Þjóðviljinn - 23.03.1988, Blaðsíða 1
Mitterrand
í framboð
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti kvaddi sér hljóðs í
gær og tilkynnti þjóð sinni að
hann yrði í framboði til endur-
kjörs. Mitterrand tók sér drjúgan
umþóttunartíma áður en hann
sagði af eða á enda kominn á efri
ár, hefur einn um sjötugt. Kjör-
tímabil Frakklandsforseta er sjö
ár. En þótt Mitterrand sé aldur-
hniginn vilja Frakkar ólmir að
hann sitji sem fastast í embætti, í
öllu falli benda allar skoðana-
kannanir til þess.
Sjá bls.13
Miðvikudagur 23. mars 1988 68. tölublað 53. árgangur
AldraÖir
Leikhús
Raunsættveik
með
persónum sóttum í
Music Hall
Gránufjelagiðfrumsýnir Endatafl eftir Samúel
Beckett
Auralausir
yfir páska
Lífeyrisgreiðslur ekki fyrr en eftirpáska
Vegna stífni í kerfinu fá aldr- langa þannig að ellilífeyrisþegar eyrisþegi sem hafði samband við
aðir ekki lífeyrisgreiðslur sínar geta ekki leyst út lífeyris- Þjóðviljann.
fyrr en eftir páska en venjan er að greiðslurnar fyrr en þriðjudaginn
greiða út fyrsta virkan dag mán- 5. apríl. -
aðarins. „Eg veit ekki hvernig ég á að
1. apríl ber upp á föstudaginn tóra yfir páskana,“ sagði ellilíf- Sjá bls. 3
IIMHIIWI IWIHiBN—iyMMMWPtllUII II. ...... i ' i n i"
KÍ
Verkfalls-
heimild
Kœrafélagsmálaráðherra ekki tekin tilgreina.
Engar athugasemdir við vinnu blaðamanns
Siðanefnd Blaðamannafélags-
ins hefur fellt þann úrskurð vegna
kæru Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra á hendur
blaðamanni Þjóðviljans, að hann
hafi í engu brotið siðareglur fé-
lagsins.
Félagsmálaráðherra kærði
vegna fréttar á forsíðu Þjóðvilj-
ans þar sem m.a. var vitnað í
heimildarmann innan fé-
lagsmálaráðuneytisins. Þjóðvilj-
inn neitaði að gefa upp sinn
heimildarmann.
{ úrskurði siðanefndar segir
ma. að engar athugasemdir séu
gerðar við upplýsingaöflun
blaðamannsins og að í umræddu
tilfelli sé ekki í húfi sú friðhelgi
einstaklingsins sem ráðherra hafi
vísað til íkæru sinni. Þá segir enn-
fremur í dómnum að heimildar-
menn séu oft ekki nafngreindir í
fréttum „en gjarnan tekið fram
að þeir séu fyrir hendi - gjarnan
með hliðstæðu orðalagi og í hinni
kærðu grein.“
Sjá bls. 7
Frá allsherjaratkvæðagreiðslu kennara um heimild til verkfallsboðun-
ar. (Mynd Sig.)
Yfirgnæfandi meirihluti félags-
manna innan Kennarasambands
íslands samþykkti í allsherjarat-
kvæðagreiðslu heimild handa
stjórn og trúnaðarmannaráði til
verkfallsboðunar, náist ekki
samningar við ríkið fyrir nk.
föstudag.
Kjörsókn var um 91%. Já
sögðu 60,8% en nei 36,6%. Full-
trúaráð Kennarasambandsins
kemur saman á föstudag og þá
kemur í ljós hvort verkfall verður
boðað með 15 daga fyrirvara. Ef
verkfall verður boðað kernur það
til framkvæmda 11. apríl nk.
Sjá bls. 3
Kári Halldór: Fyrirmynd Becketts er að miklu leyti enska Music Hall
leikhúsið. (Mynd E.OI.)
- Þegar maður skoðar verk
Becketts kemur í ljós að hans fyr-
irmynd er að miklu leyti enska
Music Hall leikhúsið sem Chapl-
in og fleiri leikarar þöglu mynd-
anna koma frá, - segir Kári Hall-
dór í spjalli um verk írska
leikskáldsins Samúels Becketts.
Tilefni viðtalsins er gaman-
leikurinn grafalvarlegi, Endatafl,
eftir Beckett, en Gránufjelagið
frumsýnir leikritið í kvöld, í bak-
húsinu Laugavegi 32.
Að mati Kára Halldórs er
Endatafl raunsætt verk, það er að
segja ef hægt er að tala um raun-
sæi, en - fyrir mér er raunsæi ekki
form heldur afstaða, og þá fyrst
og fremst afstaða áhorfandans,
það sem hann upplifir innst inni,
segir Kári Halldór enn fremur í
viðtalinu.
Sjá bls. 8 og 9
Siðanefnd BÍ
Engar reglur brotnar