Þjóðviljinn - 01.07.1988, Side 3
Lektorsstaða
An fordæmis
Sigmundur
Guðbjarnason: Fyrsta
skipti í sögu háskólans
sem maður er ráðinn án
ótvírœðs hcefnisdóms
Hér hefur mikið óheillaverk
verið unnið. Þetta er í fyrsta
skipti í sögu Háskóla íslands, síð-
an dómnefndir komu til 1942, að
manni er veitt staða án þess að
hann hafi fengið ótvíræðan
hæfnisdóm. En því er ekki að
fagna með Hannes. Þetta sagði
Sigmundur Guðbjarnason hásk-
ólarektor þegar Þjóðviljinn bar
undir hann ákvörðun
menntamálaráðherra um að
skipa Hannes Hólmstein Gissur-
arson lektor í stjórnmálafræði við
skólann.
Sigmundur sagði að sá háttur
hefði verið hafður á að ráðherra
veitti í stöður í samræmi við nið-
urstöður deilda, enda hefðu þær
verið taldar hæfastar til að dæma
hæfni umsækjenda. Þá sagði Sig-
mundur að þessi háttur væri hafð-
ur á í öllum frjálsum háskólum,
skipun ráðherra ætti í raun aðeins
að vera formleg.
„Þetta er mjög alvarlegt frávik
og í raun brot á anda laga um
veitingu embætta við há-
skólann,“ sagði háskólarektor.
Hann sagði einnig að allir eftir-
málar væru erfiðir fyrir skólann
þar sem nýleg lög um veitingu í
lektorsstöður • hefðu verið sett
eftir að dómnefnd hóf sín störf.
Dómnefndin dæmdi tvo umsækj-
endur hæfa, þá Ólaf Þ. Harðar-
son og Gunnar Helga Kristins-
son. Deildarfundur greiddi Ólafi
síðan 15 atkvæði af 17 en Hannes
fékk ekki neitt atkvæði.
Síðasti háskólaráðsfundur
sumarsins var haldinn í síðustu
viku að sögn Sigmundar. Næsti
fundur ráðsins verður ekki fyrr
en eftir sex vikur. Tímasetningin
á skipuninni er því varla nokkur
tilviljun. -hmp
Áburðarverksmiðjan
Gult Ijós á
nýjan geymi
Borgarráð hefur
samþykkt heimild
fyrirnýjum
ammoníaksgeymi
Borgarráð hefur samþykkt
samhljóða heimild til Áburðar-
verksmiðju ríkisins að byggja
nýjan þúsund tonna ammoníaks-
geymi í stað þess sem fyrir er. Á
fundi Byggingarnefndar borgar-
innar var ákvörðun um af-
greiðslu á teikningum nýja
geymisins frestað í gær en búast
má við að þær verði samþykktar
á næsta fundi nefndarinnar og
þvínæst í borgarráði og borgar-
stjórn.
Að sögn Rúnars Bjarnasonar
slökkviliðsstjóra og fram-
kvæmdastjóra Almannavarna-
nefndar Reykjavíkur er hér um
að ræða allt annan og öruggari
geymi en þann sem fyrir er. Rún-
ar sagði að það hefði ekki verið
hægt að standa gegn því að nýr
geymir verði byggður þegar ljóst
var að verksmiðjan yrði áfram í
Gufunesi eftir þá hagkvæmnisat-
hugun sem gerð var á rekstri
hennar fyrr í sumar. En sú athug-
un sýndi að álíka dýrt væri að
framleiða tilbúinn áburð í verks-
miðjunni og að flytja hann inn
erlendis frá!
Hákon Björnsson forstjóri
Áburðarverksmiðjunnar sagði
að beðið væri eftir endanlegri
byggingarsamþykkt fyrir geymin-
um og bjóst hann við að hún næði
í gegn innan skamms. Áætlaður
byggingarkostnaður nýja geymis-
ins er um 61 miljón króna og er
gert ráð fyrir að taka hann í notk-
un í júní á næsta ári. -grh
FRETTIR
Lektorsstaðan
,Faglega að málum staðið‘
Menntamálaráðherra gefur dómnefndinni langt nef. Birgir ísleifur:
Fullkomlegafaglega að málum staðið. Pólitískur sálufélagi Hannesar „ráðgjafi“ ráðherra
Ifjölskipuðum dómstól nægir að
einn sé vanhæfur til þess að það
megi draga í efa að dómstóllinn í
heild sé vanda sínum vaxinn. Að
mínu mati hefðu þeir Svanur
Kristjánsson og Gunnar
Gunnarsson átt að víkja úr dóm-
nefndinni, eins og reyndin var
með Ólaf Ragnar Grímsson,
sagði Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra í samtali
við Þjóðviljann og neitaði alfarið
að hafa verið að gera Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni pólitísk-
an vinargreiða með því að skipa
hann í lektorsstöðu í stjórnmála-
fræði við Háskóla íslands.
