Þjóðviljinn - 01.07.1988, Page 4

Þjóðviljinn - 01.07.1988, Page 4
I.EIfíARI KI ,IPPT OG SKORIÐ Ráðhena beygður Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráöherra gerir í síöasta úr- skurði sínum um ráðhúskæru ýmsarathugasemdirvið framgöngu borgarstjóra og meirihluta borgarstjórnar í ráðhúsmálinu. Ráð- herrann segir undirbúninginn einkennast „af fljótfærni og vanvirð- ingu fyrir skipulags- og byggingarlögum" og segir rétt Reykvík- inga til að tjá sig hafa verið „fyrir borð borinn". í „veigamiklum atriðum er málsmeðferð borgaryfirvalda mjög ámælisverð" og þessvegna „átelur ráðuneytið vinnubrögð borgaryfirvalda og krefst þess að framvegis verði vandað mun beturtil málsmeðferð- ar skipulags- og byggingarmála" og virt „að fullu ákvæði laga og reglugerða þar að lútandi". Þetta eru stór orð. Ráðherra er í raun og veru að segja að borgarstjóri og félagar hans hafi aðallega notað handarbökin við að undirbúa byggingu stórhýsis á viðkvæmasta bletti í gamla bænum, og ráðherra lætur Ijóslega að því liggja að hér séu lögbrjótar á ferð. Og hver skyldi svo vera sjálfur úrskurður hins hvassyrta fé- lagsmálaráðherra? Jú - ráðherra vísaði kærunni frá og stendur óbreytt byggingar- leyfið sem sjálfstæðismennirnir í byggingarnefnd Reykjavíkur veittu sjálfstæðismönnunum í borgarstjórn Reykjavíkur, og gryfjan í Tjarnarstæðinu heldur áfram að dýpka við takmarkaðan fögnuð, nema helst hjá kvikmyndafyrirtækinu sem var ráðið til að festa herlegheitin á filmu. Ráðherrann gafst upp enn einu sinni, og yfirlýsingarnar í lok úrskurðarins sýna að það er ráðherranum alls ekki Ijúft, - ákvörð- unin virðist einsog tekin gegn betri vitund. En skammir á blaði duga ekki langt, og viðbrögð borgarstjóra í fjölmiðlum eftir úr- skurðinn sýndu að hann lætur sér karakterlýsingar frá ráðuneyt- inu í léttu rúmi liggja, enda er úrskurðurinn honum í hag í þeirri pólitík þráhyggjunnarað byggja hús íTjörninni til að sýna Reykvík- ingum hver ræður. Það kom raunar ekki á óvart að borgarstjóri var sallarólegur og alls óhræddur við það sem félagsmálaráðherra kynni að hafa um málið að segja. Hinum raunverulegu átökum borgarstjórans og ráðherrans um ráðhúsmálið er nefnilega lokið fyrir löngu með ósigri ráðherrans, og það sem síðan hefur gerst er bara fyrir formið og fjölmiðlana. Sá slagur átti sér stað í febrúar, og lauk með því að ráðherra taldi að borgarstjórn hefði staðið bæði löglega og ólöglega að kynningu á framkvæmdunum, þó aðeins meira löglega en ólög- lega. Menn muna að þessi ágæta niðurstaða kom fram eftir að stjórnarkreppu í heila viku lauk með frægum miðnæturfundi heima hjá Þorsteini Pálssyni í Fossvoginum þarsem meðal gesta voru Jón Baldvin Hannibalsson, Davíð Oddsson borgarstjóri og Lára V. Júlíusdóttir aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. Davíð hótaði sínum mönnum í stjórninni og sérstaklega hinum veiklaða forsætisráðherra, Þorsteini Pálssyni, öllu illu ef þeim tækist ekki að stöðva félagsmálaráðherra. Þorsteinn réðst í það fyrir sitt leyti að gera Jónunum samráðherrum sínum grein fyrir alvöru málsins. Jón og Jón tóku svo að sér sjálft verkið, að snúa uppá hendurnar á Jóhönnu með því að setja ráðherrastól hennar að veði. Vera má að unnendum Tjarnarinnar takist með öðrum hætti að stöðva villimennskuna í suðvesturbotninum. En síðan á miðnæt- urfundinum fræga hefur öllum verið Ijóst - allra best ráðherra sjálfum - að minnisvarðaáform Davíðs Oddssonar mundu ekki stranda í félagsmálaráðuneytinu. Ráðhúsið komst