Þjóðviljinn - 29.06.1988, Blaðsíða 1
iði
Þriöjudagur 28. júní 1988 144. tbl. 53. árgangur
Verðhœkkanir
Braðabirgðalögin hunsuð
Ráðherrar telja 8% hœkkun Landsvirkjunar hógvœra. Hœkkunarbeiðnirfrá öðrum
opinberum þjónustufyrirtœkjum íráðherranefnd. Margarlitlar ríkisstjórnir í landinu?
Á ríkisstjórnarfundi í gær var menn stæðu frammi fyrir orðnum svo „hógvær" (8%) skyldi ekkert
fjallað um 8% taxtahækkun sem hlut. Landsvirkjun skyldi þó ekki gert í þetta sinn.
Landsvirkjun hefur auglýst ein- haga sér á þennan veg í framtíð-
hliða. Niðurstaðan var sú að inni, en úr því að hækkunin væri Menn velta því fyrir sér hvort
enginn þurfi að hlíta lögunum sitt,“ segir Björn Grétar Sveins-
nema sá hluti launþega sem son.
treysti á rauðu strikin. „Verka-
fólk á að vera á vaktinni og sækja Sjá bls. 3
Intifada
- uppreisn í
Landinu helga
Greinaflokkurfrá Palestínu hefst í blað-
inu í dag
í dag hefst í blaðinu greina-
flokkur sem Ólafur Gíslason
skrifar frá Palestínu, en Ólafur er
nýkominn úr ferðalagi um Jór-
daníu, Vesturbakka Jórdans og
Gaza-svæðið, þar sem hann
heimsótti flóttamannabúðir Pal-
estínumanna og kynnti sér að-
stæður á herteknu svæðunum.
Ólafur dvaldi í 5 daga á her-
teknu svæðunum og varð meðal
annars vitni að vopnuðum
átökum á milli barna og ísra-
elskra hermanna, auk þess sem
hann ræddi við fjölda fólks, með-
al annars fórnarlömb barsmíða
hernámsliðsins á Gaza-svæðinu,
lækni, lögfræðing og prest.
„Ég hef fylgst með Palestínu-
málinu í gegnum fjölmiðla í mörg
ár og skrifað um það ótal fréttap-
istla og greinar hér í blaðið, en
samt kom veruleikinn yfir mig
eins og köld vatnsgusa: hvernig
var þetta hægt?“ segir ólafur
meðal annars í grein sinni í blað-
inu í dag. En hún fjallar um heim-
sókn í flóttamannabúðir Palest-
ínumanna skammt fyrir utan
Amman í Jórdaníu. Næsta grein
birtist á föstudaginn kemur og
segir frá heimsókn á Vesturbakk-
ann. Þriðja greinin, „Dagur í
Gaza“, birtist næstkomandi mið-
vikudag, og sú fjórða föstudaginn
þar á eftir, þar sem rætt er við
kaþólskan prest á Vesturbakkan-
um.
Sjá bls. 7-9
Palestínsk stúlka í uppreisnar-
hug í bænum Ramallah á Vestur-
bakka Jórdans. Ljósm. ólg.
Kvennalisti
Mæðraveldið afturhverft?
Pegar Kvennalistakonur tala varað við: slík hugsjón sé á marg-
um reynsluheim eiga þær frekar an hátt engu síður afturhverf en
við reynsluheim mæðra en feðraveldið sem hún beinist
kvenna, segir Gestur Guðmunds- gegn. Það þarf að móta mun rót-
son í grein í Þjóðviljanum í dag. tækari valkost...
Þar eru rómaðir ýmsir kostir
aukins mæðraveldis, en einnig Sjá SÍOU 5
Félag rœkjuframleiðenda
Úrsagnimar ýktar
Formaður Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda segir að
tölur um úrsagnir rækjuframleið-
enda úr félaginu séu ýktar að
mun og einungis sé um að ræða
þrjá framleiðendur sem hafi yfir-
gefið félagið vegna vinnslukvót-
ans.
Samkvæmt reglugerðinni hef-
ur 41 verksmiðju með 89 pillun-
arvélar verið úthlutað vinnslu-
kvóta uppá 39.325 tonn sem er
3.325 tonnum meiri kvóti en
veiðiskipunum er úthlutað. Með-
alkvóti á verksmiðju verður um
þúsund tonn en 19 vinnslur verða
með 500 tonn hver.
Sjá síðu 2
Gosdrykkir
Mikill
verðmunur
Á sama tíma og hægt er að
kaupa litla flösku af kókakóla á
Akranesi fyrir kr. 19,50 kostar
sama magn af gosdrykknum 40
kr. í verslunum á Þórshöfn og á
Bakkafirði. Verðmunurinn er
105%.
Þetta kemur fram í nýrri verð-
könnun Verðlagsstofnunar á öli
og gosdrykkjum. Gos og öl var að
cllu jöfnu dýrast á Vestfjörðum
en ódýrst á höfuðborgarsvæðinu
og Suðurnesjum. í þeim kaup-
stöðum sem athugaðir voru sér-
staklega reyndist ropvatnið vera
ódýrast í Reykjavík en dýrast á
Sauðárkróki.
Þá sýndi verðkönnunin einnig
að sama magn af gosi er mismun-
andi dýrt eftir því í hvers konar
umbúðum það er selt. Þannig
kostar hver cl. af kók 83% meira í
litlum glerflöskum en í 1,51 plast-
flöskum.
-lg-