Þjóðviljinn - 20.07.1988, Page 10
Fjárstreymi
snúist við
A landsfundi fyrr í mánuðinum
tóku Samtök um jafnrétti milli
landshluta sér nafnið „Útvörður“
og var félaginu einnig kosin ný
stjórn.
Á fundinum á Hallormsstað
var meðal annars samþykkt á-
lyktun um að „halda þurfi áfram
með fullum þunga þeirri baráttu
fyrir stjórnkerfisbreytingum,
sem forystulið samtakanna hefur
haft uppi síðastliðið ár. Fundur-
inn ályktar að haldið verði áfram
viðræðum við þingmannahóp,
auknum innan þingflokkanna og
málafylgju gagnvart sveitar-
stjórnum og almenningi og á sér-
hverjum þeim vettvangi sem
stjórn telur vænlegt og hefur að-
stöðu til.“
Þá ályktaði fundurinn að
„nauðsyn beri til að kosningar til
Alþingis og Landshlutaþinga
framtíðarinnar verði parsónu-
bundnar, t.d. með þeim hætti að
framboðslistar flokkanna verði
óraðaðir.“
Landsfundurinn fól stjórn
samtakanna „að fá könnuð áhrif
opinberra stjórnvaldsaðgerða og
annarra aðila og samtaka á fjár-
streymi frá landsbyggð og at-
vinnuvegum þjóðarinnar til höf-
uðborgarsvæðisins og ráð tiltæk
til að breyta þeirri þróun.“
f stjórn samtakanna voru kjör-
in þau Hlöðver Hlöðversson,
Björgum S. Þing. (formaður)
Sjöfn Halldórsdóttir, Hátúni,
Ólf. Árn., Þórarinn Lárusson,
Skriðuklaustri, N. Múl. Magnús
B. Jónsson, Hvanneyri, Borg, og
Gunnlaugur Júlíusson, Reykja-
vík.
ALÞÝÐUBANDALAGIB
Styrktarmannakerfi
Alþýðubandalagsins
Eyðublöð vegna styrktarmannakerfis Alþýðubandalagsins hafa verið send
út til flokksmanna.
Eru aliir hvattir til að taka þátt í styrktarmannakerfinu og koma útfylltum
eyðublöðum til aðalskrifstofu.
Góð þátttaka er grundvöllur öflugs starfs. Verum minnug hins fornkveðna
að margt smátt gerir eitt stórt. Gjaldkeri
Sumarferð ABR
Ósóttir vinningar
í happdrætti sumarferðar ABR 1988
1. Manuel Scoraza: Rancas þorp á heljarþröm, Ingibjörg Haraldsdóttir
þýddi. Frá Iðunni. Miöi nr. 262. 2. Dea Trier Mörch, Miðbærinn, skáldaga
Iðunn. Miðar nr. 504, nr. 5.3. Samferða um söguna, Bengt Áake Haeger
MM. Miöi nr. 83. 4. Faulkner, Griðastaður, Miði nr. 895. 5. Barsett, upp-
takar, hnetubrjóturo.s.frv. Miðinr. 904.6. Grænmetiskvörn frá KRON. Miði
nr. 295. 7. Hljómplata KRON. Miði nr. 18. 8. Hljómplata, Almannarómur
MFA. Miðinr. 780.9. Nafnabókin eftir Hermann Pálsson MM. Miðinr. 850.
10. Útigrill frá Dröfn Hafnarfirði. Miði nr. 223.11. Hrakfallabálkurinn, viðtöl
við Jakob Plum kaupmann í Ólafsvík. Einar Bragi skráði, Iðunn. Miði nr.
691. 12. Heimsmynd á hverfanda hveli 1. og 2. bindi eftir Þorstein Vil-
hjálmsson MM. Miði nr. 554.13. Birgir Engilberts, Aridvökuskýrslur Iðunn.
Miði nr. 685.14. Maðurinn sem féll til jarðar eftir Walter Travis Iðunn. Miði
nr. 684.15. Börn eru líka fólk eftir Valdísi Óskarsdóttur MM. Miðinr. 500.16.
Sængurfatasett fyrir tvo frá KRON. Miði nr. 947.17. Hljómplata frá KRON.
Miðinr. 117.18. Hljómplata frá MFA, Maíkórinn. Miði nr. 303.19. Leikvöll-
urinn okkar, bók fyrir börn. Miði nr. 108.20. Tvær náttuglur eða öllu heldur
þrjár, MM. Miði nr. 519. 21. Skáldið á Þröm, MM. Miði nr. 896.
Vinninga er hægt að vitja á skrifstofu ABR til 1. ágúst 1988. Skrifstofan er
opin daglega frá kl. 8.-12.
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Sumarferð
um A-Skaftafellssýslu
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður farin um verslunarm-
annahelgina, 30. júlí—1. ágúst. Farið verður til Hornafjarðar á laugardaginn.
Ferðast um nærsveitir á sunnudag.
Gist verður 2 nætur í Nesjaskóla og er val um svefnpokapláss eða 2ja
manna herbergi.
