Þjóðviljinn - 23.08.1988, Síða 5
Síldarstofninn er að styrkjast en ekki sýnileg aukning á sölu saltsíldar. Umframafli fyrir bræðslu.
Síld
Líkur á aukinni bræðslu
Hafrannsókn: Kvótinn í ár verði um 90þúsund tonn og 100þúsund tonn 1989 og 1990. Ekki er búist við aukningu
ísöltun. 1987 varsaltað í289.640 tunnur sem var 60% meira en saltað var að
meðaltali af Norðurlandssíld, frá 1935
Hafrannsóknarstofnun eerir
ráð fyrir að á komandi síldar-
vertíð verði kvótinn um 90 þús-
und tonn sem er um 20 þúsund
tonna aukning frá því í fyrra. Þá
var heimiit að veiða rúmlega 70
þúsund tonn úr síldarstofninum.
Búast er við að ekki verði salt-
að meira til manneldis en gert var
á síðustu vertíð en þá var saltað í
289.640 tunnur en því meira sett í
bræðslu. Söltun Suðurlandssíldar
á vertíðinni í fyrra var um 60%
meiri en saltað var að meðaltali af
Norðurlandssíld frá því Sfldarút-
vegsnefnd tók til starfa 1935.
Hjá Sfldarútvegsnefnd eru
menn þegar farnir að huga að
sölusamningum við Svía, Finna
og Sovétmenn en ekki er gert ráð
fyrir að samningahjólin fari að
snúast fyrir alvöru fyrr en seinna í
haust. Ef að líkum lætur kemur
það ekki á óvart þó að standi
eitthvað í stappi að semja við So-
vétmenn um verð á saltsfldinni
eins og endranær. En Sovétmenn
hafa til þessa verið aðalkaupandi
saltsíldar héðan.
Að sögn Jóns Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra
fiskimjölsframleiðenda verður
síld til bræðslu hrein viðbót við
loðnubræðsluna og er síld-
armjölið ekki síðra að gæðum en
loðnumjölið. Hátt verð fæst nú
fyrir loðnuafurðir og búist er við
að ekki minna fáist fyrir síld-
armjölið.
Á síðustu vertíð fengu 91 skip
úthlutað 72.930 tonnum af sfld.
Kvóti hvers skips nam því um 800
tonnum. Alls framseldu 34 skip
27.972 tonn af sfld og fóru því 55
skip til veiða og fengu samtals
75.439 tonn. Þar af fóru til fryst-
ingar 19.269 tonn, til söltunar
32.613 tonn og til bræðslu 25.556
tonn eða um 34%. Aðalveiði-
svæðin voru innfjarða og í fjarða-
mynnum allt frá Loðmundarfirði
suður á Fáskrúðsfjörð. Langmest
veiddist af síld í Seyðisfirði og
Mjóafirði. Þar var sfldin stór og
feit en blandaðri í Reyðarfirði og
Fáskrúðsfirði.
í skýrslu Hafrannsóknastofn-
unar um horfur og tillögur um
afla 1988 og 1989 er gert ráð fyrir
að hrygningarstofninn verði um
500 þúsund tonn 1988 en var 480
þúsund tonn 1987. Hafr-
annsóknarstofnun segir í skýrslu
sinni að ef aflinn á vertíðinni 1988
miðast við kjörsókn eins og á
undanförnum árum sé gert ráð
fyrir að hann verði um 100 þús-
und tonn eða um 30% meiri en
var 1987. Miðað við sömu for-
sendur myndi aflinn 1989 hins
vegar verða 95 þúsund tonn.
