Þjóðviljinn - 12.05.1988, Síða 18
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í eftir-
farandi:
1. Nesjavallaæð, pípulögn 2. áfangi. Leggja skal
800 m stálpípu yfir Mosfellsheiði. Lögnin er
alls tæpir 13,6 km, þar af eru um 0,3 km
neðanjarðar en 13,6 km ofanjarðar.
2. Nesjavallaæð, pípulögn 3. áfangi. Leggja skal
2,6 km af 900 mm pípu og 1.2 km 800 mm
pípu milli Nesjavalla og lokahúss 3, sem er
austarlega á Mosfellsheiði.
Hitaveita Reykjavíkur býður væntanlegum bjóð-
endum í skoðunarferð á vinnusvæðið fimmtu-
daginn 19. maí 1988. Lagt verður af stað frá
bækistöð Hitaveitunnar að Grensásvegi 1 kl.
13:15. Þátttaka óskast tilkynnt Hitaveitu Reykja-
víkur í síma 82400 fyrir kl. 16 miðvikudaginn 18.
maí.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3. Reykjavík gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu fyrir hvort verk fyrir sig. Tilboðin verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 31. maí kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Garðyrkjudeildar borgarverkfræðings óskar eftir
tilboðum í framkvæmdir við gerð hverfis- og
sparkvallar við Geithamra í Reykjavík, fram-
kvæmdir við gerð leiksvæðis við Sílakvísl og
Bröndu- og Bleikjukvísl í Reykjavík.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu fyrir hvert verk fyrir sig. Tilboðin verða
opnuð á skrifstofu vorri sem hér segir: Hverfis- og
sparkvöllur við Geithamra, þriðjudaginn 24. maí
kl. 14.
Leiksvæði við Sílakvísl, fimmtudaginn 26. maí kl.
11. Leiksvæði við Bröndu- og Bleikjukvísl,
fimmtudaginn 26. maí kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Við Menntaskólann vlð Hamrahlíð er laus til umsóknar ein kenn-
arastaða í: heimspeki, listfræði, sögu, trúfræði og þjóðfræði.
Við Menntaskólann vlð Sund vantar kennara í íslensklu (1/2 staða)
og stærðfræði (heil staða). Þá vantar stundakennara í eftirtöldum
greinum: íslensku, dönsku, ensku, þýsku, latínu, spænsku, sögu,
heimspeki, félagsfræði, stjórnmálafræði, jarðfræði, efnafræði,
stjörnufræði, stærðfræði, tölvufræði og íþróttum (leikfimi pilta).
Við Flensborgarskólann f Hafnarflrðl eru lausar til umsóknar
kennarastöður í íslensku, þýsku, 1/2 staða í félagsfræði og á hau-
stönn vantar kennara í hálfa stöðu í dönsku. Þá er framlengdur
umsóknarfrestur á áður auglýstum kennarastöðum í stærðfræði og
eðlisfræði annars vegar og í viðskiptagreinum (þ.e. bókfærslu og
hagfræðigreinum) hins vegar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 10. júní
nk.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viðkomandi
skóla:
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
■mÖRFRÉTTIRhi
Hljómsveitin Gildran
heldur sína fyrstu tónleika í Duus-
húsi í kvöld á uppstigningardag
og hefjast tónleikarnir kl. 22.00.
Kynnt verður efni af væntanlegri
plötu sveitarinnar en hana skipa
þeir Birgir Haraldsson söngur/
gítar, Þórhallur Árnason bassi og
Karl Tómasson trommur.
Vinnustaðurinn Örvi
í Kópavogi, sem er starfsþjálfun-
arstaður fyrir fatlaða, er nú fluttur
úr kjallarahúsnæði í Sunnuhlíð í
nýtt og rúmbetra húsnæði að
Kársnesbraut 110. I Örva vinna
25-27 öryrkjar á tvískiptum
vöktum að léttum framleiðslu-
störfum en markmiðið með
starfseminni er að veita fötluðu
fólki markvissa þjálfun til starfa á
almennum vinnumarkaði.
