Þjóðviljinn - 20.07.1988, Blaðsíða 16
—SPURNINGIPF™
Ætlar þú aö sjá norsku
myndina Leiðsögu-
manninn?
Guðný Hannesdóttir,
húsmóðir:
Ég hef nú ekki tekið ákvörðun um
það ennþá en ég hef áhuga á því,
sérstaklega til að sjá hvernig
Helga Skúlasyni tekst til.
Jóhanna Guðlaugsdóttir,
hjúkrunarfræðingur:
Já það getur vel verið, ég held að
þetta sé skemmtileg landslags-
mynd.
Sveinn Jóhannsson,
opinber starfsmaður:
Já alveg örugglega. Efnið er
spennandi og svo verður líka
gaman aö sjá hvernig Helgi fer
með hlutverk sitt.
Björn Karlsson,
sviðsstjóri:
Ég er búinn að sjá hana og líkaði
vel. Þetta er falíeg og vel tekin
mynd og Helgi stendur sig mjög
vel. Ég mæli eindregið með
henni.
/
P
' GAL^
%
Skemmtun
“ ÁN
ÁFENGIS gg
Z-
%
%
o
þlÓÐVIUINN
Miðvikudagur 20. júlí 1988 163. tðlublað 53. árgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
Á LAUGARDÖGUM
681663
Hjálmar Helgason: Héðinsvöllur er ákaflega óhrjálegt útivistarsvæði
eins og hann lítur út í dag enda nota íbúar nágrennisins hann ekkert
nema undir bíla sína yfir nóttina. Mynd Ari.
Leikvellir
Frakkland
Mynd frá því um 1950 þar sem sjá má að völlurinn má muna fífil sTnn
fegri.
Líklega myndi Héðni bregða í hann kenndur og var áður fyrr
brún ef hann gæti litið um öxl og fullur af lífi og litskrúðugum
séð hversu dapurlegt er um að leiktækjum.
litast á leikvellinum sem er við iþ
Héðinsvöllur
í niðumíðslu
Engar framkvœmdir síðan ífyrrasumar
en áœtlað að eitthvað verði gert nú ísumar.
Hjálmar Helgason: Loforð um úrbœtur alltaf
svikin
„Nei, sko, gang-
andi gjakleyrir!“
- Mér finnst það til skammar
hve lengi það hefur dregist að lag-
færa þennan leikvöll og Héðni er
lítill sómi sýndur að standa í
svona umhverfi árum saman,
sagði Hjálmar Helgason einn íbúi
við Hofsvallagötuna.
Á horninu á Hringbraut og
Hofsvallagötu er leikvöllur sem
gerður var fyrir um 50 árum eða
um sama leyti og fyrstu verka-
mannabústaðirnir voru reistir á
sömu slóðum. Um 1950 lét Bygg-
ingarfélag alþýðu reisa styttu af
Héðni Valdimarssyni fyrir fram-
an völlinn og hefur hann síðan
verið kallaður Héðinsvöllur.
í fyrrasumar var hafist handa á
vegum borgarinnar við að lag-
færa leikvöllinn og var steyptur
nýr veggur umhverfis hann, en
síðan ekki söguna meir. Hjálmar
sagðist hafa spurst fyrir um hve-
nær framkvæmdum yrði haldið
áfram og voru svörin þau að þær
ættu að hefjast strax í vor. Ekkert
bólar hins vegar á þeim.
Einar Bjarnason hjá Borgar-
verkfræðingi sagði að íbúar í ná-
grenni leikvallarins hefðu mikið
hringt í sumar og kvartað yfir
seinagangi þessa máls en nú er
nýbúið að samþykkja útboð á
framkvæmdum við leikvöllinn
þannig að þær ættu að geta hafist
innan tíðar.
- Hér á árunum áður var þetta
fallegur leikvöllur og mikið sótt-
ur af börnunum úr nágrenninu en
núna er hann allur í niðurníðslu
og alveg ónothæfur enda sjást hér
ekki lengur börn að leik, sagði
Hjálmar.
Frakkar verða að gjöra svo ve!
og tileinka sér blíðari framkomu í
garð erlendra ferðamanna. Það
er ekkert sem heitir!
Það er sjálfur túristaráðherra
Mitterrands og Rocards, Olivier
Stirn, sem snuprar landa sína
með þessum hætti. Honum
blöskrar hve „óvinsælt" Frakk-
land er orðið meðal ferðamanna.
Áður var það óskaland hvers
ferðalangs en nú hafa Ítalía og
Spánn skotið því ref fyrir rass.
„Við megum ekki koma fram
við ferðamenn einsog þeir séu
haldnir limafallssýki eða hunda-
æði,“ segir Stirn festulega. „Öðru
nær. f hvert sinn er Fransmaður
kemur auga á mann sem hann
hefur grunaðan um að vera túristi
þá ber honum að hugsa sem svo:
„Nei, hvað er að sjá! Gangandi
gjaldeyrir! Atvinnutækifæri á
tveim fótum!““ Reuter/-ks.