Þjóðviljinn - 03.09.1988, Side 5
FRETTIR
Rœkja
Ovenjumikil birgöasöfnun
Félag rœkju-og hörpudiskframleiðenda: Allt að helmingi meiri en
eðlilegt má teljast. Erfið rekstrarstaða vegna minni sölu og
kostnaðarhœkkana innanlands. Yfirborganir heimskulegar og
heimatilbúið vandamál
Birgðasöfnun hjá rækjuverk-
smiðjum er allt að helmingi meiri
nú en oft áður. í júlí og ágúst hef-
ur verið lítið um afskipanir og
sala á rækjuafurðum erlendis
hefur verið í járnum. í dag er tal-
ið að á landinu séu um 2 þúsund
tonn af rækjuafurðum í geymsl-
um en í eðlilegu árferði eru birgð-
ir innan við þúsund tonn.
Að sögn Jóns Alfreðssonar
formanns Félags rækju-og hörpu-
diskframleiðenda er rekstur
margra rækjuverksmiðja afar erf-
iður um þessar mundir og stefnir í
taprekstur annað árið í röð.
Verðfall hefur orðið á rækjuaf-
urðum erlendis, gengisþróun hef-
ur verið óhagstæð, en meirihluti
afurðanna er seldur í sterlings-
pundum. Taldi Jón ekki ólíklegt
að söluverð afurðanna hafi lækk-
að í ár miðað við sama tíma í fyrra
um 5-10%. „Okkar vandi er hinn
sami og er hjá öðrum greinum
sjávarútvegs. Sífelldar kostnað-
arhækkanir hér innanlands sam-
fara lækkun á afurðaverði er-
lendis. Að öllu óbreyttu er tapið í
ár og í fyrra nálægt því að vera
það sem við teljum okkur eiga
inni í Verðjöfnunarsjóði eða um
500 miljónir króna“, sagði Jón
Alfreðsson.
Formaður rækjuverksmiðja
telur þó að þrátt fyrir barlóminn í
dag megi allt eins búast við að
rækjuverð hækki eitthvað sökum
minni framleiðslu hjá Norð-
mönnum en oft áður.
Að hluta til er ástæðan fyrir
erfiðum rekstri rækjuverksmiðja
nú og í fyrra vegna yfirborgana á
hráefni og sagði Jón að vissulega
væri sá hluti heimatilbúið vanda-
mál og afar heimskulegt að yfir-
borga hráefnið. „Eina afsökunin
er að það er mjög erfitt fyrir verk-
smiðju að neita yfirborgun þegar
sú við hliðina gerir það. Að sjálf-
sögðu verða þær verksmiðjur
sem hafa reist sér hurðarás um
öxl í yfirborgunum að taka afleið-
ingum gerða sinna“, sagði Jón
Alfreðsson.
Vegna lélegra gæfta og afla-
bragða í sumar er talið afar ólík-
legt að rækjuveiðiskipum takist
að klára kvótana sína að þessu
sinni. Og líkurnar á því minnka
sífellt þegar haustveðrin byrja og
mun erfiðara verður fyrir minni
bátana að sækja á miðin. f árs-
byrjun var þó nokkuð af kvóta
tekið frá smærri bátunum og fært
yfir á loðnuskipin til að auka
verkefni þeirra á milli loðnuver-
tíða. Mörg þeirra eru með frysti-
tæki um borð og heilfrysta rækj-
una fyrir Japansmarkað. Það hef-
ur hinsvegar leitt til þess að mun
minna af rækju hefur komið til
vinnslu í landi en oft áður.
Konungskoma
Ólafur Noregs-
konungur
í heimsókn
Kemur á mánudag.
Skoðar skógrœkt,
Reykholt, Þingvelli og
Viðey
Ólafur V Noregskonungur
kemur í opinbera heimsókn til ís-
lands á mánudag í boði Vigdísar
Finnbogadóttur forseta. Ölafur
dvelur hér og ferðast víða um
fram á fimmtudag.
Á mánudag ætlar Olafur, sem
varð áttræður fyrr í sumar, að
taka á móti löndum sínum og
þiggja matarboð hjá forseta á
Bessastöðum.
Á þriðjudag mun Ólafur kon-
ungur ferðast víða um, skoða
rannsóknarstöð Skógræktar rík-
isins að Mógilsá, fara til Þingvalla
og þaðan með þyrlu til Reykholts
þar sem forseti fslands leggur
hornstein að Snorrastofu sem nú
er í byggingu m.a. fyrir þjóðhát-
íðargjöf Norðmanna.
Ýmis söfn og stofnanir í höfuð-
borginni verða skoðuð á mið-
vikudeginum og farið í ferð til
Viðeyjar en Ólafur heldur heim-
leiðis á fimmtudagsmorgun.
-•g-
-grh
Heimshlaupið
Flestir vilja ganga
Hefst kl. 15 á sama tíma um allan heim
sunnudaginn 11. septembernk. Tveir
unglingar valdir til að hlaupafyrir ísland í
New
Heimshlaupið “88 sem hefst II.
september nk. verður nú með
öðru sniði en upphaflega var gert
ráð fyrir. Ætlunin var að þátttak-
endur mundu hlaupa 3 kflómetra
en þess í stað gefst fólki kostur á
að ganga, skokka eða hlaupa
þessa vegalengd.
