Þjóðviljinn - 16.08.1988, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.08.1988, Qupperneq 10
ÍÞRÓTTIR 1. deild Oruggur Valssigur í leioinlegum leik Slakir Völsungar sluppu með aðeins tveggja marka tap, 3-1 Valsmenn áttu ekki i nokkrum vandræðum með slaka Völsunga sem heimsóttu þá á Hiíðarenda á sunnudag. Sigurinn var aldrei í hættu og hefði með réttu átt að verða miklu stærri. Valsmenn voru með boltann um 80% leiksins og skoruðu meira að segja tvisvar í fyrri hálfleik, en leiknum lauk með aðeins tveggja marka sigri heimamanna, 3-1. Strax í upphafi leiks var ljóst hvert stefndi. Valsmenn léku mjög yfirvegaðan bolta en Völs- ungar fengu lítið ráðrúm til að athafna sig. Fyrsta markið kom síðan á 10. mínútu en það er framur sjaldgæft að Vals- mönnum takist að skora svona snemma. Þá áttu þeir laglega sókn upp vinstri kant sem endaði á því að Valur Valsson gaf fyrir markið á Sigurjón Kristjánsson sem skoraði örugglega framhjá Þorfinni Hjaltasyni í markinu. Hliöarendi, 14. ágúst 1988 Valur-Völsungur...........3-1 (2-0) 1- OSigurjónKristjánsson....10.mfn. 2- OSigurjónKristjánsson....37.mfn. 3- OTryggviGunnarsson.......54.mfn. 3-1 Ásmundur Arnarsson.......85.mfn. Llð Vals: Guömundur Baidursson, Þor- grímur Þráinsson (Tryggvi Gunnarsson 46.), Sigurjón Kristjánsson, Magni Blöndal Pétursson (Einar Páll Tómasson 61.), Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Guð- mundur Baldursson. Lið Völsungs: Þorfinnur Hjaltason, Helgi Helgason, Skarphóðinn (varsson, Sveinn Freysson, Eiríkur Björgvinsson, Theodór Jóhannsson, Grétar Jónasson, Guðmund- ur Guðmundsson (Björn Olgeirsson 41.), Stefán Viðarsson (Ásmundur Arnarson 61.), Jónas Hallgrímsson, Snævar Hreins- son. Dómari: Þorvarður Björnsson. Maður leiksins: Sigurjón Kristjánsson, Val. Valsmenn sóttu áfram án afláts og mátti reikna með 5-6 marka sigri þeirra miðað við gang leiksins. Þeir náðu þó ekki að binda endahnútinn á sóknarlotur sínar fyrr á 37. mínútu að Sigur- jón skoraði öðru sinni. Þá urðu einhver varnarmistök í vörn Völsunga og Þorfinnur náði ekki boltanum þegar misskilningur varð á milli hans og varnarinnar. Það gerði hins vegar Sigurjón Kristjánsson og skoraði úr erfiðri aðstöðu í tómt markið. 2-0 og ekki vottur af spennu á Hlíðar- enda. Síðari hálfleikur hófst sem eðlilegt framhald af þeim fyrri og skoruðu Valsmenn þriðja mark sitt á 54. mínútu. Þá komst Sigur- jón inn fyrir vörn Völsunga og skaut föstu skoti að marki þannig að Þorfinnur missti boltann langt frá sér. Tryggvi Gunnarsson refs- aði honum illilega fyrir það og afgreiddi boltann örugglega í net- ið. Það var reyndar sterk rang- stöðulykt af markinu því Sigur- jón virtist rangstæður þegar hann fékk boltann inn fyrir vörnina. Um 15 mínútum síðar skoraði Sigurjón síðan sitt þriðja mark en þá var hann dæmdur rangstæður enda þótt áhorfendur væru ekki á sama máli og Geir Þorsteinsson línuvörður. Utkoman varð því sú að Tryggvi skoraði mark í stað þess að Sigurjón næði að skora „hat-trick“. Það sem eftir lifði leiks var al- gjörlega baráttulaus leikur þar sem úrslitin voru ráðin. Vals- menn hefðu gjarnan getað bætt við mörkum en hægðu hins vegar ferðina vegna lítillar mótstöðu. Völsungar náðu síðan öllum á óvart að minnka muninn á 85. mínútu eftir slæm mistök Hilmars Sighvatssonar. Þá ætlaði hann að gefa boltann aftur á Guðmund Baldursson markvörð, en send- ingin var ónákvæm og Ásmundur Arnarson náði boltanum og lék í rólegheitum að markinu og skoraði. Litlu munaði að Ás- mundur næði að skora annað mark aðeins mínútu síðar en