Þjóðviljinn - 31.05.1988, Qupperneq 6
FLÖAMARKAÐURINN
Hús í Árósum
leigist út á tímanum 9. júní-2. júlí.
Gott fyrir 4-5 manna fjölskyldu.
Uppl. í S. 9045-621-4904.
Nú er veður til að byggja
Til sölu grindajárn fyrir bragga ca.
6,40x15 m. Tilvalið t.d. fyrir
skemmur og gróðurhús. Upplýs. í
s. 667098.
Mjög góður bíll
SAAB-900, árgerð 1981 til sölu.
Uppl. í síma 72896.
Trabant
Vill ekki einhver góð manneskja
taka að sér T rabantinn minn, sem
ég verð því miður að selja. Hann
er 2ja ára en alveg eins og nýr,
með góðum græjum og öllu til-
heyrandi. Uppl. í s. 76191.
Til sölu 30 I fiskabúr
ásamt fiskum og kuðungum.
Uppl. í s. 22660 í kvöld og næstu
kvöld.
Grátt karlmannsreiðhjól
(DBS) með hvítu barnasæti hvarf
frá Brávallagötu 18 um helgina.
Finnandi vinsamlegast hafið
samband í síma 29338.
Myndavél fannst
við Grímshaga
Uppl. í s. 23789. Gunnlaugur.
Kettlingar fást gefins
Uppl. á kvöldin í s. 99-4581 eða
36422.
Hrísey
Til sölu íbúð á góðum stað (Hrís-
ey. Húsgögn geta fylgt. Uppl. í s.
30834.
Barnapössun
Ég er 12 ára og óska eftir að gæta
barns í sumar. Er í Seljahverfi.
Hef farið á námskeið hjá Rauða
krossinum. Uppl. í s. 72750 e.kl.
19.
Ung reglusöm stúlka
óskar eftir að taka litla íbúð á leigu
í austurbæ Kópavogs. Skilvísum
greiðslum er heitið. Uppl. í s.
45865 e.kl. 19.
Ódýrar víðiplöntur
Brúnn og grænn Alaskavíðir,
strandavíðir og viðja. Uppl. í s.
667490 og 666237. Sigga.
Gömul Rafhaeldavél
og tvöfaldur vaskur með blönd-
unartækjum til sölu. Bæði í prýð-
isstandi. Selst ódýrt. Sími
680418.
Til sölu ísskápur
baðskápur og tvöfaldur stálvask-
ur. Uppl. í s. 16328.
Vinnupláss í
hjarta borgarinnar
Þarftu næði? Ertu að vinna verk-
efni í stuttan tíma? Vinnuaðstaða
mín í miðborg Rvík. er til leigu í 5
vikur í sumar. Frá ca. 15. júní.
Uppl. í s. 22705 e.h. og 623909 á
kvöldin.
Til sölu vel með
farin ungbarnakerra
á kr. 3000. Einnig áklæði og him-
inn á vögguna á kr. 1000.
Leikföng og fatnaður á ungbarn til
sölu á vægu verði. Uppl. í s.
30704.
Karlmannsrelðhjól til sölu
Gíralaust, nýlegt. Selst ódýrt.
Sími 32984.
Barnakerra
Vil kaupa notaða barnakerru. Vel
með farna með stórum hjólum.
Uppl. í s. 15016.
Til sölu Trabant station ’87
Ekinn 10 þús. km. Uppl. í s.
12147 eftir kl. 16.
Notuð húsgögn
Svefnbekkir með rúmfata-
geymslu, sófasett o.fl. til sölu.
Sími 52504 e.kl. 18.
Óska eftir Alf
Bráðvantar Alf-þætti frá síðasta
ári. Er tilbúinn að greiða 1500 kr.
fyrir spóluna eða leigja á 500 kr.
Uppl. í s. 82432 Sindri eða
686364 Andrés.
Barnavagn
Dökkblár Emmaljunga barna-
vagn til sölu. Uppl. í s. 15841.
Lítið notað stelpnareiðhjól
Verð kr. 3.500. Einnig svartur leð-
urjakki á 11 -12 ára strák, ónotað-
ur. Verð kr. 4000. Sími 79248 á
kvöldin.
Reiðhjólaverkstæði
Til sölu gott verkstæði. Það sem
selja á er nafn, verkfæri og vara-
hlutir. Húsnæði fylgir ekki. Verð-
hugmynd 150-200 þús. kr.
Greiðslumáti mjög sveigjanlegur.
Tilvalið tækifæri fyrir 1 -3. Upplýs-
ingar í síma 621309.
Trjáúðun
Tek að mér úðun á trjám. Nota
skordýralyf sem er skaðlaust
mönnum, fuglum og gæludýrum.
Uppl.s. e. kl. 19 39706. Gunnar
Hannesson garðyrkjufræðingur.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu ibúð í
Reykjavík frá 1. júní. Uppl. i síma
623605, Anna Hildur og Gísli Þór.
