Þjóðviljinn - 10.05.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 10.05.1988, Page 9
Það er prófsteinn á efnahagsstefnuna hvort tækifærin eru nýtt til sóknar eða glutrað niður vegna aðgerðaleysis, rangra ákvarðana eða annarlegrar hagsmunagæslu, segir Ólafur Ragnar í greinargerð sinni. ,yAnnað hvort heldur kreppan í hagstjórninni áfram að gera lausn vandamálanna œ erfiðari eðafarnar verða nýjar leiðir semfela ísér róttœkar kerfisbreytingar. Tíminn er dýrmœtur. Aðgerðaleysi í nokkra mánuði í viðbót getur skapað nánastóyfirstíganlegarhindran- ir. Það er hins vegar ekki nóg að krefjast bara aðgerða. Þær verða að þjóna hagsmunumfólksins í landinu og styrkja sjálfstœði þjóðarinnar. “ munar og með hliðsjón af ákvörðunum stjórnvalda um breytilegt vaxtastig eftir hólfun útlána. 2.8. Knúið verði á um samruna fjárfestingalánasjóða og útlána- stefna þeirra Iátin fylgja al- mennum reglum um arðbæra fjárfestingu frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Sérhæfing útlána- starfseminnar má ekki leiða til varðveislu sérhagsmuna á kostn- að heildarhagsmuna og óhag- kvæmni í ráðstöfun lánsfjár- magns. 3. Skynsamleg nýting auðlinda, hagkvæm fjárfesting og jákvæð byggðaþróun Auk aðgerða sem fyrr eru tald- ar og almennt draga úr þensiu á höfuðborgarsvæðinu og auka jafnvægi milli landshluta verði gripið til eftirfarandi aðgerða sem stuðlað geta að skynsamlegri nýtingu auðlinda, hagkvæmari fjárfestingu og jákvæðri byggða- þróun: 3.1. Stjórnun fiskveiða verði breytt á þann veg að í stað veiðivkóta sem bundinn er við einstök skip verði komið á nýju kerfi byggðakvóta þar sem at- vinnuhagsmunum landshlutanna og sameign fólksins á auðæfum hafsins eru lögð til grundvallar. Til að stuðla að hagkvæmri nýt- ingu fjárfestinga og fiskimiða og tryggja að arðurinn fari til upp- byggingar í heimahéruðum verði í áföngum komið á útboðskerfi á hluta af þeim veiðileyfum sem eru til ráðstöfunar innan hvers byggðasvæðis. Þannig skapaðist grundvöllur til að verðleggja arð- inn af ráðstöfunarréttinum á þessum sameiginlegu auðæfum og tryggja að sá arður færi til fólksins en ekki til fáeinna fyrir- tækja og eignamanna. Ráðstöfun teknanna sem útboðskerfið skapaði yrði í höndum sveitar- stjórna og samtaka heimamanna. Á þann hátt yrði til nýr tekju- grundvöllur sem heimamenn gætu sjálfir ráðstafað til byggða- þróunar. 3.2. Til að styrkja rekstrar- grundvöll sjávarútvegsins og koma í veg fyrir verðfall á er- lendum mörkuðum vegna of- framboðs verði tekin upp ný sölu- skipan á fiski. Grundvöllur henn- ar yrðu skýr ákvæði um að allur fiskur yrði seldur, verðlagður og viktaður áður en hann er sendur ferskur úr landi. Þannig yrði bannað að flytja óverðlagðan og óseldan fisk úr landi og kaupend- ur erlendis yrðu að keppa við inn- lenda framleiðendur um hráefn- ið. Slíkt kerfi myndi leiða til jafnvægis á ferskfiskmörkuðun- um í Evrópu og halda þar með uppi hinu háa verði á íslenskum útflutningi um leið og fiskversl- unin yrði færð inn í landið og samkeppnisstaða íslenskrar fisk- iðju væri tryggð. 