Þjóðviljinn - 20.07.1988, Blaðsíða 3
FRETTIR
Lánsfjármarkaðurinn
Eftirspum minnkar ekki
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra: Tímaspursmál hvenœr vextirfari lœkkandi.
Bankamenn sjá ekki nein merki um vaxtalœkkun á nœstunni - öðru nær
M
ér fínnst þetta vissulega
áhyggjusamlegt en ég hef þá
trú að þetta séu tímabundin við-
brögð við óvissuástandi á fjár-
magnsmarkaði og miklum
sveiflum í verðbólgu að undan-
förnu, en því ástandi mun linna,
sagði Jón Sigurðsson, viðskiptar-
áðherra vegna vaxtahækkunar
Iðnaðarbanka og
Verzlunarbanka fyrir skömmu en
þá hækkuðu þessir bankar vexti á
verðtryggðum skuldabréfum úr
9,5% í 10,75%.
Bankamenn sem Þjóðviljinn
ræddi við í gær voru ekki þeirrar
skoðunar að vextir færu lækk-
andi. Geir Magnússon, banka-
stjóri Samvinnubankans, sagði
að hann sæi engin teikn á lofti um
það að vextir færu lækkandi á
næstunni. Hann sagði að ekki
hefði orðið vart minni ásóknar í
lánsfé, - öðru nær, og í svipaðan
streng tók Valur Valsson, banka-
stjóri Iðnaðarbanakans.
- Frekar sýnist mér vera til-
hneiging tii vaxtahækkunar, en
hitt, sagði Geir, er hann var
inntur eftir því áliti viðskiptaráð-
herra að vaxtahækkanirnar að
undanförnu væru einungis tíma-
bundnar.
- Við sjáum merki þess að fyr-
irtækin standi ekki undir vöxtum
af lánsfé. Sérstaklega á þetta við
um fyrirtæki á landsbyggðinni
þar sem veltuhraðinn er nrinni,
sagði Geir Magnússon aðspurður
um hvort vextirnir væru ekki
fyrirtækjunum ofviða.
- Þetta hlýtur að vera tíma-
bundin ákvörðun, því þeir sem
fylgjast gerst með fjármagns-
markaði hafa þá tilfinningu nú að
raunvextir á verðtryggðum papp-
írurn séu með hæsta móti og það
sé fremur meira framboð á fjár-
magni en eftirspurn og þannig
hljóti þetta að fara að snúast við.
Þessir tveir bankar meta þetta
auðvitað út frá aðstæðum hvað
nýtt fjármagn kostar hjá þeim og
ég geri þá ráð fyrir að þeir muni
þá endurskoða þessa ákvörðun í
ljósi breyttra aðstæðna, sagði Jón
Sigurðsson um vaxtahækkun
Verzlunar- og Iðnaðarbanka.
- Ég get ekki séð íyrir mér vax-
talækkun. Þenslan í efnahagslíf-
inu er enn mikil og ríkissjóður er
mjög þurftafrekur. Meðan þann-
ig er um hnútana búið eru ekki
líkur á vaxtalækkun. Það er rétt,
menn hafa verið að vonast eftir
vatnaskilum í vaxtamálum.
Vissulega getur það gerst að
nafnvextir lækki með haustinu ef
verðbólgan minnkar, en það er of
snemmt að spá nokkru um raun-
vextina, sagði einn bankastjóra
viðskiptabankanna sem Þjóðvilj-
inn ræddi við í gær.
-rk
Unglingamir til Hammershöj
r
Idag heldur unglingalandslið ís-
lands í skák til Danmerkur þar
sem það tekur þátt í fjögurra
landa keppni í skák dagana 21.-
23. júlí.
lenska landsliðið er þannig
skipað (Eló-stig í sviga): Þröstur
Þórhallsson (2455), Andri Áss
Grétarsson (2265), Davíð Ólafs-
son (2250), Tómas Björnsson
(2220), Snorri G. Bergsson
(2150), Tómas Hermannsson
(2125). Varamenn eru: Hannes
H. Stefánsson (2430), Sigurður
Daði Sigfússon (2195), Þröstur
Árnason (2195) og Rúnar Sigurp-
álsson (1900). Fararstjórar eru
Ólafur H. Ólafsson og Hilmar
Thors.
-gís.
Eftirlaunafólk
Mörgum finnst þeir sviknir
Fá ekki að njóta launa sinna sem þeir unnufyrir hörðum höndum.
Margir þurfa að sœkja um eftirgjöf húsnæðisskatta árlega
Mótherjarnir eru frá Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi.
Keppni þessi fer nú fram í annað
skipti og í fyrra sigruðu Svíar
naumlega eftir tvísýna baráttu
við íslensku skáksnillingana. fs-
Rótin
Guðrún í
yfirheyrslu
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður verður gestur í þætti Al-
þýðubandalagsins á útvarpi Rót í
kvöld kl. 20.30
Að sögn Hrafns Jökulssonar
umsjónarmanns þáttarins verður
rætt um ástandið í þjóðmálunum,
samlyndið á stjórnarheimilinu og
hugsanlegar kosningar.
