Þjóðviljinn - 03.06.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR
Unnið að því að gera einn hvaibátanna sjókláran fyrir komandi hvalveiðivertíð. Mynd E.ÓI.
Hvalveiðar
Hvalvertíð frestað?
10þjóðir leggja til bann við vísindaveiðum.
Sjávarútvegsráðherra ósáttur. Atkvœðagreiðsla í dag
Islensku fulitrúarnir á ársfundi
alþjóða hvalveiðiráðsins, sem
haldinn er á Nýja-Sjálandi,
reyndu að telja fulltrúum 10
þjóða hughvarf og fá þær til að
milda orðalag i tillögum sem þær
hafa lagt fyrir fundinn um bann
við hvalveiðum í vísindaskyni. I
gær var talið líklegt að gengið
yrði til atkvæða um tillögurnar í
dag, en þá lýkur ársfundinum.
Aðspurður sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra í
gær, að tilögurnar væru óað-
gengilegar fyrir íslendinga og því
reyndu menn að fá orðalagið
mildað. í samtali við Ríkisút-
varpið í gær, sagði Halldór að
hugsanlegt væri að upphafi hval-
vertíðarinnar hér yrði frestað um
einhvern tíma. - Éf til þess kem-
ur, verður það aðeins í mjög
skamman tíma.
Starfsmenn Hvals hf. eru um
þessar mundir í óðaönn að gera
hvalbátana sjóklára, en ráðgert
er að þeir haldi á miðin um miðj-
an mánuðinn.
-rk
Sjómannadagurinn
Fimmtugur
um helgina
Hátíðardagskrá ísjávarplássum um
land allt. Þriggja daga dagskrá í
Reykjavík
Nú um helgina verður sjó-
mannadagurinn haldinn há-
tíðlegur í fímmtugasta sinn og
setja þessi merku tímamót víða
svip á hátíðarhöldin. Þann 6. júní
1938 var lagður grunnur að sjóm-
annadeginum með hátíðarhöld-
um í Reykjavík og á ísafirði.
í Reykjavík verður 3ja daga
dagskrá. Meðal dagskrárliða má
nefna að skútur sigla í dag um ytri
höfnina, en þær verða almenn-
ingi til sýnis um helgina. í kvöld
er síðan hátíðardagskrá í Laugar-
ásbíói. Á laugardaginn verður
kappróður og björgunarsýning í
höfninni. Á sunnudag hefst dag-
skrá kl. 9 með því að vígður verð-
ur nýr minnisvarði um óþekkta
sjómanninn í Fossvogskirkju-
garði.
Athygli hefur vakið að Brynj-
ólfur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Granda flytur ávarp á sjó-
mannadaginn. Áð sögn Garðars
Þorsteinssonar, framkvæmda-
stjóra sjómannadagsins er hefð
fyrir því að LÍÚ tilnefni einn
ræðumann og í ár varð Brynjólfur
fyrir valinu, en auk hans talar
utanríkisráðherra og Pétur Sig-
urðsson formaður stjórnar sjó-
mannadagsins.
Á ísafirði verður hátíðardag-
skrá á laugardag og sunnudag og
verður hálfrar aldar afmælisins
sérstaklega minnst, með opnun
sjóminjadeildar Byggðasafns
Vestfjarða í Turnhúsinu í
Neðstakaupstað. Athöfnin í
Turnhúsinu hefst kl. 17 á laugar-
daginn og verða þar flutt ávörp
og karlakórinn Ernir tekur lagið
fyrir gesti.
Undanfarin ár hefur undirbún-
ingur sjómannadagshátíðahalda
á Siglufirði verið í höndum björg-
unarsveitarinnar Stráka. Sigurð-
ur Rfkharð Stefánsson, formaður
sveitarinnar, sagði að í ár setti
það svip sinn á daginn að vígt
verður veglegt minnismerki um
drukknaða sjómenn. Minnis-
varðann gerði Ragnar Kjartans-
son og sýnir öldu hefja upp
gúmmíbjörgunarbát, sem í eru 3
þrekaðir sjómenn. Einnig verður
nýjum 27 feta björgunarbáti gef-
ið nafn og sagði Sigurður að með
þessum báti yrði bylting í búnaði
björgunarsveitarinnar.
-mj
Hafrannsókn
Kalt vor
í sjónum
Sjávarhiti undir
meðallagi
Nniðurstöðum úr nýafstöðnum
vorleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar, sem farinn var til
könnunar á almennu ástandi
sjávar í kringum landið, kemur
fram að hitastig sjávar fyrir
norðan og austan hefur breyst
mikið til hins verra en er ágætt
fyrir sunnan og vestan.
Að sögn Jakobs Jakobssonar
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar er ljóst að í bili eru lífsskilyrði á
uppeldissvæðum þorsksins mun
verri á þessu sióðum en oft áður.
