Þjóðviljinn - 03.09.1988, Síða 8
VIÐHORF
Ég þakka Guðmundi Helga
Þórðarsyni heilsugæslulækni
greinar hans tvær í Þjóðviljanum
16. og 18. ágúst sl. Báðar benda
þær á hversu ytri skilyrði vega
þungt, þegar leita skal leiða til að
auka heilbrigði í samfélaginu.
Langur vinnudagur og miklar
tannskemmdir eru íslensk sér-
kenni, sem ekki þykja hæfa sem
ræðuefni, þegar útlendingum er
kynnt hin merka þjóð í norðri.
Staðreynd eigi að síður, sem við
verðum að taka markvissar á en
gert hefur verið. Ekki vegna út-
lendinganna, heldur til þess að
auka eigin velferð og minnka
kostnað samfélagsins af „við-
gerðarþjónustu“ heilbrigðiskerf-
isins.
Guðmundur Helgi vekur at-
hygli á góðu fordæmi Norð-
manna í viðleitninni við að
minnka sælgætisát bama. Með
samkomulagi heilbrigðisyfir-
valda og verslunarfyrirtækja á-
kváðu þeir 1974 að sælgæti skyldi
ekki staðsett nærri greiðslu-
kössum eða biðröðum viðskipta-
vina. í þessi fótspor ættu íslensk
heilbrigðis- og verslunaryfirvöld
að feta og létta þannig erfiðum
stundum freistingarinnar af börn-
um okkar.
Sjoppufreistni
má minnka
Fleiri ráð eru tiltæk til þess að
hamla gegn ofneyslu óhollustu og
vanda fæðuval barna og ung-
linga. Freistingar í líki sjoppa em
Betri tannheilsa
Kristín Á. Ólafsdóttir skrifar
einhverra hluta vegna víða í
næsta nágrenni skólanna. Nem-
endur em þar tíðir viðskiptavinir,
en uppbyggileg neysluvara ekki
að sama skapi fjölskrúðug á búð-
arborðum. Það væri öllum til
góðs, að sjoppufreistingunni væri
aflétt af bömum og unglingum
þá hugsun, að meta meir
þrengstu eiginhagsmuni en al-
menna velferð bama og unglinga
þjóðarinnar. Ofneysla sælgætis á
reyndar þátt í fleiri sjúkdómum
en tannskemmdum, svo sem of-
fitu og æðasjúkdómum, og svo
má nefna reykingamar, sem ekki
leyfa ekki slíka starfsemi nálægt
skólum.“
í tillögu minni er ekki kveðið á
um hversu mikil fjarlægðin frá
skólunum skuli vera. Ofan-
greindum embættismönnum
heilbrigðisgeirans er falið að
móta um það reglur. Ef sam-
„Efsamþykkt verður að nýjar reglur um
starfsleyfi söluturna taki gildi um næstu ára-
mót er ekki þar með sagt að 1. janúar verði
öllum sjoppum í næsta nágrenni grunnskóla
lokað. Það má hugsa sérýmsar leiðir um að-
lögunartíma. “
meðan á skólatíma stendur. Ég
segi öllum, og hef þá ekki gleymt
eigendum söluturnanna. Þeir eru
skattgreiðendur eins og við hin,
og gera sér auðvitað grein fyrir
þeim gífurlega kostnaði sem
rennur úr opinberum sjóðum í ár-
legar tannviðgerðir. Auk þess
ætla ég ekki eigendum sjoppanna
GERPLA - FiMLEIKAR
Æfingatöflur afhentar mánudaginn 5. septemb-
er.
Byrjendur kl. 16.00-18.00.
Framhald kl. 18.00-20.00.
Fimleikadeild Gerplu
sími 74925
_Dale .
Camegie
þjálfun
RÆÐUMENNSKA OG
MANNLEG SAMSKIPTI
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 8.
september kl. 20.30 á Sogavegi 69.
Allirvelkomnir.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfæring-
arkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og
viðurkenningu.
★ Talið er að 85% af velgengni séu komin und-
ir því hvernig þér tekst að umgangast aðra.
★ Starfa af meiri lífskraftí - heima og á vinnu-
stað.