Breytingin er tilkomin vegna
niðurstaðna sem komu í ljós úr
skoðanakönnun sem efnt var til á
vegum Rauða krossins vegna
Heimshlaupsins. Um 200 manns
voru spurðir um þátttöku þess í
almennum hlaupum, ástæður
fyrir þátttökunni og hvaða vega-
lengd hentaði þeim best. Helm-
ingur aðspurðra eða 100 manns
lýstu mestum áhuga á að ganga
fremur en að hlaupa og af þeim
York
sökum var þessi breyting ákveð-
in.
Tvær fulltrúar íslands hafa ver-
ið valdir til að hlaupa fyrir íslands
hönd þegar heimshlaupið hefst
fyrir framan byggingu Samein-
uðu þjóðanna 11. september nk.
og voru þeir valdir úr hópi ung-
menna. Hin heppnu voru þau
Karl Guðmundsson frá Hafnar-
firði og Sólveig Þráinsdóttir frá
Akureyri.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá skipuleggjendum Heims-
hlaupsins “88 er mikill áhugi á
hlaupinu hérlendis og hafa þegar
20 staðir á landsbyggðinni til-
kynnt þátttöku en hlaupið hefst
klukkan 15 á sama tíma um allan
heim, sunnudaginn 11. septemb-
er nk. -grh
Þau Karl Guömundsson frá Hafnarfirði og Sólveig Þráinsdóttir frá
Akureyri voru valin úr hópi unglinga til að hlaupa í Heimshlaupinu 1988
fyrir íslands hönd þegar hlaupið verður ræst kl. 15 fyrir framan bygg-
ingu SÞ í New York 11. september nk. Mynd: Jim.
með ættamafn. Þegar tímar I?
lögðu þessar margcfldu fj
skyldur undir sig Latínuskólan _
Reykjavík og þar lærðu meni
ýmislegt annað en að græða pen-
inga. Þar lærðu menn að verða
embættismenn og stjórnmála-;v
mcnn á danska vísu og tryggja'.
þar með viðgang ætta sinna og
HvCMtSórí?l
t*g"\8-
ntatp^adÓIt1
« '.n _. Wfjiar.WClá^a-*ogá íjálfu
Gtt^t jp,. ‘ÓAÍjfAffgi. Ogtafarlaustætti Ólafur
cnn Ragnar að gera ættfræði að aöal-
tyeiríWt grcin við kennslu í stjórnmála-
fræðum við Háskóla íslands. Þá
kynnu menn að fara að nálgast
svaríð við spurningunni: Hvcrjir
eiga ísland?
Þetta fólk á ísland cins og það
leggur sig. Þvf eignarhaldi lýkur
ckki fyrr en menn horfast f augu
við þá staðrcynd. Þctta fólk hcfur
svfnbeygt vcrkalýðsforystuna og
Ultt fja* . «>ivci\fR'ins. Þangað til
;!!<{*.! Serour komið fyrir. Og litlu
ríku strákarnir scm gættu au-
ranna cru kannski ckkcrt ríkir
lengur, eða ckki lcngur cn ætta-
vcldinu sýnist. Frcmur cn ýmsir
aðrir scm ættimar ákváðu aö
setja á hausinn. Ef Kókakóla-
fólkið lcyfir ekki Sólkóla, fcr
Sólkóla á hausinn. Maður stopp-
ar bara erlend lán til þeirra. Búið
mál.
Einu sinni var Albcrt Guð-
mundsson fjármálaráðhcrra. Þá
var ég að vona að hann skildi
loksins af hverju hann fckk aldrci
NÝTT HELQARBLAD - ÞJÓOVILJINN - SfOA 13
Gudrún Heigadóttír
auðs á öllum sviðum þjóðfélags- skemmra er sfðan hitaveitustjór-
ins. Dætumar vom dubbaðar inn í Reykjavík (af ættinni Zo-
upp á árshátfð scolae Reicjavic- éga, með z-u þrátt fyrir stafsctn-
ensis til að verða sér úti um eigin- ingarlög) lét Reykvíkinga greiða
mann meðal þcssara óskabarna bróðurbömum konu sinnar (af
þjóðarinnar. Það var ekki fyrr cn Engeyjarætt) 60 miljónir fyrir
seinna að þær lærðu aö draga til holt og móa ofan við sumarhús
samvinnuhreyfinguna, vcgna inngöngu f ættavcldið. Að hann
þess að cnginn vill viðurkcnna að skildi loksins að skilyrði fyrir
hann eigi sig ekki sjálfur. Allra inngöngu cr að hafa ekki unnið
síst litlir framagjarnir strákar scm fyrir auði sínum sjálfur, hcldur að
cygja ekkert annað líf fyrir þessa ráða yfir aflafé annarra. Að í
þjóð en það líf scm byggt cr á klúbbnum þcim vinna mcnn ekki
forsendum hefðbundins og lög- fyrir peningum, hcldur pcningar
gróins vana. Nægir að ncfna að fyrir mönnum. Er nokkur von til
samvinnuhreyfingin mcðhöndlar þcss að Jón Baldvin skilji þctta
bændur landsins cins og þurfa- betur? Svo að hann geti á cnda-
menn á sama hátt og útgcrðar- numáttsigsjálfurogsvaraðmjög
valdið útdcildi gulum miðum f svo gáfulegri spurningu sinni
stað launa hér á ámm áður og svona: Svar: Við cigum (sland.
fomstumcnn Iffcyrissjóða laun- Mcð eld f augum.