nefnilega í febrúar inní sjálfan stjórnarsáttmálann. Verðurfróðlegt að sjá hvernig þeim örlagaríka kafla verða gerð skil í kvikmyndinni sem borgarstjóri er að láta búa til um ráðhúsið sitt. Háskólinn í hættu Með því að taka flokksbróður sinn framyfir tvo hæfari við stöðuveitingu í háskólanum í gær hefur Birgir ísleifur Gunnars- son í annað sinn á skömmum tíma sýnt í verki að hann lítur á það sem helsta hlutverk sitt í menntamálaráðuneytinu að hygla gæðingum og gæta hagsmuna Sjálfstæðisflokksins og banda- manna hans. Skipun Hannesar er hneyksli sem hlýtur að valda ólgu bæði í háskólanum og samfélaginu öllu. Málatilbúnaður Birgis ísleifs er með ólíkindum, og er þess að vænta að háskólamenn fari að hyggja að leiðum til að verja sjálfstæði skólans og faglegan heiður hans fyrir hinni dauðu hönd Birgis ísleifs Gunnarssonar og álíka nóta. _m stemgrimur Hemwnnsson um braðabirgðalogin: Seðlabankinn gerir f '' mm'.. <v"''.f'-'X' í svælu og reyk Nú er heldur betur að fær- ast fjör í leikinn á stjórnar- heimilinu. Oft hefur það verið þannig yfir sumartím- ann að ráðherrar hafa sæmi- legan frið til að taka til á skrifborðinu sínu og vinna fyrir kaupinu sfnu með því að þoka áfram ýmsum þeim málum sem fengið hafa að liggja óafgreidd allt of lengi. Þeir hafa jafnvel stundum getað farið tiltölulega áhyggjulausir í nokkurra daga frí án þess að þurfa að óttast að allt væri komið á hvolf þegar þeir sneru til baka. En þessu er ekki að heilsa núna. Engu er líkara en að ráðherramir séu komnir í innbyrðis yfirlýsingastríð þar sem vélbyssur og sprengjuvörpur gelta og sá er tapaður sem ekki hefur rænu á að leita sér skjóls og svara svo fyrir sig í sömu mynt við fyrstu hentugleika. Þorsteinn Pálsson veður fram galvaskur og segir að ekki komi til greina að sinna því sem hann kallar „vinstri- stjórnarmennsku hjá Fram- sókn“ og lætur að því liggja að Steingrímur Hermanns- son og aðrir framsóknar- menn, sem verið hafi „aðal- kröfugerðarmennirnir um gengisfellingu og erlendar lántökur og þar af leiðandi aukna verðbólgu", vilji falsa afleiðingarnar af ráðstöfun- um ríkisstjónarinnar. „Það er algerlega út í bláinn,“ segir Þorsteinn for- sætisráðherra í viðtali við DV í gær, „að bæta við er- lendar skuldir til að falsa raf- orkuverð og sérhverri slíkri kröfu Framsóknarflokksins hefur verið hafnað og verð- urhafnað." Alltígamni Það eru bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar sem verða ráðherrunum aðaltilefnið til hnútukastsins. Þaðereins og sumir hafi ekki fyllilega áttað sig á því að hluti lag- anna átti aldrei að vera ann- að en grín. Lögin áttu að koma í stað launaliða í kjarasamningum. Punktur og basta. Ákvæði um gjaldskrár ríkisfyrirtækja, verðtrygg- ingufjárskuldbindingao. fl. áttu aldrei að vera til annars en skrauts í lögunum. Það var ekki einu sinni hugsað til enda hvort unnt væri að framkvæma það sem ráð- herrum í yfirlýsingaham datt í hug að nefna í skrautgrein- um bráðabirgðalaganna. En Steingrímur Her- mannsson utanríkisráðherra og formaður Framsóknar- flokksins þarf líka að tjá sig um málið og blaðamaður DVhefurm.a. þettaeftir honumígær: „Hann sagði að nú væru tvö dæmi um að farið væri kringum lögin, auk vaxta- hækkana, og honum virtist ekki mikið standa eftir af þeim nema gengisfellingin. „Ég hef lagt það til hvað eftir annað að hámarksvext- ir verði settir á lánskjaravísi- tölutryggð bréf og að Seðla- bankinn ákveði vaxtamun en um það hefur ekki orðið samkomuIag.