, minnir að því leyti á
Ítalíuskagann. Að þessu sinni
verður tafið um stund í Búðardal
og, eins og segir í hinni hefð-
bundnu dagskrárkynningu, „rak-
in saga staðarins og leikin
óskalög bæjarbúa". Annars má
um þessa þætti segja það, að þeir
eru hin besta mann- og landkynn-
ing. - mhg
Frá vímu
til veruleika
Útvarp Rót, miðvikudagkl. 20.30
Krísuvíkursamtökin standa
fyrir þætti sem nefnist Frá vímu
til veruleika. Umsjónarmenn eru
þeir Bjarni Hafberg og Guðbjart-
ur Finnbjörnsson. - í þessum
þáttum Krísuvíkursamtakanna er
fjallað vítt og breitt um mál, sem
snerta fíkniefnanotkun unglinga
og vandamál, sem henni fylgja.
Viðfangsefnið í kvöld eru börn
alkóhólista. Umsjónarmennirnir
munu varpa fram nokkrum
spurningum, t.d. hvort „börn á
unglingsaldri“ geti verið of-
drykkjumenn og hvernig þau
upplifa ástand á heimilum ef ann-
að eða bæði foreldranna drekka.
Leitast verður við að fá svör við
þessum spurningum. Þá verður
og rætt um fjölda og stöðu barna
alkóhólista hérlendis.
- mhg
GARPURINN
0«>1 »•••«•»
IM MoU li^N li>*
KALLI OG KOBBI
Ég trúi þessu ekki! Buxurnar mínar
í henglum og næsti tími að byrja.
Hvað á ég að gera??
Svona get ég ekki farið inn.
Eftir öðru að vera í nærbuxum með
bleikum fílum akkúrat í dag.
K
s
©
4-7
vJHESll
FOLDA
^ Er hægt að leika kabboj
eftir að hafa verið mðurlægður;
á þennan hátt?
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 23. mars 1988