Barmmerki
Tökum að okkur að gera barm-
merki meö skömmum fyrirvara.
Félagasamtök, fyrirtæki, einstak-
lingar. Einnig hönnun og prentun
ef þarf. Besta verð í bænum.
Uppl. í síma 621083 og 11048.
Til sölu
Handunnar rússneskar tehettur
og matrúskur (babúskur) í miklu
úrvali. Póstkröfuþjónusta. Uppl.
gefur Selma í síma 19239.
Selfoss - Reykjavík
húsnæðisskipti
Óskum eftir góði 4-5 herbergja íbúð
í Reykjavík í leiguskiptum fyrir stórt
og gott einbýlishús á fallegum stað
á Selfossi. Tilboð sendist auglýs-
ingadeild Þjóðviljans.
Gæludýr
Hamstrar til sölu á 50 kr. stk. Upp-
lýsingar í síma 666709 eða
666981.
Kaupið kaffið
sem berst gegn Apartheid. Tanz-
aníukaffi frá Ideele Import. Upplýs-
ingar í síma 621083.
íbúð til leigu i Parfs
frá 1. júní-1. sept. Lítil, en á besta
stað í miðborg Parísar. Verð 2500
fr. á mánuði. Frekari upplýsingar
gefur Ása í síma 30589 á kvöldin.
íbúð í Lundi í Svíþjóð
Góð 3ja herb. íbúð í notalegu um-
hverfi í Lundi er til leigu í sumar.
íbúðin leígist með nauðsynleg-
ustu húsgögnum og eldhús-
áhöldum á sænskar kr. 2000 á
mánuði. Leigutími 15. júní-
ágústloka. Upplýsingar veitir Þyrí
í síma 666623, helst á kvöldin.
Tölva til sölu
Til sölu er Amstrad BCW 8256 rit-
vinnslutölva. Hagstætt verð.
Uppl.s. 612317.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
skólaskrifstofu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í
gerð hitakerfis í Hagaskóla í Reykjavík.
Verkið felst í því að leggja nýjar hitalagnir sem eru
ofnakerfi og aftengja geislahitun sem fyrir er í
húsinu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
fimmtudaginn 9. júní kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
_________MINNING_____
Guðmundur Davíðsson
Fæddur 29. 5. 1900 - Dáinn 18. 5. 1988
Þann 18. þessa mánaðar lést að
Elliheimilinu Grund gamall vinur
okkar, Guðmundur Davíðsson.
Hann fæddist á Hvammstanga,
næst elstur sex systkina og ólst
þar upp til fermingaraldurs í alda-
mótabasli jarðnæðislausa
smælingjans. Þá strax sendur að
heiman til þess að vinna fyrir sér,
eins og títt var í þá daga, þótt
pasturslítill væri. Minntist hann
oft þeirra ára með hryllingi. Um
tvftugt er hann þó kominn í brú-
arsmíði, þar sem hann þótti
laginn með hamar og sög og far-
inn að öngla saman nægu fé til
þess að geta látið einhverja
drauma rætast. Þá var draumur-
inn ekki sá að eignast upptjúnað
jeppatröll heldur sæmilegan fola,
sem gera mætti úr liðugan
reiðhest með natni og þolinmæði.
Helst að geta, eins og sagt er nú á
dögum, spyrnt á móti hvaða gaur
sem væri.
Systkini hans urðu líka
snemma að hjálpa sér eins og best
varð á kosið og líklega hefur síld-
in dregið þau til Siglufjarðar. 26
ára er hann kominn þar til systur
sinnar sem giftist þangað. Tvær
aðrar systur og móðir hans settust
einnig að á Siglufirði og hélt Guð-
mundur árum saman hús með
móður sinni, sem þá var slitin
orðin. Þarna á Siglufirði gekk
hann að þeirri vinnu sem gafst og
fann í öðrum daglaunamönnum
þá félaga og í samtökum þeirra
þann styrk sem hann leitaði.
Hann gekk svo heilshugar til liðs
við þá að honum varð aldrei það-
an hnikað.
Um mitt stríðið selur hann hús,
sem hann hafði komið sér upp og
flytur til Reykjavíkur. Gengur í
Dagsbrún og upp frá því er það
hans félag. Þegar ég kynnist
Guðmundi um miðjan sjötta ár-
atuginn er hann löngu fullhertur
verkalýðssinni, Dagsbrúnarmað-
ur f gegnum þunnt og þykkt. Þótt
ekki værum við alltaf sammála,
þá var ekki hægt annað en virða
hann fyrir það hve trúr hann var
sínum sjónarmiðum.
Guðmundur var alla tíð ein-
hleypur og átti sj álfur engin börn,
en var með afbrigðum umhyggju-
samur við börn ættingjanna,
hvern ættlið fram af öðrum, alveg
fram á dauðastund. Hann var líka
hreinskiptinn og heiðarlegur
fram í fingurgóma. Mátulega
sérlundaður og gat oft verið
meinfyndinn. Þessi skemmtilega
blanda gerði Guðmund afa að
aufúsugesti á þau heimili sem
hann umgekkst. Með þessum fá-
tæklegu orðum þökkum við langa
og trygga samfylgd. Blessuð veri
minning hans.