Austfirðingar vilja
fá aukið fjármagn út á lands-
byggðina til byggingar íbúðar-
húsnæðis í formi leiguíbúða, svo
eðlileg íbúðaþróun geti átt sér
stað í landinu.
Stefán Jón Hafstein
fréttamaður er farinn til Eþíópíu
þar sem hann mun dvelja næstu
þrjá mánuðina við störf á vegum
Rauða krossins. Stefán á að
skipuleggja og gera áætlanir um
verndun vatnsbóla, fræðslu um
heilsuvernd og gróðursetningu
trjáplantna til varnar uppblæstri,
auk þess að undirbúa komu sjálf-
boðaliða frá íslensku Rauða
krossdeildinni semfarautan íjúlí.
Lögreglan í Reykjavík
hefur dreift til allra skólabarna á
aldrinum 6-12 ára upplýsinga-
blaði varðandi árlega reiðhjóla-
skoðun. Reiðhjól verða skoðuð
síðustu vikuna í maí og verður
það nánar auglýst í skólum og
fjölmiðlum.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Fundur kjördæmisráðs
Stjórn Kjördæmisráðs Ab. boðar til fundar í Lárusarhúsi sunnudaginn 15.
maí kl. 13-18.
Á dagskrá fundarins verða m.a.: 1. a) Útgáfumál, b) Starfið framundan, c)
Önnur mál. 2. Byggðamál.
Allir félagsmenn velkomnir. Formenn og stjórnir Alþýðubandalagsfélag-
anna, sveitarstjórnarfulltrúar og annað áhugafólk um byggðamál, er sér-
staklega hvatt til að mæta.
Stjórn kjördæmlsráðs.
Alþýðubandalagið Reyðarfirði
Opinn fundur
Hjörleifur Guttormsson alþingismaöur ræðir þjóðmálin við lok Alþingis í
Verkalýðshúsinu, föstudaginn 13. maíkl. 20.30. Fyrirspurnir og umræður á
eftir. Allir velkomnir.
AB Reyðarflrðl
Seyðfirðingar
Opinn fundur
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður ræðir þjóðmálin við lok Alþingis,
sunnudaginn 15. maí kl. 16 í Herðubreið.
Fyrirspurnir og umræður á eftir. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
ísland á tímamótum
Ólafur Ragnar
Ólafur Ragnar Grímsson og Björn Grétar Sveinsson á opnum stjórnmála-
fundum á Austurlandi sem hér segir:
Egllsstaðlr:
Sunnudaginn 15. maí kl. 14 í Samkvæmispáfanum.
Eskifjörður:
Sunnudaginn 15. maí kl. 20.30 í Valhöll.
Neskaupstaður:
Mánudaginn 16. maí kl. 20.00 í Egilsbúð.
Fáskrúðsfjörður:
Þriðjudaginn 17. mí kl. 20.30 í Verkalýðsféiagshúsinu.
MNGFLOKKUR OG FRAMKVAMDASTJÓRN
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
HEIMSÓKN Á
VESTUR-
LAND
Pingflokkur og framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins efna til
heimsókna og funda á Vesturlandi föstudaginn 13. maí og
laugardaginn 14. maí. Dagskrá:
FÖSTUDAGUR 13. MAI:
kl. 10-16.30:
Vinnustaðaheimsóknir og fundir í Borgarnesi
og á Akranesi.
kl. 17-19:
Viðræðufundur með sveitarstjórnarmönnum
Alþýðubandalagsins á Vesturlandi í Röðli,
Borgarnesi.
kl. 20:
Vorfagnaður Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi í Hótel Borgarnesi.
LAUGARDAGUR 14. MAÍ:
kl. 10-15:
Sameiginlegur fundur þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins í Hótel
Borgarnesi.
Fundurinn er opinn flokksmönnum Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