Frekari upplýsingar gefa:
Dalir - Sigurjóna s: 41175.
Stykkishólmur - Þórunn s: 81421
Grundarfjörður - Matthildur s: 86715
Ólafsvík - Herbert s: 61331
Hellissandur - Skúli s: 66619
Borgarnes - Sigurður s: 71122
Akranes - Guðbjörg s: 12251
Munið eftir sundfötum, klæðnaði fyrir smágöngur og að hafa með nesti.
Þetta er fjölskylduferð eins og áður. Gerum hana fjölmenna.
Kjördæmisráð
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Framkvæmdaráðsfundur
Fundur í framkvaemdarári ÆFAB verður haldinn sunnudaginn 24.
júlí kl. 17.00 að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Nauðsynlegt að allir mæti.
Kaffi og kökur.
Nefndin
FRÉTTIR
Gildran. Þórhallur Árnason bassi, Karl Tómasson trommur, Birgir
Haraldsson söngur og gítar.
Tónleikar
Gildran
í Duus
húsi
Hljómsveitin Gildran heldur
tvenna tónleika í vikunni og
verða þeir báðir í Duus húsi.
Fyrri tónleikarnir verða í kvöld,
miðvikudagskvöld 20. júní, og
hinir síðari verða annað kvöld,
■ fimmtudagskvöld 21. júní. Báðir
tónleikarnir hefjast klukkan
22.00.
Uppistaða tónleikanna verð'ur
kynning á væntanlegri hljóm-
plötu Gildrunnar.
VIÐHORF
Svar
við grein ritstjóra Pjóðviljans þ. 29. 6. „Klippt og skorið“
í Þjóðviljanum þann 29.6. sl.
var greinin „klippt og skorið“.
Fjallaði hún um forsetakosning-
arnar. Greinarhöfundur fjallar
um framboð Sigrúnar og úrslit
kosninganna á mjög kaldhæðnis-
legan hátt. Hann virðist vera full-
ur ótta við hvað taki nú við hjá
stuðningsmönnum Sigrúnar og
hvort möguleiki sé fyrir því að
sterk hreyfing geti myndast. Því
hvað myndi það þýða ef þetta
fólk sem studdi framboð Sigrúnar
(5.3% þjóðarinnar) yrði að
sterkri hreyfingu? Kannski gæti
það þýtt að sú hreyfing yrði betur
í stakk búin en Alþýðubandalag-
ið að berjast fyrir hag verkalýðs-
ins. Kannski óttast hann að Al-
þýðubandalagið muni hverfa.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Alþýðubandalagið ekki
miklu meira fylgi en það sem Sig-
rún fékk í þessum forsetakosn-
ingum og þess vegna væri það
ekki útilokað að þessi nýja lýðr-
æðisbylgja muni flæða yfir og
drekkja Alþýðubandalaginu.
Þetta get ég lesið mjög greinilega
út úr því sem greinarhöfundur
tekur fyrir í sínum skrifum. Til
stuðnings þessu vil ég nefna
nokkur atriði úr greininni.
Forsenda fyrir sköpun
nýrra flokka
eða hreyfinga
í fyrsta lagi vil ég tala um þá
fáránlegu fullyrðingu að það sé
Ijóst viku eftir kosningar að engin
hreyfing sé orðin til og verði því
greinilega ekki til! Hvaðan hefur
hann þessar upplýsingar, eða er
greinarhöfundur kannski með
gáfur til að sjá fram í framtíðina
og inn í hug fólksins í landinu?
Hann ber fyrir sig það að þeir sem
kusu Sigrúnu skiptist í 3 aðskilda
hópa; 1) þá sem styðja Flokk
mannsins, 2) ýmsa sem aldrei
gátu sætt sig við kjör Vigdísar og
3) fólkið sem lifir í svo óskil-
greindri óánægju með „Kerfið og
þá þarna uppi“. Síðan reiknar
hann það út að ekki komi þá
mikið í hluta hvers hóps. Þarna er
greinarhöfundur enn á ný sem al-
vitur. Hann segir ennfremur;
„Við megum heldur ekki gleyma
því að „óánægja með kerfið“ sem
leitar út fyrir almennt nöldur og
reynir að finna svör til lengri tíma
er vitaskuld ein forsenda þess að
vinstriflokkar eins og Alþýðu-
bandalagið eru til“. Það er stór-
undarlegt að greinarhöfundur
skuli taka þetta fram. Þetta segi
ég vegna þess að stuðningsmenn
Sigrúnar leituðu nefnilega út fyrir
almennt nöldur og þeirra svar var
að stíga stórt skref í átt að meira
lýðræði. Hvaða rök hefur grein-
arhöfundur fyrir því að þetta fólk
stígi ekki fleiri skref áfram í fram-
tíðinni og taki virkan þátt í þeirri
lýðræðisbylgju sem komin er af
stað?