““ Hvítskúraðar hendur Menn veiti því athygli að Steingrímur er að eigin sögn saklaus að því sem illa hefur farið í stjórn efnahagsmála. Hann hefur sem sagt marg oft lagt gott til mála, en hinir ráðherrarnir hafa bara ekki viljað hlusta á hann. Meira að segja Seðlabankinn vill ekkert gera með ábendingar Steingríms. Hjá Steingrími Her- mannssyni er því ekki skortur á góðum áformum og hugmyndum um hvernig hlutunum væri best fyrir komið, ekki frekar en hj á kerlingunni sem komst að þeirri niðurstöðu að hún gæti svo sem skipað, væri henni bara hlýtt. En það verður að viður- kennast að sá er gerir iðrun opinberlega vekur gjarnan nokkra athygli. Oggefum Steingrími nú orðið: pyí miður „Afar mikið af því, sem að var stefnt, hefur runnið út í sandinn, því miður. Hver sem er getur farið fram hjá þessum lögum. Fyrst var það ísal með Vinnuveit- endasambandið í broddi fylkingar. Nú er það Lands- virkjun sem fer fram hjá þeim. Og vextir hafa hækk- að meir en nokkru sinni, þrátt fyrir yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar um að beita sér gegn slíku. Seðlabank- inn hefur ekki gert tilraun til að hafa þar hemil á. “ Þeir eru býsna margir sem taka undir með Steingrími og segja: „Því miður,“ þegar rætt er um verk ríkisstjórn- arinnar. En svo eru nokkir sem spyrja: „Hvað svo? Á ekkert að gerast? Nægir að menn séu leiðir yfir mistök- um og súrir yfir því að eng- inn skuli vilja fara eftir því sem þeir leggja til?“ Steingrími hefur lengi látið vel að koma fram fyrir þjóðina sem sá maður er leggur öll sín spil á borðið og segir blátt áfram að hann hafi verið plataður eða þá að það sé nú bara þannig að enginn vilji hlusta á hann. En ætli sé ekki hætta á að smám saman dofni áhugi þjóðarinnar á að hlusta á formann annars stærsta stjórnarflokksins tala eins og hann sé í stjórnarand- stöðu og beri enga ábyrgð á stj órnarathöf num. Jón og Guðrún Úr því skærin eru komin í DV má bera þau að grein eftir Jóhannes B j örn Lúð- víksson (Falið vald) en hann telur nauðsynlegt að Seðla- bankinn verði sjálfstæð og ópólitísk stofnun. Nú sé hann bara afreiðslustofnun fyrirríkisstjórnina. (Er Steingrímur á villigötum þegar hann er að skamma Seðlabankann?) Jóhannes lýsir afleiðingum af hávaxta- stefnunni m.a. þannig: „Jón og Guðrún eiga 3ja milljóna króna íbúð sem tværmilljónirhvflaá. Einn góðan veðurdag átta þau sig allt í einu á því að þótt verð- bólgan hafi hækkað verð íbúðarinnar í fjórar milljónir þá skulda þau 4,2. Þau höfðu sparað í nokkur ár fy rir útborgun, alltaf borgað afborganir á gjald- daga - en nú eiga þau minna en ekkineitt.“ ÓP þJÓÐVILIINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, OttarProppó. Fróttastjóri: LúðvíkGeirsson. Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer Svavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson (íþr.), Sævar Guðbjörnsson, Tómas Tómasson, Þorfinnur Ómarsson (íþr.). Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, Margrét Magnúsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrifstofustjóri:Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Petursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, Unnur Ágústsdóttir. Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, HrefnaMagnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 &681663. Auglýsíngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 60 kr. Helgarblöð:70kr. Áskriftarverð á mánuði: 700 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. júlí 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.