Þjóðviljinn - 04.05.1988, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 04.05.1988, Qupperneq 6
Framkvæmdasjóður íslands Starfskraftur óskast sem fyrst til starfa við bókhalds- og ritarastörf. Verslunarmenntun æskileg. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík. Rannsóknastofnun landbúnaðarins Rannsóknastofnun landbúnaðarins auglýsir sauðfjárbú tilraunastöðvarinnar á Reykhólum í Austur-Barðastrandarsýslu, ásamt nauðsynlegri aðstöðu, til leigu frá næstu fardögum. Nánari upplýsingar veita Ingi Garðar Sigurðsson, til- raunastjóri á Reykhólum (sími 93-47714) og Þor- steinn Tómasson, forstjóri (sími 91-82230). Leigutilboð sendist forstjóra Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins fyrir 24. maí. Frá menntamálaráðuneytinu lausar stöður við framhaldsskóla. Við Verkmenntaskóla Austurlands Neskaupstað eru lausar kennarastöður í dönsku, íslensku, stærðfræði og fagteikningu. Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi vantar kennara í eftirtaldar greinar: frönsku, sérgreinar málmiðna, sálfræði, stærð- fræði, félagsfræði, rafeindavirkjun og viðskiptagreinar. Einnig vant- ar kennara í eftirtaldar stöður: Þýsku % staða, tónlist og kórstjórn Vz staða. Við Iðnskólann í Reykjavík vantar kennara í dönsku, stærðfræði og eðlisfræði, faggreinum bakara, bókiðnum, fataiðnum, faggrein- um húsgagnasmiða, rafeindavirkjun, rafvirkjun, faggreinum málara og faggreinum á tölvubraut. Ennfremur vantar stundakennara í eftirtöldum greinum: íslensku, stærðfræði, eðlisfræði og tölvugrein- um, þýsku, bókfærslu og rekstrargreinum, hársnyrtigreinum, fata- iðnum, faggreinum múrara, öryggismálum, rafiðngreinum, fag- greinum húsasmiða og bókiðnum. Við Framhaldsskólann á Húsavík eru lausar kennarastöður í þýsku, frönsku, ensku, viðskiptagreinum og hálf staða í tónmennt. Jafnframt er óskað eftir sérkennara til að kenna nemendum með sérkennsluþarfir. Við Fjölbrautaskólann við Ármúla vantar kennara í efnafræði og viðskiptagreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavíkfyrir24. maí n.k. Menntamálaráðuneytið Aldraðir við föndurvinnu á dvalarheimili DAS í Reykjavík. DAS Sjómannasanrtökin 50 ara Nýtt happdrættisár hjá DAS. Endurbætur á hjúkrunardeildum og nýbyggingar í Hafnarfirði Nýtt happdrættisár er hafið hjá Happdrætti DAS fyrir starfsárið maí tii apríl 1988-1989. Vinninga- skrá happdrættisins breytist nú verulega og verður að heildar- verðmæti kr. 174.580.000,- Lægstu vinningar hækka úr 5 þús- und í 10 þúsund krónur og vinn- ingar til utanlandsferða verða nú samtals 2124 á 75 þúsund og 40 þúsund krónur og fjölgar því mikið. Til bílakaupa verða 48 vinning- ar hver á 300 þúsund krónur, en að auki verða 3 aukavinningar sem aðeins verða dregnir úr seld- um miðum: Chevrolet MONZA í júlí, MAZDA 323 í desember og TOYOTA Corolla í febrúar ’89. Vinningar til íbúðarkaupa verða í 1. flokki á 1,5 miljón en í öðrum flokkum á 1 miljón og að- alvinningurinn í 12. flokki verður sem undanfarið að verðmæti 3,5 miljónir til kaupa á íbúð eða báti. Sjómannadagssamtökin í Reykjavík og Hafnarfirði verða 50 ára nk. Sjómannadag 5. júní, en sem flestum mun kunnugt hafa þau lagt drjúgan skerf af mörkum til úrbóta í vandamálum aldraðra, eins og Hrafnistu- heimilin í Reykjavík og Hafnar- firði eru lýsandi dæmi um. Bent skal á að þær eru báðar sannkallaðar „landsstofnanir“, þar sem þar dveljast aldraðir alls- staðar af landinu. í Hrafnistu í Reykjavík er nú unnið að endurbótum á hjúkrun- ardeildum og endurbyggingu þvottahúss og samtengingu þess við hjúkrunarheimilið Skjól, sem njóta mun þessarar þjónustu frá Hrafnistu. f Hafnarfirði mun innan tíðar hefjast bygging 2. áfanga vernd- aðra þjónustuíbúða, sem eru 28 íbúðir við Naustahlein, en flest- um þeirra hefur þegar verið ráð- stafað til einstaklinga og sam- taka. Þessi hús sem hin fyrri við Boðahlein njóta þjónustu frá Hrafnistu og eru í sambandi við heimilið dag og nótt vegna örygg- is íbúanna. Jóhann Sigurðarson leikari. Menningarsjóður Pjóðleikh ússins Jóhannfékk styrkinn Að lokinni frumsýningu á Lyg- aranum þann 21. apríl sl. veitti þjóðleikhússtjóri Jóhanni Sig- urðarsyni leikara styrk úr Menn- ingarsjóði Þjóðleikhússins. Sjóðurinn var stofnaður á vígsludegi Þjóðleikhússins, 20. apríl 1950. Jóhann Sigurðarson hefur ver- ið í eldlínunni á fjölum Þjóðleik- hússins í vetur, leikið Javert lög- reglustjóra í Vesalingunum, Haffa í Bflaverkstæði Badda, Emilían í Rómúlusi mikla, karlveru á dýrlingshátíð í Yermu og Florindo í Lygaranum. Leiðrétting Þau mistök urðu við vinnslu Þjóðviljans í gær að grein um sjá- varútvegsmál á síðu 5, þar sem einn starfsmanna blaðsins lýsti persónulegum viðhorfum sínum, var sett upp sem almenn frétt eða fréttaskýring af blaðsins hálfu. Þjóðviljinn biður höfund og les- endur forláts. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagiö Reykjavík Aðalfundur 4. deildar Aðalfundur 4. deildar ABR verður haldinn að Hverfisqötu 105 mánudaqinn 9. maí kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Alþýðubandalagið Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagið boðar til miðstjórnarfundar helgina 7.-8. maí n.k. í Flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105, Reykjavik. Dagskrá: 1) Stefnumótun í húsnæðismálum. 2) Drög að stefnumótun í heilbrigðismálum. 3) Þróun efnahagsmála. 4) Skýrsla um niðurstöður landbúnaðarráðstefnu 5) Kosning nefnda. 6) önnur mál. Nánar auglýst síðar. Sumardvöl á Laugarvatni Hinar sívinsælu sumarbúðir Alþýðubandalagsins á Laugar- vatni verður í sumar vikuna 18. - 24. júlí. Umsjón verða í höndum Margrétar Frímannsdótturog Sigríðar Karlsdóttur. Allar nánari upplýsingar í síma 17500. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Bæjarmálaráð ABH boðar til fundar í Skálanum, Strandgötu 41, laugar- daginn 7. maí kl. 10.00. Dagskrá: 1) Niðurstaða stefnuráðsfundarins: Formaður reifar málin. 2) Skipulag stefnuumræðu og starfið í sumar. Mætum öll í sumarskapi Alþýðubandalagið Reykjavík Aðalfundur 3. deildar Aðalfundur 3. deildar ABR verður haldinn miðvikudaginn 4. maí kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.