Þjóðviljinn - 02.06.1988, Page 13
Suður-Afríka
Klofningur á kirkjuþingi
Trúarleiðtogar landsins ósammála um næstu
skrefí baráttunni gegn misréttinu
erferð stjórnvalda í Suður-
Afríku á hendur trúfélaga í
landinu hefur borið árangur. Á
tvö hundruð manna þingi krist-
inna manna, múslima, hindúa og
gyðinga kom fram klofningur í af-
stöðunni til þess hvaða aðgerða
trúfélögin gripu nú til í baráttu
sinni gegn aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda.
Foringi afríska kirkjuráðsins,
Frank Chikane, mælti fyrir til-
lögu þess eðlis að beitt yrði ár-
angursríkum aðferðum án of-
beldis. Hann hvatti m.a. trúar-
leiðtogana til þess að taka þátt í
og skipuleggja kröftugt andóf og
óhlýðni við yfirvöld. „Spurningin
er ekki hvort við gerum eitthvað
heldur hvað við gerum og hvenær
við látum til skarar skríða,“ sagði
Chikane.
Tillaga hans var ekki samþykkt
á þinginu og látið var nægja að
setja málið í nefnd sem ákveða
skyldi næstu skref í andófinu. Þó
var samþykkt að styðja við ver-
kfallsaðgerðir í næstu viku til að
mótmæla ströngum lögum um
verkalýðsfélög sem eru í undir-
búningi hjá stjórnvöldum.
Séra Ed Cain, foringi hinnar
íhaldssömu kirkjuhreyfingar
kristinna manna í Suður-Afríku,
sem í eru um fjórar miljónir
manna (svartra og hvítra), Iagði
áherslu á að hlutverk trúarforing-
ja og presta væri miklu frekar að
prédika nánungakærleik, ást og
þolinmæði.
Erkibiskupinn, Desmond
Tutu, var óánægður með gang
mála á þinginu og fannst sam-
þykkt þess ganga alltof skammt í
baráttunni gegn kynþáttamisrétt-
inu í landinu.
Reuter/-gsv.
ERLENDAR FRETTIR
Leiðtogafundur
Arangurslítill fundur
Míkhael Gorbatsjov óánœgður með framgöngu Reagans íMoskvu
Að loknum ieiðtogafundinum í
Moskvu er Ijóst, að það gekk
eftir sem fyrir fram hafði verið
spáð að árangur yrði lítill af við-
ræðum þeirra Ronalds Reagans
og Míkhaels Gorbatsjovs.
Hápunktur fundarins var þeg-
ar leiðtogarnir skiptust á rauðum
leðurklæddum bókum sem inni-
héldu samþykkta samninga og
staðfesta af þingum beggja land-
anna, um fækkun meðaldrægra
kjarnorkuvopna. Samningur
þessi er sá fyrsti sinnar tegundar
sem risaveldin hafa gert sín á
milli. Að því leyti var hér um
sögulegan atburð að ræða.
Við þetta tækifæri sögðu for-
ingjarnir eitthvað á þá leið að
þetta væru sögulegir tímar og að
tímabil kjarnorkuafvopnunar
væri hafið í heiminum. Augljóst
var þó að Gorbatsjov var ekki
ánægður með árangur fundarins
og á tveggja tíma fréttamanna-
fundi, þeim fyrsta sem Sovétleið-
togi heldur í sínu heimalandi,
kom viðhorf hans berlega ljós.
„Ég held að við hefðum getað
gert miklu betur og í raun glötuð-
um við kærkomnu tækifæri til að
stíga mikilvæg skref í átt til sið-
menntaðra samskipta. En þrátt
fyrir allt viljum við viðhalda friði,
ekki satt?“ sagði hinn 57 ára
gamli Kremlarforingi hálf
gremjulega á þessum fundi.
Reagan lagði hins vegar
áherslu á, að það væri mikilvægt
að rasa ekki um ráð fram og að
skrefin til afvopnunar yrði að
taka af yfirlögðu ráði. Hann
hafnaði m.a. orðalagi sem Sovét-
menn lögðu til í lokaályktun
fundarins þar sem sagði á þá leið,
að stórveldin byggðu tilvist sína á
friðsamlegum samskiptum þjóða
í millum.
