Þjóðviljinn - 30.04.1988, Side 1
Laugardagur 30. apríl 1988 97. tölublað 53. órgangur
í Verslunarskólanum I gær, - vígreifir verkfallsverðir úr VR á kjörstað. Góð kjörsókn í atkvæðagreiðslunni eykur líkur á að verslunarmenn víða um land felli miðlunartillögu sáttsemjara (Mynd : Sig)
Verslunarmenn
Verslunareigendur íbiðröðum eftir samningum eftir Arnarflugsamkomulagið. VSÍ: Sérsamingarnirgaffall
íokkarraðir. Kjörsókn VR orðin um20% ígœrkvöldi, víða40-50% útá landi. Miðlunartillagan fallin?
Verslunarmenn hafa byr í segl-
um fyrir 1. maí-helgina.
Sérsamningarnir við Arnarflug
í fyrrinótt urðu áfall fyrir VSÍ, og
segja má að verslunareigendur
hafi síðan staðið í biðröðum á
skrifstofu VR í gær til að skrifa
undir svipaðan sammning, sem
felur í sér rúmlega 42 þúsund
króna lágmarkslaun. Alls höfðu
tæplega 60 fyrirtæki gert slíka
samninga á höfuðborgarsvæðinu
í gærkvöldi, og annarstaðar á
landinu er atburðarásin svipuð, á
Akureyri voru 30 fyrirtæki búin
að undirrita síðdegis í gær og 12 á
Selfossi.
Verslunarmenn fagna sérs-
amningunum en t>órarinn V.
Þórarinsson framkvæmdastjóri
VSÍ segir þá afar ámælisverða og
kallar þá gaffal inn í raðir VSÍ.
Kjörsókn í atkvæðagreiðslunni
um málamiðlunartillögu sátta-
semjara var mismunandi eftir
landshlutum, víða fór hún í 40-
50% í gær og sem dæmi má nefna
að á Sauðárkróki, þar sem at-
kvæðagreiðslunni er lokið
greiddu 106 af 207 félagsmönnum
atkvæði sem er rúmlega 50%
kjörsókn.
Kjörsókn hjá VR var orðin um
20% er kjörstað var lokað í gær-
kvöldi og er það talið benda til að
35% markið náist í dag.
Sjá síðu 3
Alþingi
Samstaða gegn
S-Afríku
Lagafrumvarp um inn- og útflutnings-
bann gagnvart S-Afríku lagtfram áAl-
þingi ígœr. Trúlega ígegn fyrir þinglok
Kaupkröfurnar
erusvar okkarvið
sukkinu
Fólki er farið að ofbjóða misrétt-
ið og sú blygðunarlausa sóun sem
á sér stað fyrir sunnan, segir
Björn Grétar Sveinsson formað-
ur verkalýðsfélagsins Jökuls á
Höfn í 1. maí-viðtali við Þjóðvilj-
ann.
Treystum tengsl-
in við fólkið í
landinu
Ég vil sjá verkalýðshreyfinguna í
virkari tengslum við það sem er
að gerast hjá fólkinu. Hún má
ekki virka sem bremsa á vilja
fólksins, þvert á móti á hún að
vera hvetjandi, segir Vilborg
Þorsteinsdóttir í 1 .maí-viðtali við
Þjóðviljann.
Breytum tekju-
hlutföllunum í
þjóðfélaginu
í okkar litla þjóðfélagi getur ekki
haldist friður um þá misskiptingu
sem nú viðgengst. Við verðum að
fylkja okkur saman um þá stefnu
að bæta hag þeirra verst settu án
þess að það fari upp allan launa-
stigann, segir Ásmundur Stefáns-
son í 1. maí-viðtali við Þjóðvilj-
ann.
Fulltrúar allra stjórnmála-
flokka á þingi, nema Borgara-
flokksins lögðu í gær fram frum-
varp til laga um algert viðskipta-
bann fslands við S-Afríku.
- Þetta er ánægjulegur árangur
af langri baráttu. Þingheimur er
að átta sig, við getum ekki setið
aðgerðarlaus lengur, segir
Steingrímur J. Sigfússon einn
flutningsmanna.
Sjá síðu 3
Sjá 1. maí-blað Þjóðviljans sem fylgir blaðinu í dag!