Þjóðviljinn - 29.06.1988, Page 9
börn í ungbarnaeftirlit einu sinni í
mánuði á 1. aldursári. Haldin er
sjúkraskrá yfir öll nýfædd börn,
og ef það sýnir sig að þau þrosk-
ast ekki eðlilega, þá eru þau tekin
í daglega meðhöndlun og sett á
sérstakt fæði, auk þess sem for-
eldrum er kennd barnaumhirða.
Áhersla er lögð á nýtingu móður-
mjólkur, þar sem vatnsblandað
mjólkurduft eykur mjög á smit-
hættu. Barnalæknirinn tjáði okk-
ur að vanhirða á börnum stafaði
ekki bara af vankunnáttu, heldur
líka af því að fjölskyldur væru svo
stórar að foreldrar önnuðu því
ekki að sinna öllum börnum sín-
um nægilega vel. Okkur var tjáð
að enginn liði fæðuskort í búðun-
um, en um 1700 manns þiggja
daglegar matargjafir. Þetta þýðir
að fólkið í búðunum er að stórum
hluta efnahagslega sjálfbjarga og
karlmenn sækja mikið vinnu utan
búðanna.
Það vakti furðu mína að syk-
ursýki skyldi vera meðal al-
gengari sjúkdóma, þar sem hún
er yfirleitt rakin til ofneyslu. Sér-
fræðingurinn í meðhöndlun þessa
sjúkdóms tjáði mér að í búðunum
væru skráð 500 tilfelli, og væri
orsökin annars vegar rakin til
rangrar fæðusamsetningar (of
mikil kolvetni), hins vegar til inn-
byrðis skyldleika íbúanna og til
áhrifa af þeirri streitu sem þétt-
býlið og aðrar aðstæður í búðun-
um hafa í för með sér.
Aðspurðir um það hvernig
læknarnir meðhöndluðu niður-
gang, sem er einn skæðasti barn-
asjúkdómurinn í mörgum fá-
tækum löndum, sögðu læknarnir
að við honum væri gefin saltupp-
lausn í því skyni að koma í veg
fyrir vatnstap sem væri hættuleg-
asta afleiðing niðurgangs.
Auk þess að tala við lækna
sjúkraskýlisins kom ég einnig á
rannsóknastofuna, þar sem unn-
ið var að greiningu sýna. Það er
óhætt að segja að aðstaða þar hafi
verið engin. Ein lítil smásjá og
kannski eitt eða tvö lítil tæki í
viðbót, og mér var tjáð að allar
mikilvægari greiningar væru
sendar á sjúkrahús í Amman.
50 nemendur
í bekk
Eftir heimsóknina á sjúkra-
skýlið kom ég í stúlknaskóla þar
sem prófum var að Ijúka og síð-
ustu nemendurnir rétt að fara
heim. Skólastýran sagði mér að
þarna væru um 1500 nemendur á
gagnfræðaskólastigi. Stórt port
myndaði skólalóðina og voru
byggingar skólans allt í kringum
portið. Þetta eru bárujárnsskúrar
með kennslustofum þar sem ekk-
ert er innandyra nema lúðir tré-
Götumynd frá markaðnum í Baqaá. Palestínskar konur eru stoltar og
hnarreistar. Þær klæðast skósíðum serkjum, bera höfuðklút og
nauðsynjar til heimilisins á höfðinu.
Kennslustofa í stúlknaskóla Flóttamannahjálparinnar í Baqaá. í hverri kennslustofu eru 50 nemendur. Engin kennslugögn voru sjáanleg.
Ljósmyndir teknar af greinarhöfundi.
bekkir og svört tafla á vegg.
Nemendur eru 50 í hverjum bekk
og svo þétt setinn bekkurinn að
ekki komast fleiri í hverja
„stofu“. Skrifstofa skólastýrunn-
ar var líka í bárujárnskofa, og
þótt þar væri snyrtilegt innan
dyra var engin kennslugögn eða
bækur þar að sjá, eða afdrep fyrir
kennara. Veggir er snéru inn að
skóialóðinni voru skreyttir
myndum eftir nemendur sem
sýndu palestínskar konur að
störfum innan sem utan heimilis.
8 í flatsœng
á 9 ferm.
Að Iokum var mér boðið að sjá
dæmigert heimili í þessum flótta-
mannabúðum. Þetta var heimili 9
manna fjölskyldu, sem bjó í
tveim kofum og hafði litla lóð
innan veggja að auki. Þarna sem
annars staðar þar sem ég kom inn
á heimili palestínskra flótta-
manna var gætt fyllsta þrifnaðar.
Gólfin voru steypt og hvítskúruð.
Fjölskyldan var ættuð frá He-
bron, og varð landflótta þegar ís-
raelsher lagði undir sig Vestur-
bakkann árið 1967. Eftir 21 ár í
útlegð var ættmóðirin orðin
ekkja, og naut hún þeirra forrétt-
inda að búa ein í öðrum kofan-
um, sem var gerður úr ómáluðum
blikkplötum negldum á grind.
Þetta var öldruð kona, og kofinn
hennar var kannski 3x3 m. að
flatarmáli. Húsmóðirin var korn-
ung að sjá, en átti þó 6 börn, og
sváfu þau með foreldrum sínum í
flatsæng á gólfinu í hinum kofan-
um. Var vandséð hvernig 8
manns gátu komist þar fyrir. Eld-
hús var í sérstöku afdrepi, þar
sem var bæði gashella og vaskur
með rennandi vatni. Garðurinn á
milli kofanna var kannski 3x4m,
og þar voru snúrur fyrir þvotta.
Húsgögn voru þarna nær engin,
eða þægindi, að frátöldum dýn-
unum, og engar voru hirslurnar
til að varðveita jarðneskar eigur
þessara öreiga. Þegar ég ljós-
myndaði móðurina með nokkr-
um barna sinna inni í svefnskála
hennar mátti sjá að henni var
brugðið og tár komu fram í ótta-
slegnu andliti hennar. Eins og
hún væri að spyrja sjálfa sig og
umheiminn þeirrar áleitnú spurn-
ingar, hver yrði framtíð þeirra
barna, sem hún hefði alið í þenn-
an heim.
Daginn eftir hélt ég yfir á Vest-
urbakkann og þar uppgötvaði ég
nýja veröld, og um leið að flótta-
mannabúðirnar í Jórdaníu voru
konunglegar miðað við ástandið
sem þar ríkti. En meira um það í
blaðinu næsta föstudag.
-ólg
eisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu helga Intifada - uppreisn í landinu