Þjóðviljinn - 10.05.1988, Qupperneq 2
FRETTIR
Alþýðubandalagið
Island í hagstjómarkreppu
Ólafur Ragnar Grímsson: Grafið undan stoðum efnahagslífsins. Stofnaður verði landshlutabanki
Olafur Ragnar Grímsson lagði
fram ítarlega greinargerð um
efnahagsvandann á miðstjórnar-
fundi Alþýðubandalagsins um
síðustu helgi. Þar er ma. lagt til
að stofnaður verði sérstakur
landsbyggðarbanki og að spari-
sjóðunum verði gert kleift að
kaupa Útvegsbankann. Ólafur
segir einnig nauðsynlegt að efla
jöfnunarsjóð sveitafélaga um 400
milljónir á þessu ári.
Ólafur telur að í landinu ríki
hagstjórnarkreppa en ekki efna-
hagskreppa. Verðbólgan hér sé 8
sinnum meiri en í helstu við-
Þokkalegt verð fæst fyrir rækjuna en aðalmarkaðurinn er á Bretlandi
og Norðurlöndum.
skiptalöndum, viðskiptahallinn
verði 11-15 milljarðar á þessu ári
og að erlendar skuldir gætu orðið
90-100 milljarðar í árslok. Þá
bendir Ólafur á að stórfelldir bú-
ferlaflutningar frá landsbyggð-
inni hafi stigmagnast og að fjöldi
fyrirtækja á landsbyggðinni sé á
Gert er ráð fyrir að 40-50 batar
og skip verði gerðir út frá
rækjuyerksmiðjum 7 við Isa-
fjarðardjúp á úthafsrækju í ár
sem undanfarin ár. Verksmiðj-
urnar leigja skipin sem eru bæði
loðnuskip og hefðbundnir vertíð-
arbátar til veiðanna og sjá þeim
jafnframt fyrir veiðarfærum.
Að sögn Gunnars Þórðarson-
ar, formanns Félags rækjufram-
leiðenda eru bátarnir farnir að
tínast út á miðin og hafa þeir
fyrstu verið að fá þetta 12-20 tonn
eftir 5-6 daga veiðiferð. Rækjan
hefur verið til þessa nokkuð smá
en skipin hafa þurft að sigla alla
leið austur á Sléttu sem er um 18
tíma stím sem þykir nokkuð
langt.
Vegna þrákelkni hafíssins sem
enn er úti fyrir Norðurlandi hefur
ekki enn verið unnt að veiða á
hefðbundnum úthafsrækjumið-
um til þessa, en í sunnanáttinni
sem ríkt hefur að undanförnu bú-
ast menn við að landsins forna
fjanda fari óðum að reka til síns
heima.
Lárus Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpu-
diskframleiðenda segir að verð
fyrir úthafsrækjuna á mörkuðum
ystu brún.
Ólafur leggur til að ríkisbank-
arnir á landsbyggðinni, spari-
sjóðirnir og aðrar innlánsstofn-
anir verði sameinaðir í öflugan
landshlutabanka sem lyti stjórn
heimamanna. Ólafur segir að á
þennan hátt megi draga úr mið-
í dag sé þolanlegt og fyrir stærstu
rækjuna fæst í dag um 3,40 pund
fyrir hálft kfló af henni og 2,45
pund fyrir smæstu rækjuna.
Aðal markaðssvæðin eru á
Bretlandi og á Norðurlöndunum
og sagði Lárus að vel horfði með
sölu á rækjunni sem hingað til.
Aðal samkeppnisaðilar okkar á
Evrópumörkuðum eru Kanada-
og Bandaríkjamenn og hefur
samkeppnisaðstaða þeirra
styrkst verulega á síðustu misser-
um vegna þess hve dollarinn væri
ódýr. ~grh
Kominn
Er blaðið fór í prentun um
miðnætti stóð enn yfir 3. og síð-
asta umræða um bjórfrumvarpið
í efri deild Alþingis. Allt bendir til
þess að frumvarpið verði sam-
þykkt óbreytt og því verði hægt
að kaupa bjór í verslunum ÁTVR
frá 1. mars á næsta ári.
