Þjóðviljinn - 16.08.1988, Page 2
_____________FRÉTTIR___
Flugmál
„NATO-varaflugvöllur
ónauðsynlegur“
Pétur Einarsson, flugmálastjóri: íslenskir flugvellir fullnœgja þörfinni
r
Iumræðu þeirri sem verið hefur
um væntanlega „varaflugvöll“
hefur Pétur Einarsson, flugmála-
stjóri bent á að þeir varaflugvellir
sem nauðsynlegir eru fyrir allt al-
mennt flug innanlands og milli-
landa, miðað við núverandi þarf-
ir og fyrirhuguð flugvélakaup ís-
lenskra flugfélaga séu þegar fyrir
hendi eða verði það nú á næst-
unni.
Talið er nauðsynlegt að varafl-
ugvellirnir séu a.m.k. 2000 metra
langir og fullnægja Akureyrarflu-
gvöllur og Sauðárkróksvöllur
þeim skilyrðum þegar í dag, unn-
ið er að lengingu Egilstaðaflu-
gvallar í 2000 metra og Húsavík-
urflugvöllur er í 1500 metra. „Það
er ýmist búið að fullnægja eða er
verið að fullnægja þörfinni fyrir
íslenska varaflugvelli. Reyndar
er Flugmálastjórn íslenskum at-
vinnuflugmönnum sammála um
kosti þess að Egilsstaðavöllur
yrði hafður 2400 metra langur.
Hvað byggingu 3000 metra flu-
gvallar varðar, sem NATÓ tæki
þátt í, þá er það alfarið pólitísk
ákvörðun á vegum stjórnvalda. í
þeirri skýrslu sem hópur sérfræð-
inga vann á vegum Flugmálast-
jórnar og skilaði til samgöngu-
ráðherra er engin afstaða tekin til
hugsanlegs NATÓ-vallar, heldur
er þetta eingöngu hlutlaus staðr-
eyndaupptalning," sagði Pétur
Einarsson.
-PHH
Loðna
Vertíðin
hafin
Hólmaborgin S U
landar 1200 tonnum í
heimahöfn í dag
Fyrsta loðnufarminum á þess-
ari loðnuvertíð verður Iandað í
dag á Eskiflrði þegar Hólmaborg-
in SU kemur inn til heimahafnar
með 1200 tonn af stórri og feitri
loðnu sem skipið fékk á loðnum-
iðunum út við miðlínu á milli
Grænlands og íslands.
Að sögn Aðalsteins Jónssonar
útgerðarmanns á Eskifirði ber
Hólmaborgin um 1400 tonn af
loðnu en varð frá að hverfa vegna
bilunar áður en skipið gat fyllt
sig. Aðalsteinn sagði að loðnan
þarna úti væri dreifð og stæði
frekar djúpt. Um miðja vikuna
fer Jón Kjartansson SU á miðin
og um næstu helgi er búist við að
Börkur NK verði tilbúinn í
slaginn. -grh
Flugumferð
Ferðamennska
háð hemum
Islensk flugmálayflrvöld hafa
löngum notfært sér ratsjár-
stöðvar í eigu NATÓ til að stjórna
flugumferð um og yfir landið.
Eftir því sem ratsjárstöðvum sem
teknar verða í notkun fjölgar, er
það ætlun íslenskra stjórnvalda
og flugmálayfirvalda að efla eftir-
lit og stjórnun í íslenskri lofthelgi
og á flugumsjónarsvæði því sem
íslenskum flugmáiayfirvöldum er
úthlutað með aðstoð þessara nýju
stöðva. Pétur Einarson flugmála-
stjóri sagði í viðtali við Þjóðvilj-
ann að miðað við þá auknu
flugumferð sem hér hefur orðið, í
sumar fóru um 400 flugvélar yfir
á dag, gætu íslensk flugmálayfir-
völd ekki annað umferðinni án
r atsj árstöð vanna.
Það væri að vísu hægt að stýra
flugumferð án ratsjárstöðvar, en
það væri ekki nútímatækni.