3.3. Fjármálaleg stjórn heima- manna og bankakerfi lands- byggðarinnar verði styrkt með því að koma á fót viðræðum milli ríkisbankanna, sparisjóðanna og annarra innlánsstofnana í lands- hlutunum um að sameina útibú ríkisbankanna, sparisjóði og aðr- ar innlánsstofnanir í öfluga lands- hlutabanka sem lytu stjórn heimamanna. Slíkir landshluta- bankar gætu verið hlutafjárbank- ar með þátttöku sveitarstjórna, fyrirtækja og einstaklinga sem efla vilja viðskipti heima í héraði. Á þennan hátt yrði dregið úr mið- stýringarvaldinu í bankakerfinu, landsbyggðinni fært verulegt vald í fjármagnskerfinu og aðhald og ábyrgð í útlánum aukin um leið. Fyrsta skrefið á þessari þróun- arbraut gæti verið fólgið í því að sparisjóðunum í landinu væri í sameiningu heimilað að kaupa Útvegsbanka íslands. Þar með næðist skref í átt að einfaldara og hagkvæmara bankakerfi og fjármálalegt vald yrði fært til heimamanna sem stjórna spari- sjóðunum. 3.4. Fjárfestingarlánasjóðun- um yrði skipt í landshlutadeildir sem störfuðu í tengslum við hinar nýju lánastofnanir landshlut- anna. Með uppbyggingu slíkra deilda og sérstakra landshluta- banka yrði stuðlað að því að efla ráðgjafarstarfsemi við atvinnulíf í heimabyggðum og færa þangað þekkingu sem nú er að mestu hluta á höfuðborgarsvæðinu. Til greina kemur að skipta Byggða- stofnun upp í slíkar landshluta- deildir sem lytu stjórn fulltrúa heimamanna. Á þennan hátt er hægt að flytja fjárhagslegt vald og ábyrgð nær vettvangi atvinnulífs- ins og stjórnareiningum hérað- anna. 3.5. Komið verði á virkri fjár- festingarstýringu sem á þessu og næsta ári hafi það sérstaka verk- efni að koma í veg fyrir óarðbær- ar fjárfestingar í verslunarhús- næði, skrifstofubyggingum og opinberum glæsihýsum, bæði á vegum ríkis og sveitarfélaga, sem hæglega geta beðið í nokkur ár. Réttlæting slíkrar fjárfestingar- stýringar er að nú þegar ríkir of- framboð og þensla á þessum byggingamarkaði. Allar opin- berar framkvæmdir og fram- kvæmdir fyrirtækja og annarra sem fá ríkisábyrgð á lánum verði tengdar þjóðhagslegu arðsenus- mati og^felldar að hagstjórnar- ramma um viðskiptajöfnuð og jafnvægi í hagkerfinu. Einnig er skynsamlegt að sérstakt arðsem- ismat verði framkvæmt á fjárfest- ingum sem sótt er um lán til ofan við tiltekin stærðarmörk. Ef lánin eru úr opinberum sjóðum og ríkisbönkum skulu þessar arð- semisgreinargerðir vera opinber gögn. Á þann hátt yrði banka- kerfið knúið til meiri ábyrgðar í ráðstöfun lánsfjármagnsins. 3.6. Jöfnunarsjóður sveitarfé- laga verði efldur á þessu ári um a.m.k. 400 milljónir og enn frek- ari raunhækkun eigi sér stað á næsta ári. Sjóðurinn verði gerður að raunverulegum jöfnunarsjóði og efling hans haldist í hendur við skýrari verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem hafi að mark- miði aukið sjálfstæði sveitarfé- laganna og traustan tekjugrund- völl. Skattatekjum af fyrirtækj- um og opinberum stofnunum sem þjóna öllu landinu verði jafnað á milli sveitarfélaga í gegn- um jöfnunarsjóðinn. 3.7. Til að breikka atvinnu- grundvöll landsbyggðarinnar og jafna aðstöðu landsmanna verði hafist handa um að framkvæma tillögur um flutning ríkisstofnana og margvíslegrar þjónustustarf- semi út til landshlutanna. Til- lögur stjórnskipaðrar nefndar um flutning ríkisstofnana hafa legið fyrir í rúman áratug. Framkvæmd þeirra gæfi einnig tilefni til að knýja fram nauðsynlega hagræð- ingu í ríkisrekstrinum. 