Miðað við tillögur stofnunarinn-
ar um hámarksafla síldar undan-
fariri ár sem hafa miðast við að
síldaraflinn væri annað hvort
stöðugur eða hægt vaxandi leggur
stofnunin til að hann verði í ár um
90 þúsund tonn og 100 þúsund
tonn 1989. Tillögur um leyfilegan
hámarksafla 1989 og 1990 verða
þó endurskoðaðar eftir því sem
niðurstöður rannsókna gefa ti-
lefni til. -grh
Útflutningsfyrirtœki
Skuldum breytt í hlutafé
Svanfríður Jónasdóttir varaformaður AB: Bankar ogsjóðir axlisína
ábyrgð á hvernig komið er skuldastöðu útflutningsfyrirtœkja
Iðntœknistofnun
Þjónusta á sviði
umbúðamála
Bankar og sjóðir hafa verið
duglegir að lána fé til útflutn-
ingsfyrirtækja undanfarin miss-
eri án þess að spyrja um rekstrar-
afkomuna heldur aðeins hvort
veð sé til fyrir skuldunum. Nú er
kominn tími til að þeir axli sína
ábyrgð og þessum skuldum út-
flutningsfyrirtækjanna sem eru
að sliga fyrirtækin, verði breytt í
hlutafé sem verði í umsjá starfs-
manna fyrirtækjanna", sagði
Svanfríður Jónasdóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins við
Þjóðviljann.
Upplýsingaþjónusta á sviði
umbúðamála hefur verið tekin
upp hjá iðntæknistofnun Islands í
því skyni að efla þekkingu á um-
búðum og flutningum og byggja
upp gagnabanka sem nýst getur
íslenskum fyrirtækjum.
Rekstrartæknideild Iðntækni-
stofnunar sér um umbúðaþjón-
ustuna. Efnt hefur verið til sam-
starfs við Umbúða- og flutninga-
stofnunina í Danmörku til að ís-
Iensk fyrirtæki eigi þar greiðari
aðgang að tækjakosti til prófunar
á umbúðum sínum. Jafnfamt hef-
ur Iðntæknistofnun gerst aðili að
SES, samtökum umbúðastofn-
ana á Norðurlöndum.
Ætlunin er að gefa út fréttabréf
með völdum greinum úr því
mikla magni sem stofnuninni
berst reglulega um umbúðamál
auk þess sem fyrirtæki eiga kost á
upplýsingum um ákveðin efni úr
gagnabankanum. Þá mun stofn-
unin skipuleggja hópferð um-
búðaframleiðenda og umbúða-
notenda á sýninguna Scanpack 88
í Gautaborg í október og fyrir-
tæki á þessu sviði.
Iðntæknistofnun hefur um ára-
bil veitt ráðgjöf um EAN strika-
merkingar, en full þörf er á víð-
tækari upplýsingaþjónustu um
umbúðamál. Sífellt harðnandi
samkeppni eykur stöðugt mikil-
vægi umbúðanna sem sölutækis.
Eigi íslensk framleiðsla að vera
samkeppnisfær við útlenda er
ekki síst mikilvægt að vörurnar
séu í boðlegum umbúðum.
Á fundi Alþýðubandalagsins
sem haldinn var í Kópavogi í gær-
kvöld undir yfirskriftinni „Hvað
ber að gera?“ varpaði Svanfríður
þessari hugmynd fram sem til
greina kæmi sem lausn á þeim
gríðarlegu skuldum sem útflutn-
ingsatvinnuvegirnir eiga við að
glíma í dag. Á sama tíma sem
óhagstæð gengisþróun minnkar
tekjur útflutningsgreinanna sam-
fara auknum innlendum kostn-
aði, eru fyrirtækin að kikna
undan gríðarlegum fjármagns-
kostnaði. Svanfríður telur að
bankar og sjóðir eigi þarna sök á
því hvernig komið er með því að
lána óspart fé til fyrirtækjanna án
tillits til rekstrargetu þeirra, og
segir að lánafyrirgreiðslan bygg-
ist einungis á því hvort viðkom-
andi fyrirtæki eigi veð fyrir skuld-
unum eða ekki.
„Það er engin spurning um að
þetta verður ekki framkvæmt
nema með stjómvaldsaðgerðum
enda er hér um fé opinberra
banka og sjóða að ræða“, sagði
Svanfríður Jónasdóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins.
-grh
Þriðjudagur 23. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5