þá var hann skyndilega dauðafrír í vítateig Valsmanna en Guð- mundur varði skot hans vel. Einhver öruggasti sigur Vals- manna í sumar var þá að bryggju kominn og halda þeir því öðru sætinu í deildinni. Völsungar fær- ast hins vegar nær 2. deild með hverjum leik og þurfa miklar breytingar að verða á liðinu ætli þeim að takast að hanga uppi. -þóm 'yÁ“ ’ j 1 Sigurjón Kristjánsson átti góöan leik gegn Völsungi og skoraði tvö marka Vals í leiknum. Frjálsar Landsliðið til Luxemborg íslenska karlalandsliðið í frjálsum íþróttum heldur til Lux- emborgar til að taka þátt í keppni 3.-4. september. Auk íslendinga taka landslið Luxemborgar, lið frá Lorraine í Frakklandi og lið frá Romagna á Ítalíu þátt í keppn- inni. Luxemborgarar komu ein- mitt með lið sitt hingað í fyrra og sigruðu íslendingar þá með 109 stigum gegn 92, en búist er við jafnari keppni nú vegna þess að lið Luxemborgar er mun sterkara nú. íslenska liðið hefur verið valið og er hópurinn skipaður eftir- töldum: Jón Arnar Magnússon 100m, 200m, 4x100m, langst. Jóhann Jóhannsson.....100m,4x100m Oddur Sigurðsson 200m, 400m, 4x400m GunnarGuðmundsson.....400m,4x400m Hannes Hrafnkelsson...800m, 1500m Steinn Jóhannsson.............800m Bessi Jóhannesson............1500m Frímann Hreinsson............5000m MárHermannsson...............5000m DanfelS. Guðmundsson......3000m h. Jóhann Ingibergsson, 3000m h. Hjörtur Gíslason, I10mg., 400m g., 4x1 OOm, 4x400m Stefán Þór Stefánsson 110m g., 4x1 OOm Egill Eiðsson .......400m g., 4x400m ÓlafurGuðmundsson............langst. GunnlaugurGrettisson...........hást. UnnarVilhjálmsson..............hást. Ólafur Þórarinsson............þríst. FriðrikÞórÓskarsson...........þrist. SigurðurT.Sigurðsson......stangarst. Kristján Gissurarson......stangarst. PéturGuðmundsson ...........kúluvarp Vésteinn Hafsteinsson.....kúla, kringla EggertBogason................kringla GuðmundurKarlsson ...........sleggja JónSigurjónsson..............sleggja EinarVilhjálmsson..............spjót SigurðurEinarsson..............spjót -þóm 4. deild Skotfélag, Hveragerði og Bl í úrslit Kormákur hefurþegar tryggtsér sigur íD-riðli. Austri og Leiknir jöfn fyrir lokaumferðina A-riðill Ernir-Skotfélag...........2-9 Ernimir áttu aldrei möguleika í leiknum enda ekkert í húfi fyrir þá. Skotfélagið vann hins vegar riðilinn með þessum auðvelda sigri í sólskininu á grasinu á Sel- fossi á laugardaginn. Snorri Már Skúlason skoraði 3, Magnús Magnússon 2, og þeir Guðmund- ur Helgason, Hrafn Loftsson, Jens Ormslev og Örn 1 mark hver. Ægir-Snæfell..............1-2 Snæfell var eina liðið sem átti möguleika í riðlinum utan Skot- félagsins en þá urðu byssumenn- irnir líka að tapa sínum leik. Rafn Rafnsson og Gunnar Ragnarsson skoruðu fyrir Snæfell en Sveinbjörn Ásgrímsson fyrir heimamenn sem enduðu í neðsta sæti riðilsins. Árvakur-Haukar............6-2 Haukar misstu markatölu sína í mínus við þetta tap en þeir hafa haldið þokkalegri markatölu í sumar. Ólafur H. Ólafsson skoraði 3, Árni Guðmundsson 2 og Guðmundur Jóhannsson 1 fyrir Árvakur en Björn Svavars- son og Valdimar Sveinbjörnsson fyrir Hauka. Lokastaða Skotfélag........ 12 10 0 2 35-20 30 Snæfell .........12 9 0 3 36-17 27 Augnablik.......12 8 1 3 42-29 25 Árvakur......... 12 8 0 4 46-29 24 Haukar...........12 2 2 8 35-39 8 Ernir........... 