Þjóðviljinn - 08.06.1988, Side 10
í DAG
Lista-
hátíð
eða
afþreying
Nú er listahátíð í algleymingi
og landanum boðið uppá heil-
mikla menningarneyslu á tiltölu-
lega skömmum tíma. Að hve
miklu leyti listahátíð endurspegl-
ar menningarlega vitund þjóðar-
innar skal ósagt látið, en hinu
verðurekki neitað, að listahátíð
er oft vitnisburður um mikla
sumarstemmningu og er virki-
legur vorboði í þjóðlífi okkar, þó
margt megi finna að öllu tilstand-
inu.
Jón Þórarinsson tónskáld og
formaður þeirrar nefndar sem
undirbjó listahátíð að þessu
sinni, sagði við opnun listahátíð-
ar í Listasafni íslands, að hvergi
væri almenningur jafn virkur í
menningarlegu starfi og hér á
landi og þyrfti ekki einu sinni að
nota höfðatöluregluna til að kom-
ast að þessari niðurstöðu.
Þrátt fyrir tiltölulega stórt hlut-
fall þeirra, sem eru virkir í menn-
ingarlegu starfi, fer það ekki milli
mála, að stærsti hluti þjóðarinnar
er óvirkur menningarlega séð.
Þrátt fyrir f ramsókn á hinu
menningarlega sviði á undan-
förnum árum, hefurá hinn bóginn
tekist að forheimska stærsta
hluta þjóðarinnar. Stærstu áhrif-
avaldarnir í þessari forheimskun-
arherferð hafa verið auglýsing-
amarkaðurinn og sálarfræðileg
lögmál hanns, gífurleg fram-
leiðsla afþreyingarefnis fyrir
sjónvarp, f ramhaldsþættir á borð
við Dallas og Dynasty, vídeo-
væðingin. Allir þessir þættir
mynda eina heild, heild sem við
verðum að skoða sem andstæðu
allrar raunverulegrar menningar-
starfsemi.
Þessi andmenningarlegi af-
þreyingariðnaður byggist í
grundvallaratriðum á því að mót-
takandinn sé ekki hugsandi vera
áháu „plani", heldurmóttækilegt
fórnarlamb afþreyingariðnaðar-
ins, sem sálarlræði afþreyingar-
innar getur mótað að vild sinni.
Okkurháttvirtum
listneytendum er e.t. v. hollt að
hugsa um þetta í algleymi lista-
hátíðar. Að ekki er allt sem sýnist.
Grói
I dag er
8. júní, miðvikudagurísjöundu
viku sumars, nítjándi dagur
skerplu, 160. dagurársins. Sól
kemur upp í Reykjavík kl. 3.06 og
sest kl. 23.49.
Viðburðir
Medardusdagur. Skaftáreldar
hefjast 1783. Fæddur Guðmund-
ur Kamban rithöfundur 1888.
Fæddur Gunnlaugur Scheving
listmálari 1904.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
„Skjaldborgin" gafst upp á
Dagsbrúnarfundinum. Alsherjar-
atkvæðagreiðsla um laga-
breytingarnar og svik klofnings-
mannanna hefst á morgun. -
Hátíðahöld sjómanna hin mikil-
fenglegustu. Talið er að um 6
þúsund hafi tekið þátt í hátíða-
höldunum. VíkingurvinnurK.R.
með 1:0.
UM UTVARP & SJONVARP
Pilsaþytur
Stöð 2 kl. 20.15
Claire er einkaleynilögregla
með ráð undir rifi hverju. Henni
til aðstoðar er bróðir hennar sem
er lögregluþjónn New York
borgar. Þó hún hafi ailt á hreinu í
málum sem hún tekur að sér þá
eru hennar eigin fjármál í rúst.
Til að láta enda ná saman leigir
Claire út herbergi til fyrirsætu
nokkurrar sem, hvort sem henni
líkar betur eða verr, flækist oft
inn í hin flóknustu mál leigusal-
ans. Þannig skrifa þeir á Sjón-
varpsvísi Stöðvar 2 um þáttinn
Pilsaþyt, sem sýndur verður í op-
inni dagskrá í kvöld. Hér virðist
allt vera eftir formúlunni að vest-
an, fallegar stelpur, smáspenna,
og vandræði sem vafalaust enda
vel.
Leitin aö
lýðræðinu á Haiti
Sjónvarpið kl. 20.35
í kvöld verður sýnd í sjónvarp-
inu nýleg heimildamynd um
stjórnmál og menningu á Haiti.
Framleiðandi myndarinnar er
bandaríski kvikmyndaleikstjór-
inn Jonathan Demme, en hann er
kunnur fyrir fræðslumyndir
sínar.
Eyjan Haiti er ein af eyjum
Karíbahafsins. Þar búa um sex
miljónir manna og er atvinnu-
leysið þar gífurlegt. Haitibúar
máttu búa við einræði Duvaliers-
feðganna í fjölda ára. Nú fyrir
skömmu var haldið upp á eins árs
afmæli afnáms einræðisstjórnar
þeirra feðga og gera íbúar Haitis
sér nú vonir um að betri tíð með
blóm í haga sé í vændum.
En meira um Haiti í Sjónvarp-
inu í kvöld.
Kúrekar á
lokaspretti
Sjónvarp kl. 21.30.
í kvöld verður lokaþáttur ástr-
alska framhaldsmyndaflokksins
um áströlsku kúrekana sem hafa
átt í stöðugum útistöðum við yfir-
valdið eins og sönnum kúrekum
ber. Aðalhlutverkið í þessum
þáttum er í höndum þess þekkta
breska leikara Sam Neil.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
Rikki minn, passaðu hvar þú
gengur svona berfættur
Rikki minn, ekki einn útí
sjóinn, bíddu eftir pabba
Rikki minn, farðu í skyrtuna,
annars brennurðu
. "
í O Buu 's
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 8. júní 1988