Reuter/-gsv.
Sovétríkin
Jeltsín þrætir
Segistekki hafa rœttum brotthvarf Lígatsjovs við breskafréttamenn.
Gorbatsjov segir alrangt að Lígatsjov sé á förum úrforystusveit
kommúnistaflokksins
Við hefðum getað gert miklu betur.
Kína
Boris Jeltsín segir af og frá að
hann hafi rætt við fréttamenn
BBC um nauðsyn þess að Jegor
Lígatsjov yrði rekinn út úr Kreml
fyrir fullt og allt.
Jeltsín kom í gær að máli við
bandaríska fréttamenn og þver-
tók fyrir að hafa látið sér þetta
um munn fara. Ekki kvaðst hann
heldur hafa kvartað undan fram-
komu Gorbatsjovs aðalritara í
sinn garð.
Hvað um það, Gorbatsjov
segir af og frá að Lígatsjov næst-
ráðandi sinn sé á förum. Hann
greindi frá þessu á blaðamanna-
fundi í gær, þeim fyrsta sem sov-
éskur leiðtogi heldur á heima-
slóðum. Gorbatsjov gerði því
ennfremur skóna að Jeltsín, sem
er fyrrum oddviti kommúnista í
höfuðborginni, hefði brennt allar
brýr að baki sér og kynni að
hverfa úr miðstjórn flokksins von
bráðar.
Einsog menn rekur minni til
höfðu fréttamenn BBC uppá
Jeltsín á dögunum og röktu úr
honum garnirnar. Bretarnir eru
vitaskuld staddir í Moskvu til
þess að fylgjast með viðræðum
Reagans og Gorbatsjovs en þar
eð ekki bólaði á neinum undrum
og stórmerkjum á fundi leiðtog-
anna hóuðu þeir í Jeltsín sem hef-
ur orð á sér fyrir að vera óvenju
hreinskilinn og opinskár af sov-
éskum fyrirmanni að vera.
Sögðu þeir hann hafa sagt að
best færi á því að Lígatsjov yrði
sviptur völdum því hann væri
þrándur í götu nýmæla. Enn-
fremur á hann að hafa viðurkennt
að framkoma Gorbatsjovs í máli
sínu hefði komið sér í opna
skjöldu, hann hefði búist við því
að aðalritarinn liðsinnti sér í
átökunum við íhaldssama
flokksfélaga í nóvembermánuði í
fyrra.
Gorbatsjov sagði í gær að hann
hefði enn ekki lesið viðtalið en
eftir því sem hann kæmist næst
bæri Jeltsín þar fram alvarlegar
ásakanir á hendur ýmsum valin-
kunnum sómamönnum. Sér
fyndist því eðlilegt að hann yrði
látinn standa fyrir máli sínu á
næsta fundi miðstjórnarinnar.
„Við hljótum að fara þess á leit
við félaga Jeltsín að hann skýri
sín sjónarmið og greini frá því
hreinskilnislega hvað hann er að
fara með þessu. Hvað varðar fé-
laga Lígatsjov þá fer því fjarri að
hann sé að fara á eftirlaun. Þetta
er allt úr lausu lofti gripið."
Reuter/-ks.
Frekari þrengingar
Stjórn flokksins: Engin önnur leið út úr
efnahagsvanda en að flýtafyrir umskiptunum
Framkvæmdastjórn kínverska
kommúnistaflokksins segir
nauðsynlegt að flýta fyrir efna-
hagslegum umskiptum eins og
hægt er, þrátt fyrir mikla
óánægju almennings með hækk-
að vöruvcrð.
Afnám verðstöðvunar á mat-
vælum í maímánuði leiddi til allt
að 60% hækkunar. Þessi um-
skipti hafa valdið hamstri á
vörum í þéttbýli. íbúar þar segj-
ast nú fátækari en áður þrátt fyrir
ýmsa „félagsmálapakka“ sem
fylgja áttu þessum breytingum.
Verð á hráefnum hefur haldist
stöðugt í um þrjátíu ár en hækk-
aði nú nýlega og veldur nú verri
afkomu í ríkisreknum iðnaði t.d.