★ Halda áhyggjunum í skefjum og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma 82411
0
STJÓRIMUIVIARSKÓLIIMIM
% Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin*
eru óþekkt fyrirbæri í „sjoppu-
frímínútunum". Fyrir
heilbrigðisráði Reykjavíkur
liggur nú tillaga, sem undirrituð
flutti fyrir nokkrum vikum. Hún
hljóðar svo:
„Heilbrigðisráð samþykkir þá
stefnumótun, að sjoppur verði
ekki starfrœktar nálœgt grunn-
skólum borgarinnar. Borgar-
lœkni, yfirskólatannlækni og
hjúkrunarforstjóra Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur erfalið að
móta tillögur um reglurþar að lút-
andi. Stefnt skal að því að nýju
reglurnar taki gildi um nœstu ára-
mót. “
Þessi tillaga er í takt við tilmæli
Tannverndarráðs, sem starfar á
vegum heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins. Ráðið telur
að „mikill fjöldi söluturna og
óheppileg staðsetning þeirra sé
ein af ástæðunum fyrir því hve
fæðuval og matarvenjur okkar
eru slæmar“ svo vitnað sé í erindi
til heilbrigðisráðs borgarinnar.
Þar segir einnig: „Við teljum
nauðsynlegt að sveitarstjórnir
beiti áhrifum sínum á þessu sviði
meir en hingað til með því t.d. að
þykkt verður að nýjar reglur um
starfsleyfi söluturna taki gildi um
næstu áramót, er ekki þar með
sagt að 1. janúar verði öllum
sjoppum í næsta nágrenni grunn-
skóla lokað. Þá má hugsa sér
ýmsar leiðir um aðlögunartíma.
Á fundi heilbrigðisráðs í dag
(föstudag) kemur í ljós hvort
samstaða næst um þessa stefnu-
mótun.
Vernd í tæka tíð
Á þeim fundi skýrist einnig,
hvort heilbrigðisráð Reykjavíkur
sameinast um áskorun til Álþing-
is um að breyta þátttöku hins op-
inbera í tannlæknakostnaði fyrir
börn undir skólaaldri. Nú eru að-
eins 75% kostnaðarins endur-
greidd foreldrum, en í tillögu
undirritaðrar er farið fram á fulla
endurgreiðslu, eins og gildir um
börn á skólaaldri. Breytingin ætti
að stuðla að því að betur verði
fylgst með tönnum bama frá upp-
hafi og þar með unnið markvissar
gegn tannskemmdum.
Vissulega hefur tannskemmd-
um í börnum og unglingum
fækkað blessunarlega síðustu ár.
í skólum Reykjavíkur hefur svo-
nefnd DMGT-tala 12 ára barna
minnkað úr 7.38 á skólaárinu
1980-1981 í 4.94 skólaárið 1986-
87. Þetta er meðaltal skemmdra
+ úrdreginna + fylltra fullorðin-
stanna. Ástæður minnkandi
tannskemmda em sjálfsagt
nokkrar. Aukin fræðsla og
áróður skilar sér í vaxandi að-
gæslu barna og foreldra. Fullyrt
er, að flúomotkun skipti sköpum
um tannheilsu. Og svo er ekki
ólíklegt að við fjölgun tannlækna
og þar með færri munna á hvern,
fari meira af tíma þeirra í „dútl“
við tennur, þ.e.a.s. hreinsun og
því um líkt, en ekki eingöngu í
viðgerðir á skemmdum. Þetta
„dútl“ er mikilvægt forvarnar-
starf, en spuming er, hvort ódýr-
ari starfskraftur nýttist ekki til
þess.
Þótt þróunin sé í rétta átt, er
núverandi ástand fjarri því að
vera gott. Aðrar Norðurlanda-
þjóðir sýna okkur, að
tannskemmdum má ná langt nið-
ur fyrir það sem hér tíðkast.
Kostnaður samfélagsins og ein-
staklinga af tannviðgerðum er
gífurlegur hérlendis. Á síðasta ári
kostaði t.d. tannþjónusta við ne-
mendur gmnnskólanna tæplega
136,4 miljónir króna. Helmin-
gurinn er greiddur beint úr borg-
arsjóði, en hinn helmingurinn af
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur.
Þegar leitað er leiða til þess að
draga úr opinberum kostnaði
vilja menn einblína á niðurskurð í
starfsmannahaldi. Það sýna t.d.
fréttir úr fjármálaráðuneyti síð-
ustu daga. Hvað varðar
heilbrigðisgeirann væri skynsam-
legra að skoða möguleika á
fyrirbyggjandi starfi og breyting-
um ytri aðstæðna, sem brjóta nið-
ur heilsu fólks. Þar er af mörgu að
taka, svo sem miklu vinnuálagi,
vaxtafjötmm íbúðakaupenda, af-
leitum uppeldisaðstæðum fjölda
bama og þannig mætti lengi upp
telja. Varðandi aukið tann-
heilbrigði hef ég hér bent á
nokkrar færar leiðir og þær em
eflaust fleiri. Stjórnmálamenn
sem og aðrir þurfa að muna
gamla spakmælið um að byrgja
bmnninn áður en barnið dettur i
hann.
Kristín er borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík.
