Þjóðviljinn - 30.04.1988, Blaðsíða 18
RE Y K JKSIIKURBORG
Acut&cvi Stöcúci
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR ósk-
ar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk:
SJÚLRALIÐA við heimahjúkrun á fastar nætur-
vaktir og til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og hjúkrun-
arframkvæmdastjóri heimahjúkrunar í síma
22400.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar fyrir kl. 16.00 mánudaginn 9.
maí n.k.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Droplaugarstaðir
Heimili aldraðra Snorrabraut 58 vantar starfs-
fólk til sumarafleysinga í eldhús, ræstingu og
þvottahús.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 9-12 f.h. virka daga.
Sjómannafélag
Reykjavíkur
Orlofshús
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofs-
húsum félagsins í sumar frá og með mánudegin-
um 2. maí gegn greiðslu gjalds kr. 5.000.
RAUÐAKROSS
HÚSIÐ
Neyðarathvarf
Foreldrar og annað
áhugafólk um málefni
barna og unglinga
FUNDUR - LEIÐIR - ATHAFNIR
Ólafur Oddsson forstöðumaður Rruðakross-
hússins og Jón K. Guðbergsson áfengisfulltrúi
stjórna fundi um vímuefnamál.
★ Hefur þú áhyggjur af vímuefnaneyslu barna og
unglinga?
Hvað getum við gert núna?
Getum við rætt opið um vímuefnamál?
Getum við stöðvað innflutning vímuefna?
Getum við stöðvað dreifingu vímuefna?
Getum við komið í veg fyrir neyslu vímuefna?
★Af hverju vímuefni? Ólafur Oddsson svarar
spurningunni og bendir á mögulegar leiðir til
úrbóta.
Tími: Fyrsti fundur verður haldinn þriðjudaginn
3. maí kl. 20.30 að Borgartúni 28, í húsakynnum
Vímulausrar æsku.
ÁHUGI - ORÐ - ATHAFNIR
^ORFRETTIR n
Sigríður
Þorvaldsdóttir
hefur tekið við formennsku í Fé-
lagi íslenskra leikara af Arnóri
Benónýssyni í kjölfar ráðningar
hans sem leikhússtjóra hjá
Leikfélagi Akureyrar. Arnór hafði
gengt stöðu formanns sl. tvö ár.
Hliðum að Heiðmörk
hefur verið lokað um stundarsak-
ir vegna aurbleytu í vegum og
eldhættu. Hliðin eru við Jaðar,
Silungapoll og Vífilstaðahlíð.
Stjórnunarnám-
skeið fyrir konur
verður endurtekið eftir helgina 3.
og 4. maí en námskeiðið er hald-
ið á vegum Endurmenntunar-
deildar Háskólans og Jafnréttis-
nefndar Bandalags háskóla-
manna. Á fyrra námskeiðið sem
haldið var í síðustu viku komust
færri en vildu. Leiðbeinandi á
námskeiðinu verður prófessor
dr. Darlene Weingand frá Uni-
versity of Wisconcin-Madison,
en hún kennir við Háskóla ís-
lands nú á vormisseri. Allar frek-
ari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Háskólans.
Tónlistarskólinn
í Reykjavík
heldur tónleika á mánudag í
húsnæði skólans að Laugavegi
178 kl. 20.30. Á tónleikunum
flytja þeir nemendur sem útskrif-
ast úr blásarakennaradeild
skólans í vor, verk eftir Handel,
Vivaldi, Rachamaninoff o. fl.
Vextir af orlofsfé
fyrir það orlofsár sem lýkur 1. maí
verða 21,5% samkvæmt ákvörð-
un félagsmálaráðherra. Þetta
verður í síðasta sinn sem orlofsfé
verður greitt út sérstaklega með
þessum hætti frá Póstgíróstof-
unni, en samkvæmt lögum sem
taka gildi frá og með 1. maí verð-
ur allt orlof sem launþegar vinna
sér inn eftir þann tíma greitt með
kauptryggðum orlofslaunum
beint frá launagreiðanda eða af
sérstökum orlofsreikningum í
bönkum og sparisjóðum þar sem
samkomulag verður um þá fram-
kvæmd á vinnustöðum.
Samtökin Frjálsir
vegfarendur
hafa lýst ábyrgð á hendur ASÍ
fyrir að hafa samið um stórfellda
tollalækkun á bílum fyrir 2 árum
sem hratt af stað því bílafylleríi
sem stendur enn og kostað hefur
ótalin mannslíf og örkuml, að því
er segir í samþykkt samtakanna.
Telja samtökin að umferðarör-
yggi verði best bætt með því að
draga úr óhóflegri umferð einka-
bíla og að auka notkun almenn-
ingsvagna. Frjálsir vegfarendur
eru þeir sem ekki þurfa að hlek-
kja sig eða binda til að komast á
áfangastað. Þeir ganga, ferðast
með strætisvögnum og áætlun-
arbílum og á reiðhjóli, segir enn-
fremur í samþykktinni.
Hátíð í Aratungu
verður í dag, laugardag á vegum
sundlaugarnefndar og hins al-
menna sveitunga til að safna fé til
kaupa á vatnsrennibraut í sund-
lauginni ágætu í Aratungu. Ung-
lingar ætla að þeyta maraþon-
sund og safna áheitum, spilað
verður og sungið og margt annað
til skemmtunar.
Bandaríski
ísbrjóturinn
Northwind liggur við bryggju í
Reykjavíkurhöfn en hann er hér
kominn til að taka um borð tækja-
búnað og vísindamenn sem ætla
að gera rannsóknir á hafísnum
norður af landinu næstu vikurnar.
Skipið sem var smíðað í lok síðari
heimstyrjaldarinnar 1945, er nú
að sinna sínum síðustu verkefn-
um en skipið verður tekið úr notk-
un í lok þessa árs.
Félagar í Félagi
einstæðra foreldra
Tökum öll þátt í kröfugöngunni. Fylkjum liöi. Sýn-
um samstööu.
Stjórnin
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild
Félagsráðgjafar eða fólk meö sambærilega
menntun óskast til sumarafleysinga í Fjölskyldu-
deild.
Upplýsingar gefur yfirmaður Fjölskyldudeildar í
síma 25500.
Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins
Tilboö óskast í innanhúsfrágang, lagnir, búnaö
og fleira í 2.-4. hæö hússins Digranesvegur 5 í
Kópavogi, samtals um 1400 m2.
Verkinu skal lokið fyrir 1. október 1988.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri til 6.
maí 1988 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð veröa opnuð á sama staö þriöjudaginn 17.
maí 1988 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
/1»\
\i5/;
Aðalfundur S.H.
Aöalfundur Sölumiöstöövar hraöfrystihúsanna
veröur haldinn aö Hótel Sögu dagana 5. og 6.
maí 1988. Fundurinn hefst í Súlnasal, Hótel Sögu
fimmtudaginn 5. maí kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
■N
Utboð
Súgandafjörður 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 3,2 km, fylling 31.500 m3 og
burðarlag 11.500 m3.
Verki skal að fullu lokið 20. september 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 3.
maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 16. maí 1988.
V.
Vegamalastjori
Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Ríkisspítala
óskar eftir tilboðum í utanhúsviögerð og - endur-
bætur á eldhúsi Landspítalans í Reykjavík.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 10.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboö verða opnuð á sama staö, miövikudaginn
11. maí n.k. kl. 11:00 f.h. í viðurvist viöstaddra
bjóöenda. _______________________
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844