Þjóðviljinn - 20.08.1988, Side 6
Heilsugæslustöð
á Húsavík
Tilboö óskast í byggingu heilsugæslustöðvar á
Húsavík, að fokheldu ástandi, frágang að utan og
jöfnun lóðar.
Húsið er tveggja hæða steypt hús og tengist við
sjúkrahúsið með fjögurra hæða lyftu- og stiga-
húsi. Grunnflötur heilsugæslustöðvarinnar er
645 m2, gólfflötur alls 1290 m2. Heildarrúmmál er
5,077 m3.
Verkinu í heild skal lokið fyrir 1. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, og hjá Tækniþjónustunni hf.
Garðarsbraut 18, Húsavík, 23.-26. ágúst 1988
gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík, þriðjudaginn 6. september 1988 kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, simi 26844
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða starfsfólk til bréfberastarfa í hálfs-
dagsstörf fyrir hádegi.
Upplýsingar á skrifstofu Póststofunnar, sími
687010. Póststofan í Reykjavík.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða starfsfólk til afgreiðsiustarfa hjá
póststofunni í Reykjavík.
Upplýsingar á skrifstofu Póststofunnar, sími
687010. Póststofan í Reykjavík.
w
'í|S>e
Flutningar
Óskað er tilboða í flutning áfengis, tóbaks og
iðnaðarvara fyrir Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins frá höfnum í Evrópu og Ameríku næstu 12
mánuði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða
tilboð þar opnuð föstudaginn 30. ágúst nk. kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7;PÓSTHÓLF 1450, 125 REYKJAVÍK.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Óskars Ólafssonar
frá Söðulsholti
Iðjumörk 1, Hveragerði
Kristín Þórðardóttir
Eyþór Ágústsson
Ólafur J. Óskarsson Adda Hermannsdóttir
Steinunn Óskarsdóttlr Helgi Ársælsson
Ingibjörg Óskarsdóttir Erlendur Ó. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabarn
VIÐHORF
Furöuleg vinnubrögð
Sigríður A ðalsteinsdóttir skrifar
„Starfsfólk hefur áhyggjur afvistmönnum sem beðið hafa eftir plássi á deildinni
ogfinnstfreklega að þeim vegið... Það eru eindregin tilmœli til stjórnar stofnunar-
innar að svona hlutir endurtaki sig ekki, deild 11 fái að halda starfsemi sinni áfram
ogstgrf hennar verðimetin að verðleikum“
Á rishæð Kleppsspítala starfar
deild 11, sem er endurhæfingar-
deild fyrir geðsjúka. Deildin er
að mörgu leyti sú eina sinnar teg-
undar hér á landi. Þegar talað er
um endurhæfingardeild þá er átt
við deild sem gerir sjúklinga hæf-
ari til að standa á eigin fótum og
geta séð um sig persónulega og
fjárhagslega. Deildinni hefur
verið stjórnað af öryggi og festu
og starfsfólk hefur unnið mark-
visst að eflingu þessa starfs. M.a.
hefur starfsfólk unnið í sjálfboða-
vinnu við fjáröflun í svokallaðan
deildarsjóð. Þessi sjóður hefur
verið notaður í þágu sjúklinga á
ýmsan hátt. Vinnan á deildinni,
endurhæfingin, er m.a. fólgin í
því að vistmenn sjá um ræstingu á
deildinni, aðstoð á matartímum
og að sjálfsögðu að sjá um sína
persónulegu hirðingu, þjónustu-
brögð og fjármál undir leiðsögn
starfsfólks.
Þegar sjúklingar hafa náð
tökum á innistörfum, fara þeir
gjarnan í svokallaðan útihóp þar
sem ýmiss störf eru unnin. Sem
dæmi má nefna bílaþvott, hellu-
steypu, kartöflurækt, smærri
verkefni og þjónustustörf fyrir
spítalann. Fyrir þessa vinnu fá
vistmenn nokkur laun sem ák-
vörðuð eru eftir mati verkstjóra á
hæfni hvers og eins. Umsögn um
hæfni og framfarir er gefin viku-
lega á morgunfundum. Eftir
vinnu eru gönguferðir og ýmsi-
legt annað er gert til að auka vir-
kni hvers einstaklings. Segja má
að starfið sé í aðalatriðum barátta
gegn óvirkni.
Tvö undanfarin sumur hefur
deildinni verið lokað í sumar-
leyfum starfsfólks. Sú ákvörðun
var upphaflega tekin í sparnaðar-
skyni en hefur reynst vel sem lið-
ur í endurhæfingu sjúklinganna.