Eins og kunnugt er var það álit
idómnefndar sem mat hæfni um-
sækjenda um stöðuna, að Ólafur
Þ. Harðarson væri hæfastur um-
sækjenda. Hins vegar var Hannes
Hólmsteinn ekki talinn uppfylla
þau skilyrði sem sett voru fyrir
stöðunni. Á deildarfundi félags-
vísindadeildar endurtók sama
sagan sig. Ólafur fékk greidd 15
atkvæði af 17 en Hannes ekkert.
- Ég tel það mikilvægt fyrir
deild eins og félagsvísindadeild
að þar fái sem ólíkastar skoðanir
að njóta sín. Það er ekki hollt
fyrir deildina að þar veljist ein-
göngu menn með svipaðar skoð-
anir og úr kunningjahópi, sagði
Birgir.
Birgir sagði að hann hefði
tekið ákvörðun um að skipa
Hannes að vel ígrunduðu máli.
- Það var fullkomlega faglega að
þessari stöðuveitingu staðið,
sagði Birgir, en menntamálaráð-
herra leitaði til aðila utan Há-
skólans til að fá staðfestingu á því
áliti sínu að mat dómnefndar hafi
væri brogað hvað Hannes varð-
aði.
Athygli vekur að tveir þessara
„ráðgjafa“ tengjast Hannesi með
ólíkum hætti. Annar þeirra, John
Gray, var leiðbeinandi Hannesar
er hann nam við Oxford-háskóla
og hinn, Norman P. Barry, er
pólitískur skoðanabróðir Hann-
esar.
- Ég skal ekkert fullyrða
hundrað prósent um óhlutdrægni
þeirra, sagði Birgir er hann var
inntur eftir því hvort ástæða væri
til að taka fremur tillit til um-
sagna þessara aðila en dóm-
nefndarinnar.
-rk
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, merkisberi óheftrar sam-
keppni og harðskeyttur gagn-
rýnandi ríkisforsjár og pólitískra
hrossakaupa, breiðir hér út
faðminn frjáls og engum háður.
Það er oft ansi langt á milli orðs
og æðis. Mynd Sig.
Lektorsstaðan
Gamaldags pólitísk fyrirgreiðsla
Ólafur Þ. Harðarson: Var kunnugt um að ýmsirforystumenn Sjálfstœðisflokksins
þrýstu á Birgi. Vœri holltað rifja upp dósentsdeiluna 1937
Olafur Þ. Harðarson segir
skipun menntamálaráðherra
á Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni í lektorsstöðu í stjórnmála-
fræði vera dæmi um gamaldags
pólitíska fyrirgreiðslu er gangi
þvert gegn faglegu mati. Hann
telur skipunina vera ruddaleg-
ustu árás á sjálfstæði Háskólans
sfðan í dósentsdeilunni 1937. Þór-
ólfur Þórlindsson deildarforseti
félagsvísindadeildar segir óskilj-
anlegt hvernig hægt hafi verið að
ganga framhjá Ólafí.
Þjóðviljinn hafði samband við
Ólaf þar sem hann er á flokks-
þingi Demókrataflokksins í
Bandaríkjunum í boði Menning-
arstofnunar Bandaríkjanna.
Hann sagði að auðvitað væri
þessi niðurstaða sér vonbrigði
eftir að hafa fengið hæfnisdóm og
stuðning Háskólans til stöðu-
nnar. „Að vísu var mér kunnugt
um að ýmsir forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins lögðu mjög að
menntamálaráðherra að hafa
þennan hátt á við veitinguna. En
mér kemur satt að segja á óvart
að ráðherra skuli hafa látið etja
sér út í verk af þessu tagi.
Ólafur sagði gamaldags pólit-
íska fyrirgreiðslu ráða ferðinni og
horft væri framhjá faglegu mati.
Ég hygg að þetta sé ruddalegasta
árás á sjálfstæði Háskólans síðan
í dósentsmálinu 1937. Það væri
fróðlegt fyrir ýmsa að rifja upp
þær umræður sem urðu um það
mál þá.
Árið 1937 skipaði Haraldur
Guðmundsson flokksbróður sinn
dósent í guðfræði þvert gegn
hæfnisdómi og ætlaði íhaldið þá
að ganga af göflunum.