Ekki kom fram tillaga um að
bera þetta umdeilda mál undir
þjóðaratkvæði, eins og jafnvel
hafði verið reiknað með. Þau
stýringarvaldinu í bankakerfinu
og færa landsbyggðinni verulegt
vald í fjármagnskerfinu.
Ólafur segir að fyrsta skrefið í
þessa átt gæti verið að selja spar-
isjóðunum í landinu Útvegsbank-
ann. Þannig mætti einfalda bank-
akerfið og gera það hagkvæmara.
Bankakerfinu hefur mistekist
að stýra fjármagninu í arðsamar
fjárfestingar segir Ólafur og lána-
mistök þeirra er veigamikil orsök
gjaldþrota og þeirrar vitlausu
fjárfestingar sem eru að koma
fram. Hann leggur til að allar op-
inberar framkvæmdir og fram-
kvæmdir fyrirtækja sem fá ríkisá-
byrgð á lánum, verði tengdar
þjóðhagslegu arðsemismati. Þá
verði lagt arðsemismat á fram-
kvæmdir vegna lána yfir ákveðn-
um stærðarmörkum. Þetta myndi
knýja bankakerfið til meiri
ábyrgðar að mati Ólafs.
I greinargerðinni leggur Ólafur
einnig til að jöfnunarsjóður
sveitarfélaga verði gerður að
raunverulegum jöfnunarsjóði.
Hann vill láta efla sjóðinn um 400
milljónir á þessu ári. Markmiðið
verði aukið sjálfstæði sveitarfé-
laga og að tekjugrundvöllur
þeirra verði treystur.
f greinargerð formannsins eru
alls um 30 tillögur til úrbóta á
hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins.
Þar er ma. komið inn á launamál,
í gegn?
Guðrún Agnarsdóttir og Svavar
Gestsson báru upp tvær viðbóta-
rtillögur, sem snerust um að land-
læknir yrði hafður með í ráðum
við verðlagnigu og reglur yrðu
settar um aukið forvarnarstarf.
Þó að flestir geti í sjálfu sér fallist
á þessa viðauka, þá hefði sam-
þykkt þeirra þýtt að málið hefði
farið aftur í neðn deild og þar
með ekki náð í gegn á þessu
þingi. mj
Isafjörður
Asókn
rauða
w
i
gullið
Rœkjuverksmiðjur við Djúp gera út um 40-50 skip á
úthafsrækju ísumar. Aflinn 12-20 tonn eftir5-6 daga
veiðiferð. Þokkalegt verðfœst fyrir rœkjuna
skattamal ofl.
-hmp
Bjórinn
m u Sjónvarpið
Sigmn eða Ögmundur líklegust
Sjálfstœðisflokkurinn virðiststyðja Sigrúnu, en Ögmundurgœti fengið flest atkvœði í Útvarpsráði.
Starfsmenn með Ögmundi. Kvennalistinn ísérkennilegum en dœmigerðum vanda
Mjög er óljóst um úrslitin í Út-
varpsráði um fréttastjóra-
efni sjónvarps, en kunnugir telja
að baráttan standi einkum milli
Sigrúnar Stefánsdóttur og Ög-
mundar Jónassonar. Auk þeirra
sækja um Hallur Hallsson og
Helgi H. Jónsson.
Umsóknarfrestur rann út um
helgina, og hefur ekki frést af
öðrum umsækjendum en þessum
fjórum. Opinberlega verður ekki
látið uppi um umsækjendur
fyrren eftir útvarpsráðsfúnd á
föstudag, en atkvæði verða
greidd í ráðinu á þriðjudag eftir
viku. Ekki er líklegt að Hallur
Hallsson fái atkvæði í útvarps-
ráði, og því ósennilegt að hann
verði fyrir valinu. Á brattann er
að sækja fýrir varafréttastjórann
Helga H. en samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans gæti tilviljun
ráðið hvort þeirra Sigrúnar eða
Ögmundar fær fleiri atkvæði.
Kunnugir telja ósennilegt að út-
varpsstjóri vilji ganga á svig við
skýran vilja í Útvarpsráði, meðal
annars vegna þess að hann valdi
Ingva Hrafn á sínum tíma gegn
meirihlutavilja í ráðinu. Ráðs-
menn eiga því leikinn, en dreifist
atkvæði þeirra tiltölulega jafnt
hefur Markús Örn gott svigrúm.