1 leiðangrinum, sem farinn var
á rannsóknaskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni, voru gerðar athugun-
ar á 105 stöðum allt í kringum
landið, bæði á landgrunninu
sjálfu og utan þess, og kom í ljós
að hlýsjávar gætir að þessu sinni
ekki fyrir Norðurlandi, frá Hún-
aflóa og austur um, heldur var
þar að finna pólsjó í kjölfar íssins
á liðnum vetri með hitastigi um
1-3 gráðu heitan. Þannig að sjáv-
arhiti nú fyrir Norður- og Austur-
landi er 2-4 gráðum undir meðal-
lagi. Mælingarnar á þessum slóð-
um sýna aðstæður sem flokkast
undir köldu árin hér við land eins
og 1975, 1977 og 1981-1983, sem
voru þó ekki að sama skapi köld
og hafísárin 1965-1971.
-grh
r-1
Álverið
Mikil óánægja starfsmanna
Mengun og slœmar aðstœður. Ekki ginnkeyptir fyrir
yfirvinnu. Blaðamönnum meinaður aðgangur. Yfirstjórn
álversins úr tengslum við starfsmenn
Mikil óánægja er á meðal
starfsmanna álversins vegna
mengunar og slæmra aðstæðna á
vinnustað. Þetta hefur leitt til
þess að starfsmennirnir hafa ekki
þegið að vinna yfirvinnu. Blaða-
mönnum er meinaður aðgangur
að álverinu og þurfti Þjóðviljinn
að tala við starfsmenn yfir girð-
ingu. Starfsmenn segja yfirstjórn
fyrirtækisins algerlega úr tengsl-
um við þá og hún njóti alls ekki
trausts þeirra.
Þegar Þjóðviljanum var
meinaður aðgangur að álverinu í
gær var revnt að ná f einhvern
yfirmanna Isal til að fá skýringar
þeirra á þessu banni. Það tókst
ekki. í því fóru starfsmenn að tín-
ast í mat og komu nokkrir þeirra
upp að girðingunni til blaða-
manns.
Hljóðið í starfsmönnunum var
þungt og sagði einn þeirra að að-
stæðurnar í kerskálunum væru
vægast sagt fyrir neðan allar hell-
ur. „Ég held að það sé leitun að
öðru eins,“ sagði annar. Tvær 5
fermetra kompur eru til kaffi-
drykkju í pásum. Starfsmennirnir
segja þær í fyrsta lagi alltof litlar
og í öðru lagi berist þangað inn
mikil mengun.
Þá var að heyra á starfsmönn-
unum að stjórnin hefði engan
skilning á aðstæðum starfs-
manna. „Það hefur verið stefna
fyrirtækisins að líta á starfsmenn
sem óvini fyrirtækisins,“ sagði
einhver þeirra. Bréfaskriftir at-
vinnurekenda til starfsmanna bar
á góma. Starfsmennirnir sögðu
að atvinnurekendur mættu senda
eins mörg bréf og þeim sýndist,
það tæki enginn mark á þeim
enda hefðu þeir sýnt að þeir væru
ekki traustsins verðir.
-hmp
HP
Vndar boðnir í stað launanna
Starfsmönnum HP ekki greidd laun um mánaðamótin.
Setuverkfall ígœrdag. Framhaldið óráðið
Að undanförnu hafa verið uppi
væringar vegna umskipta á
meirihluta í útgáfufélagi Helgar-
póstsins, Goðgá hf., sem hafa
komið illilega við starfsmenn
blaðsins. Um síðustu mánaðamót
voru erfiðleikar við launa-
greiðslur og nú um þessi mánaða-
mót var starfsmönnum tjáð að
sjóðir félagsins væru uppurnir og
að því miður gætu það ekki feng-
ið greidd laun. í það minnsta ekki
að fullu.
Þeim var boðið að út yrðu gefn-
ir víxlar, uppáskrifaðir af stjórn-
inni, til að bjarga fyrir horn
heimilisrekstrinum, en allir lög-
lærðir menn sem starfsmennirnir
ráðfærðu sig við um víxlana réðu
þeim frá að þiggja nokkuð slíkt.
Það væru ónýtir pappírar.
Nú er komin upp sú staða að
starfsmenn HP eru blankir og
skuldum vafðir um mánaðamót
og atvinnurekandi þeirra segist
ekki geta greitt þeim þau laun
sem þeim annars réttilega ber.
Starfsfólkið er að vonum dauft
vegna allt þessa en segir samt sem
áður afstöðu sína fullkomlega
skýra. Meðan engin launaumslög
berist inn á borð sé því miður
ekki grundvöllur fyrir því að
blaðið sé unnið. Fyrir vinnu þurfi
launþegi að fá greidd laun.
Róbert Árni Hreiðarsson er
stjórnarformaður í Goðgá hf. um
þessar mundir og sagði hann
varla von til að hægt yrði að
galdra fram með einhverju töfra-
bragði 2 miljónir bara sí svona.
Starfsfólkinu hafi verið gerð
grein fyrir því að á næstu dögum
yrði hægt að öngla saman fyrir
launum þess. Sú lausn að bjóðast
til að ganga í ábyrgð fyrir ein-
hverjum víxlum væri sjálfsögð ef
það leysti einhvern vanda.
Nú er bara að bíða og sjá hvort
starfsmenn HP fá greidd laun og
hvenær og hvort það truflar á ein-
hvern hátt útkomu blaðsins næsta
fimmtudag.
-tt
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júní 1988