Þjóðviljinn - 21.07.1988, Qupperneq 14
I DAGi
Æskan
Barna- og unglingabóka-
flóran var ekki sérlega fjölsk-
rúöug þegar ég var aö alast
upp, miðað viö þaö sem hún er
oröin nú. Þó man ég eftir fá-
einum bókum sem mér áskotn-
uðust og þótti fjársjóður. Þessi
kver voru yfirleitt ekki í bandi og
uröu því ekki ýkja langlíf nema í
minningunni. Ég man eftir
tveimur barna- og ungiinga-
blöðum sem ég sá þó ekki aö
staðaldri. Annað hét Unaa ís-
land, hitt Æskan. Unga Islandið
mun fyrir löngu hætt að koma
út, að því er ég best veit. En
Æskan erenn í fullu fjöri og
meira en það, þótt hún sé að
nálgast níræðisaldurinn. „Hér
kvaddi lífið sér dyra og nú er
það farið", sagði Jón prófessor
Helgason. Hvaðætli þau séu
mörg orðin, blöðin og tímaritin
hér á landi sem kvatt hafa dyra
á æviskeiði Æskunnar en eru
nú farin? En Æskan lifir enn
góðu lífi og eflist raunaralltaf
með aldrinum. Aldur hennar
sýnir að hún hefur ávallt átt
brýnt erindi við æskufólk og
áreiðanlega ekki síður nú um
stundirenáður.
Meðan rúmbetra var hér í
blaðinu hafði ég oft þann hátt-
inn á að geta Æskunnar lítillega
um leið og nýtt tölublað kom út.
Nú er það liðin tíð og vonandi
geldurÆskan þess í engu. Hér
skal nú aðeins drepið á efni
þesstölublaðssem mérbarst
síðast í hendur, enda má segja
að í meginatriðum sé það þver-
skurður af þeim tölublöðum
sem út hafa komið að undan-
förnu.
í grófum dráttum má skipta
efninu ífjóra þætti. Eru það þá
fyrst viðtöl og greinar. „T ak-
markið á Olymípuleikunum er
verðlaunasæti og heimsmet"
nefnist viðtal við Hauk Gunn-
arsson, frjálsíþróttamann. Þá er
viðtal við Jónas Óskarsson
sundmann, „íþróttaiðkun er
okkurafarmikilvæg". Þáerogí
poppþættinum viðtal við Björk
„sykurmola" Guðmundsdóttur.
ígreininni „Margskonar pabb-
ar“ segirfrá ýmsum feðrum í
dýraríkinu. Svo koma sögurnar.
Höfundar þeirra eru: Rán Arn-
heiðardóttir 15 ára, Iðunn
Steinsdóttir, Guðbergur Aðal-
steinsson, Sigríður Vigdís
Jónsdóttir8ára, HelgaGunn-
arsdóttir 12 ára, Sigvaldi Ingi-
mundarson og svo náttúrlega
Hakon Aasnes með Bjössa
Bollu. Þáeru þaðföstu þætti-
rnir: Popp-, Vísinda-, Skáta-
þættirnir og Æskupósturinn.
Sveinn Björnsson skrifar um
íþróttirog Helgi Seljan „Um-
ferðasögu frá löngu liðinni tíð“.
Og svo svarar Ragnhildur Gísl-
adóttirspurningum aðdáenda.
Undir „Ýmislegt" má svoflokka
Ijósmyndasamkeppni, teikni-
myndasögu, myndagetraun,
spurningaieiki, bréffrá lesend-
um ofl. í sem stystu máli: Æsk-
an erfræðandi, skemmtandi og
ákaflega vel og smekklega úr
garði gerð á alla lund. - mhg.
ídag
er 21. júlí, fimmtudagur ífjórt-
ándu viku sumars. Aukanætur,
önnuraf fjórum milli sólmánaðar
og heyanna. 203. dagurársins.
Sól kemur upp i Reykjavík kl.
3.59 en sest kl. 23.06. Tungl vax-
andiáfyrstakvartiii.
Viðburðir
Dáinn Sigurður Breiðfjörð 1846.
Neil Armstrong stígur fyrstur
mannafætiátunglið1969. Þjóð-
hátíðardagurBelga.