12 0 5 7 20-46 5 Ægir............ 12 0 2 10 18-52 2 B-riðill Fyrirtak-Hvatberar........0-7 Stórsigur Hvatbera í þessum leik tveggja misjafnra liða. Ólafur Sigmundsson og Þór Ómar Jónsson skoruðu 2 mörk hvor, og Gunnar I. Halldórsson, Hafþór Aðalsteinsson og Sig- tryggur Pétursson skoruðu 1 hver. Skallagrímur-Hafnir......2-0 Skallagrímur sigraði Hafnir sem hafa Ieikið ágætlega að und- anförnu og skoruðu Guðlaugur Þórðarson og Valdimar Hall- dórsson mörk leiksins. Víkingur Ól.-Ármann......2-0 Ármenningar skutust í fyrsta sætið með þessum sigri, en aðeins í einn dag, þar til Hveragerði lék við Létti. Ármann ætlar sér reyndar að komast í úrslitin og hafa þeir í hyggju að kæra Hver- gerðinga fyrir að nota ólöglegan leikmann. Gústaf Alfreðsson og Ingólfur Daníelsson skoruðu fyrir Armenninga í leiknum á laugardaginn. Léttir-Hveragerði........0-4 Hveragerði tryggði sér sigur í riðlinum með auðveldum sigri á Létti og fara því í úrslitin nema þeir tapi fyrrnefndu kærumáli. Arnar Gestsson, Jóhannes Björnsson, Kristján Theodórs- son og Ólafur Vignisson skoruðu fyrir Hveragerði. Lokastaða Hveragerði......14 10 2 2 42-11 32 Ármann.......... 14 9 4 1 35-12 31 Hafnir...........14 7 3 4 26-17 24 Skallagrímur.... 14 7 1 6 19-19 22 VíkingurÓI...... 14 6 2 6 20-18 20 Hvatberar........14 5 2 7 21-28 17 Fyrirtak ........14 2 2 10 13-39 8 Léttir...........14 1 2 11 13-45 5 C-riðill Lokastaða Bl................6 6 0 0 46-3 18 Bolungarvík.........6 3 1 2 16-14 10 Geislinn ...........6 2 1 3 11-19 7 Höfrungur...........6 0 0 6 3-40 0 D-riðill Kormákur-Æskan.........2-1 Kormákur vann sig upp í 3. deild með þessum sigri því sigur- lið úr riðlinum fer beint upp í NA-riðil 3. deildar. Páll Leó Jónsson, þjálfari Kormáks, skoraði 1 mark og Grétar Egg- ertsson annað úr víti, en Bragi Egilsson skoraði mark Æskunnar. HSÞb-UMSEb..............1-1 HSÞ átti enn möguleika á sigri í riðlinum fyrir þennan leik en náði aðeins jafntefli við hitt „b-liðið“ í riðlinum. Þröstur Guðmundsson skoraði fyrir UMSE en Kristján Yngvason, glímukappi, fyrir Þingeyinga. Kristján þessi er að ljúka sínu síðasta ári með liðinu en hann hefur leikið með HSÞ í aldarfjórðung! íþr. Neisti-Efling......2-1 Neisti vann þarna Eflingu og skoraði Birgir Þórðarson bæði mörkin en Vilhjálmur Sigmunds- son skoraði fyrir Eflingu. Staðan Kormákur........11 7 2 2 19-12 23 HSÞb..............12 4 6 2 26-18 18 fþr. Neisti.......11 4 4 3 19-17 16 Æskan..............9 3 2 4 19-19 11 UMSEb .............8 2 3 3 11-14 9 Vaskur.............9 2 3 4 13-18 9 Efling ...........10 2 2 6 10-19 8 E-riðill Neisti D.-Leiknir F......1-5 Leiknir átti ekki í vandræðum með Neistann og eru jafnir Austra að stigum, en liðin mætast einmitt í síðustu umferðinni. Helgi Ingason skoraði 2 en 1 mark gerðu Ágúst Sigurðsson, Jón Hauksson og Þröstur fyrrum Víkverji og Framari en núver- andi sveitarstjóri Sigurðsson. Mark Neistans gerði Ómar Boga- son. Austri-KSH.................7-0 Enn auðveldara hjá Austra sem hefur talsvert betri marka- tölu en Leiknir, og nægir því jafn- tefli á Fáskrúðsfirði á miðviku- dag til að komast í 3. deild. Hjalti Einarsson og Sigurjón Kristjáns- son skoruðu 2 hvor, og Bergur Stefánsson, Hilmir Ásbjörnsson og Kristján Svavarsson skoruðu allir 1 mark. Staðan AustriE.............9 6 0 3 28-16 18 Leiknir F............9 5 3 1 16-8 18 ValurRf..............8 4 1 3 23-14 13 KSH..................9 3 2 4 20-25 11 Hötlur...............8 3 1 4 22-20 10 NeistiD..............9 1 1 7 10-36 4 Markahæstir 22 Sigurður Halldórsson, Augnablik 17 Ólafur Jósefsson, Hveragerði 15 Rafn Rafnsson, Snæfell 11 Guðmundur Jóhannsson, Árvakri 11 Gústaf Alfreðsson, Ármanni 11 Jón Þórir Þórisson, Skallagrími -þóm 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.