Þorsteinn Egilsson og fjölskylda
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi mannsn
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framlíðarlands.
(Halldór Kiljan Laxness)
Undir maísól hóf frændi okkar
Guðmundur Davíðsson lífsgöngu
sína og er sól hneig af himni þann
18. maí sl. lagði hann upp í sína
hinstu för og hefur því kvatt okk-
ur að sinni. Honum var ekki
drjúgt skammtað af veraldlegum
gæðum í lífinu en því ríkulegar af
trygglyndi og heiðarleika. Á
yngri árum var hann virkur þátt-
takandi í þeirri hörðu stéttarbar-
áttu, sem háð var um allt land og
undir þeim fána stóð hann stað-
fastur alla tíð.
Guðmundur kvæntist ekki né
eignaðist börn, en barngóður var
hann og erum við ófá sem alla tíð
höfum kallað hann afa.
SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Síðustu æviárin dvaldist hann á
Elliheimilinu Grund og margar
urðu heimsóknir okkar til hans
þangað. Hann fylgdist ætíð vel
með mönnum og málefnum líð-
andi stundar og gat oft kryddað
tilveruna með meinfyndnum at-
hugasemdum eða frásögnum. f
þessum heimsóknum kom alúð
hans í garð barnanna vel í ljós og
sjaldan fóru þau tómhent af fund-
um við Guðmund afa. Fyrir þá
sem alast upp í þjóðfélagi þar sem
veraldleg gæði eru höfð í háveg-
um og lítill tími gefst til
mannræktar, ætti minningin um
aldamótabarnið sem trúði á
handabandið að vera þroskandi
veganesti.
Þetta eru fátækleg minningar-
orð sem hér eru rituð og lýsa litlu
því sem á langri ævi hefur gengið.
Héðan hvarf hann þrotinn að
kröftum. Hvíldin var honum því
kærkomin orðin að loknum
löngum og ströngum degi. Að
leiðarlokum viljum við mæðgur
þakka honum samfylgdina.
Blessuð sé minning hans.
Helga Þorsteinsdóttir
Perla Ósp Ásgeirsdóttir
Auglýsing frá
landbúnaðarráðuneytinu
til þeirra aðila sem hyggja á sauðfjárslátrun á
komandi hausti, svo og annarra sláturleyfishafa.
Samkvæmt lögum nr. 30/1966 skal hver sá aðili,
sem slátrar sauðfé, eða öðrum fénaði hafa til
þess tilskilin leyfi og fullnægja ákveðnum kröfum
varðandi meðferð, skoðun og mat á sláturafurð-
um.
Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi
nú í vor, getur ráðherra „þar sem brýn nauðsyn
krefur, tímabundið leyft slátrun í sláturhúsum
sem ekki eru svo úr garði gerð að löggilding geti
farið fram á þeim, ef yfirdýralæknir eða hlutað-
eigandi héraðsdýralæknir telja að slátrun og
meðferð sláturafurða qeti tekist þar á viðunandi
hátt.“
Með vísan til þessa hefur landbúnaðarráðuneytið
ákveðið að þeir er hyggja á slátrun á komandi
hausti, þurfi að hafa sótt um sláturleyfi til land-
búnaðarráðuneytisins fyrir 15. júní 1988.
Yfirdýralæknir og hlutaðeigandi héraðsdýra-
læknar munu í framhaldi af því veita nauðsyn-
legar umsagnir til landbúnaðarráðuneytisins.
Ráðuneytið mun á grundvelli þeirra umsagna
ákveða hvort leyfi til slátrunar hjá einstökum aðil-
um verður veitt.
Landbúnaðarráðuneytið, 30. maí 1988
| INNRITUN
Ií FRAMHALDSSKÓLA
í REYKJAVÍK
Tekið verður á móti umsóknum um námsvist í
framhaldsskóla í Reykjavík dagana 1. og 2. júní
næstkomandi í Miðbæjarskólanum í Reykja-
vík, Fríkirkjuvegi 1, kl. 9.00-18.00 báða dagana.
Umsókn skal fylgja Ijósrit eða staðfest afrit af
prófskírteini.
I Miðbæjarskólanum verða jafnframt veittar upp-
lýsingar um þá framhaldsskóla, sem sækja á um
þar, en þeir eru:
Ármúlaskóli
Fjölbrautaskólinn í Breiðhoiti
Iðnskólinn í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Sund
Réttarholtsskóli (fornám)
Verslunarskóli (slands
Þeir sem ætla að sækja um námsvist í ofan-
greinda framhaldsskóla eru því hvattir til að
leggja inn umsókn sína í Miðbæjarskólann 1. og
2. júní næstkomandi.