Þjóðviljinn - 10.05.1988, Síða 16

Þjóðviljinn - 10.05.1988, Síða 16
r-SPURNINGIN-n Hvað finnst þér um bílamálið hjá Granda? Baldvin Ólafsson auglýsingamaður: Þetta er svo víða svona. Við erum í skítnum hvort sem er, spillingin er allsstaðar. Laufey Guftmundsdóttir skrifstofumaður: Þetta er alveg fáránlegt mál. Þeir ættu frekar að borga hærri laun og sleppa sukkinu. Þórarinn Pétursson nemi: Þekki ekki málið nógu vel en mér sýnst þetta hafa verið ótímabær launuppbót. Halldór Kristjansen sölumaður: Skandall! Stjórnarformaður gerir rétt í því að kaupa bílinn. Fröken Helena slátrari: Allt bruðl er andstyggilegt. þlÓÐVIUINN Þriðjudagur 10. maí 1988 105. tölublað 53. órgangur. Yfirdráttur á téKKareiKninga launafólKs SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF Landgrœðsla Tún frá Texas Ný landgrœðsluflugvél kom til landsins á sunnudaginn. Tekur eitt tonn afáburði og frœjum „Vi,ð erum í sjöunda himni með þessa nýju flugvél, eitt er víst, að það er nóg af verkefnum,“ sagði Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri, þegar hann í gær bauð blaðamönnum að skoða nýja áburðarflugvél sem keypt var í Bandaríkjunum. Vélin kom til landsins á sunnudaginn. „Ég var átta daga á leiðinni frá Lubbock í Texas, ferðin gekk í alla staði mjög vel,“ sagði Gunn- laugur Helgason flugmaður sem náði í vélina til Bandaríkjanna. Þegar hann var spurður hvort hann hefði ekki orðið einmana á leiðinni neitaði hann því, „það er svo mikið að hugsa um á svona ferðalagi.“ Ekki sagðist hann heldur hafa fundið til innilokun- arkenndar, þótt hann sæti í allt að fimm klukkustundir í flugmanns- klefanum sem er ekki stærri en meðalstór fataskápur. „Aðalmál- ið er að halda réttri stefnu og hugsa ekki um annað,“ sagði Gunnlaugur sem var mjög hress með vélina. „Flugvélinn mun fyrst í stað fara í verkefni á Reykjanesi og síðan til Vestmannaeyja," sagði Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri þegar hann var spurður um væntanleg verkefni. Hann sagði TF-TÚN er af gerðinni Ari Tractor („Dráttavél loftsins"), er sérhönnuð áburðarflugvél. -mynd: sig. að uppgræðslan á Suðurnesjum væri unnin í samvinnu við öll sveitarfélögin á svæðinu og einn- ig hefðu fslenskir aðalverktakar lagt til 5 miljónir króna til verks- ins. Nýja flugvélin hefur fengið sömu einkennisstafi og TF.TUN sem brotlenti í Fljótshlíðinni í júlí í fyrra. Nýja vélin sem er af gerð- inni „Ari Tractor“ er árgerð 1984, og kostaði 8.5 miljónir króna. Hún getur borið 1000 kg af áburði og grasfræi í ferð. Sigurbjörn Bárðarson sá kunni knapi á stjörnuljósalýstum fáki. Hestakúnstir í Reiðhöllinni Það ríkti góð stemmning í Reiðhöllinni í Reykjavík á sunn- udag, þegar knapar víða af landinu sýndu hvað hægt er að láta vel taminn hest gera. Hest- arnir voru látnir gera alls konar kúnstir, sumir meira að segja látnir sýna hundakúnstir. En best er að láta myndirnar tala sínu máli. Sigurbjörn lætureinn hesta sinna taka stórt stökk. Myndir: E.ÓI. Hornafjörður Humarinn í þvottavél KASK: Tilraunavinnsla með heilfrystan humar Á síðustu humarvertíð voru sex tonn af humri heilfryst í tilrauna- skyni hjá sjávarafurðasviði Kaupfélags Austur-Skaftfellinga og á komandi vertíð er ætlunin að auka þessa vinnslu enn frekar og þá jafnframt að þvo humarinn í þar til gerðum þvottavélum um borð í bátunum til að auka enn meir gæði hans. Að sögn Ara Þorsteinssonar sjávarútvegsverkfræðings hjá KASK eru þeir nýbúnir að fá í humarþvottinn danska þvottavél sem meiningin er að komi um borð í þeim bátum sem það vilja. Ari sagði að salan á tilrauna- vinnslunni í fyrra hefði gefið góða raun og í ár ætti hún ekki að vera síðri nema síðursé. Aðalmarkað- ur fyrir heilfrystan humar er á ít- alíu. Humarvertíðin eystra byrjar eftir hvítasunnuna og stendur út mánuðina júní og júlí. - grh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.