Peir sem heima sátu
Hann talar um að Sigrún og
hennar menn séu í túlkunarher-
ferð til að reyna að sýna að þau
hafi unnið feikilegan sigur með
því að eigna sér atkvæði þeirra
sem heima sátu. Til samanburðar
tekur hann alla smáflokkafram-
bjóðendur í forsetakosningum í
Bandaríkjunum sem gætu eignað
sér þann helming allra kjósenda
sem situr heima fyrir í hverjum
kosningum. En nú er nú einu
sinni þannig í pottinn búið að þau
50% sem ekki taka þátt í
kosningaslagnum í Bandaríkjun-
um eru túlkuð þar í landi sem
mjög sterk tjáning um andúð
fólks á kerfinu. Ég vil einnig taka
fram að það eru ekki aðeins
stuðningsmenn Sigrúnar sem
túlka þessa litlu kjörsókn sem
andúð fólks á kerfinu heldur hef-
ur þessari kosningu verið líkt við
pólska kosningu en þar sýnir fólk
mjög greinilega andúð sína og sit-
ur heima fyrir.
Ruglingslegur
málflutningur
Greinarhöfundur talar um það
að málflutningur Sigrúnar hafi
verið vanhugsaður og þverstæðu-
fullur án þess að nefna nokkur
dæmi þar um. Ég þarf ekki að
lesa nema 2 blöð af Þjóðviljanum
til að sjá ruglingslegan málflutn-
ing. í greininni „klippt og skorið“
eru gerðar örvæntingarfullar til-
raunir til að útskýra fylgi Sigrún-
ar og gera lítið úr þessari nýju
lýðræðisbylgju sem komin er af
stað. Annað viðhorf var í leiðar-
anum daginn áður þar sem talað
var um að þetta fylgi væri Sigrún-
ar og Flokks mannsins. Sam-
kvæmt þessu ætti Flokkur manns-
ins að vera orðinn jafnstór Al-
þýðubandalaginu. Þetta hefur
verið eitthvað til að skjálfa yfir
því að daginn eftir keppast þeir
síðan við að útskýra að þeir sem
studdu Sigrúnu séu fjölmargir
hópar og sé lítið eftir handa
hverjum og einum. Þeir láta það
ekki nægja að gera lítið úr þess-
um hópum fólks (5.3% þjóðar-
innar) heldur segja þeir einnig að
allir sem séu á móti kerfinu ættu
að kjósa Alþýðubandalagið.
Hvernig getur þetta verið annað
en ruglingslegur og óttablandinn
málflutningur?
Alþýðubandalagið kennir sig
við umbreytingar á þjóðfélaginu
og baráttu gegn kerfinu en hins
vegar taka þeir eindregið afstöðu
með þeim frambjóðanda sem
hefur lýst því yfir opinberlega að
hún muni styðja kerfið dyggilega!
Það er hins vegar ekki nóg að
vera á móti kjaraskerðingu í orði
en styðja síðan þann frambjóð-
anda sem styður kjaraskerðingu í
reynd. Þessi málflutningur Þjóð-
viljans er ekki aðeins ruglings-
legur og þverstæðukenndur held-
ur ber þetta vott um tvöfalt sið-
gæði og vanvirðu við þá félaga
Alþýðubandalagsins og lesendur
Þjóðviljans sem eru einlægir bar-
áttumenn fyrir okkar kjör, fólks-
ins í landinu.
Alþýðubandalagið
eða Flokkur mannsins
Alþýðubandalagið er búið að
koma sér í sjálfheldu. Hann er
nefnilega ekki lengur verkalýðs-
flokkur. Alþýðubandalagsmenn
eru greinilega skíthræddir við að
missa allt sitt fylgi og traust hjá
verkalýðnum. Ástæðan er sú að
nú er kominn raunverulegur
málsvari sem er Flokkur manns-
ins sem hikar ekki við að ráðast
gegn kerfinu og gera það sem
gera þarf. Það sem er ánægjulegt
við þessa grein hins vegar er það
að nú er Flokkur mannsins viður-
kenndur sem pólitískt afl í
þjóðfélaginu og farið að bera
hann saman við Samtök frjáls-
lyndra, Bandalag jafnaðar-
manna, Borgaraflokkinn og
Kvennalistann. Þetta er ánægju-
leg tilbreyting frá því sem áður
hefur ríkt um flokkinn og þeirri
þrákelkni að halda að Flokkur
mannsins sé aðeins sápukúlufyr-
irbrigði í pólitíkinni. Öll þessi
skrif sýna þann mikla ótta sem
hefur gripið um sig í Alþýðu-
bandalaginu um að hann muni
hverfa og að fylgi hans muni
renna til Flokks mannsins sem er
betri flokkur og raunverulega á
móti kerfinu.
Þrátt fyrir að kjósendur hafi
vitað af því að Sigrún Þor-
steinsdóttir væri í vitorði með
Flokki mannsins hefur það sýnt
sig að 5.3% þjóðarinnar setur
það ekki fyrir sig að tengjast
Flokki mannsins beint eða
óbeint.
Friðrik Guðmundsson
málmiðnaðarmaður.
10 SfÐA - ÞJÓDVILJINN Mlðvikudagur 20. júlí 1988