Ólafur sagðist á engan hátt
geta kvartað undan viðbrögðum
Háskólans, hér væri aðeins um
p>ólitískt gerræði ráðherra að
ræða. „Hins vegar verð ég að
skoða þetta mál vandlega og veit í
sjálfu sér ekki hvert framhaldið
verður af minni hálfu,“ sagði
Ólafur
Þórólfur Þórlindsson sagðist
ekki vita hvaða áhrif þetta hefði á
störf dómnefnda í framtíðinni.
Ráðherra hefði með skipun sinni
algerlega horft framhjá öllu starfi
dómnefndar sem hefði bestar for-
sendur til að leggja faglegt mat á
umsækjendur. -hmp
Húsnœðiskerfið
Asókn í kaupleiguíbúðir
Hátt í50 aðilar um 388 íbúðir. Umsœkjendur sveitarfélög úti á landi og
félagasamtök aldraðra. Hliðsjón höfð afbyggðaþróun við úthlutun
Sveitarfélög á landsbyggðinni
eiga stærstan hluta þeirra um-
sókna sem borist höfðu í vikunni
um lán til kaupleiguíbúða. Um-
sóknirnar eru frá 42 aðilum og
óska þeir eftir að byggja allt frá 1
og uppí 60 íbúðir og er heildar-
fjöldinn 388 íbúðir.
Verja á 273 miljónum til
kaupleiguíbúða í ár og dugir sú
fjárhæð til 120-150 íbúða. Sigurð-
ur E. Guðmundsson hjá Hús-
næðisstofnun sagði að einhverjar
vikur tæki að vinna úr umsóknun-
um og að við úthlutun yrði höfð
hliðsjón af byggðaþróun í
landinu.
Samtök eldri borgara sækja um
lán til 60 íbúða í samvinnu við
verktakana Gunnar og Gylfa og
Samtök aldraðra til 20 íbúða. Ein
félagasamtök í viðbót lögðu inn
umsókn, en það er Verðandi h/f á
Reyðarfirði.
Þegar litið er á fjölda umsókna
eftir landshlutum koma flestar
frá Austfjörðum. Þar vilja 10
sveitarfélög byggja 80 íbúðir, þar
af 24 á Höfn í Hornafirði og 20 í
Neskaupstað.
Norðlendingar eru álíka
áhugasamir, en þar æskja 9
sveitarfélög eftir 85 íbúðum og
eru Akureyri, Sauðárkrókur og
Siglufjörður með 20 hver staður.
ísfirðingar sækja einnig um lán til
20 íbúða og Bolvíkingar fylgja
fast á eftir með 14. Á Vestfjörð-
um bætast við Þingeyri og
Hólmavík með samtals 11 íbúðir.
Á Suðurlandi dreifast umsókn-
ir um 40 íbúðir á 8 sveitarfélög og
eru Vestmannaeyingar stórtæk-
astir með 15 íbúðir. Sex staðir á
Vesturlandi sækja um lán til að
byggja alls 25 íbúðir og á
Reykjanesi komu umsóknir frá
Grindavík og Sandgerði um sam-
tals 11 íbúðir.
Mun meiri eftirspurn er eftir
lánum fyrir almennum kaup-
leiguíbúðum en félagslegum,
enda hefur lítið framboð á leigu-
húsnæði víða úti á landi dregið úr
fólki sem viljað hefur flytja þang-
að.
-mj
Föstudagur 1. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Ólafsfjörður
Mæstá
miðri leið
- Það má segja að við höfum
mæst á miðri leið, sagði Ríkharð-
ur Hólm Sigurðsson skipverji á
Olafí Bekk, sem Magnús Gamal-
íelsson hf. gerir út frá Ólafsfírði,
að lokum stuttum en árangurs-
ríkurn fundi með sjómönnum og
fulltrúum útgerðarinnar síðdegis
í gær.
Samkomulag náðist milli út-
gerðarinnar og sjómannanna um
fiskverð áður en Ólafur Bekkur
hélt til veiða í gærkvöld og hljóð-
aði það uppá 6,65% meðalviðbót
við verðlagsráðsverðið á þorski.
Fyrst hafði útgerðin ætlað að
greiða 5% ofaná verðlagsráðs-
verðið en síðan hækkað sig uppí
6,25%, en sjómennimir héldu sig
við kröfu um 7% umfram lág-
marksverð. Henni vildi útgerðin
ekki ansa og bauð á móti 6,65%
hækkun sem áhöfnin sætti sig við.
-tt