Þjóðviljinn - 18.08.1988, Qupperneq 9
VIÐEY
Viðey, perla Reykjavíkur.
Iðnaðarmenn að störfum við Viðeyjarstofu Mynd Ari
í allt sumar hafa fornleifagrafarar farið fyrir stórvirkum vinnuvélum með sköfur og skeiðar í leit að
ummerkjum liðinna tíma. Fyrir miðri mynd er Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur, sem stjómað
hefur uppgreftrinum í sumar. Mynd Ari
Kirkja og Stofa i notkun
Opnunarhátíðfyrir boðsgesti í dag á 202 ára afmœli
í dag verða Viðeyjarkirkja og
Viðeyjarstofa teknar í notkun á
ný með viðhöfn. Frá því borgin
fékk byggingarnar og meðfylgj-
andi Iand að gjöf frá ríkisstjórn
íslands á 200 ára afmælinu, hafa
farið fram miklar viðgerðir á
húsunum, og á 202 ára afmælis-
deginum er boðið til opnunarhát-
íðar í Viðey.
Hátíðin hefst með messu í Við-
eyjarkirkju, þar sem Pétur Sig-
urgeirsson biskup vígir nýtt fjög-
Reykjavíkurborgar
urra radda pípuorgel og blessar
þær viðgerðir er unnar hafa ver-
ið. Fyrsta almenna messan í Við-
ey verður 21. ágúst og síðdegis
sama dag verða þar orgeltón-
leikar.
Opnunarhátíð Stofunnar verð-
ur síðan á Viðeyjarhlaði og mun
Hjörleifur B. Kvaran, formaður
Viðeyjamefndar afhenda borg-
arstjóra mannvirkin. Um kvöldið
gefst almenningi tækifæri á að
fylgjast með hátíðinni í sjón-
varpi.
í Viðeyjarstofu verður veit-
ingarekstur og aðstaða til ráð-
stefnuhalds og verður opið þar
klukkan 14-18, frá mánudegi til
fimmtudags. Um helgar verður
opið til 23:30. Til að koma ekki
að luktum dyrum er betra að
kynna sér hvort lokað sé vegna
einkasamkvæma áður en haldið
er út í Viðey. Kirkjan er einnig
opin almenningi alla daga, nema
þegar verið er að gifta eða skíra.
-mj
Flmmtudagur 18. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9