Þjóðviljinn - 12.05.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 12. maí 1988 107. tölublað 53. árgangur
Þinglausnir
Hafa nú frjálsar hendur
Búið að sendaþingmenn heim. Verður nú stjórnað með bráðabirgðalögum? Ráðherrarnir
þurfa ekki lengurað ráðgast við sína eigin þingmenn
f gær, þegar búið var að koma
ákveðnum frumvörpum í gegn-
um þingið með hamagangi og
látum, sumum hálfköruðum eins
og virðisaukanum sem fer í gjör-
gæslu hjá milliþinganefnd, þegar
ráðherrarnir höfðu fengið sett
þau lög sem þeir töldu nauðsyn-
Íeg, þá voru þingmenn sendir
heim. Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar iýstu því yfir að þeirra
vegna væri ekki nauðsynlegt að
fara strax í sumarfrí. Þeir buðu
upp á það að gefið yrði stutt
þinghlé, í eina eða tvær vikur,
meðan ríkisstjórnin mótaði til-
lögur sínar í efnahagsmálum og
síðan kæmi þing saman til að af-
greiða málin á lýðræðislegan
máta.
Á þennan veg eru sjónarmið
talsmanna stjórnarandstöðunnar
sem Þjóðviljinn ræddi við í gær.
Þeir telja það eðlilega þingræðis-
kröfu að fá að vita hvað í vændum
er. „Það liggur í loftinu að þetta
verða einhverjar kjaraskerðing-
araðgerðir," sagði Steingrímur J.
Sigfússon.
En ráðherrarnir lögðu ofur-
kapp á að losna við athugasemdir
þingmanna, og þá fyrst og fremst
sinna eigin liðsmanna. Og nú
geta þingmenn stjórnarandstöð-
unnar farið heim í hérað og sagt
að þetta sé nú ekki þeirra mál.
Það séu ráðherrarnir sem stjórni
einir og því miður sé þinghlé,
annars ...
Sjá bls. 3
Aldraðir
Steinsteypan ekki einhlít
- Aldrað fólk á að fá þjónust-
una sem mest til sín í stað þess að
þurfa að elta hana uppi, segir
Anna Birna Jensdóttir, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri á öldrunar-
deildum Borgarspítalans.
Hún telur brýnt að á næstunni
verði lögð áhersla á þjónustu við
aldrað fólk í heimahúsum; slík
þjónusta sé ófullkomnari hér en á
Norðurlöndum enda þótt við
eigum hlutfallslega fleiri rými
fyrir aldraða.
Rætt er við Önnu Bírnu í blað-
inu í dag, og eins forvitnast um
athyglisverða leið Sunnuhlíðar-
samtakanna í Kópavogi, en á
vegum þeirra voru nýskeð teknar
í notkun ríflega 40 verndaðar
þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Verðlaunabók
Leiftrandi frásagnargleði
íslensku barnabókaverðlaunin falla í skaut
Kristínar Loftsdóttur, höfundarað bókinni
Fugl í búri. Hún eraðeins 19 ára
Bókin Fugl í búri er vel samin, Kristín var ein af um tuttugu
hugljúf, heillandi og spennandi höfundum sem sendu til Verð-
og leiftrar af frásagnargleði. launasjóðsins handrit í sam-
Þetta eru ummæli Verðlauna- keppni um bestu barnabókina
sjóðs íslenskra barnabóka um 1988.
fyrstu bók Kristínar Loftsdóttur, ___________
19 ára gamallar stúlku úr Hafn-
arfirðinum. Sjá blS. 3
Grandavagninn
Keyptur útá orð Ragnars
BrynjólfurBjarnason: Vartjáð af
stjórnarformanninum að samþykki lœgi fyrir
Forstjóra Granda hf. Brynjólfi
Bjarnasyni var tjáð af Ragnari
Júlíussyni í desember sl. að hann
hefði haft samband við alla
stjórnarmenn fyrirtækisins og
samþykki þeirra lægi fyrir
kaupum á bílnum. Bfllinn var síð-
an keyptur og kaupin staðfest
með bókun í apríl.
Þröstur Ólafsson hefur aftur á
móti upplýst að bflakaupanna
hafi ekki verið getið í stjórninni
fyrr en í mars og kannast því ekki
við að málið hafi verið afgreitt í
desember.
Sjá bls. 2