UM ÚTVARP & SJÓNVARP^f
Dýralíf í Afríku
Sjónvarp kl. 20.35. löglegar veiöar tillitslausra
Líklega vita flestir að megin- manna og búsetusókn inn á þau
hluti Afríku er háslétta. Meira en landsvæði sem áður voru örugg
helmingur álfunnar, eða um 60% heimkynni dýranna, en þau eru
liggur í meira en 370 m hæð yfir einkum hálöndin, skógarnir og
sjó. Hið villta dýralíf Afríku er savannar. í kvöld sýnir Sjónvarp-
ákaflega fjölbreytt. Sumar teg- ið breska náttúrulífsmynd um
undir eru þó í útrýmingarhættu lífshætti nokkurra afrískra-dýra-
og kemur einkum tvennt til: Ó- tegunda af drekakyni. - mhg.
Svall í Singapore
Stöð 2, kl. 22.00.
Myndin gerist í Singapore árið
1971. Bandaríkjamaður nokkur
Jack að nafni, líklega heldur ópr-
úttinn braskari svo sem stundum
vill verða með athafnamenn af
þeirri gerð, hefur náð einhverj-
um viðskiptatengslum við kín-
verskan verksmiðjueiganda.
Jack karlinum sem er fremur frá-
bitinn því að lifa nokkru sultar-
lífi, þykir viðskiptin við þann kín-
verska gefa heldur lítið í aðra
hönd. Til þess nú að komast bet-
ur af hugkvæmist honum að
stofna vændishús. Og það skyldi
ekki vera nein ruslakompa held-
ur hið fínasta sinnar tegundar á
gjörvallri jarðkringlunni. En öfu-
ndsýkin er alltaf söm við sig og
þegar undirheimalýðurinn sér
hvað þessi „atvinnurekstur“
gengur glimrandi, kostar hann
alls kapps um að koma Jack ves-
alingnum á kaldan klaka. Vænd-
ishúsið er rústað og eigandanum
misþyrmt. En Jack lætur hvergi
deigan síga og hefst handa á ný
við starfsemi, sem kannski er
ekki í sem fyllstu samræmi við lög
og reglur.
- mhg.
Tónlistarkvöld
Rás 1, kl. 20.15 og 23.00.
Einn liðurinn á Listahátíðinni
voru pólskir tónleikar sem fram
fóru í Háskólabíói 5. júní sl. Þeim
verður nú útvarpað í kvöld. Flyt-
jendur eru: Fflharmóníusveitin í
Poznan og Fflharmóníukórinn í
Varsjá, Barbara Zagorzanka
sópran, Jadwiga Rappé messó-
sópran, Andrzej Hiolski bariton
og píanóleikarinn Pjotr Palecsny.
Stjórnandi: Wojciech Michniew-
ski. Á efnisskránni eru: a)
„Choralis“ eftir Jón Nordal, b)
Píanókonsert nr. 1 eftir Fréderic
Chopin, c) Pólónesa op. 53 í As-
dúr eftir Fréderic Chopin, d)
„Stabat Mater“ eftir Carol Szym-
anowski. Kynnir er Ásgeir Guð-
jónsson.
En meira er í pokahorninu því
að í Tónlist á síðkvöldi kl. 23.00
fáum við að heyra: a) Fiðlukons-
ert eftir Leif Þórarinsson, Einar
G. Sveinbjörnsson leikur með
Sinfóníuhljómsveit íslands, Kar-
sten Andersen stjórnar, b)
„Hjakk“ hljómsveitarverk eftir
Atla Heimi Sveinsson. Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur, Paul
Zukofsky stjórnar, c) „Galdra-
Loftur“ hljómsveitarverk eftir
Áskel Másson. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur, Páll P. Páls-
son stjórnar, d) „Canto eligiaco"
fyrir selló og hljómsveit eftir Jón
Nordal. Einar Vigfússon leikur
með Sinfóníuhljómsveit íslands.
Bogdan Wodiczko stjórnar.
- mhg.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Hvert á að fara?
Vonandi ekki í útilegu eins og
Það er ekkert gaman aö liggja
í svefnpoka á grýttum bala,
kaldur og stirður;
suðandi moskítóflugur, ekkert
sjónvarp og eintómur
dósamatur.
Hleypið mér
bara út hérna
og ég puttast
heim.
Svo sjáumst við
eftir fríið, ha?
FOLDA
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. júlí 1988
\