„Þetta er hliðstætt því að jafnvel
þó menn hefðu ekki bfla, að þá
komast þeir leiðar sinnar á
reiðhjólum. „Ratsjárstöðvarnar
þýddu aukið öryggi og að hægt
væri að anna fleiri vélum á sama
tíma. Það eru geysimiklir fjár-
munir fólgnir í þessum ratsjár-
stöðvum, það er alla vega það
dýrt að við höfum ekki hugsað út i
í það að byggja svona stöðvar
sjálfir,“ sagði Pétur.
Þessi orð flugmálastjóra þýða
einfaldlega að öll framtíðar-
aukning í farþegaflugi sem og
öðru flugi hingað til lands, er háð
áframhaldandi veru bandaríska
hersins hér á landi. Án ratsjár-
stöðva bandaríska hersins er t.d.
sú mikla aukning í ferðamanna-
iðnaði sem ýmsa hefur dreymt
um, ómöguleg. Nema að ferða-
menn yrðu fluttir hingað sjó-
leiðina.
Meðan að íslensk stjórnvöld og
flugmálayfirvöld hafa ekki gert
aðrar ráðstafanir til að tryggja
þennan þátt flugsamgangna við
landið, verður að álykta með
hliðsjón af yfirlýsingum um
nauðsyn uppbyggingar ferðam-
annaiðanaðar og flugsamgangna
almennt til og frá landinu, að
sömu yfirvöld gangi út frá því sem
vísu að bandarískur her verði hér
til staðar um ókomna framtíð til
að veita þessa þjónustu. phh
< Q sterkir skákmenn teflanúumheiðurstitilinn„Skákmeistariíslands“,þar£ __________ ______
I £ meistarar. Keppnin fer fram í Hafnarborg í Hafnarfirði og hófst í tyrradag. Til mikils er að vinna pví auk
nafnbótarinnar góðu hreppir sigurvegarinn 130.000 krónur. Sá sem lendir í öðru sæti fær 90.000 krónur í sárabætur.
Jafnvel þriðja sætið er feitur biti eða ígildi 50.000 króna.
Tveim umferðum er lokið. Úrslit fyrstu umferðar, sem tefld var á sunnudaginn, urðu þau að Hannes Hlífar Stefánsson
lagði Ágúst Karlsson að velli, Jón L. Árnason bar hærra hlut úr viðureign þeirra Róberts Harðarsonar, Þröstur
Þórhallsson sigraði Þráin Vigfússon, Karl Þorsteins kom Ásgeiri Þór Árnasyni á kné og Margeir Pétursson bar Benedikt
Jónasson ofurliði. Vinningi deildu með sér Jóhannes Ágústsson og Davíð Ólafsson.
önnur umferð var tefld í gærkveldi. Þá rúllaði Hannes Þráni upp, Róbert bar sigurorð af Ásgeiri og Jón L. gaf Jóhannesi
engin grið. Um jafntefli sömdu Davíð og Þröstur, Benedikt og Karl Þorsteins. Skák Margeirs og Ágústar var ólokið þegar
blaðið fór í prentun í nótt en að sögn sjónarvotta var staðan jafnteflisleg þótt stórmeistarinn hefði peði meira í endatafli.
Eftir tvær umferðir er staðan þessi: q .7 Qavf5 og Róbert 1 v.
1.-2. Jón L. og Hannes: 2 v. s!-9! Jóhannes og Benedikt 0,5 v.
3.-4. Þröstur og Karl: 1,5 v. 10. Ágúst 0 v. (a.m.k.l)
5. Margeir 1 v. (a.m.k.) 11.-12. Ásgeir og Þráinn 0 v.
Fjalakattarlóðin
Atvinnuleysi
Minna -
samtmeira
Skráðir atvinnuleysisdagar
voru nokkru færri í síðasta mán-
uði en í næstliðnum mánuði og
hafa þeir reyndar ekki verið
skráðir færri það sem liðið er af
árinu. Hinsvegar voru atvinnu-
leysisdagarnir f júli ríflega 2000
fleiri en á sama tíma í fyrra og
hefur hlutfallslegt atvinnuleysi
því aukist um 0,1%
Alls voru skráðir atvinnu-
leysisdagar í júli sl. 11.275, sem
svarar til þess að 520 manns hafi
að meðaltali mælt göturnar í
mánuðinum, eða um 0,4% af
áætluðum mannfjölda á vinnu-
markaði. Sú huggun er þó harmi
gegn að atvinnuleysisdagarnir
voru ríflega 1000 færri í júli en í
júní.