4. Aðgerðir til að tryggja lágmarkslaun og draga úr launamisrétti: Víðtækar efnahagsaðgerðir munu ekki skila jákvæðum ár- angri nema framkvæmd þeirra byggi á breiðri samstöðu og taki mið af hinni sterku kröfu um rétt- læti í launamálum. Þess vegna eru eftirfarandi aðgerðir mikil- vægar: 4.1. Þar eð ekki hefur tekist í kjarasamningum að tryggja öllum nauðsynleg lágmarkslaun verði sett lög um að nú þegar verði lágmarkslaun ekki undir skattleysismörkunum, 42.000 krónum á mánuði. Lögin feli einnig í sér að lágmarkslaunin hækki síðan á næsta ári í áföngum upp í 45.000-55.000 krónur fyrir dagvinnu takist ekki að ná þeim árangri í kjarasamningum. 4.2. Brýnt er að draga úr mis- rétti í launamálum sem m.a. endurspeglast í fimmtánföldum launamun og forstjóralaunum á bilinu hálf til heil milljón á mán- uði. Til að draga úr þessu misrétti verði beitt í senn ákvæðum í skattalögum og yfirlýsingum lög- gjafarvalds og framkvæmdavalds um þá stefnumótun að launa- munur verði á næstunni ekki meiri en fjórfaldur og minnki síð- an á næstu árum í tvöfaldan. Yfirlýsing stjórnvalda væri skuldbindandi' fyrir ríki og sveitarfélög og alla rekstraraðila, stofnanir og fyrirtæki. Skatta- lögin yrðu svo tæki til að reka smiðshöggið á framkvæmd slíkr- ar jafnlaunastefnu. 4.3. Söluskattur á matvöru verði afnuminn og þannig dregið úr mesta misréttinu gagnvart láglaunafólki sem skattastefna" ríkisstjórnarinnar hefur haft í för með sér. 5. Rekstrargrundvöllur útflutnings- atvinnuveganna: Öflug útflutningsþróun og arð- bær uppbygging útflutnings- starfseminnar er forsenda fyrir jafnvægi í hagkerfinu, eyðingu viðskiptahalla og minnkun er- lendra skulda samfara bættum lífskjörum og eðlilegri byggða- þróun. Margar af þeim aðgerðum sem fyrr eru taldar munu stuðla að þessum markmiðum en auk þeirra þurfa fleiri að koma til framkvæmda. 5.1. Til að skapa hagkvæmari rekstra'reiningar og nýta betur fjárfestingar verði skipulega unn- ið að aukinni samvinnu fyrir- tækja í sjávarútvegi, sérstaklega í frystiiðnaði. Á næstunni verði slík uppstokkunar-úttekt gerð á fyrirtækjum í hverju byggðarlagi. Einnig verði lagður grundvöllur að nýjum sóknarmöguleikum fyrir hinn mikla fjölda smáfyrir- tækja sem starfar í sjávarútvegi en það eru einkum smáfyrirtækin sem verið hafa vaxtarbroddur ný- sköpunar í sjávarútvegi. Markmið uppstokkunar í fryst- iiðnaðinum og eflingar smáfyrir- tækjanna í sjávarútvegi verði: - betri nýting fjárfestingar - öflugri og nýtískulegri stjórnun fyrirtækjanna - meiri möguleikar á nýsköpun og sjálfstœðari markaðsstarf- semi einstakra fyrirtœkja. Stjórnvöld beiti sér fyrir því að opinberir aðilar og fjármagns- stofnanir láti í té þá þjónustu og fyrirgreiðslu sem nauðsynleg eru til að koma þessari hagræðingar- uppstokkun til framkvæmda. Samsvarandi hagræðingarút- tekt verði gerð í öðrum mikilvæg- um útflutningsgreinum. 