í Shanghai. Valdhafar í Kína
halda því fram að þessar miklu
verðhækkanir hafi verið
nauðsynlegar til að örva fram-
leiðendur og koma miðstýrðu
efnahagslífi landsins til hjálpar.
Framkvæmdastjórn flokksins
telur að laun hækki í kjölfar þess-
ara efnahagslegu umskipta. Af-
köst og gæði framleiðslunnar
verði meiri í kínverskum iðnaði.
-Reuter/-gsv
Frakkland
Kommúnistar á ystu nöf
Kommúnistaflokkur Frakklands var höfuðvígi vinstri mannafyrir réttum áratug. Nú getur aðeins náð og miskunn
sósíalista tryggt honum þingsœti
Kommúnistaflokkur Frakk-
lands er ekki orðinn nema
svipur hjá sjón líti menn um öxl
og beri hann saman við fornan
alnafna sinn. Sú var tíð að fimmti
hver Frakki greiddi kommúnist-
um atkvæði í kosningum. Hat-
rammur ágreiningur milli félaga
og uppgangur sósíalista undir for-
ystu Francois Mitterrands hafa
smátt og smátt saxað á limina. Nú
er svo komið að fylgiskannanir
spá ragnarökum flokksins í
þingkjörinu sem fyrir dyrum
stendur í Frakklandi.
í þinghúsinu franska eru 577
stólar undir jafnmarga þing-
menn. Nú hafa kommúnistar rétt
til setu í 35. Svo kann að fara að
eftir kosningar fækki þeim niður í
3. Aðeinseitt kann að koma þeim
til bjargar. Að sósíalistar sjái sér
hag í því að láta nokkra fram-
bjóðendur sína víkja fyrir komm-
Hér á árum áður var Marchais
oddviti voldugri fylkingaren
Mitterrand. Nú hefur forsetinn
ráð kommúnista í hendi sér.
únistum í síðari umferð kosning-
anna.
Kommúnistaflokkur Frakk-
lands þykir nauðalíkur þeim
kommúnistaflokki sovéskum
sem leið undir lok við valdatöku
Gorbatsjovs árið 1985. Allt
hnignunarskeiðið hefur flokkur-
inn lotið forystu Georges Marc-
hais, ráðríks stalínista sem ekki
hefur hikað við að reka „óþæg
börn“ og aðra andófsmenn úr
flokknum.
Marchais er þingmaður en svo
kann að fara að hann tapi sæti
sínu. íbúar hverfis nokkurs í
austurhluta Parísar hafa um langt
árabil kjörið hann á löggjafar-
samkunduna en eru mjög á báð-
um áttum nú.
Marchais kom fram í sjónvarpi
í fyrrakvöld. Fréttamenn inntu
hann eftir orsökum uppdráttar-
sýki flokks síns. Hann kvað sam-
starfið við sósíalista í ríkisstjórn
árin 1981-1984 hafa skipt
sköpum. „Um aldarfjórðungs
skeið var það stefna flokksins að
starfa náið með sósíalistum en í
stjórnarsamstarfinu kom í ljós að
það hafði verið glappaskot."
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Mitterrand lokkaði
Marchais og féiaga í kænlega
gildru eftir sigur sinn á Giscard
d‘Estaing. Bauð hann þeim sæti í
ríkisstjórn þótt sósíalistar hefðu
meirihluta á þingi. Hann neyddi
þá til þess að axla ábyrgð. Þeir
hafa ekki borið sitt barr eftir það.
Franskir fréttaskýrendur segja
Mitterrand ekki áfram um að
kommúnistar hverfi af þingi.
Kunni hann því að fara þess á leit
við ýmsa sigurstranglega fram-
bjóðendur Sósíalistaflokksins að
þeir víki fyrir frambjóðendum
Kommúnistaflokksins og tryggi
honum á að giska 10 sæti á lög-
gj afarsamkundunni.
Þetta stafi ekki af hlýhug for-
seta í garð Marchais og félaga
heldur því að kommúnistar hafa
víða sterka stöðu í verkalýðsfé-
lögum og bæja- og sveitastjórn-
um. Það þjóni hagsmunum ráða-
manna að hafa þá á sínu bandi.
Reuter/-ks.
Fimmtudagur 2. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 13