Þjóðviljinn - 12.05.1988, Side 9
hver íbúð mánaðarlega í hússjóð
og er hann nú 7000-9300 eftir
stærð íbúða. Með hússjóðnum er
m.a. greitt fyrir allt viðhald, hita,
fasteignagjöld og öryggisvörslu
allan sólarhringinn. Ef fólk þarf á
aðstoð að halda er nóg að ýta tól-
inu af símanum og þá hringir hjá
húsverði ef ekkert númer er val-
ið.
Parí að huga
að skjóli tímanlega
- Fólk þarf að huga að því tím-
anlega að komast í skjól, því ef
heilsan fer að gefa sig er alltaf
hætta á því að fólk lendi í því að
vera ráðstafað. Við þurfum sjálf
að finna einfalda aðferð til að
leysa húsnæðismál aldraðra, en
ekki leggja það á unga fólkið. Ás-
geir talaði um að unga fólkið
þyrfti á þeim pening að halda sem
væri veitt í húsnæðislánakerfið og
reyna þyrfti að koma málum svo
fyrir að eldra fóki nægðu eigin
eignir til kaupa á þjónustuíbúð-
um.
Það væri einnig hagkvæmt fyrir
sveitarfélög ef losnaði um fbúðir í
grónum hverfum, þar sem fyrir
væri öll þjónusta. Best væri ef
byggðar væru verndaðar
þjónustuíbúðir í gömlu hverfun-
um svo að aldraðir gætu verið um
kyrrt í umhverfi, sem þeir þekktu
og liði vel í.
Ásgeir áætlaði að fólk sem væri
60 ára og eldri ætti um 70
milljarða í skuldlausum hús-
eignum. Fyrir tíunda hluta þess
fjármagns mætti byggja 2000 litl-
ar þjónustuíbúðir án þess að
þurfa að taka lán til framkvæmd-
anna og losað yrði um jafnmargar
íbúðir í gömlu hverfunum.
Nú eru yfir hundrað manns á
biðlista hjá Sunnuhlíðarsamtök-
unum, sem eru að svipast um eftir
lóð undir næstu byggingu. Þeirra
leið til lausnar á húsnæðisvanda
aldraðra virðist því hafa fallið í
góðan jarðveg, eða eins og Ás-
geir sagði: „Ef aldraðir hefðu
ekki treyst okkur fyrir sínu fé og
ekki fallið hugsjónin sem að baki
liggur, þá hefði ekki orðið neitt
úr neinu.“
-mj
Vel fer um íbúa og gesti í sameiginlegu rými á efstu hæð hússins, þar
sem njóta má útsýnis til allra átta. (Mynd: E.ÓI.)
Þetta starfer grundvallað á
hugsjón. Við erum aðvinnafyrir
venjulegtfólksvo það þurfi ekki
að vera á hnjánumfyrir neinum til
að komast á öruggan dvalarstað