þega stunda okurlán eins og vei- GuBrún llclgadöttir
Dylgjum svarað
Guðnín, Pressan og Jón Bakhrin
í helgarblaði Þjóðviljans í gær
birtist ágæt grein Guðrúnar
Helgadóttur alþingismanns um
það hvar peningarnir og völdin
liggi í íslensku þjóðfélagi. Leggur
þingmaðurinn út af slagorðinu
„Hverjir eiga ísland?“, sem for-
maður Alþýðuflokksins gerði
frægt hér um árið. Tekur Guðrún
Jón Baldvin hressilega á beinið,
eins og henni einni er lagið, og
ekkert nema gott um það að
segja.
Þjóðviljinn slær því upp að
þetta sé palladómur um fjármála-
ráðherra, sem Pressan hafi neitað
að birta, og finnst henni eflaust
heldur betur hafa komist í feitan
bita þar. Nýja óháða vikublaðið
bara á fullu að verja „foringj-
ann“! Þær dylgjur eiga hins vegar
ekki við nokkur rök að styðjast.
Pressan leitaði vissulega til
Guðrúnar Helgadóttur um miðj-
an ágústmánuð og bað hana um
að skrifa palladóm - nokkurs
konar „próffl" í léttum dúr - um
einhvern annan stjórnmála-
mann. Eina skilyrðið var það, að
hann væri ekki samflokksmaður
hennar sjálfrar. Rúmum tveimur
vikum síðar hafði þingmaðurinn
samband við ritstjóra Pressunnar
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
og kvaðst tilbúinn með grein, en
ekki vera viss um að hún félli inn í
hinn umrædda palladóms-
ramma. Þessu var undirrituð
sammála, því eins og lesendur
Þjóðviljans sáu í gær féll umfjöll-
un Guðrúnar alls ekki undir þá
„formúlu". Þetta voru vangavelt-
ur um það hvar peningarnir og
völdin lægju á íslandi. Slík grein
hefði stungið álíka í stúf sem
palladómur og íþrótta- og slysa-
fréttir myndu gera í því plássi,
sem ætlað er leiðara.
Það var þess vegna einvörð-
ungu af faglegum ástæðum - ekki
pólitískum - að ég kannaði hvort
þingmaðurinn hefði tök á að
skrifa aðra grein fyrir blaðið; í
þeim dúr sem upphaflega hafði
verið rætt um. Guðrún kaus að
gera það ekki, enda tíminn líka
orðinn naumur þar sem skrif
hennar bárust Pressunni einungis
tveimur sólarhringum fyrir prent-
un blaðsins. Niðurstaðan varð
því sú, í sátt og samlyndi, að ekk-
ert yrði af skrifum Guðrúnar
Helgadóttur í fyrsta tölublaði
Pressunnar. Þótti mér það raunar
miður, því hún er aldeilis frábær
penni og getur verið mikill húm-
oristi. Það var jú einmitt af þeim
sökum, sem leitað var fyrst til
Guðrúnar Helgadóttur, þegar
hugmyndin að palladómum
Pressunnar fæddist!
Reykjavík 2. sept. 1988
Jónína Leósdóttir,
ritstjóri Pressunnar
Svar Nýja helgarblaðsins
Við þessa lofgjörð Jónínu Leós-
dóttur, ritstjóra Pressunnar, helgar-
blaðs Alþýðublaðsins, um Guðrúnu
Helgadóttur, er engu að bæta. Hins-
vegar sjáum við ekki hvaða dylgjum
Jónína er að svara. Einsog fram kem-
ur í svarinu var Guðrún Helgadóttir
beðin að skrifa grein um einhvem
stjórnmálamann og eina skilyrðið
sem sett var, var að greinin fjallaði
ekki um flokksbróður eða -systur
hennar. Hún kaus að taka „Jón Bald-
vin hressilega á beinið, eins og henni
einni er lagið,“ einsog ritstjóri Pres-
sunnar kemst að orði. Ritstjórinn
kaus hinsvegar að birta ekki greinina
einsog Nýja helgarblaðið sagði í gær.
Við þetta er engu að bæta og hvetjum
við þá sem ekki hafa lesið grein Guðr-
únar til að gera það sem fyrst. Við
bjóðum svo Pressuna velkomna í
samkeppnina, enda engin pressa á
okkur.
Sigurður Á. Friðþjófsson, um-
sjónarmaður Nýja helgarblaðs-
ins.