Fjölmargir eftirlaunamenn í
landinu upplifa það þegar
vinnuframlagi þeirra lýkur til
samfélagsins að laun og réttindi
þeirra í lífeyrissjóði verða til þess
að tekjur þeirra skerðist. Frí-
tekjumarkið eða sú upphæð sem
einstaklingur á eftirlaunum má
hafa í lífeyri og aðrar tekjur án
þess að það komi niður á svokall-
aðri tekjutryggingu er 127.980 á
heilu ári. Ef greiðsla úr lífeyris-
sjóði er hærri en þessi tala skerð-
ist tekjutrygging viðkomandi.
„Þetta er hrikalegt óréttlæti.
Eftirlaunafólk fær ekki að njóta
þeirra réttinda sem það hefur
aflað sér í gegnum árin. Þegar
það hættir að vinna fær það ekki
að njóta þeirra greiðslna sem það
fær úr lífeyrissjóðum eða aflar sér
með öðru móti. Það er hreinlega
látið gjalda þess og margir missa
tekjutrygginguna. Við hjá Félagi
eldri borgara viljum að fólk fái að
njóta þeirra launa sem það hefur
þegar aflað sér með vinnufram-
lagi sínu til þessa þjóðfélags þeg-
ar það hverfur af vinnumarkaði
við eftirlaunaaldurinn.
Þá finnst mér að eftirgjöf á
húsnæðissköttum eigi að ganga
sjálfkrafa fyrir sig eftir að fólk
hefur komist á eftirlaunaaldur.
Nú þurfa rnargir að sækja um
þessa eftirgjöf á hverju ári og
þetta er óþarfa fyrirhöfn fyrir
gamla fólkið,“ sagði Pétur H. ÓI-
afsson hjá Félagi eldri borgara í
samtali við blaðið.
-gís.
Flugstöðin
JóF
semur við
Steingrím
Steingrímurfœr 5 7
milljónir áþessu ári.
Framkvæmdum við
stöðina lokið á nœsta
ári. Kostar400
milljónir
Starfshópur sem Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra
og Jón Baldvin Hannibalsson
fjármáiaráðherra skipuðu til að
leysa flugstöðvardeiluna hefur
skilað niðurstöðum. Lagt er til að
57 milljónir fari í framkvæmdir á
þessu ári en framkvæmdum Ijúki
að fullu á næsta ári. Er áætlaður
heildarkostnaður við að Ijúka
flugstöðinni 391 milljón króna.
Starfshópurinn leggur til að
verktökum verði greiddar 50
milljónir á þessu ári. Þegnir verði
greiðslufrestir hjá verktökum
upp á rúmar 37 milljónir og sú
upphæð síðan greidd í jánúar
1989. Þá á að fresta óunnum en
samningsbundnum framkvæmd-
um fyrir rúmar fjórar milljónir
fram á næsta ár.
Þá vill starfshópurinn að flug-
stöðin sjálf yfirtaki verkefni upp
á tæpar 2 milljónir og litið verði
þannig á að um venjuleg rekstrar-
verkefni sé að ræða. Starfshópur-
inn segir einnig óhjákvæmilegt að
ljúka framkvæmdum við hverfi-
hurðir, flóðlýsingu, neyðarlýs-
ingu og hitakerfi og loftræsting
verði lagfærð.
Lagt er til að tekinn verði upp
samningur við Hitaveitu Suður-
nesja um lagningu heimæðar og
þeim framkvæmdum ljúki 1988.
Hitaveitunni verði gert kleift að
taka lán til að ljúka þessu verki.
-hmp
Ríkisvíxlar
Ganga
trauðla út
Bankarnir óttast
aukna bindiskyldu.
Til tals hefur komi'ð af hálfu
viðskiptabankanna að þeir
ábyrgist sölu á ríkisvíxlum fyrir
1.260 miljónir króna gegn því að
bindiskylda af innlánum bank-
anna verði aukin um 2 til 4% úr
12%, eins og ríkisstjórnin hefur
heimilað Seðlabankanum. Geir
Magnússon, bankastjóri Sam-
vinnubankans, sagði í samtali við
Þjóðviljann, að viðbúið væri að
vextir bankanna hækkuðu við
aukna bindiskyldu, nema því að-
eins að Seðlabankinn greiddi við-
skiptabönkunum vexti af bindi-
skyldunni.
Að sögn Stefáns Pálssonar,
bankastjóra Búnaðarbankans og
formanns Félags íslenskra við-
skiptabanka, er óráðið hvort
bankarnir ábyrgist sölu á ríkis-
skuldabréfum fyrir 1.260 miljónir
króna, en til tals hefði komið að
gera Seðlabankanum slíkt tilboð
til að komast hjá aukinni bindi-
skyldu.
- Það er starfshópur á vegum
viðskiptabankanna að gera til-
lögur um framtíðarskipulag þess-
ara mála og ég reikna með að álit
liggi fyrir í þessari viku, sagði
Stefán.
Heimild ríkisstjórnarinnar til
handa Seðlabankanum að hækka
bindiskylduna, er ætlað að vinna
bug á þriggja miljarða króna
halla ríkissjóðs og til að fullnægja
lánsþörf hans. _r|{
Mlðvikudagur 20. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3