Nú gerist það í miðjum sumar-
leyfum að starfsfólk fær bréf um
að deildin verði ekki opnuð 28.
ágúst eins og um var talað, heldur
verði hún lokuð um óákveðinn
tíma, a.m.k. til áramóta, vegna
fjárskorts hjúkrunarsviðs geð-
deildanna í heild - „ofeyðslu mið-
að við fjárlög." Starfsfólk
deildarinnar er mjög óánægt með
þessar fréttir í miðju sumarleyfi.
Ekki einu sinni læknar deildar-
innar né deildarstjóri fengu þess-
ar fréttir fyrr en um síðustu helgi.
Forsvarsmönnum stofnunarinnar
hlýtur að hafa verið ljóst fyrr en í
sumar að fjárhagsstaðan væri
komin í óefni og því getað rætt
við stjórnendur og annað starfs-
fólk um hvar hægt væri að spara.
Starfsfóik hefur áhyggjur af
vistmönnum sem beðið hafa eftir
plássi á deildinni og finnst frek-
lega að þeim vegið. Það er einnig
gróft brot gagnvart starfsfólki
deildarinnar að fá þessar fréttir í
miðju fríi með stuttum fyrirvara.
Það eru eindregin tilmæli til
stjórnar stofnunarinnar að svona
hlutir endurtaki sig ekki, deild 11
fái að halda starfsemi sinni áfram
og störf hennar verði metin að
verðleikum.
Sigríður Aðalsteinsdóttir.
Slgrí&ur starfar á deild 11 á
Kleppsspítala sem nýiega var lögð
niður, a.m.k. til bráðabirgða.
ísland - herstöð eða friðarsetur
Ráðstefna á Hallormsstað 27. - 28. ágúst
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi og Norðurlandi eystra gangast í sameiningu fyrir opinni ráðstefnu
helgina 27. - 28. ágúst um baráttuna gegn erlendum herstöðvum og hlutdeild íslands í baráttu fyrir friði og afvopnun.
Ráðstefnan verður haldin í Hótel Eddu á Hallormsstað þar sem þátttakendur geta fengið gistingu og fæði á sérkjörum.
Sólarhringurinn með fæði og gistingu í eins manns herbergi kostar kr. 3.500,- en kr.3.100,- á mann, ef gist er í 2ja manna
herbergi. Einnig er svefnpokapláss til reiðu.
Væntanlegír þátttakendur í ráðstefnunni eru beðnlr að skrá sig hjá Hótel Eddu Hallormsstað, sími 11705, fyrir
22. ágúst.
Dagskrá ráðstefnunnar
Laugardagur 27. ágúst:
Kl. 13-18,30 Setning: Hjörleifur Guttormsson. Ólafur Ragnar Grímsson: Afvopnunarmál og erlendar herstöðvar. Albert
Jónsson, starfsmaður öryggismálanefndar: ísland og hernaðarstaðan á Norður-Atlantshafi. Svavar Gestsson: Alþjóð-
amál - ný viðhorf. Tómas Jóhannesson, eðlisfræðingur: Geislavirkni í höfunum og kjarnorkuvetur. Fyrirspurnir milli
erinda. Kynnt drög að ávarpi ráðstefnunnar. Almennar umræður.
Kl. 20.30 Skógarganga og kvöldvaka.
Sunnudagur 28. ágúst:
Kl. 09-12. ‘ _ '
Sólveig Þórðardóttir, Ijósmóðir: Nábýli
fulltrúa frá Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Kl. 13-15 Framhald baráttunnar, næstu skref. Umræður og niðurstöður.
. Gegn herstöðvum og hernaðarbandalögum: Steingrímur J. Sigfússon: Staðan á Alþingi og í þjóðfélaginu.
'órðardóttir, Ijósmóðir: Nábýli við herstöð. Ingibjörg Haraldsdóttir: Barátta herstöðvaandstæðinga. Ávörp
JVk Ráðstefnustjórar: Sigríður Stefánsdóttir og Magnús Stefánsson. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki. Fjölmennum i Hallormsstað. IHR
wk L. M Kjördæmísráð Alþýðubandalagsins W
Norðurlandi eystra og Austurlandi
Ath. Flugleiðir velta 20% afslátt á flugfargjöldum gegn skriflegri staðfestingu frá skrifstofu Alþýðubandalags-
ins Hverfisgötu 105 Reykjavík. S. 17500 og 28655.