5.2. Þróunarstarfsemi og sölu- kerfi í útflutningi verði fært meira inn í útflutningsfyrirtækin og opnaðar beinar leiðir til útflutn- ings á erlenda markaði. Fram- leiðslan komist í nánari tengsl við sölumarkaðinn og milliliðum verði fækkað. Smáfyrirtæki geta oft nýtt smærri og sérhæfðari út- flutningsmarkaði sem eru utan við hefðbundin viðskiptasvið hinna stærri söluaðila. Hins vegar verður að vera virkt eftirlit með því að þessi opnun útflutningtæk- ifæra leiði ekki til skerðingar á almennum markaðsstyrk ís- lenskrar útflutningsvöru. Sam- starf útflytjenda verði skipulagt þar sem hætta er á að offramboð leiði til lækkandi útflutnings- verðs. 5.3. Margvíslegur tilkostnaður útflutningsaðila, svo sem rafork- ukostnaður, bankagjöld, tollar á aðföngum og fleira verði lækkað til að styrkja samkeppnisstöðu útflutningsgreinanna og banka- kerfinu beitt til að veita útflutn- ingslánum forgang. 5.4. Þar sem allar þessar að- gerðir og fleiri draga mjög úr þörfinni á gengislækkun í þágu útflutningsstarfseminnar verði beitt sterku aðhaldi í gengismál- um á næstunni. Gengisbreyting sem dregur úr þrýstingi á nauðsynlegum kerfisbreytingum er aðeins tímabundið deyfilyf. Falsgengisstefna sem rýrir hlut framleiðslugreinanna og lands- byggðarinnar og býr til gervi- þenslu í verslunarumsvifum á höfuðborgarsvæðinu er hins veg- ar tilræði við efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar. Hér þarf því að leita nýrra leiða til að koma á jafnvægi í gengismálum. Slíku jafnvægi mætti koma á í þremur áföngum: 1. Vegna mistaka ríkisstjórnar- innar í stjórn peningamála, verð- lagsmála og á öðrum sviðum hagstjórnarinnar komi til fram- kvœmda minniháttar aðlögun á nœstu vikum til að skapa útflutn- ingsfyrirtœkjunum svigrúm til nauðsynlegrar endurskipulagn- ingar og uppstokkunar. Pessi að- lögun komi ekki til skerðingar á kjörum hinna lœgstlaunuðu. 2. Síðan komi fastgengi í nokkra mánuði á meðan verið er að framkvæma þær margháttuðu aðgerðir sem hér eru gerðar til- lögur um og hafa í för með sér aukna hagkvæmni í rekstri, minni tilkostnað og stuðla að jafnvægi í hagkerfinu. 3. Nýr fastgengisgrunnur yrði svo tekinn upp í samræmi við hið nýja jafnvægi sem skapast hefði í hagkerfinu. Stjórnmálalegar forsendur bandalag launafólks og landsbyggðar íslendingar eru á tímamótum. Kreppan í hagstjórninni ógnar nú efnahagslegu sjálfstæði þjóðar- innar og möguleikum til aukinna framfara og bættra lífskjara. Hér hafa verið settar fram tillögur um víðtækar aðgerðir til að snúa við þeirri óheillaþróun sem undan- farin misseri hefur sett svip á efnahagsstjórnina i landinu. Þessar aðgerðir þurfa að hvíla á breiðri samstöðu og nýjum pólit- ískum styrk. Þær stjórnmálalegu forsendur eru ekki fyrir hendi í núverandi ríkisstjórn. Þær er hins vegar að finna í nýju bandalagi launafólks og landsbyggðar þar sem sameiginlegir hagsmunir fólksins eru grundvöllur aðgerða. Slíkt bandalag launafólks og landsbyggðar fæli í sér stjórnmálalegar forsendur þess að hér takist að snúa við blaðinu. Það er verkefni allra þeirra sem þjóna vilja hagsmunum alls launafólks og íbúa landsbyggðar- innar að vinna að því að slíkt bandalag verði þungamiðjan í umsköpun íslenskra stjórnmála. Þrlðjudagur 10. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.