Atvinnuleysisdögum fjölgaði
þó lítillega í júlí frá næsta mánuði
á undan á Vestfjörðum, Suður-
landi og Suðurnesjum. -rk
Landnýtingin orðin marklaus
Ákvœði Kvosarskipulagsins um landnýtingu ígamla miðbœnum ekki gild lengur.
Forstöðumaður Borgarskipulags með yfirlýsingar ínafni borgaryfirvalda.
Tillaga um ógildingu byggingarleyfis felld í byggingarnefnd
Fulltrúar Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks í byggingar-
nefnd Reykjavíkur lögðu til á
fundi nefndarinnar í síðustu viku
að byggingaleyfi fyrir fram-
kvæmdum á Ióð gamla Fjala-
kattarsins við Aðalstræti 8 yrði
fellt úr gildi.
Fyrr í sumar kærðu íbúar
Grjótaþorps til félagsmálaráð-
herra veitingu byggingarleyfisins
þar sem fyrirhuguð bygging á lóð-
inni væri hvorki í samræmi við
staðfest deiliskipulag Kvosarinn-
ar né ákvæði reglugerða um fjar-
lægðir milli húsa. Ráðherra hefur
vísað kærunni til umsagnar bygg-
ingarnefndar borgarinnar og
Skipulagsstjórnar ríkisins.
í tillögu þeirra Gissurar
Símonarsonar og Gunnars H.
Gunnarssonar á fundi bygging-
arnefndar benda þeir m.a. á að
útgefið byggingaleyfi fyrir Aðal-
stræti 8 sé í hróplegu ósamræmi
við þá landnýtingu sem Kvosar-
skipulagið gerir ráð fyrir. Land-
nýtingin gerir ráð fyrir að íbúðir
séu á 4. og 5. hæð forhússins og á
öllum hæðum bakhússins sem
snýr upp að Bröttugötu. Nú er
hins vegar aðeins gert ráð fyrir
einni húsvarðaríbúð í öllu hús-
ínu.
- Það nýjasta og alvarlegasta
sem skeð hefur í þessum landnýt-
ingarmálum er svo bréf Þorvald-
ar S. Þorvaldssonar, forstöðu-
manns Borgarskipulags Reykja-
víkur til Skipulagsstjórnar ríkis-
ins 21. júlí sl. þar sem hann held-
ur því fram í nafni „...borgaryfir-
valda...“ að einungis hafi verið
farið fram á staðfestingu á land-
notkun Kvosarinnar í heild en
ekki á landnotkun einstakra
húsa! Á þá túlkun er engan veg-
inn unnt að fallast, enda veiga-
mikill þáttur í Kvosarskipulaginu
þar með hruninn, segir í greinar-
gerð þeirra Gissurar og Gunnars.
Þeir spyrja einnig hvernig Þor-
valdur geti skrifað bréf í nafni
borgaryfirvalda þar sem þessi
túlkun hans hafi ekki verið tekin
fyrir í þar til kjörnum nefndum og
ráðum borgarinnar og benda á að
verði byggingarleyfið ekki fellt úr
gildi standi lítið eftir af Kvosar-
skipulaginu að undangengnu
Ráðhússævintýrinu.
Tillaga þeirra Gissurar og
Gunnars var felld af Sjálfstæðis-
mönnum sem samþykktu um-
sögn til ráðherra þar sem segir að
að engin rök hnígi að því að bygg-
ingarleyfið fyrir Aðalstræti 8
brjóti gegn lögum, reglugerðum
eða skipulagi.
-•g
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 16. ágúst 1988