MINNING
Jóhanna María Jóhannesdóttir
Fœdd 17. febrúar 1911 - Dáin 29. ágúst 1988
Á morgun verður til moldar
borin Jóhanna María Jóhannes-
dóttir sem lést á Krabbameins-
lækningadeild kvenna á Lands-
pítalanum þ. 29. ágúst s.l. Jó-
hanna fæddist á Oddsflöt í
Grunnavík dóttir Margrétar Sig-
mundsdóttur sem síðar bjó um
áratuga skeið í Bolungavík og Jó-
hannesar Jóhannesarsonar. Hún
ólst upp hjá móðurforeldrum sín-
um Elínu Arnórsdóttur og Sig-
mundi Hagalínssyni.
Það em áratugir síðan Gmnna-
vík í Jökulfjörðum í Norður-
ísafjarðarsýslu fór í eyði; með
breyttum búskapar- og atvinnu-
háttum í kjölfar lýðveldistökunn-
ar týndu bæir þar tölunni einn af
öðmm.
Fólkið sem ólst þar upp bar
sterkar taugar til sveitarinnar og
þannig var um Jóhönnu, fyrir
henni var Gmnnavík helgur stað-
ur og til uppeldis síns þar sótti
hún lífsspeki og lífstrú. Fólkið
þar var alið upp við erfiðar að-
stæður og oftast nokkra fátækt,
en samheldnin og samhjálpin var
í fyrirrúmi, auk bjartsýni og trúar
á lífið og hið góða í samferða-
manninum.
Af þessum rótum mótaðist Jó-
hanna þótt hún flyttist til ísa-
fjarðar og síðan til Reykjavíkur,
þar sem hún bjó lengst af ævinnar
síðustu árin á Miklubraut 88 þar
sem hún hélt heimili með syni sín-
um Skúla Sigurjónssyni. Önnur
börn hennar eru dæturnar Vig-
fúsína og Sigrún, synirnir Karl og
Sigmundur, en hann fórst með
togaranum Júlí ásamt eigin-
manni hennar Magnúsi Guðm-
undssyni. Einnig ól hún upp son-
arson sinn Finnboga Karlsson.
Á Miklubraut, sem og öðram
stöðum sem hún bjó á, hélt hún í
heiðri siði og venjur frá æsku-
stöðvunum. Þar var alltaf opið
hús og svo gestkvæmt að oft var
sofið í öllum homum, því ætti
einhver ættingi, vinur eða fjar-
skyldur frændi erindi til Reykja-
víkur var Miklabrautin oftast
fyrsti og síðasti áningarstaður.
Óg þá notaði Jóhanna tækifærið
til að kalla á ættingjana sem á
höfuðborgarsvæðinu bjuggu í
mat eða kaffi. Ef hún hefði ekki
gert það er ömggt að margt af
fólkinu hennar þekktist ekki. Öll
böm og ungviði löðuðust að
henni og þyrfti einhver að koma
bami í pössun var ömggt pláss og
mjög vinsælt á Miklubrautinni.
Oft var þröng í búi hjá Jó-
hönnu, en aldrei var þó svo
þröngt að hún gæti ekki rétt bág-
stöddum hjálparhönd eða lið-
sinni.
Væri afmæli, ferming eða ein-
hver merkisdagur í ættinni gátum
við gengið að því vísu að hún
kæmi í heimsókn. Gæti hún það
ekki vissi fólk að það myndi
heyra frá henni, oftast hlýlegt
símtal og ef ekki náðist þannig þá
kom símskeyti. Væri einhver um
lengri eða skemmri tíma á sjúkra-
húsi kom hún ávallt með sína
léttu lund, glaðværð og bjartsýni
sem hafði hressandi og bætandi
áhrif á líðan allra sem kynntust
henni og umgengust hana.
Og ekkert breyttist hún við að
ganga í gegnum þann erfiða sjúk-
dóm sem að lokum bar hana ofur-
liði; lundin, bjartsýnin og kjark-
urinn óbilaður allt til enda. Einn
sið tók hún snemma upp en það
var að gefa öllum barnabörnun-
um sína fyrstu skeið, og finnst
þeim hún sinn mesti dýrgripur.
Eitt það síðasta sem hún gerði var
að sjá svo til að það yngsta fengi
sína skeið.
Þegar við nú kveðjum hana í
hinsta sinn koma upp í hugann
þessar ljóðlínur eftir Éinar Bene-
diktsson:
Gengið er valt þar fé er falt,
fagna skaltu í hljóði.
Hitt verður alltaf hundraðfalt,
sem hjartað galt úr sjóði.
Dóttir, börn, barnabörn og
barnabarnabarn á Akranesi
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. september 1988