í ráðinu eru sjö fulltrúar, Inga
Jóna Þórðardóttir og Magnús Er-
lendsson frá Sjálfstæðisflokki,
Markús Á. Einarsson og Ásta R.
Jóhannesdóttir frá Framsókn,
Magdalena Schram frá Kvenna-
lista, Bríet Héðinsdóttir frá Al-
þýðubandalagi og Guðni Guð-
mundsson frá Alþýðuflokki.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans styðja Sjálfstæðisfulltrú-
arnir Sigrúnu til stöðunnar,
þarmeðtalinn útvarpsstjóri, og
telja að Sigrún muni falla betur
að veldi flokksins í stofnuninni en
Ingvi Hrafn. Þó munu komnar
vomur á ráðsliða flokksins vegna
andstöðu við Sigrúnu innanúr
flokknum.
Helgi H. Jónsson er talinn hafa
stuðning Markúsar Framsóknar-
fulltrúa (Markúsar Á.) en Ásta
R., hinn Framsóknarmaðurinn,
er óvissari og gæti atkvæði henn-
ar fallið á alla vegu: á Helga að
vilja flokksforystunnar, á Sig-
rúnu vegna kvennasamstöðu eða
á Ögmund vegna vináttu og fag-
legs mats.
Það gæti vegið þungt um
ákvörðun Ástu R., einsog fleiri
ráðsliða, að Ögmundur nýtur
mikils stuðnings meðal frétta-
manna og annarra starfsmanna á
fréttastofunni og annarsstaðar í
stofnuninni, og er að sjá að sá
stuðningur vegi upp á móti því að
Ögmundur er talinn til vinstri í
stjórnmálaskoðunum, sem ekki
er vinsælt hjá yfirmönnum á
Sjónvarpinu.
Bríet Héðinsdóttir er talin vera
á bandi Ögmundar, en ekkert er
vitað um afstöðu Guðna rektors.
Kvennalistinn á í sérkenni-
legum en dæmigerðum vanda.
Talið er að Magdalena Schram,
fulltrúi hans í ráðinu og fleiri
Kvennalistakonur hallist helst að
Ögmundi, bæði á faglegum for-
sendum og vegna starfsmanna-
stuðnings, en pólitík Kvennalist-
ans gerir Magdalenu erfitt um vik
að styðja ekki konuna Sigrúnu,
sérstaklega eftir þá athygli sem
ritgerð Sigrúnar um illt fjölmiðla-
gengi hefur vakið uppá síðkastið.
Það eykur svo spennuna um kjör-
ið að sjúkrahúslega gæti orðið til
þess að kaleikurinn yrði frá
Kvennalistanum tekinn. Vara-
maður Kvennalistafulltrúans er
nefnilega frá Borgaraflokki, Júlí-
us Sólnes, og segja heimildar-
menn Þjóðviljans eins víst að
Júlíus kysi Ögmund, þótt ekki
væri til annars en að koma Mark-
úsi Erni og öðrum Sjálfstæðis-
mönnum kringum ríkisútvarpið í
bobba.
Allir umsækjendur hafa beitt
sér að einhverju marki við ráðs-
menn og þá sem taldir eru standa
þeim næstir, en þótt pólitík skipti
hér talsverðu verður ekki séð að
stjórnarflokkamir hafi - að
minnsta kosti ekki enn - gert
neitt samkomulag um stöðuna,
enda samstarfsflokkar Sjálfstæð-
isflokksins ekki hrifnari en
stjórnarandstaðan af tilburðum
flokksins til fullkominna forráða
yfir ríkisútvarpinu ofaná ítök
hans í annarri fjölmiðlun.
Fáir þeirra sem Þjóðviljinn
hefur rætt við síðustu daga hafa
þorað að spá neinu um úrslit, en
telja að Ögmundur hafi sótt mjög
í sig veðrið frá því fyrir viku eða
tveimur að Sigrún var talin nær
örugg.
-m
Sigrún og ögmundur talin helst
koma til greina.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 10. maí 1988