Þjóðviljinn - 03.06.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 3. júní 1988 124. tölublað 53. örgangur
Sjá síðu 3
Flóttamenn
Verðjöfnunarsjóður
Ekki allt
sem
sýnist
Hagsmunaaðilar bíða
eftirgulli
Verðjöfnunarsjóðs.
Stofnun
Sveiflujöfnunarsjóðs
mœtir skilningi
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
sem eiga innistæður í Verðjöfn-
unarsjóði fiskiðnaðarins bíða
þessa dagana spenntir eftir því
hvort farið verður að tillögum
nefndar sem leggur til að greiðsla
úr honum fari fram innan næstu
24 mánaði og hann lagður niður.
Verði td. rækjuverksmiðjum
borguð út sín inneign vegur hún
upp á móti öllu tapi síðasta árs
sem var á milli 400-500 miljónir
króna.
Tillagan um stofnun Sveiflu-
jöfnunarsjóðs í staðinn fyrir
Verðjöfnunarsjóðinn mætir
skilningi en hins vegar vefst það
fyrir mönnum að óbreyttu, hvort
fyrirtæki í sjávarútvegi geti að
einhverju marki lagt fé til hliðar;
staðan í dag bjóði einfaldlega
ekki upp á það.
Alverið
Þöglu mótmælin virka
Samningar undirritaðir íálverinu ígœr. Farið íkringum bráðabirgðalögin. Varist
allrafrétta. SigurðurT. Sigurðsson, Hlíf: íanda bráðabirgðalaganna
Þögul mótmæli starfsmanna ál-
versins í Straumsvík virðast hafa
borið árangur og neytt atvinnu-
rekandann að samningaborðinu.
En í gærkvöldi var undirritað
samkomulag milli samninga-
nefndar starfsmanna og atvinnu-
rekanda. Hlutaðeigandi vörðust
allra frétta af efnisinnihaldi
samningsins, sem verður borinn
upp í dag í þeim 10 verkalýðsfé-
lögum sem hlut eiga að máli.
Eftir því sem komist varð næst í
gærkvöldi, er að nokkru farið í
kringum bráðabirgðalögin og
meiri kjarabótum, en þeim sem
lögin gera ráð fyrir, komið í kring
með tilfæringum á starfsaldurs-
mati og röðun í launaflokka.
Einn viðmælenda blaðsins
benti á að ísal hefði ekki átt nema
um tvennt að velja, annað hvort
að draga úr framleiðslunni um
fjórðung, þar sem starfsmenn
ginu lítt við allri yfirvinnu sem í
boði væri, eða að ganga til samn-
inga.
Að sögn Sigurðar T. Sigurðs-
sonar, formanns verkamannafé-
lagsins Hlífar í Hafnarfirði, er
samningurinn lítið frábrugðinn
þeim samningi sem lá fyrir undir-
ritaður af atvinnurekendum, er
bráðabirgðalögin gengu í garð á
dögunum. Að öðru leyti vildi Sig-
urður ekki tjá sig frekar um
samkomulagið.
í r.ama streng tók einn tals-
manna ísal í gær. - Það er ekkert
ólöglegt í samkomulaginu. Við
vorum búnir að leggja fram til-
boð sem var bindandi af okkar
hálfu. Meira segi ég ekki.
í viðtölum blaðsins við tals-
menn hinna ýmsu starfshópa sem
eiga ósamið, kemur fram að þeir
verði varir við mikinn óróa hjá
sínum félögum og einstaka hópar
hafa neitað þeirri yfirvinnu sem
er í boði.
Sjá síðu 2 og 3
20 Víetnamar
til landsins
Þrýst á íslendinga að
taka á mótifleiri
flóttamönnum
i.'-v | n
Seint á síðasta ári heimilaði Al-
þingi 20 skyldmennum íslensku
Víetnamanna að flytja til íslands.
Fólkið kemst hins vegar ekki frá
Víetnam vegna stríðs við skrif-
finna í Hanoi. Björn Friðfinnsson
aðstoðarmaður dómsmálaráð-
herra segir mikið af flóttafólki
búa við hræðilegar aðstæður í
flóttamannabúðum í Malasíu og
Hong Kong. Flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóðanna hefur
þrýst á ísland að taka við fleiri
flóttamönnum
Björn taldi vel koma til greina
að taka við fleiri Víetnömum og
umræður hefðu átt sér stað hér í
þeim efnum. Dómsmálaráðherra
sagði á norrænu þingi að
stjórnvöld vildu frekar taka á
móti fólki sem þau þekktu heldur
en að dreifa því á margar þjóðir-
það væri dýrara og fyrirferðar-
meira. Björn segir dýrt að byggja
upp aðstöðu til að taka á móti
fólki frá mörgum þjóðum. „Við
erum hins vegar orðnir sérfræð-
ingar í Víetnömum ef ég má orða
það svo,“ sagði Björn.
Að sögn Björns hafa íslensk
stjórnvöld og Rauði krossinn gert
allt sem hægt er til að hjálpa 20
manna hópnum í Víetnam að
koma til íslands.
-hmp
Starfsmönnum álversins hefur í yfirstandandi kjaradeilu verið meinað aðræðaviðfjölmiðlameðanávinnustendur. Banninu verðurvæntan-
lega aflétt eftir samkomulag um kaup og kjör. Mynd E.ÓI.
Herinn
Ónæði af hermönnum
Útivistarreglur brotnar
Lögreglan í Keflavík hefur í
vaxandi mæli þurft að hafa af-
skipti af bandarískum her-
mönnum vegna kærumála og
brota á þeim reglum sem um þá
gilda. Nýjasta málið er kæra á
hendur tveimur hermönnum sem
höfðu samfarir við stúlku undir
lögaldri. Kæran barst í gegnum
barnaverndarnefnd.
Rannsókn málsins er lokið hjá
lögreglunni í Keflavík og hafa
mennirnir verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald. Þórir Maronsson
yfirlögregluþjónn í Keflavík segir
að málið sé nú í höndum lög-
reglustjórans á Keflavíkurflug-
velli.
Þórir sagði að sér fyndist um-
ferð hermanna um Keflavfk hafa
færst í aukana. Lögreglan þyrfti í
vaxandi mæli að hafa afskipti af
hermönnum sem brytu lög og
væru kærðir vegna hinna ólíkustu
mála. Oftast er um að ræða brot á
þeim reglum sem gilda um heim-
ildir hermanna til veru utan girð-
ingar.
Brot hermanna hafa þó verið
mun alvarlegri en þessi. Skemmst
er að minnast þegar tveir vopnað-
ir hermenn voru stöðvaðir á ferð
um Keflavík. Þá hafa hermenn
beint byssur að fólki sem hefur
verið á ferð nálægt Vellinum.
Þórir sagði kæruna vegna kyn-
makanna við ungu stúlkuna ekki
vera nauðgunarkæru. Stúlkan
væri hins vegar ekki nema 13 ára
og því undir lögaldri. -hmp
Vor í franskri pólitík?
Eftir endurkjör Mitterrands París um nýjar og gamlar víddir í
Frakklandsforseta á dögunum stjórnmálum Frakka.
eru ýmsar blikur á lofti í franskri
pólitík. ~ "
Einar Már Jónsson skrifar frá Sjá síðu 8-9