Þjóðviljinn - 31.05.1988, Síða 10
Kafbát
útí
hólma!
Áður en gengið var að því að
hrinda tillögu parsins sem innan
skamms allir elska að sjálfsögðu
og rissuðu upp teikningar af
grísku baðhúsi á bakka Tjarnar-
innar var víst heila-vindkviðu-
fundur meðal ástsælla íhalds-
manna í einhverri ónefndri stjórn
og er það haft fyrir satt að einhver
Davíð, ástsæll leiðtogi ónefnds
stuttbuxnagengis, hafi lagt til að
hafa eitthvert ráðhús úti í hólma.
Útímiðri tjörn!
Þetta hljóta náttúrlega að vera
fullkomlegaósannarsögur. Eða
hvað? Sagði þessi Davíð kannski
allt þetta og meira til?
„Krakkar! Mér lángar að
smíða hús údí tjöddn," hefur
hann kannski sagt. „Mér lángar
að það sé eins og kafbádur og fari
oní kaf á daginn, en á kvöldin
þegar jakkafödin eru búin að
svitna oní öllu ógeðinu þá kemur
ða uppúrogfödin fara íbádum,
eða kannsk'ettir færiböndum
uppá bakka. Það lángar mér!“
Áuðvitað hafa hinar stuttbux-
urnar hrópað upp yfir sig af ein-
skærri gleði og í einlægri aðdáun
ásínum ástsælasta leiðtoga.
Hrópað og kallað fagnaðarorð
um þann sem öllu ræður og allt
getur.
„Svo lángar mér að á nóttinni
sé það, kafbádurinn sko, uppí
Hallgrímskirkju. Það á að vera
inní kirkjunni ánóttinni og sofa,
sona eins og ég sef heima í rúmi
með bangsa og allt og hugsa um
gvuð. Svo þegar það vaknar á
mornana þá fer það og flýgur yfir
borgina mína og sækir jakkafödin
til að fara með þau oní leðjuna á
daginn. Það lángarmér!“
„Það á ekkert að vera að tru-
bbla jakkafödin mín á daginn svo
mér finnst það eiga að vera göng
og alt oní jörðina til að það sé
hægt að fara inní kafbádinn
minn, heyriðið það, kafbádinn
minn!, á kverjum degi með blöð
og eitthvað soleiðis til að j akkaf-
ödin geti sgrivað á. Þau eiga að
sgriva og sgriva bara fyrir mig,
migeinan!“
„So þegar ég fer að veiða þá
lángar mér að fara á kafbádnum
mínum údí sjóinn og sjá alla fisk-
ana og laxana og fuglana og
skipin og fjöllin og karmeluddnar
og fílana og og og.... “
En hvort nokkuð er til í að ná-
kvæmlega þetta hafi gerst getum
við auðvitað aldrei vitað...
-tt
ídag er
31. maí, þriðjudagur í sjöttu viku
sumars, ellefti dagur skerplu,
152. dagur ársins. Sól kemur upp
í Reykjavík kl. 3.24 og sest kl.
23.29. Fullttungl.
Viöburöir
Alþjóða barnadagurinn.
Þjóöviljinn
fyrir 50 árum
Skeiðarárhlaupið verður kortlagt
eftir Ijósmyndum er Pálmi og
Steinþórtóku. Óvíst hvort dr. Ni-
els Nielsen kemur- Jóh. Áskels-
son kominn austur á Vatnajökul.
- Flokksskrifstofan erá Lauga-
veg 10, opin alla virka daga frá
5-7 e.h. Félagar, munið að
greiða flokksgjöld ykkar skilvís-
lega. - Gamla bíó: Orustan um
Port Arthur. Stórkostleg og afár-
spennandi kvikmynd um orust-
urnar um Port Arthur-vígiö í ó-
friðnum milli Rússaog Japana
árin 1904-05. Aðalhlutverkin
leika: Adolf Wohlbruck og Karin
Hardt. Börn fá ekki aðgang.
UM ÚTVARP & SJONVARP
l
Dramaten í
Glugganum
Rás 1. kl. 19.35
Þegar fréttum er lokið á Rás
eitt klukkan hálf átta hefst þáttur
Þorgeirs Ólafssonar Glugginn. í
þættinum ætlar Þorgeir að ræða
við Steinunni Jóhannesdóttur um
þjóðleikhúsa Svía Dramaten. En
það er eitt fára þjóðleikhús sem
getur státað af næri 100% sæta-
nýtingu undanfarin ár. Steinunn
Jóhannesdóttir er leikkona og rit-
höfundur en hún hefur verið bú-
sett í Stokkhólmi um nokkra ára
skeið.
Einnig ætlar Þorgeir að fjalla
um norrænu leiklistarhátíðina
sem haldin var í síðustu viku í
Helsinki.
Þorgeir Ólafsson dagskrárgerðar-
maður á Rás 1 brá sér til Finnlands
og var viðstaddur Norrænu leiklistar-
hátíðina sem haldinn var í síðustu
viku. Við munum heyra um hana hjá
Þorgeiri.
Steinunn Jóhannesdóttir leikkona
seqir frá sænska þjóðleikhúsinu Dra-
maten.
Þrjár konur á fæðingardeild
Rás 1 kl. 22.20
í kvöld verður flutt á rás 1
leikritið Þrjár konur eftir bresku
skáldkonuna Sylvíu Plath. Þýð-
inguna gerði Hallberg Hall-
mundsson en leikstjóri er Árni
Blandon.
Áður en leikritið hefst flytur
Árni Blandon formálsorð þar
sem rakin er ævi skáldkonunnar
og lesin verða nokkur ljóð eftir
hana í þýðingu Hallbergs Hall-
mundssonar.
Leikritið segir frá þremur kon-
um sem liggja á fæðingardeild og
bíða þess sem koma skal. Verkið
lýsir á ljóðrænan hátt tilfinning-
um þeirra gagnvart umhverfinu
og því sem er að gerast í lífi
þeirra. Konurnar þrjár leika þær
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Guðrún Gísladóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir. Tæknimaður
er Friðrik Stefánsson.
Leikritið var áður á dagskrá
rásar 1 24. október síðastliðinn.
Rif úr
manns-
ins síðu
Sjónvarpið kl.21.30
Sænskur þáttur sem fjallar um
tvíkynja eðli mannsins. Leitast er
við að sjá hvernig þetta endur-
speglast í listsköpun manna fyrr
og síðar. Rætt verður við
heimspeking og grafiklistamann
og flutt verður brot úr leikriti frá
18. öld þar sem aðalpersónan
hefur tvíkynja tilhneigingu.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 31. mai 1988